Pétur Friðriksson Eggerz
11.4.1831 - 5.4.1892
Staða
Forsmiður, Bóndi, Kaupstjóri
Staður
Staður: Riis-hús, 500-Stað, Húnaþing vestra, Borðeyri, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Húnaþing vestra, Húnaþing vestra
Sveitarfélag 1950: Bæjarhreppur Strand., Hrútafjörður
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Staður: Akureyjar, 371-Búðardal, Dalabyggð, Skarðsströnd, Ísland
Sveitarfélag 1950: Skarðshreppur Dal.
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Kaupstjóri og bóndi á Borðeyri.
Pétur, sem kalla mætti föður Borðeyrar, fór ungur til Englands og nam þar verslunarfræði. Hann var frumkvöðull í húsbyggingum og verslunarmálum á Borðeyri eftir 1858. Pétur er forsmiður að Riis húsi Borðeyri. Timburhús reist 1862. Það er eitt elsta húsið við Húnaflóa. Kallað faktorshús. Í húsinu var krambúð og íbúð. Á síðustu öld var Borðeyri einn helsti verslunarstaður við Húnaflóa ásamt Kúvíkum á Ströndum og Höfðakaupstað á Skaga.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 21806-25504. (1957-1969)
Úr heimildum Húsafriðunarnefndar vegna styrks úr Húsafriðunarsjóði. 1997 Dagblaðið.
Tengd aðföng




