Hvað er í matinn? Sjálfbært, heilsusamlegt mataræði
Þessari spurningaskrá er ætlað að safna upplýsingum um upplifun og sjónarhorn fólks sem hefur tileinkað sér sjálfbært, heilsusamlegt mataræði á Íslandi. Þar er t.d. átt við grænkera (vegan), grænmetisætur, vistkera (flexitarian), neytendur lífrænt ræktaðra matvæla og annað fólk sem sem borðar meðvitað með tilliti til umhverfisins, dýraverndar eða eigin heilsu.
Spurningaskráin er hluti af rannsóknarverkefninu „Sjálfbært heilsusamlegt mataræði: vísindi sem vegvísir í átt að sjálfbærri framtíð“. Það leiðir saman vísindamenn af ólíkum sviðum til að skoða mismunandi mataræði, með áherslu á kolefnisspor Íslendinga. Markmiðið er að auka við þekkingu sem auðveldar stefnumótandi aðilum að taka ákvarðanir um hvernig standa skuli að breytingu í átt að sjálfbæru, heilsusamlegu mataræði og vistvænni matvælaframleiðslu á Íslandi.
Því leitum við til þeirra sem nú þegar hafa tileinkað sér slíkt mataræði í sínu daglega lífi til að draga lærdóm af reynslu þeirra. Hvað fékk þig til að snúa þér að slíku mataræði og hvernig ferðu að því að halda þig við það? Hvaða viðhorf liggja þar að baki? Hverjar eru helstu áskoranirnar?
Svörin þín mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg, við viljum fá sem mestar upplýsingar um efnið. Þú mátt endilega taka ýmis konar dæmi úr þínu daglega lífi. Það er mjög gagnlegt fyrir rannsóknina að fá lýsingar og frásagnir frá þeim sem svara. Þú getur sleppt þeim spurningum sem höfða ekki til þín og einbeitt þér að hinum.
Þrír heppnir þátttakendur sem skila fullnægjandi svörum við spurningaskránni fyrir 31. mars 2022 verða dregnir út og hljóta 10 vikna grænmetisáskrift sumarið 2022 frá vistvænu gróðrarstöðinni Flight Song Farm í Reykjalundi, Grímsnesi. Sjá upplýsingar um ræktunina og grænmetið
Dating
Day sent: 01.01.2022
Questions and Answers
Bara hollt og gott
Ég myndi kallast flexitarian. Held mig að mestu við grænmetisfæði (ásamt eggjum og osti) en hef gert undantekningar í matarboðum og þegar þannig stendur á. Ég varð þó nýlega ófrísk og treysti mér ekki til að halda mér jafn mikið við grænmetisfæði og áður þar sem enn skortir leiðbeiningar frá t.d. Landlækni um vegan mataræði á meðgöngu. Ég stefni þó á að halda áfram að tileinka mér grænkerafæði og nýta þær uppskriftir og vörur sem ég hef gert hingað til, en að borða meðfram því t.d. lax.
Morgunmatur: 2 (stundum 3) ristaðar brauðsneiðar (gróft brauð) með t.d osti, marmelaði, gúrkusneiðum. Uppáhellt kaffi, stöku sinnum ávaxtasafi.
Hádegi: t.d epli, brauðsneið m. osti, tómat, gúrku
Síðdegi: kaffi, kex stundum sætabrauð
Kvöldmatur: Oft pönnusteiktur eða ofnbakaður fiskur (oftast ýsa, smálúða einstöku sinnum bleikja) kartöflur eða hrísgrjón og e.t.v gulrætur eða hrásalat eða annað grænmeti.
Um helgar oftast kjöt, t.d kjúklingur eða stöku sinnum lambahryggur og alltaf grænmeti líka. Sunnudagar oft afgangar frá laugardegi.
Borða mjög sjaldan unnar kjötvörur og lítið af söltuðum eða reyktum mat. Elda oftast frá grunni.
Myndi bara skilgreina mitt mataræði sem frekar venjulegt.
Borða heilsusamlegt fæði skv. Leiðbeiningum frá Landlæknisembættinu. Borða afar lítið af unnum eða tilbúnum matvörum og elda flest allt frá grunni sjálf. Nokkrar fæðutegundir og íblöndunarefni sem ég forðast vegna óþols fyrir þeim.
Ég er vegan og því eru engar dýraafurðir í matarræðinu mínu.
Ég borða mjólkurlaust fæði af heilsufarsástæðum. Þá er átt við mat án alls sem inniheldur nokkuð mjólkurtengt, s.s. mysumjöl, smjör, mjólkurfitu og fleira sem stundum sést á umbúðum matvæla.
Ég leitast við að borða hollan mat og hef nokkur atriði í huga:
Upphaflega hreifst ég af Slow food hugmyndafræði um mataræði og hef hana á bak við eyrað alla daga. Ég aðhyllist þó enga öfga og er alltaf forvitin að prófa nýja hluti. Ég vinn t.d. með fólki sem er vegan og finnst sjálfsagt að prófa þeirra mat þó niðurstaðan sé sú að hann heillar mig ekki.
Mitt framlag er að fækka kjöt- eða fiskmáltíðum og borða grænkerafæðí helst tvisvar í viku. Ég get þó ekki hugsað mér að sleppa eggjum og mjólkurvörum - heldur ekki þessa daga.
Mín hugmyndafræði er annars þessi:
1) Hreinn matur - ekki unninn. Ég elda sjálf "from scratch" og forðast allt með mörgum innihaldsefnum. Ég hef mikið yndi af eldamennsku, sem skiptir mína fjölskyldu almennt miklu máli, þ.e. að njóta þess að elda úr góðum hráefnum og njóta þess að borða.
2) Staðbundinn matur. Aftur hef ég í huga að maturinn minn ferðist sem styst, bæði af umhverfisástæðum og einnig vil ég gjarnan vita hvaðan hann kemur og ekki spillir fyrir ef ég veit hver framleiddi matinn. Það eru ýmsar tegundir grænmetis sem ég sleppi algerlega ef ekki er hægt að fá það íslenskt. Ég rækta bæði grænmeti og kryddjurtir og nýti mér ríkulega við matseldina.
3) Bragðgóður matur. Með góðum hráefnum er alltaf hægt að gera góða hluti. Það er alls engin þörf á dýrum hráefnum, raunar finnst mér afskaplega gaman að elda úr því sem ég kalla auðmjúkt hráefni. Mér finnst firra að borða mat sem mér finnst ekki góður
4) Ég er ekki ósnortin af kenningum um hollustu mataræðis og á heildina litið tel ég mig borða hollt. Ég hef þó alltaf dálítið samviskubit yfir að borða ekki enn meira grænmeti en ég geri.
Borðum mikið af kjúkling og lambakjöti, cheerios er algengast morgunmatur hjá ungmennum en hafragrautur hjá fullorðnum Einn unglingur á heimilinu borðar ekki kjöt en annars er matarræði mjög blandað.
Plöntufæði. Reyni sem mest að vera WFPB en það tekst ekki alltaf í amstri dagsins og með börn
Ég borða algerlega dýraafurðalaust alla daga. Hef gert það síðan áramótin 2015/2016
Ætli mataræðið myndi ekki flokkast undir grænkera/vegan hugmyndafræðina.
Ég borða flest allan grænmetismat.
Ég borða ekki dýr.
Ég er vegan. Opinber skilgreining er að forðast eins og mögulegt og praktískt er, alla hagnýtingu á og grimmd gagnvart dýrum, hvort sem er í formi neyslu dýra og dýraafurða, klæðnaðar, skemmtunar eða annars. Þetta þýðir að ég borða engin dýr né dýraafurðir, þ.e. ekki kjöt (hvorki spendýr, fugla né fiska), ekki egg, ekki mjólkurafurðir, ekki hunang, ekki gelatín, engin litarefni unnin úr skordýrum o.s.frv. Ég er hlynntari whole-foods plant based diet og neyti því t.d. kjötlíkis sparlega og legg meiri áherslu á baunir og kinóa sem próteingjafa. Hafragrautur með fræjum og ávöxtum í morgumat er nokkuð staðlað en hádegisverður og kvöldverður er fjölbreyttur. Ávextir eða hrökkkex í millimál. Nasla stundum á kvöldin, snakk eða dökkt súkkulaði.
Í kringum 90% lífrænt vottað matarræði og lítið kjöt, ca 1-2 í mánuði neyti ég kjöts og fiskur 1-2 í viku. Borða hollt, minna um sætindi - en þau sætindi sem ég borða er allt lífrænt. Ég pæli líka í umbúðum - og reyni að forðast/minnka að borða mat úr niðurstöðudósum út af eiturefnum í þeim - og einnig feitar vörur í plasti - vegna plastefna sem leka í feitar vörur (olíur t.d.). Mín forgangsröðun er því lífrænt (sama hvaðan það kemur), þar á eftir íslenskt.
út af heilsu stráksins míns þá byrjuðum við að spá mikið í mat, hann er á mun strangara mataræði en við hin en við reynum að elda mat þannig að allir geti borðað hann þá er ekkert korn í matnum, engin mjólk og enginn sykur eða neitt sætt svo sem döðlur eða þannig.
Þetta var mjög erfið breyting en seinna febrúar 2019 verð ég mjög veik og þarf mikið af sýklalyfjum sem fara með flóruna, sem lýsir sér þannig að ég fæ mikinn bjúg og mikla vanlíðan ef ég borða eitthvað sem á ekki við mig en almennt korn er algjör bannvara get borðað glútenlast haframjög í litlum skömmtum, chiafræ og þannig. Lítið af mjólkurvörum og ekki salgæti en t.d. hlaup og dót með mikið af efnum og þannig, get borða hreint súkkulaði í litlum skömtum t.d. Held að það sé engin skilgreining á þessu fæði þannig lagað skylt Ketó nema ávextir og allt grænmeti leyft jú og smá súkkulaði
Vegan.
Verandi 83 ára og búandi ein reyni ég að gera matinn eins einfaldan og kostur er kýs að sjá um hann sjálf þótt mér standi til boða að borða í mötuneyti í Borgum í Spönginni. Ástæðan er sú að ég vandist "hollu" eða segja má skynsamlegu mataræði frá barnæsku og hef haldið mig við það. Foreldrar mínir einkum móðir má segja að hafi verið framvarðarsveit hvað varðaði heilusamlegt matarræði og grænmetisnotkun og efalítið átti námsdvöld hennar í Danmörku á leikfimisskóla þátt í því. Móðir hennar hafði kostgangara í Reykjavík og þær bjuggu í námunda við Miðbæjarskólann meðan Spánska veikin geysaði og amk. tvær eldri systur hennar hjúkruðu þar og það hafði líka áhrif á hana ekki síst að gæta hreinlætis í hvívetna. Morgunmatur en nú venjulega lífrænn jógúrt með berjum og einhverju útákasti td. ísl höfrum. Miðdegismatur - reyni að borða síður brauð og þá þarf að elda kannski egg og hafa með salati. Kaffi tek ég oft í Borgum en ekki endilega neitt með því. Kvöldmat reyni ég að hafa einfaldan kjöt (ekki unnið) fisk eða stundum aðeins grænmeti og núna nota ég meira grænmeti heldur en kornvörur og þá meðtalið hrísgrjón og önnur korn. Á sumrin reyni ég enn að rækta svolítið grænmeti og eiga þá fram á haust eða rækta grænspírur inni. Ég fylgi engum sérstökum reglum en aðhyllist kenningar Slow Food hreyfingarinnar að best sé að aðföng séu úr heimahéraði og matarmenning skuli höfð í heiðri. Ég hef skrifað bókina Ætigarðurinn og þar koma þessar skoðanir mínar í ljós.
Heimaeldaður matur í meirihluta í bland við tilbúna rétti. Grænmeti, korn, fiskur, mjólkurafurðir og egg mestmegnis. Ferskmeti meira árstíðabundið eftir eigin ræktun og villtum jurtum.
Það sem að kjafti kemur. Kjöt ostur brauð og mjólkurmatur.
Ég er vegan, borða engar dýraafurðir
Ég reyni að borða hollt. Byrja alla daga á hafragraut með haframjólk. I hádeginu borða ég skyr/ab mjólk og hrökkbrauð eða afganga frá kvöldinu áður nema það sé grænmetisréttur sem mér líst á í vinnunni. Á kvöldin elda ég ýmist grænmetisrétti/fiskrétti. Á föstudögum er pítsa og einu sinni í viku er súpa/grjónagrautur. Ég skilgreini mig sem vistkera eða sæ-ætu. Borða fisk en ekkert sem lifir á landi. Reyni að velja umhverfisvænt og hollt
Vegan, hreint grænkerafæði, mest unnið frá grunni. ávextir, heimagert múslí ur höfrum, hnetum og fræjum og möndlumjolk flesta daga í morgunmat, vegan proteinduft með steviu sætuefni í millimál, hádegismaturinn er afgangur af kvöldmat, 3/4 grænmeti sem er eldað eða hrátt, tófú eða baunir, kartöflur/hrisgrjon/kínóa og ef sósa þá ur kokosmjolk eða vegan mæjonesi. millimál er ávöxtur/grænmeti og hnetur eða poppkex með kjuklingabaunum og papriku, kvöldmatur er eins og hadegismaturinn uppsettur, stundum brauð, tortillakaka eða pasta. Sjaldan kvöldsnarl en þá tortillaflögur eða sukkulaðibiti
Ég er grænkeri (e. vegan) - borða mjög mikið af grænmeti, kolvetnum og baunum, stundum tófú. Líka mjög mikið af vegan kjöti, t.d frá Oumph!, Anamma og Taste and glory.
