Jósef Jón Björnsson

26.11.1858 - 7.10.1946
Staða
Alþingismaður, Skólastjóri
Staður
Staður: Vatnsleysa, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Viðvíkursveit, Ísland Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður Sveitarfélag 1950: Viðvíkurhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: (Jósef Jón) F. á Torfustöðum fremri í Miðfirði 26. nóv. 1858, d. 7. okt. 1946. For.: Björn Björnsson (f. 13. apríl 1817, d. 14. sept. 1887) bóndi þar og k. h. Ingibjörg Hallsdóttir (f. 19. des. 1815, d. 7. okt. 1871) húsmóðir. K. 1. (13. nóv. 1881) Kristrún Friðbjarnardóttir (f. 25. ágúst 1856, d. 18. júlí 1882) húsmóðir. For.: Friðbjörn Guðmundsson og k. h. Guðbjörg Sveinsdóttir. K. 2. (24. ágúst 1884) Hólmfríður Björnsdóttir (f. 2. febr. 1860, d. 22. maí 1894) húsmóðir. For.: Björn Pálmason og k. h. Sigríður Eldjárnsdóttir. K. 3. (21. apríl 1898) Hildur Björnsdóttir (f. 1. júlí 1881, d. 19. nóv. 1965) húsmóðir, hálfsystir Hólmfríðar. For.: Björn Pálmason og Þuríður Kristjánsdóttir. Sonur Jósefs og Kristrúnar: Einar (1881). Börn Jósefs og Hólmfríðar: Björn (1885), Sigríður (1886), Kristrún (1887), Ingibjörg (1889), Hólmjárn (1891), Einar (1892). Börn Jósefs og Hildar: Guðmundur (1898), Hólmfríður Jósefína (1900), Sigríður (1902), Róar (1904), Margrét (1911), Jósef Haukur (1915). Nám í búnaðarháskólanum í Stend í Noregi 1877—1879 og lokapróf þaðan. Verklegt búnaðarnám í Danmörku 1879—1880. Nám í búnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn veturinn 1885—1886 og lokapróf þaðan (cand. agr.). Námsför til Noregs og Danmerkur með styrk úr landssjóði (m. a. á búnaðarsýningu í Björgvin) 1898 og námsför með opinberum styrk til Norðurlanda allra 1902—1903 til að kynna sér kennslu í búnaðarskólum. Búnaðarráðunautur í Skagafjarðarsýslu sumarið 1881. Skólastjóri Búnaðarskólans á Hólum í Hjaltadal frá stofnun hans 1882—1888 og 1896—1902, kennari 1902—1934, settur skólastjóri 1906—1907. Bóndi á Bjarnastöðum í Kolbeinsdal 1888—1892, á Ásgeirsbrekku 1892—1896, á Vatnsleysu 1902—1922 og 1934— 1940, en á Hólum var heimili hans 1922—1934. Fluttist til Reykjavíkur 1941 og átti þar heima til æviloka. Hann varð sýslunefndarmaður Viðvíkurhrepps 1892, var hreppstjóri 1893—1896 og oddviti um skeið. Sýslunefndarmaður Hólahrepps var hann 1896—1902 og oddviti hreppsnefndar um tíma. Skip. 1914 í mþn. í launamálum, formaður, og kosinn 1915 í velferðarnefnd. Var einn af stofnendum Skógræktarfélags Íslands 1930. Alþm. Skagf. 1908—1915 (Sjálfstfl. eldri, Sambfl., Bændafl. eldri). 2. varaforseti Ed. 1914, 1. varaforseti Ed. 1915. Heimildir: www//althingi.is
Tengd aðföng