Tunnumerki, peningur v/síldarvinnu

1936 - 1943
Tunnumerki Ingvars Guðjónssonar, sem rak Kveldúlfsstöðina á Siglufirði og síðar Hafliða hf. á Siglufirði árin 1936-43. Í merkið er sleginn bókstafurinn "G". Tunnumerki, söltunarmerki. Lítil plata úr málmi eða öðru efni, líkist oft mynt. Yfirleitt merkt því fyrirtæki sem gaf það út. Tunnumerki giltu sem ávísun á opinberan gjaldmiðil, fyrir vinnu í  þágu fyrirtækisins, í þessu tilfelli fyrir söltun og niðurlögn á síld í tunnu. Orðin tunnumerki eða söltunarmerki finnast ekki í Orðabók Háskóla Íslands. Tunnumerki voru notuð á Íslandi á árunum 1920-1990, en ekki er útilokað að notkun þeirra hafi átt sér stað fyrr (Freyr Jóhannesson, 2006, 3).

Aðrar upplýsingar

Ártal
1936 - 1943
Safnnúmer
Safnnúmer A: 970729-1
Stærð
2.5 x 2.7 x 0.1 cm Lengd: 2.5 Breidd: 2.7 Hæð: 0.1 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Freyr Jóhannesson. 2006. Íslensk tunnumerki.