Hrein Ab mjólk á morgnanna m kelos
Rista brauð m ost og smjör í hádeginu eða ávöxt
Kvöldmat - kjúlli m pasta eða grónum. Lax m larteflum eða skyndibiti
Eftirrétt - pop eða ís
Ég myndi kallast Vistkeri.
Borða almennt ekkert kjöt nema fisk nema þegar ég var ólétt brá ég frá þeirri reglu. Vel frekar jurtsmjólkurmat en dýra.
Ég legg áherslu á að borða hrein matvæli og sem minnst af unninni matvöru. Ég myndi telja að u.þ.b. 90% af því sem ég borða, elda ég frá grunni. Ég borða dýraafurðir, en vel frekar lífrænt ræktað og frá nærframleiðendum. Ég kaupi einungis fisk sem er með vottunum. Innkaup eru yfirleitt skipulögð út frá því hvað vantar á heimilið og síðan er ég dugleg að kaupa matvæli á afslætti vegna dagsetningar til þess að reyna að sporna gegn matarsóun.
Borða fjölbreytta fæðu vikulega. Það er, kornvörur, mjólkurvörur, grænmeti og ávexti, kjöt og fisk.
Alæta, legg áherslu á fjölbreytt fæði, smakka allt
Ég skilgreini mataræðið mitt ekki á ákveðin hátt en hef áður verið grænmetisæta og vegan. Í dag er ég ekki að stressa mig á ákveðinni skilgreiningu en ég borða ekki kjöt og reyni að borða eins lítið af mjólkurvörum eins og ég get. Ég borða fisk og egg. Ég var alveg vegan í 2 ár en þegar ég missti eldmóðinn í því og var að ströggla við að borða nógu mikið ákvað ég að byrja að borða fisk og egg. Mér fannst alltaf mjög auðvelt að vera vegan en undir lokin var ég ekki að fá nógu mikið af næringu og í samfélaginu í dag finnst mér auðveldara að vera ekki 100 prósent vegan.
Ég borða allfarið grænkera (vegan) mat þar sem ég neyti ekki dýraafurða af neinu tagi.
'eg hef mest eitthvað létt í matinn, fisk, ab mjólk eða pasta
Ég leitast við að borða hreint og holt en allur gangur á því eftir tímabilum. Þessa dagana borða ég mikið af herbalife vegan prótíndufti og stykkjum því mér finnst það bragðgott, gefur mér útrás fyrir sætuþörf og seddu og ég var ekki að borða nóg prótín áður, ég æfi frekar mikið. Ég var 95% vegan í 5 ár en byrjaði á þessu ári aftur að borða fisk og smá egg og aðeins meiri mjólkurafurðir. Ég borða þó afar takmarkað af mjólkurafurðum bæði af siðferðis- og umhverfisástæðum en einnig þoli ég þær mjög illa.
Ég borða ekkert kjöt.
Ég borða ekki kjöt og mjög lítið af mjólkurvörum og eggjum en ég borða fisk. Ég myndi því skilgreina mig sem pescatarian ef ég þyrfti að setja mig í kassa. Ef mjólk og egg eru í einhverju sem mig langar að borða þá sætti ég mig við það (t.d. er mjög lítið úrval af vegan sómasamlokum og grænmetissamlokan alltaf með eggjum), en ég vel alltaf haframjólk þegar ég kemst upp með það en fæ mér einstaka sinnum gríska jógúrt og reyndar borða ágætlega mikið af osti.
Ég reyni að borða alltaf minnst tvo ávexti á dag og er mjög dugleg að borða grænmeti. Pastaréttir með grænmeti og baunum er algengur kvöldmatur hjá mér, og þegar ég er með fisk er alltaf grænmeti með. Grænmetissamlokur - pítur - pítsur eru oft á borðstólnum. Ég borða trefjaríkt morgunkorn með haframjólk reglulega og nota alltaf fjölkorna brauð. Frosin krossant eru svo "helgar-morgunmaturinn". Ég er sjaldan með eitthvað "feik-kjöt" en nota stundum pylsurnar frá anamma og einhverja soja-hamborgara eða soja-hakk þegar mig langar í þannig mat. Fiskur er oft í viku, en erfitt að segja hversu oft.. sumar vikur borða ég kannski á hverjum degi en aðrar vikur einu sinni eða tvisvar. Ég er ekki voða regluleg. T.d. er ég kannski í tvær vikur með hnetur í skál við hliðina á mér alla daga, en svo klárast þær og ég gleymi að kaupa aftur í mánuð...
Ég drekk kaffi daglega, og stundum te, annars bara vatn í brúsa með mér hvert sem ég fer og oft rauðvín með kvöldmatnum. Ég nota olíu í matargerð, isio eða ólívuolíu og er ólívuolía oft "sósan" í pastaréttunum mínum. Hin skiptin er ég með pastasósu.
Take-away staðirnir mínir eru serrano þar sem ég fæ mér bauna-burrito, asískir staðir þar sem ég fæ mér oft rækjur sem prótein, dómínos og einstaka sinnum einhverjir vegan hamborgarastaðir.
Ég er ekki mikil nammi-manneskja en neita mér ekki um það þegar mig langar í. Ég fæ mér helst súkkulaðihjúpaðan lakkrís þegar ég fæ mér slíkt.
Ég tek D-vítamín, B-12 og járn, stundum omega-3, en frekar óreglulega... Allt sem mér dettur í hug að segja frá held ég.
Mjög almennt og hefðbundið mataræði. Óþarflefa mikið kjötmeti en ég reyni að hafa a.m.k. eina fiskmáltíð á viku (öðru heimilisfólki til gremju). Nútímalegur matur eins og pasta og pizza er vinsælastur hjá táningnum á heimilinu. Húsbóndinn aðhyllist kjötmeti en sjálf væri ég alveg til í að prófa meiri grænmetisrétti.
Veit ekki hvernig skilgreina skal matarræði mitt en það sem einkennir það helst er barátta gegn matarsóun, nýti allt sem fyrirfinnst í ísskápnum og kaupi gjarnan það sem stórverslanir bjóða sem Gegn matarsóun á góðu verði. Borða mikið af ávöxtum, helst lífrænum, mikið af grænmeti, helst lífrænu, baunir, lindur, korn eins og kúskús, bulgur, kínóa, farin. Elda gjarnan hverskyns fisk síður kjöt en borða það sé mér boðið upp á það. Allar mjólkurvörur, en þó mest ag mjólk ,skyr, jóghurt, rjóma og osta. Morgunmatur minn samanstendur af niðurbrytjuðum ávöxtum, morgunkorni (lífrænt musli hreint, helst frá MUNA (áður Himnesk hollusta), hveitikím, hampfræum og chiafræum. Út á abmjólk fituskert. Af þessu verð ég svo södd að ég þarf nánast ekkert fyrr en um kvöldmatarleitið. Fæ mér þó oft einhvern millibita með kaffinu síðdegis. Bara það sem hendi er næst.
Kvöldmatur er gjarnan margvíslegt steikt grænmeti (brokkkál, blómkál, gulrætur, rófur, hvítkál) með kúskús, kínóa eða annarri slíkri korntegund. Einhver fiskur, soðinn, steiktur eða ofnbakaður með kartöflum er a.m.k. tvisvar í viku, kjöt sjaldnar, helst aðeins þegar ég býð fólki á mat og þá helst samansoðnir réttir eins og Osso buko eða lambaskankar. Með öllum mat er svo hrásalat, grænt salat, tómatar, gúrkur, laukur, hvítlaukur, oft ólífur og/eða ostur, sítrónusafi og góð olífuolía.
Ég borða ekki kjöt - en hins vegar fisk og mjólkurafurðir.
Ég skilgreini mataræði ekki sérstaklega en reyni að hugsa vel um heilsuna og borða fjölbreytt og lítið kjöt. Við erum í áskrift hjá Austurland Co-op og reynum að borða eitthvað af lífrænt ræktuðu grænmeti.
Morgunmatur: hafragrautur, lifrapylsusneið með matreiðslurjóma og lýsi
Hádegismatur: fiskur, kjöt, grænmeti, kartöflur og sósa eða brætt smjör
Kvöldmatur: súpa, jógúrt eða skyr
Ég borða í mötuneyti alla virka daga
Heitur matur á kvöldin, létt í hádeginu. Aldrei morgunverður.
Fylgi að mestu 16/8 mataræðinu
Fjölbreytt. Kjöt, fiskur, grænmeti
Frekar einfalt mataræði, þeas ekki margar tegundir á diskinum
Reyni að halda kolvetnum í lágmarki
Tek inn lýsi daglega
Te og ristað brauð að morgni.
Í hádeginu brauðsneið með t.d. unnu kjötáleggi, lifrarkæfu, soðnum eggjum og reyktum silungi eða afgöngum frá fyrri máltíð úr fiski eða kjöti.
Borða fisk tvisvar í viku svona cirka. Kartöflur með. Soðið grænmeti einsog gulrætur og fleira eða það sem er í grænmetisskúffunni með aðalréttinum. Súkkulaði í millimál, dökkt. Kanski köku ef einhver kemur í kaffi.
Elda oftast á kvöldin.
Et of mikið af sælgæti það sem eftir lifir dags yfir sjónvarpinu!
Vistkeri kemst sennilega næst því, borða ekki kjöt eða mjólkurvörur.
Borða einstaka sinnum fisk (2-3 í mánuði mest). Borða af og til egg en annars mikið grænmeti, baunir, kornvörur, vegan kjötlíki, kókos/soja "mjólkurvörur" osvfr.
Á morgnana smyr ég mér brauðsneið með áleggi. Í hádegi borða ég í Vitatorgi, mötuneyti fyrir aldraða. Þar er heimilismatur: Fiskur (tvisvar, þrisvar í viku), bjúgu, hakkbollur, purusteik... Á kvöldin er það einhverskonar snakk með ídýfu, poppkorn, gráfíkjur, banana...
Ég er grænmetisæta sem fellst í því að borða ekki kjöt.
ét rollukjet og rjóma
Frekar almennt. Engar tiktúrur. Ekkert spes. Of mikið af skykri. Ég borða hrökkkex með osti á morgnanna. Almennan heimilismötuneytismat í hádeginu. Yfirleitt súkkulaði eða köku í kaffinu. Og síðan almennan kvöldmat, kjöt, fisk eða kjúkling, kartöflur eða hrísgrjón og sallat.
Ég í leikskóla og tel mér skilt að matast með börnunum og er mataræði itt því afar einhliða og ég verð að segja ómerkilegt í bland á virkum dögum. Stundum borða ég eins lítið og ég kemst upp með án þess að vekja athygli barnanna. En það kemur fyrir að það er soðinn fiskur með kartöflum og þá náttúrúlega borða ég vel. Matseljan er út lendingar og finnst ekki soðinn fiskur merkilegur matur, við fáum aldrei heitt slátur, aldrei bjúgu, en ókjör af pulsum og pulsusúpum. Lambakjöt finnst matseljunni heldur ekki lystugt og þegar boðið er uppá hangikjöt fyrir jól er líka borið fram svínakjöt! Annars er nautakjöt í miklum metum hjá henni. Hrá éti eru tómata at í hálfum sneiðum, gúrku sneiðar og papriku sneiðar. Og soðið grænmeti er forsoðið og keypt í poka í bónus eða þannig. Álegg á brauð er skinka og ostur í lang flestum tilfellum bæði með súpunum og í drekkutíma, reyndar fá múslimarnir kjúklingaskinku, sem er samlímt kjöt, og vel ég þá heldur svínið sem oftast er sæmilegt að gæðum. Aldrei rúllupylsa, né nokkuð fiskmeti á brauð, egg einstöku sinnum með tómötum og gúrku. Lifrarkæfa einstöku sinnum og kindakæfa enn sjaldnar. Í ávöxtum er þónokkur fjölbreytni en ég er svo fín með mig að hef ekki lyst á ávöxtum séu þeir ekki lífrænir. Þegar heim er komið er fæði mitt fjölbreytt og lífrænt eins og nú hægt er að komast í á Íslandi en þar erum við miklir eftirbátar hinna norrænu þjóðanna og erfitt er að nálgast t.d. lífrænt kjötmeti og álegg.
Hreint mataræði algjörlega laust við aukaefni eða óskýr innihaldsefni. Einfalt með áherslu á nýtingu hráefna með matarsóun að leiðarljósi.
Ég er vegan, mataræðishluti þess felur þá í sér að borða engar dýraafurðir. Ég borða yfirleitt morgunkorn með haframjólk á morgnana, jógúrt og brauð eða afganga í hádegismat, kex og kökur eða álíka ásamt kannski ávexti með kaffinu og ýmiss konar mat í kvöldmatnum, oft með „kjötstaðgenglum“.
