Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1932)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-97
Staður
Staður: Stapadalur, 471-Þingeyri, Ísafjarðarbær
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Ég vil gjarnan taka þátt í fleiri rannsóknum og það má birta frásögn mína á veraldarvefnum en þessi frásögn verður þó rýr í roðinu því ég hafði lítil kynni af ömmum.
Föðurmóður mína þekkti ég ekki, hún dó 1926.
Móðurmóðir mín var Guðný Guðmundsdóttir (1881-1957), fædd á Horni í Arnarfirði og þar í firðinum var hún lengstum, giftist ekki en átti sex
börn. Hún var vinnukona í Stapadal 1908-1934 og átti fimm börn með Kristjáni bónda þar. Eitt dó, tveimur var komið í fóstur en tvö hafði
hún hjá sér. Elst var Þorbjörg móðir mín sem fór vikugömul í fóstur á næsta bæ og hafði engin kynni af Guðnýju ömmu, fannst hún ekkert hafa
við hana að virða, kallaði hana ekki móður sína og skipti sér aldrei af henni og heimsótti hana ekki. Þær voru þó samtíða á Ísafirði 1934-1957 og man ég einu sinni eftir því að amma heimsækti okkur. Það var 1937, ég varð fimm ára og amma gaf mér 15 aura sem ég hljóp með upp í Bókhlöðu og keypti lítið sögukver, var þá nýorðinn læs. Amma bjó þá í kofa á Riistúninu (Silfurgötu 9c) og hafði ofan af fyrir sér í fiskvinnu, þvottum og prjónaskap.
Þegar ég fór að ganga í skóla háttaði svo til að þar voru einar langar frímínútur og áttu þá allir að hlaupa heim til sín í kaffi. Ég átti langt heim
og hafði með mér nesti og leitaði ég þá til ömmu og fékk að sitja í dyraskúrnum hjá henni og borða þar. Ef kalt var í dyraskúrnum bauð hún
mér stundum inn í hlýjuna. Amma tók mér vel en ekkert innilega en þessi tilhögun hélst þó meðan ég var í barnaskóla. Hún var fátöluð og spurði
mig aldrei neins. Hún var lágvaxin og nokkuð þrekin, svarthærð og svipmikil en gránaði fljótt. Mér fannst að hún mundi vera þykkjuþung ef gert væri á hluta hennar og þá langrækin. Amma fluttist úr kofanum 1944 og til yngstu dóttur sinnar og var þar meðan hún lifði en hún dó á Sjúkrahúsi Ísafjarðar 1957, áreiðanlega södd lífdaga, var alltaf fátæk og orðin útslitin löngu fyrir sjötugt. Ég fylgdi henni ekki til grafar. Hún var amma mín, það vissi ég en lengra náðu tilfinningarnar ekki.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
65°48'7.2"N 23°45'21.6"W