Þórður Sveinbjörnsson Guðjohnsen
14.9.1844 - 16.3.1926
Staða
Verslunarstjóri
Staður
Núverandi sveitarfélag: Norðurþing, Norðurþing
Sveitarfélag 1950: Húsavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Þórður Sveinbjörnsson Pétursson
Guðjohnsen.
Foreldrar: Pétur Guðjónsson Guðjohnsen
organisti f. 29.11.1812, d. 25.08.1877 og Guðrún Sigríður Guðjohnsen
f. Knudsen, f. 5. nóvember 1818, d. 12. júlí 1899.
Húsavík 1871 - 1902.
Foreldrar: Pétur Guðjohnsen dómkirkjuorganisti
(29.11.1812 - 25.8.1877, sjá hann) og k.h. Guðrún Sigríður Guðjohnsen f.
Knudsen (5.11.1818 - 12.7.1899).
Maki I: Halldóra Margrét Guðjohnsen, f. Sveinbjörnsson, f. 18.6.1844 í
Nesi við Seltjörn d. 7.6.1881 á Húsavík, dóttir Þórðar háyfirdómara Sveinbjörnssonar
í Nesi (sjá hann) og k.h. Kirstine Cathrine Sveinbjörnsson, f. Knudsen.
Þau Halldóra og Þórður systrabörn (um afkomendur þeirra sjá Knudsensætt
II, s. 331 o.áfr.)
Maki II: María Kirsten Guðjohnsen f. Sveinbjörnsson f. 4. 5. 1872 í Silkiborg
d. 18.3.1936 í Frederiksberg, dóttir Theodórs Sveinbjörnsson læknis í Silkiborg
(sjá hann) og k.h. Selma Ritte Johanne Mathilde Sveinbjörnsson f. Knudsen.
Þau Þórður og María af 2. og 3. lið. (Um afkomendur þeirra sjá sama rit).
Þórður var fæddur í Reykjavík. "Verslunarmaður í Reykjavík, var um
tíma í Skotlandi, verslunarstjóri í Reykjavík 1868-1870 og bjó þá í Túngötu
6 og Vesturgötu 17, fluttist 1871 til Húsavíkur og gerðist verslunarstjóri
hjá Örum og Wulff, fluttist síðan árið 1902 til Kaupmannahafnar og átti
þar heima til æviloka, bjó fyrst í Langalandi en síðan í Kaupmannahöfn.
(Knudsensætt II s. 332).
Tengd aðföng




