Endurminning

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1954)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-51
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Ömmur mínar tvær hétu Þórdís Ásgeirsdóttir og bjó á Húsavík þar til ég varð um 5 ára gamall. Ég man lítið eftir henni þar sem hún flutti suður til Reykjavíkur og ég sá hana lítið. Lára Kristín Guðjónsdóttir var Vestmanneyingur í húð og hár. Ég kynntist henni fyrst þegar hún kom til Húsavíkur þegar ég var um það bil 10 ára og gisti hjá okkur um stund. Ég man einu sinni kallaði mín upp í herbergi til sín þar sem ég var að dunda mér úti í garði. Hún spurði hvort ég hefði gaman af peningum og ég sagði já. Síðan gaf hún mér að mig minnir 25 krónur og ég mátti bara gera við það hvað sem var. Það var nú ríkidæmi. Síðar lá leið frekar snarpt í Vestmannaeyjagosinu. Hún fæddist 4. Júlí, 1886 og var því 86 ára þegar hún stóð á náttsloppnum í kápunni sinni á dekkinu á Gjafari VE um nóttina alla leið til Þorlákshafnar. Það hófst mikil leit að henni á hjálparstöðvum og fannst hún um hádegið í Melaskóla og var hún dregin heim í kjötsúpu. Fékk hún þá í fyrsta sinn áfengi, en mamma fékk hana til að taka nokkur sherry staup. Henni fór samt ekki að hitna fyrr en leið á daginn. Amma Lára fékk herbergið mitt, þar sem ég fór síðar um vorið til Bretlands. En kynni okkar voru þokkaleg þessa vormánuði. Hún átti það til að vera mjög berdreymin. Hún hafði m.a. dreymt fyrir gosinu nokkrum dögum áður og vaknað þá upp við andfælum og hljóp út á götu á náttfötunum, en hún var að mig minnir tveim dögum of fljót. Hún átti það til að heimta að fara í heimsókn til gamalla vinkvenna. Ekki mátti bíða með að aka henni í heimsóknir, því í tvígang dóu þessar konur stuttu síðar. Þannig að þetta fann hún á sér blessunin. Annars var hún mjög ræktarsöm á fjölskylduna. Hún bjó hjá foreldrum mínum út á Seltjarnarnesi í ein 3 ár áður en hún fór á elliheimilið í Vestmannaeyjum, en hún dó 13. Janúar 1984 og vantaði þá 2 og hálft ár í hundraðið.
Frásögn með stuðningi minnisatriða:
Lára Kristín Guðjónsdóttir var fædd í Vestmannaeyjum 4. júlí 1886 en hún var móðuramma mín. Hún átti þar heima alla ævin, nema eftir gosið þá kom hún á heimili okkar á Seltjarnarnesi, en 1975 að þá fór hún á elliheimili í Vestmannaeyjum. Þar sem ég átti heima á Húsavík að þá fékk ég lítið tækifæri til að kynnast henni fyrr en 1973 að hún flutti til okkar. Einu sinni spurði ég ömmu hvort afi sem var með bát í Eyjum hafi aflað mikið. Hvort hann hefði t.d. verið aflahæstur. Þá sagði hún að hann hafi nú alltaf komið heim, það hefði skipt máli, því það voru ekki allir sem komu heim úr róðri. Fyrir þeim hefði ekki skipt máli að afla sem mest, heldur að lifa lengi og deyja sátt eða sáttur. Þess vegna skipti meira máli fyrir þeim að halda hvíldardaginn heilagann. Björn afi réri aldrei á laugardögum, heldur fór hann út í kirkju og þvoði glugga og pússaði allt að innan, en Lára amma saumaði allt og heklaði allt sem kirkjunna og prestinn þarfnaðist í þeim efnum. Ég kynntist ekki öfum mínum neitt að ráði. Björn afi blessaður dó fyrir gosið, svo við áttum ekki svo mikið að sælda Föðuráar mínir fluttu til Reykjavíkur og þangað kom ég aðeins einu sinni á meðan þau voru á lífi og ég um 5 ára og man lítið af sasmkiptum við þau. Björn afi í Vestmanneyjum kom einu sinni norður til Húsavíkur. Ég var sennilega 5 ára. Ég man eftir því að það var haust og við fórum að taka upp kartöflur. Við vorum með 7 og 9 falda uppskeru og þá sagði afi að einu sinni hafi verið 49 föld uppskera eftir eina kartöflu í Vestmannaeyjum. Mikil gróðrajörð þessi Vestmannaeyjar. Fyrir Láru ömmu var mannajöfnuður mikils virði. Mat hún fólk eftir viðmóti en ekki stétt eða stöðu, kyni eða aldri. Sama var með alla vinnu og var litið á alla vinnu sem merkilega, hvort sem það var að þrífa eða eitthvað annað. Allt varð að gera vel og vanda til vinnu.
Við hvaða staði og tímabil er frásögn þín miðuð?:
Fyrst í kringum 1960 og síðar frá 1973 til 1975.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Endurminning
Efnisorð:
Amma