Er vegan - þ.e. forðast eftir bestu getu að borða dýraafurðir sem hafa nýtt dýr.
Ég reyni að tileinka mér það að borða hollan og góðan, helst umhverfisvænan mat þó svo að það sé ekki alltaf rauninn. Ég hef undanfarin ár tekið meðvitaða ákvörðun um að borða miklu minna af kjöti og mjólkurvörum. Velja oft grænkera máltíðir á veitingastöðum og sleppa því að hafa kjöt á hverjum degi á heimilinu. Áður fyrr var viss venja að það þurfti alltaf að hafa kjöt með öllu, en það er búið að sanna að það er ekki rauninn.
Ég borða minna kjöt og er meðvituð um loftlagsáhrif ýmisa þátta tengdum matvörum. Ég borða miklu minna af mjólkurafurðum en ég gerði, en þar spilar líka inn í að ég er komin með mjólkuróþol og þoli minna að borða mjólkurvörur.
Ég hef prufað að gerast grænmetisæta og aðeins prufað að tileinka mér grænkera fæði, en hef ekki haldið því við lengi. Ég held að ég myndi vilja skilgreina mig sem "vistkera" þó að ég eigi sjálfsagt langt í land með að vera alveg með þau mál á hreinu.
Ég er vegan. Reyni að borða sem mest af svokölluðu whole-foods plant based mataræði sem er skilgreint sem svo að borða plöntumiðað mataræði sem samanstendur af grænmeti, ávöxtum, kornmeti, hnetum og baunum og inniheldur ekki mikið unna matvöru. Ég er alltaf vegan, en ekki alltaf wfpb þó ég reyni að tileinka mér það mikið. Ég reyni að borða mat sem er ræktaður í nærumhverfinu ef ég get og lífrænt ræktaða einnig.
Ég skilgreini mataræði mitt ekki á neitt sérstakan hátt. Ég reyni hins vegar að borða 95% grænkerafæði. Stundum fæ ég mér egg, ca 2 í mánuði og einstaka sinnum fisk, ca 2 í mánuði.
Ef ég borða kjöt þá vel ég einungis íslenskt lambakjöt, hreina íslenska afurð sem er óunninn. Fyrir fjölskylduna kaupi ég einstaka sinnum kjúkling og pylsur en annars hreint lambakjöt. Aldrei svínakjöt, kalkún, eldislax eða erlent kjöt.
Ég aðhyllist ekkert mataræði sem hefur sérstakt heiti, er ekki vegan, grænmetisæta eða slíkt. Ef eitthvað þá mætti tala um Miðjarðarhafsmataræði en við borðum mikið af grænmeti með matnum okkar. En ég fylgi þeirri stefnu að borða sem hreinastan mat, með sem minnst af aukaefnum, geri sem mest frá grunni sjálf, t.d. sósur, soð og fleira slíkt. Ég nota t.d. lítið af kryddblöndum og mun meira hrein krydd og blanda þá sjálf. Ég borða mikið grænmeti, hef grænmeti í hverjum rétti og alltaf salat eða niðurskorið ferskt grænmeti með matnum. Ég reyni að kaupa sem mest innlent grænmeti og lífrænt og og fylgja árstíðunum. Ég reyni að velja vörur eftir upprunalandi, forðast t.d. að kaupa grænmeti sem er flutt yfir hálfan hnöttinn, en kaupi alveg hefðbundna vöru ef annað er ekki til. Við fjölskyldan tókum þá ákvörðun fyrir nokkrum árum að draga úr kjötáti og gera allar máltíðir kjötléttari ef það er kjöt í matinn. VIð erum oft með grænmetisrétti og gerum t.d. súpur, núðlur og kássur þar sem dregið er úr kjötmagninu og grænmeti, baunir eða annað koma í staðinn. Um leið og við drógum úr kjötmagni þá fjölguðum við líka fiskimáltíðum. En engar reglur eru stífar og ef það hentar vegna anna eða annarra aðstæðna þá borðum við alveg hálftilbúna rétti eða skyndimat.
Annað, ég er bæði með laktósaóþol og óþol fyrir öllum lauk og sleppi því úr mínu matarræði. Það er m.a. skýringin á því að ég forðast kryddblöndur og tilbúinn mat því í honum flestum er laukduft og fleiri aukaefni sem fara illa í mig.
Ég borða kannski 90 % vegan mat og þar fyrir utan smá af mjólkurvörum, aðallega ost og einstaka sinnum jógúrt. Einu sinni í mánuði fisk sem ég veiði sjálf og spari spari rækjur og humar. Ég elda mest frá grunni úr hráefnum en nota af og til oumph eða tilbúið dót til tilbreytingar. Samt bý ég líka til mitt gerfikjöt ef mig langar í svoleiðis, kannski gera steikur fyrir hátíðir og þ.h. Ég rækta talsvert af grænmeti, rótarávöxtum og kryddi og að auki nýti ég villtar jurtir talsvert á vaxartíma þeirra en safna þeim einnig og þurrka og frysti. Þetta eru kerfill, njóli, hvönn og fleira. Þá kaupi ég grænmeti af bónda í nágrenninu, og frysti það til vetrarins. Mér finnst gaman að elda og nýti mikið af austurlenskum, og suður amerískum kryddum. Kryddið gerir það að verkum að maður getur gert ótrúlega fjölbreytta rétti úr tiltölulega fáum hráefnum. Ég hugsa að 70% af því sem við borðum sé úr gulrótum, kartöflum, brokkoli, lauk, tómötum, kókosmjólk, baunum og byggi.
Frekar heilsusamlegt, grænmeti og prótín, minna af kjöti, meira af fiski. Ein til tvær máltíðir á dag, hádegismatur og kvöldmatur. Léttur í hádeginu og heitir á kvöldin. Sjaldan morgunmatur en oftast eftirréttur, ávextir eða lítill súkkulaði úti. Súrdeigsbrauð og ostur í hádeginu ef borðaður hádegisverður. Pizza eða taco (barnvænt) á föstudögum. Sjaldan pasta eða hrísgrjón, enn sjaldnar kartöflur. Grænmetisréttur með baunum (linsur og sambærilegt) reglulega.
Morgunmatur: Lýsi, ávextir skyr
Hádegismatur: Brauð, álegg og kaffi,
Miðdegisverður, misjafn ávextir stundum kex.
Kvöldmatur: Allskonar kjöt eða fisktur ca. 2x í mán. ávexir og grænmeti úr grænmetisborði verzlana.
Borða fjölbreyttan mat. Reyni að borða fisk reglulega og halda kolvetni í lágmarki.
Er grænmetisæta. Borða hvorki kjöt né fisk. Borða dýraafurðir eins og mjólk, ost og egg. Reyni að sneiða hjá unnum matvörum og sykri. Ef hægt er versla ég íslenska framleiðslu eða lífrænt ræktað (erlent en helst íslenskt). Reyni að velja græna skráargatið! ef hægt er. Reyni að nýta allar matvörur og hafa matarsóun í lágmarki.
Morgunmatur: Eitt linsoðið egg. 2 brauðsneiðar af kolvetnalausu heimabökuðu brauði með kindakæfu, heimagerðri. Lítill skammtur af grískri jógúrt hreinni með rjóma á. tvær matskeiðar af lýsi.
Hádegismatur, oftast afgangar frá kvöldinu áður en oft líka brauð og álegg.
Kvöldmatur: soðin ýsa, grænmeti, hnúðkál eða brokkólí með. steikt eða soðið lambakjöt, fiskur steiktur upp úr kolvetnalausu mjöli svo sem möndlumjöli. Kjötbollur úr nautakjöti, grænmeti með.
Saltfiskur, Hrossakjöt, saltað. Hangiket soðið bæði kalt og heitt,
Sjaldan nautakjöt, aldrei kjúklingar og sjaldan svínakjöt
Kvöldkaffi: Kex gert úr kolvetnalausu.
Ath. er á ketó og hef verið í 2 hálft ár.
DrykkirL vatn, kaffi, rauðvín um helgar með mat og aðeins á eftir, enginn bjór.
Hollusta í fyrirrúmi, og íslenskt sé þess nokkur kostur.
Hollusta er allt það sem rannsóknir, og löng ævi mín og forvera minna á þessari jörð, sýna að koma mannslíkamanum að gagni og jörðin gefur af mildi sinni.
Morgunmatur: Hafragrautur með múslí annan daginn. Steikt egg, avacado og sveppir ásamt bláberjum hinn daginn. + kaffi lítill bolli
Hádegisverður: Fiskur 3x í viku +meðlæti, (kartöflur, spergilkál, blómkál) kjúklingur/kalkúnn 2x í viku + meðlæti grænmetisfæði 2x í viku + kaffi lítill bolli
Síðdegiskaffi: 1 brauðsneið með (spelt og súrdeig) +álegg grænmetispaté, tómatur og gúrka 1 hrökkbrau, te með stevíu
Kvöldmatur: 1 brauðsneið eða bláber
Það sem ég borða ekki er rautt kjöt og unnar matvörur, mjólkurvörur, hvítur sykur og hvítt hveiti.
Pescaterian. Borða ekki kjöt en borða fisk. Borða mjólkurvörur og egg en reyni að takmarka neyslu á þeim vörum.
Ég myndi lýsa mér sem Grænkera/vegan. Ég borða nánast alltaf 100% Vegan fæði en er sveigjanleg af og til með mjólkurvörur þegar ekki er góður vegan valkostur í boði fyrir mig. Ég myndi aldrei borða kjöt eða fisk undir nokkrum kringumstæðum nema til að hreinlega bjarga eigin lífi.
Ég er með glúten og laktósaóþol og ræðst öll matreiðsla og matur af því.
Borða því ekkert brauðmeti eða mjólkurvörur en í staðinn nota ég mikið hafra-, möndlu-, rís-mjólk og td. vegan ost og rjóma.
Að öðru leiti er allur venjulegur matur, fiskur, kjöt, grænmeti, ávextir á borðum.
Ég er vegan, borða ekki kjöt, fisk, né dýraafurðir.
Ég er vegan/grænkeri. Ég borða engar dýraafurður, þar á meðal mjólk, egg og kjöt.
Fiskur, grænmeti, baunir, brauð en sjaldan kjöt. Eldum helst ekki kjöt heima en eigum til að kaupa það á veitingastöðum.
Ég hætti að mestu að borða dýraafurðir fyrir rúmum sjö árum. Þá útilokaði ég allt kjöt, mjólkurvörur, egg og annað slíkt. En ég hélt áfram að borða fisk, þannig að ég varð ekki fyllilega vegan. Síðan hafa ostar komið aftur inn í mataræði mitt.
Ég reyni að borða hollt.
Það er fjölbreytt og byggist á því að hafa reglulega matmálstíma, elda sem mest frá grunni og nýta hráefnin vel. Rautt kjöt er munaðarvara og tiltölulega sjaldan haft í matinn en fiskur, kjúklingur og grænmeti oftar.
Borða sem hreinastan mat, forðast unnar matvörur. Kaupi mjög sjaldan kjöt. Er reyndar nokkuð þröngur stakkur sniðinn um þessar mundir vegna blankheita og vel það besta úr ruslagámum verslana og það sem er að renna út og er á niðursetti verði innan dyra hjá þeim.
Ég borða ekki dýraafurðir, hvorki kjöt, fisk eða afleiddar afurðir eins og egg eða mjólkurafurðir. Þar með flokkast mataræði mitt sem vegan en ég skilgreini mig ekki endilega þannig - það er einfaldara fyrir fólk að skilja að ég borða ekki dýraafurðir.
Ósköp venjulegt mataræði fyrir utan aukna áherslu á grænmetisrétti
Svart kaffi á morgnana
Sítrónusafa með engifer og bláberjasaft
Grisk jógúrt með heimagerðu múslí með rjóma í hádeginu
Kaffi með rjóma
Kvöldmatur
Venjulegur heimilismatur í grunninn en samt glútenlaust, laktósafrítt. Mjög lítið rautt kjöt
Virka daga borða ég yfirleitt það sama á vinnutíma. 1-2 kaffibollar með mjólk áður en haldið er í vinnu. AB-mjólk með banana/múslí í kaffitíma. Lífrænt ræktað epli og/eða appelsína í millimál, stundum teskeið af hnetusmjöri ef hungrið sverfur að seinni partinn og vatn og ávaxtate. Í hádeginu er það svo hrökkbrauð með áleggi - s.s. rjómaosti, kæfu eða tómötum/gúrku.
Kvöldmaturinn er fjölbreyttur - allskonar fusion, mikið grænmeti. Ekki mikið svínakjöt af dýraverndarástæðum og helst bara kjúklingur sem er lífrænn/dýravænn. Okkur finnst gott að gera stir-fry og allskonar tapas úr því sem er til í ísskápnum, pítur, lasagna, chili og svo matinn hennar mömmu - búum til buff og lauk og amerískan kjötbúðing og svoleiðis þegar okkur langar í svona "comfort-food". Þá freistumst við stundum til að kaupa Eldum rétt pakka, þá þarf ekkert að hugsa um að fara í búð.
Um helgar er meira fínerí- góður tími tekinn í að elda flotta rétti og gott vín haft með.
Ef brauð er á boðstólum þá er það keypt í bakaríinu og fryst - ein og ein sneið tekin út í einu.
Það er því miður aldrei fiskur eða skelfiskur í matinn hjá okkur út af ofnæmi.
Við reynum að vera meðvitaðir neytendur. Borðum helst ekki mikið af unnum matvörum, viljum versla í heimabyggð og kaupum ekkert sem inniheldur pálmaolíu nema hún sé vottuð.
Þess ber að geta að við förum út að borða nokkrum sinnum í mánuði en skyndibiti er eitthvað sem er nánast aldrei keypt á heimilinu. Ef ég ætti að skilgreina mataræðið mitt þá er það örugglega að borða hóflega og hollt á virkum dögum á vinnutíma, en meira hygge um helgar með bakkelsi. Kvöldmatur er alla daga vikunnar úr fersku og góðu hráefni þar sem umhverfis- og dýraverndarsjónarmið fá mikið rými.
Grækerafæði (vegan)
Ég hef verið grænmetisæta í 6 ár en borða reglulega fisk. Mataræðið mitt einkennist mikið af kolvetnisréttum og grænmetisréttum. Ég elska að borða pasta, tacos og pítur með en svo á móti borða ég mikið holla grænmetisrétti með grænmeti, tófú og svo kínóa eða kúskús. Ég reyni að borða fisk einu sinni í viku einnig. Það fer dáldið eftir skapinu hvað mér langar að borða. Ég hef gert það að reglu í mínu lífi að hafa engin boð og bönn í mataræði mínu.
Mataræðið mitt er plöntumiðað - Borða ekki dýraafurðir.
Ég borða um 80% af heilnæmri plöntufæðu (Whole Food plant based) og elda því mestan mat alveg frá grunni. Ég reyni líka alltaf að velja lífrænt en því miður mætti úrvalið vera betra. Á hverjum degi borðum við fjölskyldan vel af grænmeti, ávexti, baunum eða tófú og heilkorna matvöru.
Borða ekki kjöt, lítinn fisk, borða ost og smjör, en ekki aðrar mjolkurvörur.
Ég borða allt - nota samt mjög lítið salt, engan sykur, hvítt hveiti og pasta. Þá reyni ég að elda frá grunni, þ.e. nota mjög lítið af tilbúnum mat. Þetta á við þegar ég elda sjálf. Fyrir utan heimilið þá er verra að ráða hvað fer ofan í mann en reyni að sniðganga áðurnefnt
Kaffi x2 á morgnanna, x2 eftir hádegi/kvöldin. Bakstur á morgnanna, lítinn mat um hádegi (helst afgangur af kvöldmatnum).
Kvöldmatur ferskur fiskur (oftast feitur fiskur, stundum þorskur eða ýsa pönnusteiktur í raspi) uþb. 3x í viku með salöt og kartöflum. Lamb 1x í viku, kjúklingur 1x, léttar afgangur kannski 2x.
Morgunkorn og brauð fyrir hádegi um helgar.
Morgunmatur:
Góður kaffibolli
kannski ristað brauð
Hádegismatur.
Skyr, lifrapilsa, flatbrauð, rúgbrauð og kjötálegg
Kvöldnatur:
Fiskur 2 til 3 sinnum í vikunni
lamb, naut eða kjúlli 2 til 3 sinnum i vikunni
Stundum pizza - suzhi eða álíka
Allur almennur matur, reyni að hafa hann sem hreinastan og helst íslenskan. Klippti ut kjöt í janúar.
Ég borða fjölbreyttan, alþjóðlegan mat. Sem mest frá grunni. Reyni að borða sem minnst af unnum mat.
Morgunmatur gæti verið hafragrautur, brauð með áleggi eða egg og grænmeti. Hádegismatur er stundum afgangar frá kvöldmat deginum áður. Súpa eða skyr eða eitthvað létt. Matarræði mitt er mest grænmeti, fiskur ,kjúklingur, ávextir og mjólkurvörur. Við borðum þyngra kjöt mun sjaldnar en þó við og við.
Kvöldmatur á sunnudaginn var til dæmis ofnbakaður heill sítrónukjúklingur með rótargrænmeti og romaine salat með bláberjadöðluvinagraitte. Afgangar af því í gærkveldi.
Við hjónin erum bæði góðir kokkar og erum að kenna syni okkar líka. Bæði matargerð og bakstur. Ég tel fjölbreytni í matargerð til fyrirmyndar og við skipuleggjum yfirleitt mánaðarmatseðil í senn. Þar sem við ákveðum hvað er í kvöldmat og skiptum niður verkum í matseldinni innan fjölskyldunnar. Ef við skipuleggjum ekki matseðilinn þá minnkar fjölbreytnin.
Við höfum stundum tekið mánuð og mánuð í lágkolvetnamatarræði þar sem við takmörkum einföld kolvetni. Minnkum sykur og hveitineyslu.
Ég borða allan mat, fisk kjöt, brauð, mjólkurvörur, ávexti og grænmeti.
ég borða fjölbreytt fæði, borða mikið brauð og kaffi yfir daginn. Oftast heitan mat í hádegi og kvöld. Fisk og grænmeti oftast en líka pastarétti og salöt og í raun allt annað en mjólkurvörur og svínakjöt.
breytist mikið með árstíðum, á sumrin borða ég mest grænmeti og haustin eru uppskerutími.
Vegan að mestu leyti.
Mataræðið sem ég hef þurft að taka til mín í dag er eitthvað sem heitir bólguminnkandi mataræði. Það inniheldur það að ég á að hætta að borða mat sem veldur bólgum á taugafrumum og þá er áherslan á að taka út t.d. mjólkurvörur, sykur, glútein og einföld kolvetni. Það sem ég legg mesta áherslu á með þessu mataræði er að borða góða fitu, prótein ríkan mat og borða eins mikið af ávöxtum og grænmeti og ég get. 50% af máltíðum á að koma frá jurtaríkinu þannig ég er mikið í grænmetis- og vegan réttum en ég borða hins vegar feitan fisk eins og lax af og til, kjúkling eða kalkún og egg fyrir prótein, en ekkert rautt kjöt.
Ég skilgreini mig sem grænmetisætu sem borða ekki egg (kallað lacto-vegetarian á ensku). Ég reyni síðan að velja vegan kosti eins oft og hægt er en nota oft mjólkurvörur í eldamennsku þar sem sambýlismaður minn er ekki nálægt því að vera vegan og vill yfirleitt frekar mjólkurvörurnar en vegan valkostina. Ég borða líka alveg kökur og svoleiðis með eggjum í ef ég er t.d. í veislu en nota aldrei egg í eldamennsku sjálf.
Er grænmetisæta að því leyti að ég borða ekki kjöt. Ég borða fisk, mjólkurvörur, egg og þess háttar.
Ég borða sjaldnast morgunmat, fyrsta máltíðin er í hádeginu sem er yfirleitt ristað brauð/beygla, stundum eitthvað meira flókið ef ég nenni eins og salat eða samloka. Borða svo kvöldmat, elda yfirleitt eitthvað heima sem er þá einhver grænmetisréttur eða fiskur. Panta stundum eldum rétt sem er mjög þægilegt. Svo er yfirleitt eitthvað nasl á kvöldin sem er þá popp, snakk á tyllidögum og þá kók/pepsi max eða sódavatn.
Holt mataræði.
Morgunmatur
6 eggjahvítur og 3 eggjarauður, hafragrautur og tvær ristaðar brauðsneiðar með sultu og gúrku
Millimál
Grískt jógúrt (200 g)
Hádegismatur
300 g af hvítum fisk, slatti af grænmeti og 200 g af hrísgrjónum
Millimál
Brauðsneið með hnetusmjöri og sultu
Kvöldmatur
250 g af nautahakki með gróflega 200 g af spelt spaghetti
Kvöldsnarl
Stór boost (100 grömm af hnetusmjöri, hafrar, chia fræ, tvær skeiðar af próteindufti, soya mjólk, bláber og grænkálk)
Er vegan og borða þar af leiðandi engar dýraafurðir.
Borða oftast nokkuð hollt en leyfi mér alveg alskonar óhollustu líka. Borða mest af grænmeti, ávöxtum, hnetum og baunum og byrja daginn oftast á hafragraut.
Ég borða 2 máltíðir á dag (hádegis og kvöldmat) og litið þar á milli.
ég er nokkur veginn alæta, en reyni að halda aftur af glútein neyslu, því það fer ekki vel í mig.
mataræðið stjórnar töluvert af því að ég á 4 börn sem vilja frekar einfaldan mat.
ég elda daglega
Er að mestu leyti vegan. Versla allt inn vegan nema ég kaupi stöku sinnum harðfisk (kannski þrisvar á ári). Óhætt að segja að allar máltíðir séu vegan en ég fæ mér stundum kökur eða annað sem er boðið uppá í fjölskylduboðum sem inniheldur mjólkurafurðir. Það er ekki vegna þess að ég sakni mjólkurafurða heldur vegna þess að félgaslegu hliðarinnar, og ég hef ákveðið að það sé í forgangi að vera ekki svöng í veislum ef ég hef ekki náð að borða vel fyrir þær. Fæ mér þó aldrei kjöt undir neinum kringumstæðum.
Ekkert sérstakr mataræði, borða helst hefðbundinn íslenskan mat , sem er ekki vinsæll hjá börnunum
Almenn mataræði - sleppi í dag morgunverði á virkum dögum - borða hádegisverð og kvöldverð og lítið þar á milli
Ég er grænmetisæta. Ég hef að auki tekið skref til þess að minnka neyslu á mjólkurafurðurm og eggjum. Það þýðir að ég nota haframjólk í staðinn fyrir venjulega mjólk, nota chiafræ eða eplamauk í stað eggja í uppskriftir þegar það er hægt, nota jurtaolíu í staðinn fyrir smjör o.s.frv. Undantekningin á því hefur helst verið bráðinn ostur í eldamennsku.
Grænmetisæta, borða ekki kjöt eða fisk, en borða mjólkurvörur
Stunda hlutaföstu, þ.e. ég fasta tvo daga í viku en borða allan mat þess á milli, og borða fyrstu máltíð dagsins þá daga sem ég fasta ekki í hádeginu, og þá síðustu fyrir klukkan 19.00 á kvöldin.
Vil gjarnan fá þessa spurningalista Þjóðháttadeildar Þjóðminjasafnsins. Hafið mig áfram á lista svarenda.
Þessum lista get ég hins vegar ekki svarað, það sem ég er - og hef alla tíð verið - venjulegur neytandi þess mataræðis sem ég ólst upp við. Úr dýra- og jurtaríkinu.
Það er á allan hátt heilsusamlegt en alls ekki sjálfbært grænmetisfæði.
Bestu kveðjur.
Ég reyni að hafa það eins "hreint" eða náttúrulegt og hægt er fyrst og fremst ég er ennþá að finna út hvað virkar best fyrir mig því ég hef allskonar væga sjúkdóma sem versna við slæmt matar æði eins og neyslu skyndibita og gos og nammi. Drekk helst bara vatn eða kaffi/te en einstaka sinnum náttúrulega safa úr ávöxtum en reyni að sleppa þeim.
Mataræðið mitt er með einbeitingu á magann matur sem veldur ekki gasi eða verkjum "ketó" er það sem ég er næst því vera kannski í en er að undir búa mig að skipta yfir í "carnivore" eða mataræði sem er bara át dýra afurða og dýrakjöts.
Ég (oftast eldar maðurinn minn) elda frá grunni, nota nánast aldrei tilbúin mat. Kaupi kannski tvisvar á ári tilbúið baunabuff. Ég nota þó stundum tilbúnar sósur út á þorskinn en það er samt ekki í hverri viku. Í mataræði mínu er mikið af grænmeti en minna af ávöxtum, eitthvað samt. Blárber út í súrmjólkina á morgnana, epli stundum í þrjúkaffinu og svo þurrkað mangó og trönuber milli mála. Ég borða bæði rautt kjöt, kjúkling og fisk. Ég sneiði hjá brauði, kexi og kökum úr mjöli (borða bara marengstertur) og öllu sem inniheldur laktósa. Ég nota fyrst og fremst laktósafríar vörur og skíri smjör. Af sætindum borða ég nær eingöngu suðusúkkulaði, fæ mér alltaf þrjá mola með kaffinu eftir hádegismat (þ.e. eina lengju). Helsta óhollusta mín er rauðvín sem ég drekk 2-3 í viku. Rauðvínið hefur hins vegar alltaf haft frekar góð áhrif á meltinguna, sem er slæm hjá mér en hefur skánað eftir að ég tók út allan mjölmat.
Ég er vegan og borða því ekki neinar dýraafurðir. Ég elda mestan part sjálf og er mikið af því grænmeti, tófu og pasta.
