Guðrún Katrín Þorbergsdóttir

14.8.1934 - 12.10.1998
Staða
Framkvæmdastjóri, Forsetafrú
Staður
Staður: Bessastaðir, Jörð, 225-Garðabær, Garðabær, Álftanes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Álftanes Sveitarfélag 1950: Bessastaðahreppur Sveitarfélag 1950: Seltjarnarneshreppur Núverandi sveitarfélag: Seltjarnarneskaupstaður, Seltjarnarnesbær Staður: Barðaströnd 5, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarnesbær, Seltjarnarnes, Ísland
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Guðrún Katrín fæddist í Reykjavík 14. ágúst 1934. Foreldrar hennar voru Guðrún Símonardóttir Bech húsmóðir og Þorbergur Friðriksson skipstjóri. Systkini Guðrúnar Katrínar eru Auður Þorbergsdóttir borgardómari, Þór Þorbergsson búfræðingur og Þorbergur Þorbergsson verkfræðingur. Guðrún Katrín ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur í skjóli móður sinnar, en föður sinn missti hún sjö ára gömul. Hún fór í Menntaskólann í Reykjavík og varð stúdent árið 1955. Á árunum 1956­1963 starfaði Guðrún Katrín sem fulltrúi á Náttúrufræðistofnun Íslands. Frá 1965­-1973 bjó hún á Hvammstanga, í Danmörku og Svíþjóð. Hún las fornleifafræði við Gautaborgarháskóla skólaárið 1971-­1972. Eftir að Guðrún Katrín kom heim settist hún á skólabekk og nam þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands frá 1973­-1975. Árið 1979 tók Guðrún Katrín við starfi framkvæmdastjóra Póstmannafélags Íslands. Starfinu gegndi hún til ársins 1988 þegar hún setti á stofn verslunina Garn gallerí við Skólavörðustíg í Reykjavík. Verslunina rak hún til ársins 1991 þegar hún tók aftur við starfi framkvæmdastjóra Póstmannafélagsins og gegndi því til ársins 1996. Um tíma var Guðrún Katrín dagskrárfulltrúi hjá Sjónvarpinu og hún var framkvæmdastjóri verkefnisins Þjóðþrif. Guðrún Katrín sat í bæjarstjórn Seltjarnarness frá 1978­-1994. Frá 1991 sat hún í stjórn Minja og sögu, vinafélags Þjóðminjasafns Íslands. Guðrún Katrín giftist Ólafi Ragnari Grímssyni 14. nóvember 1974. Þau eignuðust tvær dætur 30. ágúst 1975, tvíburana Guðrúnu Tinnu, sem lauk námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands í vor, og Svanhildi Döllu sem stundar nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Fyrri maður Guðrúnar Katrínar var Þórarinn B. Ólafsson læknir, en hann lést fyrr á þessu ári. Þau eignuðust tvær dætur, en þær eru Erla myndlistarmaður, fædd 22. september 1955 og Þóra kennari, fædd 6. júlí 1960. Gaf tvær skeiðar eða spænir til safnsins 16.4.1996.
Tengd aðföng