Sveinn Björnsson

27.2.1881 - 25.1.1952
Staða
Forseti, Lögfræðingur, Sendiherra, Alþingismaður
Staður
Staður: Bessastaðir, Jörð, 225-Garðabær, Garðabær, Álftanes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Álftanes Sveitarfélag 1950: Bessastaðahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Tók sér ættarnafnið Björnsson 1923.  Fæddur í Kaupmannahöfn.  Foreldrar:  Björn Jónsson, ritstjóri, alþingismaður og ráðherra, og Elísabet Sveinsdóttir.  Systkini:  Guðrún kona Þórðar Pálssonar læknis, Borgarnesi, Ólafur ristjóri og Sigríður. Stúdent 1900 Reykjavík.  Lögfræðipróf 1907 Hafnarháskóla.  Yfirréttarmálaflutningsmaður 1907.  Hrl. 1920.  Rak málaflutningsskrifstofu í Reykjavík 1907-1920 og 1924-1926.  Settur 29. sept. 1919 málaflutningsmaður við landsyfirréttinn til 31. des. s.á.  Skip. 1920 sendiherra í Danmörku, lausn 1924.  Skip. 1926 að nýju sendiherra í Danmörku, lausn 1941.  Ráðunautur ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum 1940-1941.  Kjörinn af Alþingi ríkisstjóri Íslands 17. júní 1941 til jafnlengdar 1942, endurkjörinn 9. maí 1942 og 17. apríl 1943. Kjörinn af Alþingi fyrsti forseti Íslands að Lögbergi á Þingvöllum 17. júní 1944.  Þjóðkjörinn án atkvæðagreiðslu frá 1945 og aftur frá 1949.  Sat á Bessastöðum. Forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur 1918-1920.  Einn af stofnendum Eimskipafélags Íslands 1914 og formaður þess 1914-1920 og 1924-1926.  Stofnandi Brunabótafélags Íslands og forstjóri þess frá stofnun 1. jan. 1916 til 31. júlí 1920.  Einn af stofnendum Sjóvátryggingarfélags Íslands haustið 1918, formaður þess 1918-1920 og 1924-1926.  Einn af stofnendum Rauða Kross Íslands 10. des. 1924 og fyrsti formaður hans til 21. júní 1926.  Einn af stofnendum Málaflutningsmannafélags Íslands 1911 og formaður þess 1918-1920.  Skip. 1910 í peningamálanefnd, í vörukaupanefnd fyrir ríkisstjórnina til Bandaríkjanna júlí-okt. 1914.  Kosinn í velferðarnefnd 1914 og 1915 og 1925 í mþn. í bankamálum.  Fulltrúi Íslands á ráðstefnu í Genua 1922, á alþjóðaráðstefnu í Haag 1930 um lögskipan (codification) á þjóðarétti, á ráðstefnu í Genf 1930-1931 til athugunar á stofnun Evrópubandalags, á fjármálaráðstefnu í London 1933, á ráðstefnu í London 1937 til að ákveða reglur um möskvastærð og fiskstærð með tilliti til veiða.  Formaður viðskiptasamninganefnda, er gert hafa tolla- og verslunarsamninga við Norðurlöndin, Bretland, Þýskaland og Miðjarðarhafslöndin. Alþm. Reykv. 1914-1915 og 1919-1920. Maki (02.09.1908):  Georgia Hoff-Hansen, f. 18.01.1884, d. 18.09.1957.  (Foreldrar hennar:  Hans Henrik Emil Hansen, lyfsali og jústisráð í Hobro á Jótlandi, og Anna Catherine Hansen.) Heimildir: Alþingismannatal 1845-1975, bls. 397-398.  Skrifstofa Alþingis gaf út, Reykjavík, 1978.
Tengd aðföng