Ég er vegan/grænkeri og huga mikið að því að nota sem minnst plast. Ég hef verið vegan frá því ég var 12, 13 og er núna að verða 20 svo fyrir mér er það bara basic grunnur. Veganismi er í sjálfu sér ekki mataræði heldur sú afstaða að ég eigi ekki að skaða neinn ef þess þarf ekki eða að forðast það af fremsta megni að skaða ekki dýr. Mataræðið mitt er mjög fjölbreytt og breytist eftir árstíðum, hvað er til eða í hvernig stuði ég er
Mér finnst gott að borða grænmeti, baunir þetta fer vel,í maga og lætu mér líða vel. Ég kaupi að vísu fisk og kartöflur í fiskbúðinni og telst því ekki alveg vegan. Ég er líka með ofnæmi fyrir mjólk og mjólkurvörum og forðast þær. Eg er of mikill sælkeri og alltaf fakmarkaðið að minnka það. Ég borða brauð en frekar í hófi. Í stað mjólkur nota ég bæði haframjólk og kókosmjólk í fínni rétti, eins og sósur og súpur. Líklega hef ég aðhyllst þetta mataræði í 7 ár eftir að ég varð ekkja.
Hafragrautur - baunaréttir - grænmetissúpur - brauð - ávextir - salöt - allskonar korn - búst
Ég er næst því að vera vistkeri, en er samt að mestu vegan. Borða ekkert kjöt og engar mjólkurafurðir, en sjávarfang svo lengi sem það er ekki úr eldi. Ég er líka með glúten ofnæmi og get ekki borðað sykur.
Á morgnana finnst mér oftast best að borða lítið, oftast fæ ég mér kakó með kryddi og lækningasveppum, eða kaffi. Einstaka sinnum meira matarkyns, brauð, hrökkbrauð, egg, súpu, graut, ber, ávexti. Fer eftir árstíðum
Hádegið er oft undir hælinn lagt, stundum afgangar frá kvöldinu áður, egg, brauðsneið, grænmeti. Sleppi oft hádegismat ef ég hef fengið mér morgunmat og finn ekki til svengdar.
Aðalmáltíð dagsins er kvöldverðurinn þá borðar fjölskyldan oftast saman, fisk, grænmeti stöku sinnum kjöt.
Borða einungis vegan matarræði þar sem áhersla er á að borða sem mest heila fæðu (whole foods). Borða því engar dýraafurðir og borða mikið af ávextum, grænmeti, baunum, allskyns kornmeti (grains), fræ, hnetur, ber.
Ég rækta sauðfé og borða þær afurðir í flest mál. Einnig fisk sem ég fæ í skiptum fyrir hey og kjöt. Ég veiði hreindýr þegar ég fæ leyfi til þess. Rækta kartöflur og annað grænmeti.
Alla virka daga kýs ég ekki að borða fyrr en í hádeginu. Þá borða ég þann hádegismat sem vinnan mín býður upp á - nema stundum kem ég með próteinsjeik í staðinn sem samanstendur af próteindufti og vatni/mjólk.
Mataræði mitt eins og stendur er Pescaterian. Það þýðir einfaldlega það að ég borða ekki kjöt fyrir utan fisk.
Ekkert sérstak mataræði, en hefðbundið íslenskt og kannski dállítið gamaldags. Borða nánast allt og forðast ekki mikið unnin matvæli.
Flexitarian eða ég borða afar sjaldan rautt kjöt og kjúkling og því mest megnis græmnetis fæði og stundum fisk. Borða gróft kornmeti og brauð, grænmetisrétti og ost.
Grænmetisfæði
Borða ekkert kjöt
Borða fisk og lítilsháttar ost
Grænmetisæta. Í matararæði mínu er ekki kjöt, borða hinsvegar fisk reglulega. Inn í mínu fæði eru mjólkurvörur, ostar og smjör, e.t.v. er grænkeri réttari skilgreining, en tek fram að ég þekki nkl. hvaða skilgreiningar eiga besta við. Ég sækist einkum eftir lífrænu grænmeti og lífrænum vörum yfir höfuð.
Grænkeri
Borða frá kl 11:40 til 19:00
Ekki diet gosdrykki
Ég er vegan. Mataræðið er ekkert sérstaklega frábrugðið því sem það var áður en ég varð vegan, ég hef bara skipt dýraafurðum út fyrir matvæli út plöntum.
Ég er pescaterian. Ég er einnig að klára Bs gráðu í líffræði í júní og þar af leiðandi samanstendur mataræðið mitt af bæði heimilismat og svo skyndibita eða einhverju snöggu sem fæst í Hámu.
Borða mikið af grænmeti samt sem áður.
Ég er vegan, þ.e. sneiði framhjá öllum dýraafurðum í mínu mataræði og reyni líka að gera það í almennri neyslu (kaupi t.d. ekki leður).
Ætli ég sé ekki flexitarian, því ég sæki mikið í grænmeti, korn og baunir. Hef lítinn áhuga á kjöti en borða kjöt ef mér er gefið kjöt, elda það aldrei sjálf. Eldamennska er stór þáttur í heimilishaldinu og hefur alltaf verið. Þess vegna eldar maðurinn minn reglulega kjötmáltíðir, um helgar aðallega, en þá fylli ég diskinn minn af grænmeti og borða kjötið svona með. Borða fisk örugglega þrisvar í viku, alla vega, þ.á.m. skelfisk. Reyni að forðast sykur eins og hægt er. Borða eitthvað af ávöxtum en mér finnst úrvalið hér á landi ekki gott, vond epli, þreyttar appelsinur, bláber full af rotvarnarefnum o.s.frv. Kaupi þó reglulega frosið mangó í þeirri veiku von að það sé ekki með eiturefnum. Kaupi íslenskt lífrænt grænmeti fyrst og fremst og aðrar íslenskar matvörur.
Vistkeri.. Ég borða allt nema kjöt en fókus á grænmeti, ávexti, korn, hnetur og fræ.
Fjölbreytt, mikið af grænmeti og ávöxtum, lífrænt og íslenskann uppruna ef hægt er, forðast verksmiðjuunnar vörur. lítið kjöt en borða villt s.s. hreindýr og fugla. Íslenskt lamb. Helst eitthvað sem ég rækta sjálf eða tíni í náttúrunni s.s.grænmeti, fjallagrös .sveppi og ber. Ekki ákveðið mataræði sem slíkt bara hollt.
Ég er vegan, eða grænkeri á íslensku. Það þýðir að ég kýs að neyta ekki dýraafurða eftir fremsta megni sem er alþjóðlega skilgreiningin á veganisma. Þetta er nefnilega stefna og hugarfar, ekki bara mataræði. Ég tek til dæmis lyf sem innihalda laktósa og þarf að láta mig hafa það.
Ég borða nokkuð hollt, oftast tælenskar eða indverskar grænmetiskássur með annað hvort hýðisgrjónum eða heilhveitinúðlum. Einnig borða ég mikið af tófú sem ég set í kássurnar eða steiki á pönnu og borða með hnetusmjörssósu. Ég borða mikið af hummus og set hann oftast á heilhveitibrauð eða á frækex.
Það grænmeti og ávextir sem ég borða helst eru sætar kartöflur, gulrætur, sveppir, kúrbítur, linsur og baunir, epli og appelsínur, bananar og frosin ber.
Ég er samt alger nammigrís og borða slatta af vegan súkkulaði þegar ég finn það út í búð. Ég kaupi líka stundum sultu, kex eða vegan ís. Ég borða mjög sjaldan á veitingastöðum því ég hef ekki efni á því en ég kaupi af og til tilbúnar samlokur í Hámu uppi í háskóla.
Alla mína ævi.
Ég var grænmetisæta að mestu í 7 mánuði og fært mig meira yfir í flexitarian mataræði sl. mánuð
Bara svipað heillengi.
Í tvö og hálft ár.
Dvöl á Ítalíu á níunda áratug síðustu aldar gerbreytti minni sýn á mat og það að njóta matar. Áratug síðar kynntist ég Slow food og hef haft þau (ofangreind) sjónarmið að leiðarljósi síðan.
Alla tíð.
Rúm 2 ár
Síðan áramótin 2015/2016
2 til 3 ár
Síðan í júlí 2016.
Byrjaði að neyta lífræns fæðis 2015, fór lengra 2017-2018 og síðan þá hef ég verið í kringum 90% lífrænt fæði.
Síðan mars 2019
Tæp 3 ár
Ástæðan er sú að ég vandist "hollu" eða segja má skynsamlegu mataræði frá barnæsku og hef haldið mig við það mest part. Foreldrar mínir einkum móðir mín má segja að hafi verið framvarðarsveit hvað varðaði heilusamlegt matarræði og grænmetisnotkun og efalítið átti námsdvöld hennar í Danmörku á leikfimisskóla þátt í því. Móðir hennar Auður Gísladóttir hafði kostgangara í Reykjavík og þær bjuggu í námunda við Miðbæjarskólann meðan Spánska veikin geysaði og amk. tvær eldri systur hennar hjúkruðu þar og það hafði líka áhrif á hana ekki síst að gæta hreinlætis í hvívetna. Foreldrar mínir fylgdjust með stofnun Náttúrulækningafélagsins og umræðunni um auka grænmetisneyslu. Þau áttu bækur t.d. um jafnvægi og sundurgreiningu einstakra matartegunda - sú kenning skýtur upp höfðinu við og við og móðir mín var góður kokkur svo þetta var allt fremur áhugavert og skaut rótum hjá mér. Ég hef því fylgst með þróun hinna ýmsu kenninga varðandi mataræði alla mína æfi.
Að miklu leiti síðan 2008 og svo ekkert kjöt síðan 2011
Alla æfi
Varð grænmetisæta (borðaði fisk og mjólkurvörur en ekki dýrakjöt) 2012. Varð svo alveg vegan árið 2015
Áratug sirka
Kjötlaust síðan 2015, hreint fæði og mjólkurlaust fæði síðan 2018 og alveg vegan síðan byrjun árs 2021
Þetta var hægfara breyting - ég byrjaði á því að taka vegan viku fyrir 8 árum, en setti svo inn kjöt aftur. Tók svo kjöt út fyrir um 6 árum og hætti mjólkurvörum. Borðaði enn egg og fisk. Tók út egg og fisk og hunang (sem var reyndar lítill hluti af mataræði) í kringum 2019. Var ólétt af börnunum mínum 2016 og 2018-19 og borðaði þá mjólkurvörur en hætti þeim þegar þau fæddust.
Í 3-4 ár
Hef viðhaft þetta mataræði í um 6 ár. Með hléum
Mjög markvisst síðastliðið ár. Að mestu síðustu 6 ár ca.
Frá barnæsku.
Svo lengi sem ég man
Ég hætti að borða kjöt á 18 ára afmælinu mínu og það eru 5 ár síðan. Síðan þá hef ég aldrei borðað kjöt og finnst mjög ólíklegt að ég muni einhverntíman borða kjöt aftur.
Frá því að ég var krakki hef ég lítið borðað af rauðu kjöti eða mikið krydduðum mat.
Vegan síðan 2015 en bætti við fiski og aðeins meiri dýraafurðum aftur 2021 vegna fjölda óþola (t.d. fyrir baunum, glúteini og jarðhnetum)
Í þrjú ár núna held ég
Held að þetta sé ekkert sérstakt mataræði. Bara sitt lítið af hverju. Ég reyni þó að borða lítið af unnum kjötvörum og kolvetnum án þess að slíkt sé algjör bannvara á heimilinu. Í hjartanu aðhylist ég mest grænkera lífsstíl, ekki síst út frá dýraverndunarsjónarmiði.
Ég ólst upp við einfaldan mat, soðinn fisk og kartöflur, grauta og mjólkursúpur, kjöt aðeins á sunnudögum og þá aðeins lambakjöt. Á námsárum mínum erlendis lærði ég að fleira er matur en feitt kjet. Þá kom grænmeti sterkt inn í mataræðið og enn meiri sparnaður en ég hafði alist upp við. Hrásalatið kom inn sem nauðsynlegt meðlæti og yfir sumarnánuði allt heimaræktað og hef ég haldið þeim sið af fremsta megni.
Lífræni vinkillinn bættist ekki við fyrr en upp úr 1990. Umræða um loftslagsmál á þessari öld hefur svo haft afgerandi áhrif og gert það að verkum að ég hef markvisst dregið úr neyslu dýraafurða (að mjólkurafurðum undanskildum) og þess gætt að velja helst vörur sem ræktaðar eru eða framleiddar hér á landi eða sem næst okkur. Ég hef forðast eftir bestu getu allt sem ræktað er á landsvæðum þar sem áður voru regnskógar og eða vörur sem vitað er að ræktaðar eða framleiddar eru við ómannskjulegar aðstæður verkafólks og með óhemju magni af skordýraeitri. Þannig kaupi ég hvorki ananas eða avókado nema séu vottuð lífræn.
Fjögur ár.
Kannski undanfarin tvö ár af einhverri alvöru. Ég hætti að drekka og fór að hugsa betur um heilsuna.
Alltaf borðað allan mat.
