Anna Kristín Þórunn Teitsdóttir Benediktsson
14.9.1874 - 17.10.1963
Staða
Húsfreyja, Matsölukona, Verslunareigandi, Organisti, Ekkja
Staður
Staður: Lækjargata 12b, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Ísafjarðarkaupstaður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Staður: Smiðjugata 11, 400-Ísafirði, Ísafjarðarbær, Ísafjörður, Ísland
Staður: Vigur, Súðavíkurhreppur, Ísafjarðardjúp, Ísland
Sveitarfélag 1950: Ögurhreppur
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Foreldrar: Teitur Jónsson 1841-1905, húsmaður í Vigur, síðar veitingamaður á Ísafirði og bóndi í Viðey, og eiginkona hans Guðrún Gísladóttir (1845-1900)
Eiginmaður: Sigfús Ágúst Benediktsson, verslunarstjóri á Ísafirði, fæddur á Refsstöðum í Vopnafirði 28. júlí 1859, d. 14. maí 1901. Þau giftust árið 1892.
Börn:
Áslaug Ágústsdóttir, f. 1. ferúar 1893, d. 7. febrúar 1982, formaður KFUMK og vígslubiskupsfrú. Gift séra Bjarna Jónssyni vígslubiskupi.
Guðrún Ágústsdóttir, f. 22. nóvember 1897, d. 17. janúar 1983, söngkona. Gift Halli Þorleifssyni, söngstjóra.
Snorri Ágústsson, f. 1895. Sjómaður í Bandaríkjunum skv. Íslendingabók. Dánardagur ókunnur.
Eftir dauða Ágústs manns síns sá Anna fjölskyldunni farborða með því að selja fæði auk þess sem hún veitti stúlkum tilsögn í hannyrðum, orgelspili og munnlegum námsgreinum.
Árið 1905 fékk Anna Benediktsson borgarabréf til verslunar og opnaði verslun sem hún rak til ársins 1911 þegar hún flutti til Reykjavíkur. Þar hélt hún áfram að selja fæði, fyrst í Þingholtsstræti 18 og síðar Lækjargötu 12.
Snorri bjó hjá móður sinni til ársins 1909 en finnst ekki í manntali eftir það. Mun hann hafa flust til Vesturheims og segir Íslendingabók hann hafa verið sjómann í Bandaríkjunum. Ekki er ólíklegt að hann hafi fylgt móðursystkinum sínum en þrjú þeirra fluttu vestur um haf.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-21805 [1949-1956].
Vestri 18. mars 1905, 79.
Vesturland 24. des. 1964, 9.
Þjóðviljinn ungi 11. okt. 1901, 156.
Þjóðviljinn ungi 22. apríl 1905, 67.
Tengd aðföng





