Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1948)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-30
Staður
Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Er ekki vissum að ég eigi erindi í þessa könnun. Föður amma mín lést liðlega 50 árum fyrir mína fæðingu. Hún hét Ingibjörg Gísladóttir og bjó þá sem húsmóðir í Garðinum. Móður amma hét Soffía Jónsdóttir, fædd. 10.9.1887 á Bakka í Svarfaðadag, látin 13.2.1969 á Sauðárkróki. Var áður húsmóðir í Neðra Ási í Hjaltadal. Þar sem ég ólst upp í Garðinum hitti ég hana einungis fáeinum sinnum og þá í skamman tíma. Því á ég örfár minningar um hana og persónuleg tengsl milli okkar urðu ekki. Í þessi fáu skipti, sem við hittumst voru móðir mín og eldri ættmenni í forgrunni þeirra samskipta. Minningin er þó að engu leyti á annan hátt en góð, amman ömmuleg við drenginn og sendi honum einu sinni ágætan lítinn kistil, sem enn er til. Amma átti 7 börn og fjölmörg barnabörn og bjó síðari ár sín hjá syni sínum og tengdadóttur og börnum þeirra á Sauðárkróki.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti