Gísli Jónsson

17.8.1889 - 07.10.1970
Staða
Alþingismaður, Vélstjóri
Staður
Staður: Ægisgata 10, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. í Litlabæ á Álftanesi 17. ágúst 1889, d. 7. okt. 1970. For.: Jón Hallgrímsson (f. 19. maí 1855, d. 24. mars 1921) útvegsbóndi þar og k. h. Guðný Jónsdóttir (f. 12. ágúst 1857, d. 11. júní 1928) húsmóðir. Bróðir: Guðmundur Kamban skáld. K. (3. júlí 1920) Hlín Þorsteinsdóttir (f. 5. des. 1899, d. 9. nóv. 1964) húsmóðir, afasystir Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar alþm. For.: Þorsteinn Jónsson og k. h. Guðrún Bjarnadóttir. Börn: Guðrún (1921), Þorsteinn (1924), Haraldur (1928). Nam járnsmíði á Ísafirði 1908—1909, vélsmíði í Englandi 1914 og Kaupmannahöfn 1915. Stundaði nám við vélfræðideild Stýrimannaskólans 1913—1914, við Vélstjóraskóla Íslands 1915— 1916, lauk prófi frá honum (skírteini nr. 1). Kyndari 1910—1911. Vélstjóri á togurum 1911—1913. Vélstjóri á strandferðaskipum 1914—1915. Vélstjóri á skipum Eimskipafélags Íslands 1915 og 1917, yfirvélstjóri á skipum þess 1918—1924. Skip. 1924 umsjónarmaður skipa og véla, sá um smíði allra nýsköpunartogara ríkissjóðs 1945—1950, lausn 1968. Jafnframt framkvæmdastjóri ýmissa félaga og fyrirtækja í Reykjavík og á Bíldudal frá 1933. Í sjó- og verslunardómi Reykjavíkur 1933—1937. Formaður Vélstjórafélags Íslands 1919—1924. Kosinn 1942 í úthlutunarnefnd bifreiða. Skip. 1942 í skipulagsnefnd skipaviðgerða, 1943 í mþn. um skipasmíðastöð í Reykjavík og skipulagningu strandferða, 1943 í Reykhólanefnd, 1944 í mþn. um póstmál. Átti sæti í mþn. um vernd barna og unglinga á glapstigum 1947—1948. Í Þingvallanefnd 1950—1957, formaður. Í Norðurlandaráði 1952—1956 og 1959—1963, formaður Íslandsdeildar þess 1959—1963, forseti ráðsins 1960, varaforseti 1959 og 1961—1963. Í kosningalaganefnd 1954 og í mþn. í sjávarútvegsmálum 1956. Í byggðajafnvægisnefnd 1954—1956. Í stjórn landshafnar í Rifi 1951—1960 og 1953 og 1960 í skattalaganefnd. Alþm. Barð. 1942—1956 og 1959, alþm. Vestf. 1959—1963 (Sjálfstfl.). Forseti Ed. 1953—1956. 2. varaforseti Ed. 1942—1943 og 1946— 1947. Kunnir bræður Gísla eru Guðmundur Kamban rithöfundur og Jón J. Maron sem rak smávöruverslun, stundaði útgerð á Bíldudal og bjó í Sólheimum ásamt konu sinni Bjarnfríði Sigurðardóttur. Árið 1938 kaupir Gísli Bíldudalseignir og átti staðinn þar til 1953 er hann með gjafabréfi afhenti Suðurfjarðahreppi lóðir þær og lendur er þá voru enn óseldar. Gísli rak verslun og útgerð á Bíldudal fram á miðjan fimmta áratuginn. Á þeim tíma reisti hann og rak m.a. rækjuvinnslu og fiskimjölsverksmiðju en hann var upphafsmaður Matvælaiðjunnar á Bíldudal sem framleiddi m.a. hinar frægu Bíldudals grænar baunir og Bíldudals handsteiktar kjötbollur. Heimildir: www.althingi.is http://www.arnfirdingur.is/menning/folkid/Gisli_Jonsson.asp Skoðað 08.09.2011
Tengd aðföng