Bóndi
01.01.1950 - 01.01.1960

Varðveitt hjá
Minjasafnið á Akureyri
Runólfur Marteinsson f. að Gilsárteig í Eiðaþingá 1870, fluttist vestur 1883. Var fyrst eitt ár í Winnipeg, síðan Nýja Íslandi og settist að í Hnausabyggð. Séra Runólfur stundaði miðskólanám í Winnipeg, lauk B. A. prófi frá Gustavus Adolphus College í St. Peters, Minn., 1895 og guðfræðiprófi frá Maywood Theological Seminary í Chicago 1898. Vígður 1899. Prestur í Nýja Íslandi 1900-10, og þjónaði öllu Nýja Íslandi frá Merkjalæk að sunnan til Mikleyjar að norðaustan og Árdalsbyggðar að vestan. Bóndi fyrstu árin jafnframt að Mæri norðan við Gimli, Kennari við Wesley College, Winnipeg 1910-13. Skólastjóri við Jóns Bjarnasonar skóla 1913-40. Prestur Skjaldborgarsafnaðar í Winnipeg um skeið. Þjónaði Hallgrímssöfnuði í Seattle, Wash., og vann að stofnun safnaðar í Vacouver 1941-44. Átti sían heima í Winnipeg. Nokkur ár í framkvæmdanefnd Þjóðræknifélagsins og forseti þjóðræknisdeildarinnar í Frón, Winnipeg. Varaforseti Lútherska kirkjufélagsins 1921-31.Meðritstjóri Áramóta 1905-06. Meðritstjóri Sameiningarinnar um skeið. Ridd. Fálk. 1939. Giftist 1900, Ingunni Sigurgeirsdóttur f. 1873, og eignuðust 4 börn.
Aðrar upplýsingar
Runólfur Marteinsson, Á mynd
Ártal
01.01.1950 - 01.01.1960
Safnnúmer
Safnnúmer A: STÆ1-8200
Aðfangategund
Flokkun
Efnisorð / Heiti