í 2-3 ár
Alltaf viðhaft reglusemi í matartímunum, vandist því sem barn. Var mikið í sveit, þar vandist maður á að hafa reglu á hlutunum, líka matartimum. Líklega gott fyrir meltinguna.
Hef aldrei farið í neinar sveiflur með matinn en oft prófað eitt og annað, kínverska, indverska, meikóska rétti. Aldrei hent öllu út og skipt með látum yfir í eitthvað alveg nýtt. Hef stundum þurft að breyta til vegna barna eða barnabarna en þá er þa hnetuofnæmi eða laktósaviðbrögð see stýra því.
Fjölbreytt sambland af grænmeti og kjöti eða fiski er heppilegt fyrir mig.
Bý ein í dag og ræð hvað er í matinn!
4 ár að minnsta kosti
Meira og minna alla ævi.
7 ár
alla ævi
Mörg ár.
Þetta er ekki mataræði sem ég aðhyllist.
En lífrænu línuna hef ég ástundað síðan c.a. 1997 en en ég bjó í Skandinavíu í 15 ár og þar er allt annað úrval, verðlag og nálgun á lífrænu fæði.
Ca. 10 ár
Ég hef verið vegan frá því í október 2018, eða í 3 ár og 3 mánuði.
Yfir 6 ár að mestu leiti. Tók fyrst út allt kjöt, færði mig svo smám saman alveg yfir í vegan
Ég myndi segja að það séu svona síðustu 8 ár.
7 ár.
Þessi þróun byrjaði fyrir 10 árum síðan, ca 2012 þegar ég veiktist vegna álags sem fylgdi námi. Ég fann að ég þurfti að breyta mataræðinu en svo hafa siðferðislegar ástæður einnig leikið stórt hlutverk í vali mínu á mat fyrir mig og fjölskylduna. Hefur verið í stöðugri þróun þar sem ég bæti og breyti til.
Ég ólst upp við svipaðar pælingar hjá foreldrum mínum þar sem flest var gert frá grunni, innlent keypt eins og hægt var og ekki mikið af tilbúnum mat. Upp úr tvítugu þurfti ég að taka til í mataræðinu vegna meltingarinnar og tók þá út sem mest af aukaefnum og lauk. Síðar þurfti ég líka að taka út mjólkurvörur. Og þar sem úrvalið var lítið á Íslandi þá þurfti man hreinlega að útbúa allan mat sjálf. En svo bjó ég um tíma í Evrópu og kynntist þá þessari menningu að fara á markaðinn og kaupa grænmeti beint af bóndanum, fylgja árstíðunum og borða meira grænmeti.
Ég hætti að borða kjöt fyrir ári, en hef alltaf borðað mikið af grænmeti og svoldið af fiski. Reyndar er ég í augnablikinu að prófa veganúar í fyrsta sinn, en það útheimtir mjög litlar breytingar á matarræði mínu. Sem krakki ólst ég upp við að það var hrásalat með nánast öllum mat og það lagði línurnar held ég. Börnin mín uppkomin ólust upp við mikið grænmetisfæði en líka kjöt og fisk en þau hafa bæði ákveðið að vera vegetarian og vegan.
Í um 20 ár
Hef nú haldið mig mest við þetta mataræði í gegnum tíðina
Siðustu 30 ár.
í 11 ár.
Frá því í júní 2019
Alla ævi, enda alin upp við slíkan kost og slíkan hugsunarhátt.
Árið 1991 hætti ég að borða rautt kjöt og mjólkurvörur
Árið 2021 hætti ég að borða hvítan sykur og hvítt hveiti
Hætti að borða kjöt fyrir 3 árum en byrjaði að draga úr neyslu á mjólkurvörum og eggjum fyrir hálfu ári.
Í um það bil 14 ár. Frá því ég var barn hefur mér þótt kjöt og fiskur fráhrindandi og alltaf borðað lítið af því. 2007/2008 tók ég þá ákvörðun að gerast grænmetisæta og nokkrum árum síðar gerðist ég vegan.
síðan árið 1999.
2-3 ár
Ég hef ekki borðað kjöt í 4 ár en varð vegan fyrir 2 árum.
15 ar
Rúmlega sjö ár.
Meira og minna frá því ég fluttist aftur til landsins eftir nám og störf erlendis fyrir 20 árum, en áhersla á grænmeti hefur aukist á síðustu misserum.
Ég hef haldið mig við þetta mataræði frá því snemma í júní 2019.
Yfir 10 ár
Það matarmynstur sem er á mínu heimili er eitthvað sem hefur verið í gangi í örugglega fimm ár eða meira en matarmynstrið á vinnutíma hefur verið í gangi skemur, líklega í tæp tvö ár.
2 1/2 ár
Seinustu 6 ár af mestu leyti, ég er alltaf að bæta mig meira og meira í að elda hluti frá grunni.
6 ár
Í þrjú og hálft ár.
Sl 6 ár
ca. 20 ár
20 ár?
Nokkurn vegin reglubundið síðustu 20 árin
Alla ævi, nema kjötleysið, það er síðan um áramót.
Ég hef verið að finna mína leið í hvað mér hentar að borða í tugi ára. Hef prófað ýmsa kúra og megranir þar sem ég var í ofþyngd.
Sem fólst yfirleitt í einhvers skonar takmörkunum á hvað má borða, hvernig, vigta og mæla. Núna í dag hef ég verið í þessu matarræði myndi ég segja í sirka 7 ár. Ekkert er bannað, fjölbreytni er fyrir öllu. Þar sem ég er ástríðukokkur þá hef ég mikla reynslu í að elda góðan mat úr hverju sem er.
ALLA ÆVI.
mjög lengi
Hálft ár strangt vegan, grænmetisæta í 3 ár fyrir það.
Ég byrjaði á þessu mataræði í byrjun febrúar 2022.
Ég hef verið grænmetisæta í 6 ár, og hætti að borða egg fyrir u.þ.b. 4 árum.
Hef ekki borðað kjöt í rúm 5 ár sirka og þessar matarvenjur verið í þessari líkingu frekar lengi.
Gróflega hálft ár. Hef aukið hitaeiningamagn á seinustu þremur mánuðum vegna líkamsræktarmarkmiða (auka massa)
Hef borðað svona í sex ár.
ca 20 ár
Ég hætti að borða kjöt og var fiskæta frá 2012, og er síðan vegan að mestu leyti frá byrjun árs 2019. Þannig að það eru þrjú ár en grænmetisæta/fiskæta í næstum 10 ár.
Alltaf
Síðan í haust - en ekki fylgt neinum sérstökum stefnum í gegnum tíðina
Í um 4 ár. Í fyrstu hætti ég að borða kjöt og varð pescatarian. Eftir svona 3 mánuði af því hætti ég að borða fisk og egg að mestu. Hægt og rólega hætti ég svo að borða flestar mjólkurafurðir og tók loks fisk alveg úr mataræðinu.
6 ár
10 ár.
Er kannski ekki aðhylltur en er að prufa hvort þetta muni hjálpa mér með:
Mígrenni
Kvíða/þynglyndi
Eczem
Bakflæði og magaverki
Ég varð laktósafrí árið 2018. Sumarið 2021 henti ég svo líka út mjölmat. Á tímabili tók ég út hveiti og sykur (man ekki hvenær það var).
Í tvö ár og 8 mánuði
Hef verið vegan í 7 ár
Í 4-5 ár
Síðan 2018.
Ég var án kjöts í 23 ár, hóf að borða aftur kjöt fyrir uþb. 5 árum. Ég aðhyllist fyrst og fremst mat sem er hreinn án aukaefna, heimagerður og ef kostur er lífrænn, hef gert það öll mín fullorðinsár.
Um 2 og hálft ár núna
Þrjú ár.
Ég gerðist grænmetisæta fyrir tæplega þremur og hálfu ári en á síðasta ári byrjaðir ég aftur að borða fisk.
Öll uppeldisárin og til 21 árs. Eftir að hafa forðast unnar matvörur og keyptar sósur og "hefðbundinn" mat í ca 20 ár fór ég aftur í það mataræði sem ég ólst upp við.
Líklega um 20 ár.
9 ár
Hætti kjötneyslu og fór á grænt fæði + fisk frá tuttugu ára aldri, hef ekki borðað kjöt frá þeim tíma. Upphaflega stóð til að prófa þennan nýja lífsstíl í eitt ár eða svo, enn í dag, fjórum áratugum síðar er ég á því fæði og hyggst alls ekki breyta því. Ástæðan í upphafi fyrir því að ég aðhyllist að vera grænmetisæta var dýravernd, dýravelferð og matvælastefna á heims vísu. Þá hefur með árunum bæst við áhrifaþættir eins og heilsa og hollusta, lífræn ræktun og umhverfismál og umhverfisvernd í víðum skilningi.
2 - 3 ár
Ég hætti fyrir nokkrum árum að borða kjúkling og svínakjöt og svo smám saman aðrar dýraafurðir. Hef verið vegan í 2 ár.
Hef verið pescaterian síðan í janúar 2019. Er með endometriosu og las mig til um það og þar las ég vísindagreinar sem ráðlögðu konum með endo að halda sig frá rauðu kjöti. Ég tók hinsvegar allt kjöt út og verkirnir snar minnkuðu, auk þess sem bakflæðið mitt hvarf.
Ég var grænmetisæta frá júlí 2015 til maí 2016 og hef verið vegan frá maí 2016.
Nokkuð lengi, en síðustu ár hefur kjötneyslan farið hratt minnkandi og einnig hef ég orðið meira meðvituð um vistvænan lífsstíl.
Síðan 2012
Talsvert lengi sl. 10 ár alltaf meira og meira forðast unnin matvæli og velja frekar lífrænt. Nú er líka betra úrval af lífrænt ræktuðu hér úti á landi.
Ég hef verið vegan í rúm 3 ár núna. Fyrir það var ég grænmetisæta í nokkur ár en stalst þá stundum í fisk eða kjúkling. Mér fannst erfiðast að hætta að borða ost en núna finnst mér tilhugsunin um að borða afurð kúa frekar ólistileg.
Síðan ég byrjaði í háskólanámi og lærði mikið um alþjóðlega matariðnaðinn var ég staðráðinn í að verða vegan en það tók mig nokkur ár að skuldbinda mig alveg. Fyrsta desember árið 2020 ákvað ég að gerast alveg vegan. Mamma var ekki sátt því ég bjó tímabundið heima hjá henni og henni leist ekkert á að ég gæti ekki borðað jólamatinn. Ég eldaði mér sjálfur sveppawellington og fyrir áramótin eldaði ég blómkálsnagga.
Aðallega umhverfissjónarmið, ég hef kynnt mér í meira mæli áhrif dýraframleiðslu á umhverfið og vil leggja mitt af mörkum í baráttunni. Dýraverndarsjónarmið spila líka inn í.
Vegna heilsuvandamála og vitund um hvað er hollt og hvað ekki. Líka með hliðsjón af því sem er hagstætt fyrir náttúru og umhverfi. Borða meira af mat úr nærumhverfi og minna af innfluttum vörum. Vel t.d. alltaf íslenskt grænmeti og kjöt fram yfir erlent. Bæði minna af aukaefnum og sýklalyfjum notuð í íslenskum landbúnaði og minni mengun af styttri flutningum. Vinnuafl síður þrælar eða þolendur mansals hér en t.d. á Spáni sbr. fréttir á síðasta ári.a
Ég hef verið mikill dýravinur alla ævi og alltaf talið rangt að koma illa fram við dýr. Þegar ég var stelpa þá var ég talsvert í sveit og þrátt fyrir að njóta þess að vera þar með fólkinu mínu þá vorkendi ég dýrunum og var í mikilli sorg að horfa upp á aðstæður þeirra. Á þessum tíma var mér alltaf tjáð að ég yrði að borða matinn minn og þrátt yfir að vera alltaf með mikil meltingarfæravandamál og ,,matvendni" þá var aldrei í boði að prufa að taka dýraafurðir út...heldur var ég látin þjást, því jú ég yrði ekki heilsuhraust nema að fá nóg af mjólk, fiski og kjöti í líkamann. Fyrir tæplega þremur árum ávað ég síðan sjálf (án þess að ráðfæra mig við lækni) að prufa að taka allar dýraafurðir úr matarræðinu þar sem meltingarfæralæknir vildi að ég færi að taka stera þar sem ég var orðin mjög vannærð og með verulegan járnskort. Þá fannst mér mikilvægt að athuga hvort vegan matarræði virkaði...sem það gerði. Ég er komin í kjörþyngd núna er góð í járni og þarf engin lyf við meltingarfæravandræðum lengur. Það má því segja að þó svo fyrsta skrefið í átt til veganisma hafi verið heilsufarsleg ástæða, þá er ég þó fyrst og fremst vegan fyrir dýrin.
Ég hef lengi verið með miklar bólgur í líkamanum og er enn í því ferli að finna út af hvaða mat mér verður illt, en mjólkurvörur svöruðu allra best tilraunum mínum. Þetta er að læknisráði og hefur haft talsvert miklar heilsufarbreytingar í átt til batnaðar. Ekki er aðeins um að ræða viðkvæmni fyrir laktósa, svo virðist sem laktósafríar vörur hafai svipað slæm áhrif á mig.
