Helga Jónsdóttir

28.7.1863 - 18.2.1949
Staður
Staður: Ásgarður, 371-Búðardal, Dalabyggð, Hvammssveit, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Sveitarfélag 1950: Hvammshreppur Dal.
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Húsfreyja í Ásgarði. Húskona á ýmslum bæjum. Átti síðast heima á Framnesvegi 1b í Reykjavík. For. Jón Jónsson bóndi og Solveig Jónsdóttir í Þrándarkoti. Systkini Helgu voru Guðbjörg átti Böðvar Marteinsson á Rútsstöðum, Árni og Kristján fóru til Vesturheims, Guðbjörg átti Böðvar Marteinsson á Rútsstöðum, Sigríður átti Vilhjálm Oddsson í Reykjavík, Jóhannes verslunarmaður í Búðardal. Alls voru systkinin 12, en helmingurinn dó á barnsaldri. Maður Helgu var Einar Einarsson (1862-1923) bóndi í Ásgarði. Dætur þeirra voru Sigríður og Jóna Sólveig. Heimildir: Jón Guðnason. 1961. Dalamenn I. Bls. 396-397. Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 19. Plötusafn Jóns Guðmundssonar og Guðmundar Jónssonar Ljárskógum, nr. 1007.
Tengd aðföng