Hópmynd, óskilgreinanleg

Ljósm.cab. í ramma með eikarspón og gylltri rönd að innanverðu, breidd 4 cm, stærð 30 x 25,5 cm. Utan um myndina innan ytri rammans umgerð úr mógráum pappa, breidd ca. 4 cm: Söngflokkur. "Kátir piltar". Nafnaskrá fylgir. Fremsta röð: 1. Jón Rosenkranz, læknir. 2. Ólafur Björnsson, ritstjóri. 3. Guðmundur Gamalíelsson, bókbindari. Mið röð: 4. Jón Jónsson Aðils, sagnfræðingur. 5. Sigvaldi Stefánsson Kaldalóns, tónskáld. 6. Brynjólfur Þorláksson, organisti. 7. Guðmundur Pétursson, nuddlæknir. 8. Gísli Guðmundsson, bókbindari. Aftasta röð: 9. Valdimar Ottesen, kaupmaður. 10. Ólafur Rosenkranz, fimleikakennari. 11. Björgúlfur Ólafsson, læknir. 12. Þorkell Þorláksson, organisti. 13. Halldór Jónasson frá Eiðum. 14. Herbert Sigmundsson, prentari. 15. Hendrik Erlendsson, læknir. 16. Jón Johannesen, prestur.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: Mms-17744
Stærð
14 x 12 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mannamyndasafns nr. 5236-17842 [1932 - 1948].