Sýslumaður

01.01.1787
2800 Frummynd af Sigurði Pjeturssyni, sýslumanni í Kjósarsýslu 1789 - 1803, f. 26. apr.1759, d. 6. apr. 1827, dregin með rauðkrít af Sæmundi Magnússyni Hólm, síðar presti að Helgafelli; er letrað S. M. Holm hægra megin við myndina og fyrir neðan hana: Del Hafn. 11 Aug. 1787 S. M. Holm. Myndin er mjög vel gerð; Sigurður er unglegur, grannur í andliti, hár eptir tízku, apturkembt, mikið, fellur á bak niður og er hnýtt bandi um. Vesti og frakki með hnöppum upp að hálsmáli, en frakkinn óhnepptur og vestið sömuleiðis í brjósti og fellingar miklar („kalvekrýnds“) á skyrtubrjóstinu. Lágur kragi á skyrtunni, en breiður á frakkanum. Myndin nær niður að mitti og olbogum. Blaðið er 22,3 x 14,4 cm; hægra horn að neðan af. Myndin er nú nr. 14 í Mms., sett í nýja umgjörð, eins og hinar aðrar myndir Sjera Sæmundar, 26 x16 cm að innanmáli og 5 cm að br., úr mahógní, sljett og flöt, skygð að framan. Var áður í lítilli umgjörð úr sama efni, mjórri (2 cm), með ljósum röndum á framhlið; er hún geymd, - gömul og góð.

Aðrar upplýsingar

Ártal
01.01.1787
Safnnúmer
Safnnúmer A: Mms-14
Stærð
22.3 x 14.4 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Sýslumaður
Heimildir
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins 1908 - 1931