Mikill og almennur áhugi á matseld, hollustu og gæðum matar. Svo er það líka nett nautnahyggja sem ræður för.
Frændi minn lést úr krabbameini og amma veiktist stuttu síðar. Upp komst um að BRAC genið er líka í fjölskyldunni þó að ég sé ekki með það en upp frá þessu fór ég að lesa mér til um mataræði og sjúkdóma og komst að því hversu mikil tengsl eru a milli dýraafurða og lifstilstengra sjúkdóma. Krabbameins, hjarta og æðasjúkdóma, sykursýki og allskonar fleira. Ég prufaði að breyta mataræðinu alveg eftir að ég horfði a Game changer og á 3 dögum losnaði ég við liðverki sem högðu hrjáð mig og þeir hafa ekki komið aftur.
Það byrjaði vegna eigin heilsu.
Ég gerði tilraunir með útilokun á ákveðnum hlutum eins og mjólkurvörum og þessháttar vegna mögulegs fæðuóþols og komst að því að ég er með óþol gagnvart ákveðnum fæðuflokkum sem eru gríðarlega algengir í stórum hluta af svona almennri "dagsdaglegri" földaframleiddri fæðu.
Eftir að hafa gert þessar tilraunir með útilokanir í nokkra mánuði og komist að því að mér fannst ég ekki eiga í erfiðleikum með að sleppa þessum hlutum vegna þess hve miklu betur mér leið án þeirra var í raun ekki aftur snúið, sér í lagi eftir að ég fór að kynna mér aðbúnað og aðferðir við ræktun og slátrun dýra og áhrifin sem þetta hefur á umhverfið okkar, jörðina.
Ástæðurnar fyrir því að ég held mig við mataræði án dýra er því þreföld,
1. Mín eigin heilsa(og það að betri eigin heilsa þýðir minna álag á heilbrigðiskerfið okkar)
2. Sameiginlegt umhverfi okkar allra og
3. Siðferðisleg vegna umbúnaðar og meðferðar á dýrum við ræktun þeirra.
Mér finnst umgengni við dýr á frekar lágu plani.
Ég held að ég eigi ekki eftir að borða dýr aftur.
Ég horfði á Cowspiracy jólin 2015, þar sem talað er um umhverfisáhrif dýraafurða. Las mér meira til um málefnið og tók ákvörðunina í júlí 2016 að taka út allar dýraafurðir úr mataræðinu. Á um 8 vikum hrundi veggurinn milli "dýr sem einstaklingar og dýr sem matur" veggurinn og siðferðisþátturinn kikkaði inn. Það er fyrst og fremst sá þáttur sem gerir það að verkum að ég held mig við þetta. Sú staðreynd að umhverfissporið er lægra er mikill bónus ásamt aukinni vellíðan. Var og er t.d. með síðgreint mjólkuróþol og bólumyndun minnkaði til muna eftir að ég hætti allri neyslu á mjólkurafurðum. Einnig er mataræðið mun léttara í maga og það er auðveldara að halda kjörþyngd.
Heilsa barnanna minna, forðast eiturefnaleyfar í mat, aukaefni, litarefni, skaðleg e-efni en einnig fyrir umhverfið og að stuðla að sem jákvæðustum áhrifum á umhverfið með minni matarneyslu - sem neysla á lífrænum vörum gerir.
sjá fyrra svar
Ég hef í raun alltaf forðast kjöt, borðaði oft bara meðlæti þegar ég var yngri, svo fattaði ég 19/20 ára að ég þyrfti ekki að borða það sama og allir aðrir. Þá varð ég grænmetisæta og svo loks vegan, hef því ekki borðað kjöt í næstum 5 ár.
Ég hef nú þegar skýrt frá því. Af nútímakenningum heyrði ég fyrst talað um Micro - macro - bjó þa í Ameríku og það hefur verið um 1960 að vakning var að verða þar í sambandi við mat. Ég man fyrstu auglýsingarnar sem birtust - þær voru í þessa átt: Þú ert vandur að vali á smurolíu fyrir bílinn þinn en hugsar ekkert um hvaða olíu (fitu) þú lætur ofan í þig sjálfan. Þessi kenning var til held ég í Japan eftir kjarnorkuvána og snerist um að nærsast á fæðu sem var sem nálgast að vera í Yin - Yang jafnvægi og forðast hinar sem voru yst á skalanum Yin eða Yang svo sem rautt kjöt, kaffi og sykur. Smám saman fjölgaði kenningum og ein var man ég að skemmtileg. Ef þú áttir á vandræðum með meltinguna þó var ráð að spyrja sig - hvaðan kom hún amma. Það er að rússneskur innflytjandi hefi erft allt öðrivísi líkama og meltingarstarfsemi heldur en t.d. Brasili eða svartur Afríkubúi. Maður velur það skemmtilegast og vitlegasta fyrir sjálfan sig úr þeim kenningum sem koma fram.
Meðvitund um matvælakerfi heimsins. Mikilvægi mataræðis fyrir heilsu og skarpa hugsun. Lágt hangandi ávöxtur (auðveld leið til að hafa áhrif). Grunnur að mínu gildismati.
Ég er umhverfisfræðingur og meðvituð um umhverfisáhrif matvælaframleiðslu til manneldis. Ég hætti smátt og smátt að borða kjöt, núna finnst mér það frekar ógeðslegt að borða önnur spendýr og fugla en stoppa ekki aðra heimilismeðlimi í því. Ég er gift og á þrjú börn. Breytingin átti sér stað í kjölfar þekkingaröflunar en líka aukins úrvals á grænmetis- og veganvörum hérlendis
Fyrst var það vegna dýranna þegar eg hætti að borða kjöt, ég hætti síðan í mjólkurvörum og fór að borða hreinna vegna magaverkja og líkamlegrar og andlegrar vanlíðunar. Þegar eg gerðist alveg vegan var það fyrir dýrin, umhverfið og heilbrigði. Èg viðheld því matarræði þar sem mér líður svo vel líkamlega og andlega
Umhverfismál en fyrst og fremst dýravelferðarsjónarmið og heilsufarslegar ástæður, þ.e. meltingin er töluvert betri á vegan- mataræðinu
Einfalt og ódýrt
Systir mín varð grænmetisæta 1996 þegar ég var 1 árs og hún 6 ára því ólst ég upp við mikinn grænmetismat þó þess tíma. Því hefur það verið mjög eðlilegt fyrir mér að borða ekki kjöt síðan ég var lítil. T.d var alltaf bæði hnetusteik og lambakjöt í boði á jólum.
Ég hafði fundið eftir að ég fór að fullorðnast að flest kjöt fór illa í mig og vildi því prufa að taka kjötið út.
Ég þoli illa unna matvöru, líkaminn minn bregst illa við þegar ég ,,sukka" og borða drasl. Mér líður líkamlega og andlega mun betur þegar ég borða hreinan mat og ég hef gaman af því að dunda mér við matseld. Með því að leggja áhersla á að sporna gegn matarsóun hef ég sparað töluvert í bæði innkaupum og förgun á mat. Það hentar bæði mínum lífstíl og fjölskyldugerð að elda hreinan mat frá grunni og hefur fjárhagslegan ávinning í för með sér sem er stór plús.
Var alin upp að borða allt án fordóma.
Uppeldi, "smakka allt" var frasi sem mamma og foreldrar henna (var mikið hjá þeim, í sveit á sumrin) höfðu fyrir mér. Að hluta alinn upp hjá fólki sem vissi hvað það var að fá ekki að borða.
Ástæðan fyrir því að ég hætti að borða kjöt eru út frá umhverfissjónarmiðum og svo þegar ég var hætt gat ég ekki ímyndað mér að borða aftur kjöt. Þegar ég áttaði mig á þeim miklu umhverfisáhrifum og stóra kolefnisspori sem fylgir því að borða kjöt ákvað ég að hætta að borða kjöt. Mér fannst kjöt aldrei sérstaklega gott svo þetta var auðveld breyting fyrir mig. Ég held mig við ákvörðunina vegna þess að mér líður betur með það að vita að það er lægra kolefnisspor af mataræðinu mínu og að ég lágmarka þá þjáningu sem mataræðið mitt veldur öðrum dýrum. Mér þykir mjög vænt um dýr og jörðina og langar að gera mitt besta til þess að lágmarka þjáningu og lágmarka kolefnissporið mitt.
Ég ákvað að hætta að borða dýrafurðir eftir að ég horfði á bíómynd að nafninu Okja. Ég var búin að hugsa lengi um að taka skrefið en hélt að ég myndi ekki geta það, þar sem ég elska kjöt og mjókurvörur. Bíómyndin minnti mig á allt það sem var að trufla mig með matarræðið mitt, þar sem hún fjallar í stuttu máli um hvernig komið er fram við kýr, bæði fyrir mjólkina en líka hvernig þeim er slátrað. Ástæðan er semsagt fyrst og fremst því ég er mikill dýravinur og vil ekki valda þjáningu þeirra, sérstaklega þar sem það er ekki þörf á henni þar sem ég hef fullt af öðrum valmöguleikum. Ég hélt áfram á matarræðinu því það var miklu auðveldara en ég hélt, en einnig varð heilsan mín betri fyrir vikið. Heilsubreytingarnar komu mér á óvart en á mjög góðan hátt.
Mér verður flökurt við að borða mat sem er þungur í magan og eins er með mat sem er bargðmikill eða búið að krydda mikið, eins sneiði ég frá unnum matvælum af sömu ástæðu.
Þegar ég varð vegan var það vegna þess að ég hafði lengi glímt við meltingartruflanir, prófaði að taka út kjöt og skánaði mikið við að taka úr mjólkurvörur. Ég tók inn fisk aftur á þessu ári því ég hef alltaf þolað hann vel og fundist mjög góður. Eins og líkaminn minn taki honum vel á meðan bæði kjöt, mjólkurvörur og hráefni sem eru algeng í vegan mataræði eins og baunir, jarðhnetur og glútein valda mér vanlíðan. Þá er mikið af keyptum vegan mat mikið unnið og ég þoli það takmarkað - það er helst ástæðan fyrir að ég fór að borða fisk aftur.
Ég hætti að borða kjöt vegna umhverfisáhrifanna sem það mataræði hefur og vegna skaðlegrar áhrifa á heilsu. Ég minnkaði svo mikið eggja og mjólkurneyslu af dýravelferðarástæðum en ég er ennþá að reyna að losna frá ost-fíkninni minni..
Ég byrjaði svo að borða meiri fisk eftir að hafa prufað að panta fiskrétti á veitingastöðum sem voru bara með kjöt eða fisk.. þar sem mér hafði alltaf fundist fiskur vondur og kunni eiginlega ekkert að elda hann þá tók smá tíma fyrir mig að komast upp á lagið með að hafa það reglulega í matinn. En vegna hversu hollur hann er þá lagði ég það á mig að læra og gerði undanþágu í "veganish" mataræðinu mínu til að hafa það með. Finnst hann ekki vondur í dag:)
Ástæðurnar rakti ég í svörum við spurningum síðasta kafla. Þrátt fyrir jafnt andlega sem líkamlega leti mína reyni ég eftir bestu getu að vera ábyrgur neytandi og lifa samkvæmt því. Veit hinsvegar að á þvi sviði gæti ég bætt mig.
Hef mikinn áhuga á matvælum sem ég afla mér sjálf,nýti allt sem náttúran gefur mér. Rækta grænmeti, tíni sveppi og ber, fer í fjöru og tíni þörunga, s.s. söl, klóblöðku, beltisþara, þangskegg.
Dýravelferð og umhverfisverndarsjónarmið.
Tók heilsuna fastari tökum, hætti áfengisneyslu. Ég minnkaði kjötbeysluna líka vegna þess að ég er með bakflæði og fann mikil einkenni ef ég neytti kjöts óhóflega. Ég held mig við mataræðið vegna þess að mér líður betur, betri svefn, betri hægðir, betri húð og geð.
Aukin fræðsla um mat og áhrif matar og ráðleggingar næringarfræðings.
Svona sambland af öllu gerir lífið einfaldara og innkaupin með. Þá þarf ekki að vera á verði og hafna eða sækjast eftir ienhverju sem svo er kannski ekki til.
Prófaði veganúar og líkaði vel, misati áhugan á að borða kjöt í kjölfarið. Betri andleg og líkamleg líðan.
Ólst upp við þetta að mestu leyti.
Ég horfði á heimildarmyndina Cowspiracy sem fjallar um umhverfisvandamál sem kjötneysla stuðlar að. Síðan kom dýraverndurnarsjónarmiðið. Ég hef ekki lengur áhuga á því að borða kjöt
ólst upp við það
Þetta er ekki mataræði sem að ég veit að sé best fyrir mig. En í annríki dagsins þá grípur maður það sem að hendi er næst. Ég bíð þess dags að ég hafi fyrir því að baka mér hollt brauð og millibita. Hef stundum gert það í gengum tíðina, og líður þá miklu betur, verð minna bjúguð og minna þreytt. Matur hefur vissulega áhrif á mig, en af einhverjum orsökum þá hef ég mig samt ekki í það að halda mig við það sem að gerir mér gott, heldur borða bara það sem að mér finnst gott.
