Tryggvi Gunnarsson

18.10.1835 - 21.10.1917
Staða
Ljósmyndari, Bankastjóri, Alþingismaður, Kaupstjóri, Smiður
Staður
Staður: Kolasund 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Kaupstjóri, alþingismaður, bankastjóri. Tryggvi var sonur séra Gunnars Gunnarssonar í Laufási og konu hans Jóhönnu Kristjönu Gunnlaugsdóttur sýslumanns Briems. Tryggvi lærði trésmíðar hjá Ólafi Briem á Grund. Fór síðan til Danmerkur til framhaldsnáms. Tryggvi bjó lengi í Kaupmannhöfn en á Oddeyrinni á Akureyri á sumrin. Sá um vegalagningu milli Oddeyrar og Akureyrar. Kaupstjóri Gránufélagsins. Hann var bankastjóri Landsbankans 1893-1909. Tryggvi reisti Laufáskirkju, timburhús reist 1862. Hann réði að einhverju leyti útliti frambæjar Laufásbæjarins, talinn hafa teiknað hann. Tryggvi var ásamt Jóni Christni Stephánssyni aðalboðberi klassískra sjónarmiða í byggingarlist norðanlands. Tryggvi er forsmiður að Hálskirkju í Fnjóskadal, timburhús reist 1859-1860. Hann stóð fyrir byggingu Ölfusárbrúar og fékk til þess útlendan verkfræðing. Hann stofnaði Dýraverndunarfélagið í Reykjavík og gaf því allar eigur sínar. [Úr Íslenskri byggingararfleifð I, 67, 169, 236, 243. Íslenskum æviskrám 32. Akureyri. Fjaran og innbærinn, 42.] Kona hans: Kristín Halldóra Þorsteinsdóttir Pálssonar, (12. des.1837 - 7. mars1875). Tryggvi Gunnarsson (Gunnlaugur Tryggvi) fæddist í Laufási við Eyjaförð 18. okt. 1835, d. 21. okt. 1917. For.: Gunnar Gunnarsson (f. 24. jan. 1781, d. 24. júlí 1853) prestur þar og k. h. Jóhanna Kristjana Gunnlaugsdóttir Briem (f. 14. nóv. 1813, d. 23. okt. 1878) húsmóðir, hún átti síðar Þorstein Pálsson alþm. Bróðir Eggerts Gunnarssonar alþm. K. (30. júní 1859) Kristín Halldóra Þorsteinsdóttir (f. 12. des. 1837, d. 7. mars 1875) húsmóðir. For.: Þorsteinn Pálsson alþm. og 1. k. h. Valgerður Jónsdóttir. Fósturdóttir Tryggva og Halldóru: Valgerður Jónsdóttir (1863), kona Þórhalls Bjarnasonar alþm. Sonur Tryggva og Jóhönnu Margrétar Jónsdóttur (Ólafur (1890). Dætur Tryggva og Helgu Jónasdóttur: Lilý Guðrún (1912), Áslaug (1916), Þórunn María (1917). Nam trésmíðar hjá móðurbróður sínum Ólafi Briem þfm. og timburmeistara á Grund 1850-1853. Dvaldist í Kaupmannahöfn veturinn 1863-1864 og lærði þá m.a. ljósmyndun, fór þaðan til Noregs og var þar um tíma á búnaðarskólanum í Ási. Sendur til Reykjavíkur sumarið 1858 í verslunarerindum fyrir Höfðhverfinga og seldi þá kaupmönnum syðra skipsfarm af eyfirskum afurðum og tók vörur norður í staðinn. Bóndi á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal 1859-1873. Stofnandi Gránufélagsins og kaupstjóri þess 1871-1893. Fluttist til Kaupmannahafnar 1873. Bankastjóri Landsbankans í Reykjavík 1893-1909, var þá vikið frá, en Alþingi ákvað síðan að hann nyti fullra eftirlauna til æviloka. Hreppstjóri í Hálshreppi 1865-1868, þá vék mágur hans Pétur Havstein amtmaður honum frá. Í móttökunefnd vegna konungskomu 1874 og aftur 1907. Þingkjörinn umsjónarmaður með byggingu alþingishússins 1879-1881. Forseti Þjóðvinafélagsins 1880-1911 og 1914-1917. Sá um byggingu Ölfusárbrúar 1891. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1897-1908 og 1910-1916. Stofnandi Dýraverndarfélags Íslands 1914 og formaður þess frá stofnun til æviloka. Alþingisgarðurinn var að miklu leyti handaverk hans og þar kaus hann sér legstað. Alþm. N.-Þing. 1869-1874 (sat ekki á þingi 1871 og 1873), alþm. S.-Múl. 1874-1885, alþm. Árn. 1894-1900, alþm. Reykv. 1900-1908 (Heimastjfl.). Varaforseti Sþ. 1881 og 1894, varaforseti Nd. 1883-1885 og 1895, 2. varaforseti Nd. 1907 Ævisaga Tryggva er til í fjórum bindum: Tryggvi Gunnarsson, höfundar Þorkell Jóhannesson og Bergsteinn Jónsson (1955, 1965, 1972 og 1990). Ritstjóri: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags (1880-1911 og 1914-1917). Dýravinurinn (1885-1916). Heimildir: Hörður Ágústsson, Íslensk byggingararfleifð I, 1998. Ská yfir friðuð hús. Húsafriðunarnefnd ríkisins. Páll Eggert Ólason, Íslenskar æviskrár V.bindi 1952. Hjörleifur Stefánsson, Akureyri. Fjaran og innbærinn, 1986. http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=581 (sótt 6. ágúst 2004)
Tengd aðföng