Bjarni Brynjólfsson

23.7.1874 - 25.12.1945
Staða
Skipasmiður
Staður
Staður: Engey, Reykjavíkurborg Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Seltjarnarneshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Foreldrar hans voru Brynjólfur Bjarnason (1845(-6) - 1933) bóndi í Engey og skipasmiður, og kona hans Guðrún Jónsdóttir. Systkin: Helga (nuddlæknir), Magnús (skipstjóri), Guðrún (átti Þorstein skipstjóra Þorsteinsson í Rvk.), Kristinn (skipstjóri í Ráðagerði), Brynjólfur (smiður), Pétur (úrsmiður, fór til Vesturheims). Bjarni Brynjólfsson var fæddur og uppalinn í Engey og bjó þar allt sitt líf. Lærði skipasmíðar hjá föður sínum og smíðaði fjölda báta. Skipasmiður og bóndi. Hlaut silfurverðlaun fyrir bát á skandinavísku fiskveiðisýningunni í Þrándheimi 1908. Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 28522 - 31552. Ágúst Ólafur Georgsson, 1998. Om båtbyggaren Bjarni Brynjólfsson. Människor och båtar i Norden. Rapport från seminarium vid Sjöhistoriska museet 29-31 maj 1998, bls. 95-99. Stockholm. Íslenzkar æviskrár, I. Páll E. Ólason. Reykjavík 1948, bls. 273-274.
Tengd aðföng