Viktor von Urbancic

9.8.1903 - 4.4.1958
Staða
Hljómsveitarstjóri
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Dr. Viktor von Urbantschitsch var fæddur í Vínarborg þann 9. ágúst 1903, en átti ættir að rekja til Slóveníu í Júgóslavíu (faðir hans var frægur skurðlæknir, og prófessor og námu m.a. nokkrir Íslendingar lænisfræði hjá honum). Á unga aldri afréð hann að helga líf sitt tónlistinni og árið 1925 lauk hann doktorsprófi í tónvísindum við háskólann í Vínarborg, og er doktorsritgerðar hans, Die sonatenform bei Brahms, getið sem heimildarrits í Brahmsstúdíum í helstu tónlistaruppsláttarritum Vesturlanda. Ári síðar lauk hann prófi í hljómsveitarstjórn og að auki sérnámi í píanó- og orgelleik. Á árunum 1924 - 1926 starfaði hann sem hljómsveitarstjóri við Theater in der Josefstadt leikhúsið í Vínarborg, næstu sjö árin var hann hljómsveitarstjóri óperunnar í Mainz í Þýskalandi, árið 1934 gestastjórnandi konunglegu óperunnar í Belgrad, Júgóslavíu og 1935 - 1938 stjórnaði hann háskólahljómsveitinni í Graz ásamt því að vera aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans í þeirri borg. Að framansögðu má sjá hvílíkur hvalreki það var fyrir íslenskt tónlistarlíf að fá slíkan mann til starfa á bernskuárum nútímalegs tónlistarlífs á Íslandi. Ásamt nokkrum öðrum erlendum tónlistarmönnum, fyllti hann skarðið í kennarahóp Tónlistarskólans í Reykjavík sem heimamenn ekki gátu mannað og fullyrða má, að það skarð sem hann fyllti var stærra en annarra - bæði fyrr og síðar. Dr. Urbancic (hann valdi að breyta rithætti nafns síns á þennan hátt til einföldunar fyrir Íslendinga, og mun oftast hafa verið nefndur þessu nafni af samferðafólki sínu) kom til Íslands í ágúst árið 1938 og tók við stöðu Dr. Franz Mixa sem kennari við Tónlistarskólann og stjórnandi Hljómsveitar Reykjavíkur. Þar sem Dr. Urbancic var ráðinn til landsins af Tónlistarfélaginu voru flestir tónleikar sem hann stjórnaði haldnir undir merkjum þess. Þó var undantekning þar á eins og þegar hann í fyrsta sinni á Íslandi hélt tónleika með kaþólski kirkjutónlist og flutti m.a. verkið Stabat Mater eftir Pergolese. Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974) mbl.is
Tengd aðföng