Múgavél
1930 - 1944

Varðveitt hjá
Landbúnaðarsafn Íslands
Múgavél (Deering).
Múgavélin var
notuð á tvennan hátt: til að snúa heyi við þurrkun og til að raka því saman
í múga fyrir hirðingu. Skipt var á milli þessara hlutverka með því
að breyta snúningi kambanna. Múgavélar af þessari gerð ruddu sér
einkum til rúms á fimmta áratugnum en sú fyrsta var reynd á Vífilsstöðum
árið 1928. Síðar komu sérhæfðar vélar fyrir hvort verk um sig(t.d.
heyþyrlur, hjól-og stjörnumúgavélar)...
Þessi múgavél er
af gerðinni Deering. Hún var dregin af tveimur hestum og vann á við
margar kaupakonur. Múgavélina keypti Hallgrímur Eðvarðsson, bóndi
á Helgavatni í Vatnsdal, árið 1944. Vélina notaði hann fram til 1960
og alla tíð með hestum. Hallgrímur og kona, Þorbjörg Jónasdóttir,
gáfu búvélasafninu múgavélina árið 1992.
Vélin er undir austurvegg
Búvélasafnsins.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1930 - 1944
Safnnúmer
Safnnúmer A: 21
Staður
Staður: Helgavatn, 541-Blönduósi, Húnabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Snertisafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Múgavél
Upprunastaður
65°27'9.0"N 20°19'40.1"W