Ingveldur Aðalheiður Kolbeins
23.12.1924 - 28.10.2015
Staða
Ljósmóðir, Húsmóðir, Handavinnukennari
Staður
Staður: Aðalstræti 4, 450-Patreksfirði, Vesturbyggð, Patreksfjörður, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Vesturbyggð, Vesturbyggð
Sveitarfélag 1950: Flateyjarhreppur A-Barð.
Sveitarfélag 1950: Patrekshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Ingveldur Aðalheiður Halldórsdóttir Kolbeins. Fædd 23. desember 1924 í Flatey. Dáin 28. október 2015 á Patreksfirði. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1943-1944. Lýðháskóli í Svíþjóð 1947-1948 með áherslu á handmennt. Handavinnukennari í Vestmannaeyjum og Héraðsskólann á Laugarvatni. Ljósmæðraskólinn 1950-1951. Ljósmóðir og handavinnukennari á Patreksfirði frá 1951, Vann í Kaupfélagi Vestur-Barðstrendinga til 1988. Skrifstofustörf hjá Vélsmiðjunni Loga frá 1988. For. Halldór Kristján Kolbeins (1893-1964) prestur og Lára Ágústa Ólafsdóttir Kolbeins (1898-) kennari í Flatey, á Stað í Súgandafirði, Mælifelli í Skagafirði og Vestmannaeyjum. Systkini Gísli (1926-2017), Erna (1928-2007), Eyjólfur (1929-2017), Þórey Mjallhvít (1932-2021) og Lára Ágústa (1938). Fóstursystkini Guðrún S. Guðmundsdóttir og Ólafur V. Valdimarsson. Maður Aðalheiðar (1954) var Sæmundur Jón Kristjánsson (1924-1991) verkstjóri í Vélsmiðjunni Loga. Börn þeirra eru Lilja, Barði, Halldór (1960-2013) og Ólafur. Stjúpbörn Aðalheiðar eru Helgi og Ásdís.
Heimildir:
Minning - Aðalheiður Kolbeins. Morgunblaðið 7.11.2015. Bls. 37.
Staðarfellsskóli 40 ára, bls. 26.
Tengd aðföng
