Brjóstnæla

Gulllituð brjóstnæla með fjórum glærum steinum og perlu í miðju. Ummál: 2,5 cm. Úr eigu Þuríðar Þorsteinsdóttur ljósmóður frá Vatnshömrum í Andakíl, síðar í Danmörku og Vesturheimi. Var í Munasafni Kristjáns Runólfssonar sem keypt var til Byggðasafns Skagfirðinga og fór þaðan til Byggðasafns Borgarfjarðar. Þuríður var dóttir Þorsteins Árnasonar (1833-1912) og 3. konu hans Vilborgar Rögnvaldsdóttur (1842-1911). Þuríður flutti til Danmerkur 1909 og giftist þarlendum manni, Hans Petersen. Síðar fluttu þau til Ameríku.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 9907
Stærð
0 x 2.3 cm Breidd: 2.3 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Brjóstnæla
Heimildir
Borgfirskar æviskrár XII bls. 294.