Halldór Daníelsson

6.7.1853 - 4.4.1929
Staða
Alþingismaður, Bóndi
Staður
Núverandi sveitarfélag: Gimli, Gimli
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Fæddur á Fróðastöðum í Hvítársíðu 6. júlí 1853, dáinn í Vesturheimi 4. apríl 1929. Alþm. Mýr. 1894-1900. Foreldrar: Daníel (f. 13. ágúst 1802, d. 20. jan. 1890) bóndi á Fróðastöðum Jónsson bónda þar Brandssonar og k.h. Sigríður (f. 14. ágúst 1818, d. 4. nóv. 1912)) Halldórsdóttir bónda á Ásbjarnarstöðum Pálssonar. Kvæntist 10. nóv. 1886 Marín (f. 30. ágúst 1835, d. 20. jan. 1906) Jónsdóttir bónda á Efraseli í Hrunamannahreppi Halldórssonar og k.h. Marínar Guðmundsdóttur. Bóndi í Langholti í Bæjarsveit 1886-1900, fór þá til Vesturheims. Bóndi í Big-Point-byggð 1900-1921 og í Langruth 1921-1923. Dvaldist síðustu æviár sín á gamalmennaheimilinu á Gimli. Hreppstjóri Andakílshrepps 1887-1900 og hreppsnefndaroddviti 1889-1900. (Hann var seljandi að gripum nr. Þjms. 4036 og 4037. Í skráningu gripanna eru engar frekari upplýsingar um hann, en að líkindum hefur hann verið úr Borgarfirðinum eða nágrenni því gripirnir eru frá Síðumúla í Hvítársíðu og frá Bæ í Andakílshreppi. Ef til vill er þetta Halldór Daníelsson (f. 1853, d. 1929) alþingismaður (Mýr. 1894-1900) sem var bóndi í Langholti í Bæjarsveit 1886-1900 en fór þá til Vesturheims. Var bóndi í Big-Point-byggð og í Langruth, en dvaldist síðustu æviár sín á gamalmennahælinu í Gimli.)   Heimildir: Alþingismannatal 1845-1975. Skrifstofa Alþingis gaf út, Reykjavík 1978, bls. 160.
Tengd aðföng