Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1974)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-74
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akraneskaupstaður, Akraneskaupstaður
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Langamma mín sem ég man eftir var með sykursýki og sprautaði sig með insúlíni. hún geymdi suðusúkkulaði í skúffu í eldhúsinu sem börnin máttu ganga í og fá sér einn mola. Langamma mín kenndi mér að lesa í eldhúsinu hjá sér. Hún var kona sem hafði nægan tíma og kenndi okkur börnunum ákveðni og að setja sér markmið. Ömmur mínar voru uppteknar konur sem unnu úti og sáu um skipulag heimilisins.
Frásögn með stuðningi minnisatriða:
Langamma mín Hallfríður var ein fyrsta kennaramenntaða kona landsins og mikill frumkvöðull. Ég kynntist henni ekki. Langamma mín Gyða var ákveðin kona sem hafði tíma fyrir okkur börnin. Samskiptin góð og uppbyggileg og hún var mikil og góð fyrirmynd. Hún var með grátt sítt hár sem hún setti í fléttu og snéri upp í snúð. Amma mín Hulda var viðskiptakona og vann í eigin rekstri sínum og mannsins síns. hún var ekki að velta sér upp úr hlutunum og kunni að hafa gaman. Var frekar sérlunduð en ákaflega góð við okkur börnin. Hún veiktist og var sjúklingur síðustu tíu ár ævi sinnar. Amma mín Lilla var líka útivinnandi kona sem var samvinnuskólagengin. hún var ekkja í tæp 40 ár áður en hún lést. Hún var baráttu kona sem fór með ábendingar sínar á rétta staði og kenndi okkur mikið, að láta ekki ganga yfir sig meðal annars. hún bakaði góðar kökur en var ekki mikið fyrir að elda.
Við hvaða staði og tímabil er frásögn þín miðuð?:
Akranes, Leirársveit og tímabilið 1978-2012.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti