Amma

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1961)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-1
Staður
Núverandi sveitarfélag: Þingeyjarsveit, Þingeyjarsveit
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Minning um ömmu
Föðuramma mín hér Marína Baldursdóttir fædd 20. október 1908 á Lundarbrekku í Bárðardal í Suður Þingeyjarsýslu.  Hún bjó alla sína ævi á Lundarbrekku og var húsmóðir á stóru sveitaheimili.  Hún naut barnafræðslu heima á Lundarbrekku hjá föður sínum Baldri Jónassyni og þegar hún var 18 ára var hún einn vetur í Húsmæðraskólanum á Blönduósi.
Fyrstu tæpu sex æviár mín bjó ég ásamt foreldrum mínum og eldri systur í sama húsi og amma og afi.  Ég á margar góðar minningar af ömmu og ein sú fyrsta er af mér í eldhúsinu hjá henni að fylgjast með henni baka og vilja fá að taka þátt.  Amma fór ekki í útiverk var fyrst og fremst í heimilisverkum og við barnabörnin áttum hjá henni athvarf og vorum farin að taka þátt í verkunum með henni um leið og getan leifði.  Amma var glaðsinna og bjartsýn hafði mjög gaman af tónlist og söng.  Hún blístraði gjarnan við eldhússtörfin og sérstaklega á ég minningar um blístur undir sálmasöng í útvarpssmessu á sunnudögum.  Hún var félagsvera og naut þess að taka þátt í félagsskap, hún var félagi í Kvenfélaginu Hildi í Bárðardal og formaður þess í samfellt 30 ár.  Einnig var hún í fjölda ára í orlofsnefnd húsmæðra og naut þess að fara í orlofsferðir ár hvert.  Afi var alvarlegri og stundum svartsýnn og þungur en samband þeirra var gott og þau voru samhent í að sinna okkur barnabörnunum.  Ég fór oft til þeirra og spilaði við þau eða þau við mig.  Amma sá um að kenna okkur eldri barnabörnunum að lesa og hafði síðan söngstund með okkur á eftir.  Hún saumaði og prjónaði á dúkkurnar mínar og leifði mér að þvælast með sér í eldhúsi og snemma fékk ég kaffi í mjólkina mína hjá henni.  Amma var í grunninn kvennréttindakona og hlakkaði mikið til þess að fá sín eigin eftirlaun inn á sinn reikning og ég gleymi aldrei sárindum hennar  og vonbrigðum þegar hún fékk fyrstu greiðsluna og hún var lögð inn á reikning hjá afa.  Þá hét ég því með sjálfri mér að verða aldrei fjárhagslega háð einhverjum karli, þegar þetta var var ég rúmlega fermd.
Amma fór með okkur barnanbörnin í eina góða gönguferð á hverju sumri.  Á hverju sumri fór hún með okkur í Hrútagil sem er falleg gilskora í landi Lundarbrekku.  Þá var hún búin að baka eitthvað gott og bar nesti með sem við nutum í náttúrunni og hún miðlaði af fróðleik og gleði.  Ég á líka minningar um svona ferðir með henni í gögnuferð í Aldey sem er upp með Skjálfandafljóti að austan og í Sexhólagil sem er stórbrotið gil milli bæjanna Litluvalla og Halldórsstaða í Bárðardal.
Amma var mjög metnaðarfull fyrir hönd okkar barnabarnanna  að við stæðum okkur vel í námi og lét í ljós þegar hún var ánægð með framistöðu okkar og fylgdist vel með skólagöngu okkar.  Heimilislífið á Lundarbrekku var í föstum skorðum og verkaskipting  mjög skýr milli kynjanna.  Árstíðabundin verk voru hirðing fjár á vetrum og sauðburður á vorin og heyskapur á sumrin og svo göngur og réttir að hausti, sláturtíð í október, svo var farið að huga að saumaskap og hreingerningu fyrir jólin og jólahald mjög fastmótað í bernsku minni og þar stjórnaði amma viðburðadagskrá fyrir okkur börnin, hún bakaði með okkur, föndraði söng jólalögin, hafði jólakaffi og sá um að dansað yrði í kringum jólatréð.  Ég man að móður minni þótti stundum nóg um hvað mikið gekk á fyrir ömmu en mér fannst þetta dásamlegur tími og þegar ömmu naut ekki lengurvið kveið ég fyrir jólunum. 
Amma greindist með krabbamein í ristli í marsbyrjun 1978 þá 69 ára gömul og lést af völdum þess 8. maí það ár.  Hún lá banaleguna á Sjúkrahúsinu á Akureyri  og þá var ég komin í Menntaskólann á Akureyri og heimsótti hana nær daglega í þessa tvo mánuði.   Það var dýrmætur en erfiður tími fyrir mig þá nýorðna 17 ára.  Ég á ömmu minni mikið að þakka hún var stór hluti af bernsku minni og ég minnist þeirra stunda með gleði og finnst ég hafa verið rík að hafa notið samvista við hana.
[1] 
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Amma
Efnisorð:
Frásögn, skrifleg