Einar Sverrisson

1.4.1914 - 30.01.2004
Staða
Rafvirkjameistari, Bóndi
Staður
Staður: Kaldrananes, 870-Vík, Mýrdalshreppur, Mýrdalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Mýrdalshreppur, Mýrdalshreppur Sveitarfélag 1950: Hvammshreppur V-Skaft.
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. á Kaldrananesi. Bóndi þar frá 1955. Eiginkona: Ragnhildur Sigríður Guðjónsdóttir úr Vestmannaeyjum. Einar starfaði alla tíð að smíðum og rafvirkjun. Var til heimilis að Vesturlbr. Grafarholti 110 Reykjavík skv. þjóðskrá 2000. Var í Kaldrananesi, Reynissókn, V-SKaft. 1930. Bóndi og rafvirkjameistari. Einar Sverrisson, bóndi og rafvirkjameistari, fæddist á Kaldrananesi í Mýrdal 1. apríl 1914. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík aðfaranótt 30. janúar 2004. Foreldrar hans voru Halldóra Einarsdóttir, Árnasonar frá Holti í Mýrdal, f. 6. mars 1879, og Sverrir Ormsson, Sverrissonar frá Efri-Ey í Meðallandi, f. 10. september 1878. Systur Einars voru Vilborg, f, 5. mars 1912, d. 13. jan. 1986, og Ormheiður, f. 30. nóvember 1916. Halldóra og Sverrir höfðu fyrst eignast tvo drengi 6. nóvember 1908, annar kom andvana, hinn dó á fyrsta sólarhring. Maki: Ragnhildur Sigríður Guðjónsdóttir frá Vestmannaeyjum.  Börn Einars og Ragnhildar urðu fjögur: 1) Kári, rafmagnsverkfræðingur í Reykjavík, f. 18. júní 1938, kvæntist Sigrúnu Magnúsdóttur og eiga þau tvær dætur, Sólveigu Klöru og Ragnhildi Þóru, og þrjú barnabörn. Sigrún og Kári skildu. 2) Guðrún, húsfreyja á Götum í Mýrdal, f. 15. apríl 1940, gift Jóni Hjaltasyni bónda þar. Þau eiga fjórar dætur, Sigurbjörgu, Ragnhildi, Dröfn og Gerði. Barnabörnin eru fimm. 3) Halldóra, húsfreyja í Grafarholti, f. 21. mars 1942, d. 26. ágúst 2000. Hún var gift Sigurði Sigurðarsyni, dýralækni á Keldum. Börn þeirra eru Sigurður, Ragnhildur, Einar og Sölvi. Barnabörnin eru fimm. Hið fimmta, sveinbarn sonur Sigurðar yngri, fæddist sama dag og Einar var kvaddur hinstu kveðju í Fossvogskapellu. 4) Margrét Guðný, stoðkennari á Bíldudal, svo í Reykjavík, f. 9. júní 1943. Margrét giftist Steini Styrmi Jóhannessyni frá Stóru-Heiði í Mýrdal, en þau skildu. Þeirra barn er Einar Steinsson, f. 3. apríl 1963. Hann ólst upp í Kaldrananesi sem kjörbarn Einars og Ragnhildar. Einar er kvæntur Susanne Götzinger, frá Wells í Austurríki. Margrét giftist síðar Hjámari Einarssyni Húnfjörð frá Vestmannaeyjum, f. 3. nóvember 1943, en hann fórst í sjóslysi í Arnarfirði 25. febrúar 1980. Margrét og Hjámar eignuðust fjögur börn: Ingveldi Lilju, Sverri Halldór, Petrínu Guðrúnu og Klöru Berglindi. Margrét eignaðist síðar tvíburasysturnar Tinnu og Sunnu með Guðbjarti Inga Bjarnasyni frá Hvestu í Arnarfirði. Barnabörnin eru sjö.   Heimildir: Sunnl. byggðir VI, 442 https://www.islendingabok.is/search https://www.mbl.is/greinasafn/grein/781871/?item_num=2&searchid=025c528e98fe867b5fede34f4fa55fe00ab1e4c0  
Tengd aðföng