Viktor von Urbancic
9.8.1903 - 4.4.1958
Roles
Hljómsveitarstjóri
More information
Vefbirting: Dr. Viktor von Urbantschitsch var
fæddur í Vínarborg þann 9. ágúst 1903, en átti ættir að rekja til Slóveníu
í Júgóslavíu (faðir hans var frægur skurðlæknir, og prófessor og námu m.a.
nokkrir Íslendingar lænisfræði hjá honum). Á unga aldri afréð hann að helga
líf sitt tónlistinni og árið 1925 lauk hann doktorsprófi í tónvísindum
við háskólann í Vínarborg, og er doktorsritgerðar hans, Die sonatenform
bei Brahms, getið sem heimildarrits í Brahmsstúdíum í helstu tónlistaruppsláttarritum
Vesturlanda. Ári síðar lauk hann prófi í hljómsveitarstjórn og að auki
sérnámi í píanó- og orgelleik.
Á árunum 1924 - 1926 starfaði hann
sem hljómsveitarstjóri við Theater in der Josefstadt leikhúsið í
Vínarborg, næstu sjö árin var hann hljómsveitarstjóri óperunnar í Mainz
í Þýskalandi, árið 1934 gestastjórnandi konunglegu óperunnar í Belgrad,
Júgóslavíu og 1935 - 1938 stjórnaði hann háskólahljómsveitinni í Graz ásamt
því að vera aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans í þeirri borg.
Að framansögðu má sjá hvílíkur hvalreki
það var fyrir íslenskt tónlistarlíf að fá slíkan mann til starfa á bernskuárum
nútímalegs tónlistarlífs á Íslandi. Ásamt nokkrum öðrum erlendum tónlistarmönnum,
fyllti hann skarðið í kennarahóp Tónlistarskólans í Reykjavík sem heimamenn
ekki gátu mannað og fullyrða má, að það skarð sem hann fyllti var stærra
en annarra - bæði fyrr og síðar.
Dr. Urbancic (hann valdi að breyta
rithætti nafns síns á þennan hátt til einföldunar fyrir Íslendinga, og
mun oftast hafa verið nefndur þessu nafni af samferðafólki sínu) kom til
Íslands í ágúst árið 1938 og tók við stöðu Dr. Franz Mixa sem kennari við
Tónlistarskólann og stjórnandi Hljómsveitar Reykjavíkur. Þar sem Dr. Urbancic
var ráðinn til landsins af Tónlistarfélaginu voru flestir tónleikar sem
hann stjórnaði haldnir undir merkjum þess. Þó var undantekning þar á eins
og þegar hann í fyrsta sinni á Íslandi hélt tónleika með kaþólski kirkjutónlist
og flutti m.a. verkið Stabat Mater eftir Pergolese.
Reference: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn
nr: 25505-28521. (1969-1974)
mbl.is
Related objects











