Jón Halldór Kristjánsson

11.6.1942
Roles
Ráðherra
Place
Staður: Selás 12, 700-Egilsstöðum, Múlaþing, Egilsstaðir, Ísland Núverandi sveitarfélag: Múlaþing, Múlaþing Sveitarfélag 1950: Egilsstaðahreppur
More information
Vefbirting: F. í Stóragerði í Óslandshlíð í Skagafirði. For.: Kristján Jónsson (f. 27. des. 1905, d. 20. okt. 1994) bóndi þar og síðar á Óslandi og k. h. Ingibjörg Jónsdóttir (f. 1. apríl 1906, d. 20. okt. 1955) húsmóðir. K. (25. des. 1964) Margrét Hulda Einarsdóttir (f. 19. nóv. 1946) bankastarfsmaður. For.: Einar Ólason og Ásgerður Guðjónsdóttir. Börn: Viðar (1964), Ásgerður Edda (1968), Einar Kristján (1973). Systkin hans: Margrét Helga, Þóra Sigrún, Svava Sjöfn. Samvinnuskólapróf 1963. Verslunarstörf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 1959-1963. Verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum 1963-1978. Félagsmálafulltrúi Kaupfélags Héraðsbúa 1978-1984. Skip. 14. apríl 2001 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skip. 23. maí 2003 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Ritstjóri Austra á Egilsstöðum síðan 1974. Í sýslunefnd Suður-Múlasýslu 1974-1987. Formaður stjórnar Héraðsskjalasafns Austfirðinga 1975-1988. Þingkjörinn endurskoðandi Framkvæmdastofnunar ríkisins 1974-1983. Stjórnarformaður Kaupfélags Héraðsbúa 1987-1995. Í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 1985. Í Norðurlandaráði 1990-1991. Fulltrúi Íslands í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1985-1987. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1989 og afvopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1988. Varaformaður Ferðamálaráðs síðan 1999. Í stjórnarskrárnefnd frá 2005, formaður. Alþm. Austurl. 1984-2003, alþm. Norðaust. síðan 2003 (Framsfl.). Vþm. Austurl. apríl 1979, apríl 1981, febr.-mars og nóv. 1982, okt.-nóv. 1983, apríl, maí, nóv. og des. 1984. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra síðan 2001. Forseti Nd. 1987-1988. Fjárlaganefnd 1991-2001 (form. 1995-2001), félagsmálanefnd 1991-1995, allsherjarnefnd 1995-1999, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995, 1999 og 2000-2002, sérnefnd um fjárreiður ríkisins 1995-1997, utanríkismálanefnd 1999-2001 (varform. 1999-2001), samgöngunefnd 1999-2001, heilbrigðis- og trygginganefnd 1999-2001. Íslandsdeild NATO-þingsins 1991-2001. Ritstjóri: Samherji, ársrit Kaupfélags Héraðsbúa (1969-1985). Austri (1974-1995). Tíminn (1993-1995).
Related objects