Endurminning

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1950)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-54
Staður
Staður: Látur, Hvallátur, 451-Patreksfirði, Vesturbyggð
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Ég ólst upp hjá föðurömmu (f. 1900) og föðurafa (f. 1889) frá þriggja ára aldri til 5 ára og svo var ég þar í sveit á hverju sumri frá maílokum fram í október fram yfir fermingu. Ég kynntist henni því ömmu minni vel og heyrði sögur af annarri langömmu minni sem féll frá sama ár og ég fæddist (1950). Þessi amma mín kom fram við mig sem móðir, var einstaklega góð við mig í alla staði og reyndi að leiðbeina mér þannig að ég gerð rétt. Afi var ekki síðri. Hún var frekar lágvaxin, falleg kona, með hæga og yfirvegaða framkomu. Hún var einnig lífsreynd, enda átti hún 10 börn frá árunum 1917 til 1941.s Hún var harðdugleg, sá um heimilið sjálft og vann einnig útivið, m.a. heyvinnu og mjólkaði kýrnar, tók upp kartöflur og mörg önnur sveitastörf, nema þau sem þurfti mikið afl við. Hún og afi lásu mikið og hlustuðu á útvarp í frístundum. Þau voru aldrei veraldlega auðug, en allir höfðu nóg í sig og á á heimilinu. Hvorugt þeirra neyttu tóbaks eða áfengis. Langamma var einnig nokkuð þekkt í sinni sveit, álitin vera gáfukona sem fræddi aðra af lífsreynslu sinni. Frá henni eru margar umsagnir á minjasafni (byggðasafni) í sveitinni, m.a. var hún seinasta selkona í sveitinni og á eldri árum þá sat hún yfir fé með yngri krökkum til að koma í veg fyrir að það flæddi á hleinum. Móðurömmu mína þekkti ég minna, en kynntist henni þegar ég fór að stunda skóla. Hún bjó á Seltjarnarnesi og síðar í Reykjavík, en hún af móðurafi minn höfðu flutt á mölina eftir stríðið. Þau voru bæði fædd um 1892. Þau áttu 8 börn. Lundarfar þeirra var svipað og föðurömmu og afa, heiðarleg og bindindissöm, nema afi tuggði rjól.
Frásögn með stuðningi minnisatriða:
Föðuramma mín hét Sigríður Eggertsdóttir og fæddist árið 1900 á Hvallátrum og lést 1981 í Reykjavík. Hún bjó nærri alla æfi á Hvallátrum í Rauðasandshreppi. Móðuramma mín fæddist í Þykkvabæ 1892og dó í Reykjavík 1975. Hún bjó fram undir stríð í Ásahreppi fyrir austan (Þykkvabæ og Vetleifsholti). Vegna þess að ég var mikið vestur á Hvallátrum höfðu föðurforeldrar mínir mikil áhrif á mig og lífsskoðun mína. Einnig varð vera mín þar til þess að ég fékk mikinn áhuga á náttúrufræðum, sem ég gerði síðan að atvinnu minni. Jafnrétti var á heimilinu á Hvallátrum og varð ég aldrei var við ýfingar milli afa og ömmu. Hlutverk þeirra í störum voru þó skýr, amma sá um inniverk og afi um útiverk, en amma tók þátt í útiverkum yfir hásumarið og gegndi sumum þeirra alltaf (t.d. að mjólka kýrnar).
Við hvaða staði og tímabil er frásögn þín miðuð?:
Hvallátra 1953 til 1965.

Sjá ennfremur fylgiskjal sem tengt er við þetta svar og hefur að geyma frásögn heimildarmanns af sumardvöl hans í Hvallátrum:  Niðjatal hjónanna Sigríðar Eggertsdóttur og Kristjáns H. Sigmundssonar, bónda, Heimabæ, Hvallátrum.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Endurminning
Efnisorð:
Amma