Amma

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1931)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-111
Staður
Staður: Núpstún, 845-Flúðum, Hrunamannahreppur
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Föðuramma mín var Guðrún Brynjólfsdóttir f.3 mai 1864 á Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi. Hún giftist Guðmundi Ísakssyni þau bjuggu fyrst í Hólakoti en fluttu svo að Núpstúni og hún lést þar 6. Janúar 1939. Eiginmaður hennar varð blindur og hún stóð fyrir búi föður míns og man ég eftir henni en þó ekki útför hennar. Síðustu tíma sína var hún oft með mikil óþægindi var oft sóttur læknir sem var í Laugarási í Biskupstungum. Fór hann á báti yfir Hvítá. Kom sér þá vel að hestar voru sæmilegir. Hún kenndi mér -Nú er ég klæddur og kominn á ról.
Móðuramma mín var Guðríður Erlingsdóttir f. 12 september 1861 en lést 31. mars 1936. Ég er fæddur 1931 og get þvi ekki munað eftir henni. Hún bjó í Fjalli á Skeiðum en síðast á Galtarstöðum í Flóahreppi. Ég veit ekki hvort ég sá hana.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Amma
Efnisorð:
Endurminning

Upprunastaður

64°4'56.3"N 20°18'49.9"W