Eðvarð K. Sigurðsson

18.7.1910 - 09.07.1983
Staða
Alþingismaður
Staður
Staður: Stigahlíð 28, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Hlíðar, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: For.: Sigurður Eyjólfsson (f. 22. júní 1876, d. 15. mars 1921) sjómaður og k. h. Ingibjörg Sólveig Jónsdóttir (f. 27. júlí 1885, d. 8. maí 1966) húsmóðir.        Vann ýmis verkamannastörf í Reykjavík til 1944, er hann gerðist starfsmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og varð það ævistarf hans. Í stjórn Verkamannafélagsins Dagsbrúnar frá 1942, formaður 1961—1982. Formaður Verkamannasambands Íslands frá stofnun þess 1964—1975. Átti sæti í nefnd sem undirbjó lög um atvinnuleysistryggingar 1956. Í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs frá stofnun hans 1956. Í verðlagsnefnd landbúnaðarvara (Sexmannanefnd) 1959—1971. Átti og sæti í nefndum, sem endurskoðuðu lög um slysatryggingar og atvinnuleysistryggingar. Fulltrúi Alþýðusambands Íslands á ársfundum Alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf 1955 og 1957. Kosinn 1967 í mþn. um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda. Skip. 1973 í lífeyrissjóðanefnd. Landsk. alþm. (Reykv.) 1959—1971, alþm. Reykv. 1971—1979 (Alþb.). Vþm. Reykv. nóv. 1957. 2. varaforseti Sþ. 1971— 1974, 1. varaforseti Sþ. 1974, 2. varaforseti Nd. 1978— 1979.
Tengd aðföng