Amma

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1924)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-114
Staður
Núverandi sveitarfélag: Hafnarfjarðarkaupstaður, Hafnarfjarðarkaupstaður
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Móðuramma mín var Bóel Erlendsdóttir f. 18 júní 1857 að Hlíðarenda í Fljótshlíð. Foreldra hennar voru Erlendur Árnason f. 8 okt 1817 og Bóel Eyjólfsdóttir f. 17 mars 1817. 7 okt 1882 giftist Bóel samsveitungi og jafnaldra Kristjáni F Jónssyni foreldrar hans voru Jón Jónsson frá Kaldrananesi og Guðbjörg Eyjólfsdóttir búsett í Fljótsdal í Fljótshlíð. Börn Bóelar og Kristjáns voru 12 tvö þeirra misstu þau í fæðingu og eitt á fyrsta ári. Bóel og Kristján bjuggu á Voðmúlastöðum í Austur Landeyjarhreppi 1885-1896 misstu þá jarðnæðið og voru í húsmennsku í Hallgeirsey með næst yngsta barn sitt, en hin ólust upp hjá frændfólki og vandalausum t.d. móðir mín Ingibjörg ólst upp hjá fósturforeldrum frá 4 ára aldri. Að Aurarseli í Fljótshlíð fluttu þau 1899 og áttu þar heima til 1934. Er þau fluttu í Hafnarfjörð til dótturdóttur sinnar sem hafði alist upp hjá þeim í Auraseli, móðir hennar Guðbjörg flutti til Ameríku og bjó þar, Bóel Sigríður dóttir þeirra flutti líka til Ameríku.
Ég minnist ömmu minnar sem blíðrar og fallegrar konu, stutt var á milli gráturs og hláturs, hún var rúmlega meðalhá en þrekin. Hún sýndist alltaf fín hvort sem hversdags eða spariföt. Samband afa og ömmu var kærleiksríkt og á öllum myndum haldast þau í hendur-Amma mín átti hlýjan faðm sem við barnabörnin fengum að njóta þegar við heimsóttum hana eða hún kom til okkar.
Afi og amma undu sér vel í Hafnarfirði og voru svo heppinn að búa við hliðina á Fríkirkjunni og sóttu messu hvern sunnudag. Kynntust ágætu fólki sem tók tryggð við þau. Eitt sagði amma að væri gott við ellina nú mætti hún leggja hönd á herðar vinum sínum án þess að verða misskilin. Bóel andaðist 2 sept 1936, en afi Kristján lést 4 mai 1937. Ég segi að afi hafi dáið úr sorg án ömmu gat hann ekki lifað. Föðuramma mín Margrét Guðnadóttir er fædd 1869. Foreldrar hennar voru Elín Ísleifsdóttir og Guðni Guðnason. Amma giftist 28 júni 1895 Sveini Jónssyni f. 29 ágúst 1850 f.í Kirkjulækjarkoti þau byrjuðu búskap í miðbænum á Skíðbakka í A-Landeyjarhreppi. Börn þeirra voru 2 Jóhanna f.23 mai 1896 og faðir minn Ísleifur Sveinsson f. 18 júní 1900 á Skíðbakka, bjuggu þau þar til 1904 er þau fluttu að Miðkoti í Fljótshlíð þar sem þau bjuggu til 1922 er afi lést.
Amma var fremur hávaxinn en aðeins bogin í baki hún var svipshrein og ákveðin á svip, enda mjög viljasterk, hún var einstaklega trúuð og byrjaði hvern dag með því að signa sig og lesa morgunbæn, eins endaði hún hvert kvöld að þakka liðin dag og fara með kvöldbænir. Amma Margrét vildi allt fyrir samferðafólk sitt gera, fátæk vinnukona bað hana að taka að sér barn er hún gekk með, hún hefði tapað vinnu sinni ef hún væri með tvö börn á framfæri, þann dreng tók amma að sér fimm daga gamlan. Hann hét Ársæll Böðvarsson f. 23. Júlí 1908 en dó 17 ágúst 1920 og var syrgður af sínum fósturforeldrum. Móðurlausa stúlku tóku þau til sín 3 ára Fanneyju Gísladóttur og var hún hjá þeim fram að fermingu, einnig tóku þau til sín fyrrum mágkonu ömmu sú hét Kristín Kristmundsdóttir, hún var sem í gamla daga kallað sálarveik. Ég spurði ömmu eitt sinn hvað sagði afi Sveinn yfir þessu ? Amma sagði : Sveinn sagði : ef þú treystir þér til þess arna þá hlýtur þetta að bjargast. Afi Sveinn var duglegur til allra hluta, hann gat smíðað úr tré og járni og var mikið leitað til hans með hvers kyns smíði, svo oft var hann að heiman við þau störf-því miður missti ég af samveru við afa, hann dó tveimur árum áður en ég fæddist, en eftir lýsingu ömmu fannst mér ég þekkja hann.
Afi Sveinn dó 4 júní 1922, eftir lát hans tók pabbi minn Ísleifur Sveinsson og mamma Ingibjörg Kristjánsdóttir við búskapnum þau eignuðust sex börn einnig átti mamma dóttir Lilju Árnadóttur sem kom með henni 12 ára gömul-þegar ég hugsa til baka finnst mér amma og Kristín hafa alið okkur systkinin upp, þær voru alltaf til taks þegar foreldrar okkar þurftu að skreppa frá og var okkur vel borgið í umsjá þeirra. Amma kenndi mér að lesa og var það létt verk hjá henni, hún kunni allt sem ég las svo hún gat verið að prjóna eða spinna og leiðréttir þegar vitlaust var lesið.
Áður en amma giftist var hún heitbundinn Jóhanni Kristmundssyni, vel gefnum manni sem kenndi henni skrift og réttritun og hafði annars óvenju fallega rithönd og var viljug að skrifa bréf til ættingja og vina. Jóhann Kristmundsson var fæddur 3 mai 1864 og drukknaði við Landeyjasand 25 mars 1893 þá sorg bar amma með sér en bar hana eins og henni var lagið.
Í apríl 1943 fluttu forfeður mínir á Hvolsvöll þar sem pabbi byggði tveggja hæða timburhús þangað flutti amma og Kristín í fallegt herbergi og undu vel hag sínum þótt í nýtt umhverfi væri. Síðustu þrjú æviár ömmu voru erfið, hún fékk heilablæðingar og lamaðist hægra megin, þannig að hún þurfti mikla umönnun, Kristín var líka rúmliggjandi eitt ár. Móðir mín Ingibjörg sá að mestu leiti um hjúkrun þeirra og launaði þeim uppeldi okkar barnanna, og dáðust margir að hve vel henni fórst það úr hendi. Við systurnar reyndum að rétta hjálparhönd en amma sagði oft við mig að ég væri ekki eins mjúkhent eins og mamma. Amma Margrét var öllum eftirminnileg og kær og kvaddi lífið þakklát guði og mönnum.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Amma
Efnisorð:
Endurminning