Benedikt Sveinsson
20.1.1826 - 2.8.1899
Staða
Sýslumaður
Staður
Staður: Héðinshöfði 1, 641-Húsavík, Tjörneshreppur, Tjörnes, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Tjörneshreppur, Tjörneshreppur
Sveitarfélag 1950: Tjörneshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
F. á Sandfelli í Öræfum 20. jan. 1826 (mun þó sjálfur hafa talið fæðingarár sitt 1827), d. 2. ágúst 1899.
For.: Sveinn Benediktsson (f. 22. maí 1792, d. 5. sept. 1849) prestur þar og k. h. Kristín Jónsdóttir (f. í apríl 1794, d. 21. júlí 1879) húsmóðir.
K. (1859) Katrín Einarsdóttir (f. 31. ágúst 1840, d. 17. maí 1914) húsmóðir. Þau skildu. For.: Einar Stefánsson og k. h. Ragnheiður Benediktsdóttir.
Börn: Ragnheiður (1860), Sveinn (1862), Einar (1864), Kristín (1867), Sveinlaug (1870), Ólafur Sveinar Haukur (1872).
Alþingismaður í Reykjavík. Var á Mýrum, Þykkvabæjarklausturssókn, V-Skaft. 1835. Sýslumaður í Þingeyjarþingi 1874-97, sat á Héðinshöfða á Tjörnesi, og alþingismaður í Reykjavík. Flutti á Vatnsendia 1898. Var einn stofnanda blaðsins „Íslendings“ 1860 og í ritstjórn þess.
Stúdentspróf Lsk. 1852. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1858.
Heimiliskennari á Reynistað 1850—1852. Skip. 5. maí 1859 2. yfirdómari og dómsmálaritari við landsyfirréttinn, sat að Elliðavatni, vikið frá embætti 19. ágúst 1870. Sýslumaður í Þingeyjarsýslu 1874—1897, sat á Héðinshöfða. Fluttist til Reykjavíkur 1897, bjó að Vatnsenda frá 1898.
Skip. 1859 í nefnd til umsjónar í fjárkláðamálinu.
Kgk. alþm. 1861—1863 (vþm.), alþm. Árn. 1864—1880, alþm. N.-Múl. 1881— 1885, alþm. Eyf. 1886—1892 og alþm. N.-Þing. 1892— 1899.
Forseti Sþ. 1886, 1887, 1893 og 1894, forseti Nd. 1889, 1893 og 1895. Varaforseti Nd. 1891.
Greinar eftir hann birtust í tímaritum og blöðum, m. a. um stjórnarskipunarmál Íslands.
Ritstjóri: Íslendingur (1860—1865).
Heimildir:
islendingabok.is
https://is.wikipedia.org/wiki/Reynista%C3%B0ar%C3%A6tt
Tengd aðföng






