Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1965)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-47
Staður
Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Amma mín hét Guðrún og bjó í Kópavoginum. Ég heiti í höfuðið á henni og móður hennar, þ.e. ömmu mömmu minnar. Amma keyrði ekki bíl og var alvöru húsmóðir, heima hjá henni var alltaf allt spikk og span, stundum fannst mér hún gera fátt annað en að þrífa. Eldhúsið hennar var ferskjubleikt. Hún bakaði vöfflur og átti skúffur sem innihéldu hveiti og sykur sem hún helti beint ofan í þær og geymdi það þannig. Ég mátti stundum leika mér að moka í skúffunum með mæliskeiðunum hennar, hveitið var mun skemmtilegra og meðfærilegra en sykurinn. Amma mín var flámælt enda frá Austfjörðum, hún blótaði alveg svakalega mikið og ég ætti helst ekkert að vera að tala um það ef hún fengi að ráða, mér finnst það bara svo fyndið. Að fara með mömmu og ömmu í Kringluna var alveg best í heimi, amma vildi alltaf kaupa á mig jólakjól, það var alltaf gaman. Alltaf þegar mamma var lengi í símanum (grænn skífusími með krullaðri snúru) þá vissi maður að það væri amma sem var hinum megin á línunni. Hún safnaði alltaf klinki í poka og gaf mér og bróður mínum. Hún og afi áttu alltaf prinspolo í skápnum og ís í frystinum. Amma var með græna fingur og ræktaði garðinn sinn og sérstaklega rósir, bóndarósin hennar er í dag ennþá í garðinum hans pabba. Amma var afskaplega góð kona en gat líka verið hvöss og hörð af sér, en það vissi ég bara afþví ég sá hana vera það við aðra, hún var mér alltaf virkilega góð og ljúf. Mamma reyndar notaði hana stundum sem grýlu "hvað myndi amma þín segja ef hún vissi af þessu?" Amma lét mig líka lofa sér oft og mörgum sinnum að aldrei reykja, sem betur fer virkaði þetta hjá henni. Hún var líka rosalega flink hannyrðakona, var alltaf að sauma út, aðallega krosssaum, svo mörg meistarastykki. Mögnuð kona hún amma, það sem hún áorkaði í lífinu. Mikið sakna ég tvíeykisins ömmu og mömmu.
Við hvaða staði og tímabil er frásögn þín miðuð?
Kópavogur 1980-2000.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti