Tunnumerki, peningur v/síldarvinnu

1930 - 1968
Hálftunnumerki söltunarstöðvar O. Henriksen, Siglufirði. Eigandi var Olav Henriksen og síðar synir hans Henning og Guðlaugur Henriksen. Í merkið eru slegnir stafirnir "OH". Tunnumerki, söltunarmerki. Lítil plata úr málmi eða öðru efni, líkist oft mynt. Yfirleitt merkt því fyrirtæki sem gaf það út. Tunnumerki giltu sem ávísun á opinberan gjaldmiðil, fyrir vinnu í  þágu fyrirtækisins, í þessu tilfelli fyrir söltun og niðurlögn á síld í tunnu. Orðin tunnumerki eða söltunarmerki finnast ekki í Orðabók Háskóla Íslands. Tunnumerki voru notuð á Íslandi á árunum 1920-1990, en ekki er útilokað að notkun þeirra hafi átt sér stað fyrr (Freyr Jóhannesson, 2006, 3).

Aðrar upplýsingar

Ártal
1930 - 1968
Safnnúmer
Safnnúmer A: SÍ Safnnúmer B: 2014-44-2
Stærð
2.6 x 2.6 x 0.12 cm Lengd: 2.6 Breidd: 2.6 Hæð: 0.12 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Freyr Jóhannesson. 2006. Íslensk tunnumerki.