Herdís Guðmundsdóttir Scheving Benediktsen

22.9.1820 - 23.8.1897
Staða
Frú, Kaupmannsfrú
Staður
Staður: Flatey 1, 345-Flatey á Breiðafirði, Reykhólahreppur, Flatey, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykhólahreppur, 381-Reykhólahreppur, Reykhólahreppur, Ísland Sveitarfélag 1950: Flateyjarhreppur A-Barð. Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Annað nafn
Herdís Benedictsen
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Húsfreyja í Flatey. Var í Austurvelli 3b, Reykjavík, Gull. 1870 Kaupmannsfrú í Stykkishólmi 1838-1840, Flatey 1840-1870 og Reykjavík 1870-1897. Eftir að hafa misst mann sinn og öll börn ákvað Herdís að leggja nokkurn hluta eigna sinna í sjóð í minningu þeirra hjóna og Ingileifar. Skyldi sjóðnun varið til stofnunar kvennaskóla á Vesturlandi. Sjóðnum var síðar ráðstafað til uppbyggingar Húsmæðraskólans á Staðarfelli. For. Guðmundur Scheving kaupmaður  og Halldóra Scheving Benediktsen. Maður Herdísar var Brynjólfur Bogason Benediktsen kaupmaður frá Staðarfelli. Þau voru systkinabörn Herdís og Brynjólfur. Börn þeirra voru Jarþrúður (1840-1840), Guðmundur Halldór (1843-1843), Guðrún (1845-1845), Sólveig (1846-1847), Ragnheiður (1848-1848), Bogi (1849-1851), Halldóra Sigríður (1851-1851), Haraldur Bogi (1853-1859), Davíð Scheving (1855-1855), Pétur Herjólfur (1858-1859), Ingileif Sólborg Karlotta (1861-1884) og Gísli (1862-1864). Fósturdóttir þeirra var Sigríður Ólafsdóttir/Brynjólfsdóttir Johnsen laundóttir Brynjólfs. Fóstursonur þeirra var Bjarni Pétursson Kolbeinsen (1844-1861).  Heimildir: Eylenda II. Æviskrár og saga Flateyjarhrepps. Bls. 49-50.  Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-21805 Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974) https://www.islendingabok.is/search
Tengd aðföng