Skjöldur, skráð e. hlutv.

Úr silfri, á honum eru stafirnir G.J. sem merkir Guðjón Jónsson, en hann var fæddur á Hafþórsstöðum í Norðurárdal í Mýrarsýslu 1895 og dáinn í RVK 1972. Bjó við Sundlaugarveg í Reykjavík sem áður hét Laugarmýrarblettur 7 en nú Brúnavegur 1, skráður bílstjóri . Guðjón var sonur Jóns Loftssonar f. 1849 og Halldóru Ingibjargar Arnbjarnardóttur f. 1854.  Skjöldur þessi var saumaður innan á frakka Guðjóns til merkingar. Gefandi til Munasafns Kristjáns Runólfssonar var Ingibjörg Guðjónsdóttir, Þórufelli 12 Rvk.  og gefandi til Byggðasanfs Borgfirðinga er Byggðasafn Skagfirðinga.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 9908
Stærð
8.5 x 3.3 cm Lengd: 8.5 Breidd: 3.3 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Borgfirskar æviskrár VI, bls. 128-9.