Þvinga, skráð e. hlutv.
1903 - 1968

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Tvær þvingur frá söltunarstöð O. Henriksen. Guðlaugur Henriksen gefur fleiri gripi sem allir koma af Söltunarstöð O. Henriksen. Þrír díxlar, eitt drífholt og tvær þvingur (klyfberar). Þvingan sem hérr lýst og myndin er af er þó nokkuð minni en hin, annars eru þær samskonar. Í bókinni Íslenzkir sjávarhættir eftir Lúðvík Kristjánsson er þvingum lýst og hlutverki þeirra. Voru þær meðal smíðaáhalda til skipasmíða. Þvingurnar voru notaðar til þess að halda borðum saman við súðun báta: ,,Þvinga, sem bátasmiðir í Reykjavík kölluðu klyfbera, var notuð með sama hætti og klofakerling. Kjálkar hennar voru úr eik og þeim fest að ofan með sólaleðri, en í gegnum þá gekk skrúfbolti og á öðrum enda hans sveif, en snúið var eftir því sem þrengja átti að borðunum um leið og byrt var." (Íslenzkir sjávarhættir, 2. bindi, bls. 127). Á Siglufirði er málvenja að tala um þvingi (et., kk.) og þvingur (ft.)
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Guðlaugur Henriksen
Ártal
1903 - 1968
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SÍ
Safnnúmer B: 2012-22-3
Stærð
43 x 3.5 x 8 cm
Lengd: 43 Breidd: 3.5 Hæð: 8 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Þvinga, skráð e. hlutv.
