Svavar Lárus Gestsson
17.6.1926 - 01.09.1996
Staða
Útvarpsmaður, Tónlistarmaður
Staður
Staður: Miðleiti 3, 103-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Var á Vesturgötu 50a, Reykjavík 1930. Fósturfor: Svanlaugur Hjörtur Elíasson og Jónína Guðrún Gestsson. Hljómlistar- og útvarpsmaður í Reykjavík. Nefndur Svavar Gests.
Svavar Lárus Gests fæddist í Reykjavík 17. júní 1926. Hann lést á Landspítalanum 1. september 1996. Dánarmein hans var krabbamein.
Foreldrar hans voru Gestur Guðmundsson kaupmaður í Reykjavík, f. 28. sept. 1901 í Arnardal, Eyrarhr., N-Ís., d. 26. apríl 1974, og k.h. Helga Loftsdóttir, f. 25. okt. 1889 á Gríshóli í Helgafellssveit, Snæf., d. 29. jan. 1934.
Fósturforeldrar Svavars frá unga aldri voru (Svanlaugur) Hjörtur Elíasson, verkstjóri í Reykjavík, f. 13. júlí 1890 í Gálutröð, Breiðavíkurhr., Snæf., d. 20. jan. 1967, og k.h. (Jónína) Guðrún Kristjánsdóttir, f. 30. des. 1886 í Innri-Lambadal í Dýrafirði, d. 3. nóv. 1962.
Systkini hans voru: Hulda (d. 1908), Hulda, (d. 1985), Hörður (d. 1975), Sigurjón (d. 1961), Loftur (d. 1977), Gunnar (d. 1989). Systkini hans samfeðra voru fjögur: Rafn og Ósk eru á lífi, en látnir eru Geir og Hlöðver. Einnig er á lífi uppeldissystir Svavars, Gyða Erlingsdóttir, húsfreyja í Reykjavík.
Maki: María Ólöf Steingrímsdóttir f. 01.10.1928.
Börn Svavars og Maríu eru fjögur:
1. Bryndís, f. 7.4. 1946, bankastarfsmaður, býr í Reykjavík, gift Óskari H. Friðþjófssyni, hárskerameistara, þau eiga tvö börn.
2. Hjördís Guðrún, f. 25.6. 1949, húsfreyja í Reykjavík, gift Gísla Steinari Jónssyni, prentara, þau eiga tvö börn.
3. Hörður, f. 15.1. 1960, framkvæmdastjóri í Reykjavík, í sambúð með Kristínu Elfu Guðnadóttur, ritstjóra í Reykjavík, þau eiga einn son og Kristín á eina dóttur fyrir.
4. Gunnar, f. 26.9. 1962, verkfræðingur í Hafnarfirði, kvæntur Hrönn Ásgeirsdóttur, kennara, þau eiga tvö börn og Gunnar á eina dóttur fyrir.
Svavar og María slitu samvistum 1966.
Hinn 5. júlí 1966 kvæntist hann Elly Vilhjálms, f. 28. des. 1935, söngkonu í Reykjavík.
Börn Svavars og Ellyjar eru tvö:
1. Máni, f. 15.6. 1967, tónlistarmaður í Reykjavík, kvæntur Þuríði Jónsdóttur, deildarstjóra.
2. Nökkvi, f. 29.6. 1971, verslunarmaður í Reykjavík, í sambúð með Ásdísi Wöhler, þroskaþjálfa. Hjá þeim ólst einnig upp dóttir Ellyjar, Hólmfríður Á. Bjarnason, f. 19.2. 1962, í Reykjavík, í sambúð með Kristjáni Helgasyni, bílstjóra, Hólmfríður á einn son.
Störf: Hljóðfæraleikari, verslunarstörf.
Heimildir:
https://www.islendingabok.is/search?find=svavar+l%C3%A1rus+gestsson+1926
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/286240/?item_num=7&searchid=5b5ea7bc5c59593fb25709a52e334f16dd971cd2
Tengd aðföng





