Helgi Sigurður Helgason Thingholt
12.2.1872 - 9.10.1958
Staða
Tónskáld, Hermaður, Málari
Staður
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Kallaður Sigurður. Sonur Helga Helgasonar trésmiðs og tónskálds. Flutti til vesturheima árið 1890.
Fluttist 1890 til Vesturheims. Málari í Milton, Cavalier, N-Dakota, Bandaríkjunum 1900. Var í Seattle Ward 13, King, Washington, Bandaríkjunum 1910. Hermaður í kanadíska hernum í fyrri heimsstyrjöld. Var í Petersburg, Alaska, Bandaríkjunum 1920. Málari og tónskáld í Vesturheimi. Samdi sönglög og er þeirra kunnast „Skín við sólu Skagafjörður“. K.2. í Vesturheimi: Hildur Levida Lindgren frá Svíþjóð.
Tengd aðföng
