Jón Halldór Kristjánsson
11.6.1942
Staða
Ráðherra
Staður
Staður: Selás 12, 700-Egilsstöðum, Múlaþing, Egilsstaðir, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Múlaþing, Múlaþing
Sveitarfélag 1950: Egilsstaðahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. í Stóragerði í
Óslandshlíð í Skagafirði.
For.: Kristján Jónsson
(f. 27. des. 1905, d. 20. okt. 1994) bóndi þar og síðar á Óslandi og k.
h. Ingibjörg Jónsdóttir (f. 1. apríl 1906, d. 20. okt. 1955) húsmóðir.
K. (25. des. 1964)
Margrét Hulda Einarsdóttir (f. 19. nóv. 1946) bankastarfsmaður. For.: Einar
Ólason og Ásgerður Guðjónsdóttir.
Börn: Viðar (1964),
Ásgerður Edda (1968), Einar Kristján (1973).
Systkin hans: Margrét Helga,
Þóra Sigrún, Svava Sjöfn.
Samvinnuskólapróf 1963.
Verslunarstörf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 1959-1963. Verslunarstjóri hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum 1963-1978. Félagsmálafulltrúi Kaupfélags
Héraðsbúa 1978-1984. Skip. 14. apríl 2001 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
lausn 23. maí 2003. Skip. 23. maí 2003 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
Ritstjóri Austra á Egilsstöðum síðan 1974. Í sýslunefnd Suður-Múlasýslu
1974-1987. Formaður stjórnar Héraðsskjalasafns Austfirðinga 1975-1988.
Þingkjörinn endurskoðandi Framkvæmdastofnunar ríkisins 1974-1983. Stjórnarformaður
Kaupfélags Héraðsbúa 1987-1995. Í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 1985.
Í Norðurlandaráði 1990-1991. Fulltrúi Íslands í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna
1985-1987. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1989 og afvopnunarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna 1988. Varaformaður Ferðamálaráðs síðan 1999. Í stjórnarskrárnefnd
frá 2005, formaður.
Alþm. Austurl. 1984-2003, alþm. Norðaust. síðan 2003 (Framsfl.).
Vþm. Austurl. apríl 1979, apríl 1981, febr.-mars og nóv. 1982, okt.-nóv.
1983, apríl, maí, nóv. og des. 1984.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra síðan 2001.
Forseti Nd. 1987-1988.
Fjárlaganefnd 1991-2001 (form. 1995-2001), félagsmálanefnd 1991-1995, allsherjarnefnd
1995-1999, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995, 1999 og 2000-2002, sérnefnd
um fjárreiður ríkisins 1995-1997, utanríkismálanefnd 1999-2001 (varform.
1999-2001), samgöngunefnd 1999-2001, heilbrigðis- og trygginganefnd 1999-2001.
Íslandsdeild NATO-þingsins 1991-2001.
Ritstjóri: Samherji, ársrit Kaupfélags Héraðsbúa (1969-1985). Austri (1974-1995).
Tíminn (1993-1995).
Tengd aðföng







