Dixill

1903 - 1968
Beykisáhöld, þar með talin þessi díxill, og önnur verkfæri sem Jón Kristjánsson frá Steinaflötum á Siglufirði átti voru gefin Síldarminjasafninu. Jón bjó að Suðurgötu 24 á Siglufirði. Hann starfaði hjá Ole Tynes og Dr. Paul. Gefandi er sonur hans, Kristinn Jónsson. Díxill, beykisöxi, er helsta verkfæri beykisins, tunnusmiðsins, og eitt af einkennistáknum síldarsöltunar um aldir. Díxillinn var notaður við alla tunnuvinnu, allt frá smíði tunnunnar að eftirsóttri markaðsvöru; full tunna af gómsætri og hollri fæðu. Díxill hefur einnig verið nefndur botnhamar eða botnaöxi (sbr. Benedikt Sigurðsson – Orð úr máli síldarfólks.) Með díxlinum er botninn sleginn úr tunnunni og í hana aftur. Botninn tekinn úr: Að slá upp, uppsláttur. Þetta var gert með uppsláttardíxli. Nettari díxill og léttari en tilsláttardíxill. Botninn settur í: Slegið til, tilsláttur. Það var gert með tilsláttardíxli. Þyngri en uppsláttardíxill. Þessi tiltekni gripur er tilsláttardíxill. Díxilmenn hétu þeir sem höfðu þennan starfa á hverri söltunarstöð. Beykir er hinn iðnlærði tunnusmiður. Díxlarnir voru nokkuð misjafnir að stærð og þyngd, þannig voru uppsláttardíxlar að jafnaði léttari en tilsláttardíxlar (sbr. Benedikt Sigurðsson.) Díxillinn er eins og blanda af hamri og öxi, með mjóu bognu blaði og all efnismiklum skalla. Beitt og hvasst blaðið á ,,axar“ hluta díxilsins var fyrst og fremst notað til að höggva til svigaböndin á meðan þau voru notuð sem gjarðir til að halda saman tunnunni. Hvert svigaband var höggvið í hæfilega lengd og síðan voru höggvin hök í báða enda trébandsins þannig að þau gripu hvort á móti öðru og ,,læstu“ hringnum. Til þessa verks og til að reka svigana á tunnurnar voru notaðir bandadíxlar sem voru minni og nettari en járngjarða-díxlarnir. (Heimild: hljóðritað viðtal við Björn Þórðarson frá 1992.) ) Síðar, að svigabandatímanum loknum um 1930, var díxilblaðið notað til léttra högga á botninn við tilslátt, nett högg á botnjaðar svo hann félli í löggina. Orðið díxill er tökuorð í íslensku, sennilega komið frá Noregi ásamt þeirri þekkingu sem fylgdi notkun verkfærisins. Til Norðurlanda hefur verkfærið og nafnið upphaflega komið frá Hollandi – að líkindum, því þar var upphaf gríðarmikillar tunnunotkunar fyrir síldarsöltun. Þannig barst verkþekkingin og orðanotkun henni tengd frá einni þjóð til annarrar. Og í samhengi síldarsögunnar má segja að einn kenndi öðrum að veiða og verka síld – til að afla fæðu og auðgast! Verkfærin, þekkingin og tungutakið fluttist frá einni þjóð til annarrar.   hollenska: dissel eða Kuipershamer (hammer of the cooper) (Tölvupóstur frá Tony Luiten sem vinnur á beykisverkstæði á safninu Zuiderzeemuseum í Hollandi.) þýska: deichsel, dechsel norska: diksel finnska: dikseli íslenska: díxill, dixill   Samkvæmt Benedikt Sigurðssyni er merking orðsins diksel lok eða þekja og er trúlega rótskylt síðasttalda orðinu. Benedikt segir að reynt hafi verið að íslenska orðið með þeksla eða þexla (sbr. Benedikt Sigurðsson.)

Aðrar upplýsingar

Ártal
1903 - 1968
Safnnúmer
Safnnúmer A: 980804-1
Stærð
24.5 x 6 x 32 cm Lengd: 24.5 Breidd: 6 Hæð: 32 cm
Staður
Staður: Suðurgata 24, 580-Siglufirði, Fjallabyggð, Siglufjörður, Ísland
Sýningartexti
Tilsláttardíxill, botnhamar, botnaöxi. Diksel á norsku; skylt orðum eins og dæksel, deksel, deichsel, sem þýða lok eða þekja. Trúlega rótskylt síðasttalda orðinu. Reynt hefur verið að íslenska orðið með þeksla eða þexla. (Benedikt Sigurðsson. Orð úr máli síldarfólks. ) Dixilmaður. Tilsláttarmaður; þ.e. maður sem vann aðallega við að slá upp og slá til tunnur en þurfti ekki að kunna önnur beykisstörf. Meðal áhalda sem dixilmenn notuðu voru bandadrífholt (svigadrífholt), gjarðadrífholt, bandadixill, gjarðadixill, botnahnífur (hófjárn, tveggjahandajárn), botnabekkur, botnahefill, botnajárn (botnatrekkjari), laggajárn (laggahefill), snarvöndull, sponsarýmari, gjarðarþvingur, stafamál og stafahefill.  – Þessi orð og fleiri eru úr fagmáli beykja og ekki bundin síldarverkun sérstaklega. (Benedikt Sigurðsson. Orð úr máli síldarfólks.)
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Dixill
Heimildir
Heimildir: Orðabók menningarsjóðs, Orðsifjabókin, samantekt Benedikts Sigurðssonar, gamlir díxilmenn, viðtal við Björn Þórðarson, erlendir gestir Síldarminjasafnsins og reynsla skrásetjara.

Upprunastaður

66°8'56.8"N 18°54'47.0"W