Hlífa líkamanum og móður jörð við eiturefnum og um leið styrkja gott málefni. Ef við björgum okkur ekki sjálf gerir það enginn. Engin her, ekkert heilbrigðiskerfi, ekkert efnahagskerfi, og alls engin ríkisstjórn.
Áhyggjur af umhverfi og náttúru vegna matarsóunar og skorti á sjálfbærni í flestri framleiðslu og neysluvenjum.
Ég er vegan vegna þess að dýraiðnaðurinn er viðurstyggilegur og mér finnst almennt ekki rétt að nýta dýr til matarframleiðslu, alveg sérstaklega ekki ef það felur í sér ítrekaðar þunganir mjólkurkúa eða dauða. Ég get ekki hugsað mér að taka þátt í pyntingum og morðum á dýrum.
Meðvitund um loftlagsmál og minni þörf og lyst á kjötafurðum.
Ég varð vegan af umhverfis- og dýraverndunar ástæðum og reyni að borða sem mest af óunni matvöru af heilsu ástæðum. Ég held mig við það vegna þess að það er ekki erfitt og er lítil fórn sem ég get fært fyrir umhverfið og dýrin. Líður meira að segja ekki eins og fórn lengur.
Ég hef alltaf verið viðkvæm í maga. Við fæðingu melti ég ekki brjóstamjólk og var gefin þurrmjólk (1979). Í æsku fann ég svo ekki mikið fyrir meltingaróþægindum en ég er alin upp á "venjulegu" íslensku heimili. Fékk reyndar aldrei sælgæti,gos, sykrað morgunkorn eða brauðálegg nema á afmælum eða jólum. Þegar ég var í háskólanámi á árunum 2007-2012 fór að bera meira á þessum einkennum. Ég tengdi það álagi. Með breyttu mataræði lagaðist meltingin en svo fléttuðust ýmsar siðferðislegar ástæður ennfremur inn í ákvörðun mína.
Það er aðallega af heilsuástæðum og umhverfisástæðum. Þetta hefur aldrei verið nein sérstök ákvörðun fyrr en ég ákvað að hætta alfarið að borða kjöt og það er algjörlega af umhverfisástæðum. Mér finnst þetta gott matarræði og finnst ég alltaf vera að borða veislumat svo það er auðvelt að halda sig við það.
Meðvituð ákvörðun um að borða minna kjöt og meira grænmeti. Líður betur að borða minna af kolvetnum.
Reyni að borða blandað, til að fá sem fjölbreyttast út úr fæðunni.
Var búin að taka hreinsunarföstu til 3ja vikna í nokkur ár, alltaf að vori. Í þeirri föstu var sneitt framhjá hvítu hveiti, sykri, koffíni, öllum dýraafurðum.
Vika 1 og 3 voru á ofangreindu fæði. Vika 2 var aðeins fljótandi fæði. Þessar 3 vikur einkenndust líka af hugleiðslu daglega. Alltaf leið mér svo vel eftir á. Í kjölfar fæðingar barns nr. 2 ákvað ég að halda þessu mataræði áfram. Sjá kafla 1 fyrir hvers lags mataræði ég aðhyllist í dag.
Í kjölfarið komu siðferðislegar og umhverfisvænar áherslur inn hjá mér sem snerta mataræði mitt. Þetta mataræði hentar mér mjög vel og ég er afar sátt við það. Þá finnst mér mikilvægt að geta þess að sem barn var ég léleg kjötæta og valdi alltaf lítið magn af best steikta kjötinu. Ekkert blóð mátti sjást.
Heilsan. Var komin með aðkenningu að sykursýki og hafði val um að fara á þetta mataræði eða taka töflur fyrir hverja máltíð sem vinna gegn sykursýki . Þetta mataræði hefur stórbætt heilsuna. Dregið úr háþrýstingi, bakflæði hefur lagast o.fl. Venst mjög vel. Vanur að borða "gamaldags mat" Sakna aðeins ávaxta.
Árið 1991 hafði ég verið með stöðuga magaverki árum saman. Ég hafði verið hjá ýmsum læknum í gegnum tíðina en fékk ekki bót minna meina, þar til ég hitti einn ágætan lækni sem sagði við mig: borðaðu það sem þér verður gott af og láttu hitt eiga sig. Þá fór ég að lesa mig til og komst að þeirri staðreind að kúamjólk er fyrir kálfa ekki mannfólkið, ég tók mjólkuvörurnar út og allt rautt kjöt þ.m.t. svínakjöt. Þá gerðist eftirfarandi: magaverkurinn hvarf eins og hendi væri veifað, því líkur munur.
Frá því að ég man eftir mér þá truflaði það mig að borða kjöt og fisk því ég fann til með dýrunum sem barn. Ég man að mér fannst sérlega einkennilegt að fólk borðaði börn dýranna fyrst og fremst: kjúklingar, lömb, folaldakjöt, ungnautahakk. Þegar ég varð eldri og sjálfstæðari fannst mér ég hafa svigrúm til að lifa meira í takt við eigin gildi og hætti smám saman að borða kjöt og fisk, endanlega í kringum tvítugt. Þá fór ég að kynna mér meira áhrif matarræðis á umhverfi og siðferði í kringum matvælaframleiðslu og smám saman færðist ég í átt að Vegan matarræði. Ég hef haldið mig við grænmetisfæði allar götur síðan og get ekki ímyndað mér að það muni nokkurn tímann breytast fyrst og fremst þar sem það fæli í sér breytingu á mínum grundavallargildum og siðferðisvitund. Einnig sökum þess að mér líður almennt vel á grænmetisfæði, finnst það bragðgott og er við góða heilsu.
Óþol þýðir að allskonar kvillar í maga og líkama yfir höfuð fylgja og um leið og tiltekin matvæli eru útilokuð úr fæðunni að þá hverfa þessir kvillar.
Ég held mig við þetta mataræði vegna þess að ég er 100% hraustari og laus við allskonar vanlíðan.
Aðalástæðan var vegna siðferðis, mér finnst rangt að drepa dýr þegar það eru aðrir valmöguleikar í boði. Umhverfisáhrifin og heilsuáhrifin eru síðan stór bónus í kjölfarið. Ég held mig við ákvörðunina því ég hef enn sömu siðferðisskoðanir.
Ég hætti að borða kjöt eftir að hafa séð myndbönd úr verksmiðjuslátrun og brotnaði niður. Ég gat ekki hugsað mér að taka þátt í þessum iðnaði. Svo hægt og rólega yfir tvö ár tók ég út mjólk og egg og varð svo alveg vegan 1. janúar 2020.
Það er líka umhverfisvænna að vera vegan og betra fyrir mína heilsu, bæði líkamlega og andlega.
Ódýrara að kaupa minna kjöt og umhverfisvænna
Ég ákvað að borða veganfæði eina helgi. Mér leið svo vel í líkamanum af því, alls konar verkir minnkuðu eða hurfu, til dæmis liðverkir, þannig að ég ákvað að halda mig áfram að mestu við það, nema ég vildi halda áfram að borða fisk.
Líður betur af hollum mat. Einnig með aukinni meðvitund um framleiðsluhætti matvara og aðflutning þeirra.
Upphaflega voru það umhverfissjónarmið og kolefnisspor framleiðslu dýraafurða, þá heilsufarsástæður og svo dýravelferð. Nú hefur dæmið snúist við og ég get ekki hugsað mér að dýr séu alin eða veidd til þess eins að drepa þau til matar þegar ég hef aðgengi að fjölbreyttri annarri fæðu (plöntumiðaðri) og þarf ekki að drepa dýr til að lifa af. Umhverfis- og heilsufarssjónarmiðin koma svo fast á eftir dýravelferðarvinklinum.
Líður vel af þessu
Annars vegar vegna óþols en hins vegar vegna umhverfissjónarmiða (kjötlaust)
Mér hefur alltaf verið umhugað um umhverfið og reyni að leggja mitt af mörkunum sem meðvitaður neytandi. Eftir því sem árin líða þá finn ég betur hvað hollur matur skiptir meira máli fyrir almenna heilsu - mér liði einfaldlega ekki jafn vel í kroppnum mínum og huganum ef ég væri að raða í mig skyndibita og unnu dóti þar sem húsdýr og náttúran borga brúsann.
Betri líðan
Ég varð grænmetisæta útaf umhverfisástæðum og einnig útaf meðferð dýra í kjötframleiðslu. Ég elst upp við að þetta sé frekar "normal" að borða dýr en svo þegar grænmetisfæði varð vinsælla og vinsælla sá ég að þetta var kannski ekki eins "normal" og ég hélt.
Pabbi minn greindist með krabbamein og þá fór ég að lesa niðurstöður rannsókna um sjúkdóma og lífstíl. Eftir að hafa séð niðurstöður um að mataræði sem einkennist af miklu dýraafurðaráti leiðir til alls konar lífstílssjúkdóma að þá var ekki aftur snúið. Eftir það fór ég að þora að kynna mér veganisma sem enn þá frekar styrkti mig og fjölskylduna í viðhorfum okkar til mataræðis, um heilsu, dýrin og jörðina okkar.
Heilsan mín og mér líkar það
Siðferðlegt og umhverfislegt. Reyna að klippa út milliliði og dýraræktun.
Foreldrar mínir tóku þessa ákvörðun fyrir mig í barnsæsku.
Ég hef lesið mér til um næringarfræði og ég finn hvað gerir mér gott
Vil ekki borða dýr, finnst það ógeðslegt og ómannúðlegt.
Það var aðallega útaf dýrunum. Ég elska dýr og gat ekki lengur hugsað mér að borða kjöt þegar ég byrjaði að hugsa meira um hvað er á bak við framleiðsluna. Ég gat ekki lengur tekið þátt í þjáningu dýranna en ég átti erfitt með að stíga skrefið vegna þess að á þeim tíma var það „óvenjulegt“ og er erfiðara að vera grænmetisæta. Í dag finnst mér óhugsandi að ég hafi nokkurn tímann borðað dýr. Núna verður mér óglatt við tilhugsunina.
Mig hætti bara að langa að borða kjöt. Margir vinir mínir voru einnig grænmetisætur og hef líklegast orðið fyrir áhrifum frá þeim.
Sneri mér að þessu mataræði til að ná markmiðum mínum.
Til þess að ná markmiðunum.
Langstærsta ástæðan í upphafi var dýravelferð og er það í raun enn í dag þó svo að umhverfissjónarmið komi sterk inn núna síðustu ár.
Er að reyna að létt mig - er of þungur
Ástæðan var aðallega til þess að vera umhverfisvænni. Ég legg mikla áherslu á umhverfisvernd og umhverfisvænan lífstíl, minni neyslu og endurnýtingu/endurvinnslu og þessi ákvörðun var partur af lífstílsbreytingu í þá átt. Mataræðið er því hluti af stærri mynd þar sem ég reyni að lifa eftir ákveðnum gildum.
Dýravelferð, slæm meðferð á sláturdýrum, umhverfisvernd. minnka kolefnisspor.
Ég sá þátt í sjónvarpi, þar sem þessu mataræði var lýst, og hvaða áhrif það hefði á líkamsþyngd og heilsu almennt. Mín reynsla af þessu mataræði er sú að þetta hefur góð áhrif á mína heilsu almennt, og virkar vel við þyngdarstjórnun, og þar sem mér hættir til að þyngjast, þá hef ég haldið mig við þetta mataræði.
Ég komst að því smátt og smátt að ég þoldi ekki laktósa. Ég hélt alltaf að það væri eitthvað annað að hrjá mig. Fitu þoli ég heldur ekki vel og því reyni ég að borða rjóma aðallega um helgar. Var stundum að skvetta rjóma í mat hvundags. Nú nota ég hrísmjólk. Laktósafríi rjóminn fer sem sagt ekki alltaf vel í mig.
Þegar ég fékk heiftarlega blöðrubólgu sumarið 2021 eftir langvinna og erfiða hægðatregðu ákvað ég að taka út mjölmat. Ég var nefnilega að stelast í súkkulaði með laktósa í "sumarfríinu" og var farin að borða frekar mikið brauð. Ég fann strax mun á mér enda hafði ég fundið mun þegar ég tók út hveitið um árið.
Yfirleitt reyni ég að halda mig við þetta mataræði en núna um jólin (2021) var ég farin að borða töluvert af súkkulaði, sætindum og ostum og þá var eins og við manninn mælt ég fór að sofa verr. Næstu jól ætla ég sjálf að hefja framleiðslu á sætindum.
Ég er vegan vegna dýranna og umhverfisins. Ég byrjaði að spá í hvaða áhrif matarræðið mitt hefði á umhverfið fyrir um 4 árum og fór þá að minnka kjöt. Eftir að ég fór að kynna mér meira kjöt- og mjólkuriðnaðinn, hvaða áhrif það Jeffrey á jörðina okkar og dýrin þá ákvað ég að hætta allri þeirri neyslu og varð vegan. Ég hef lært mikið á vegferð minni, og þó ég sé ekki fullkomin þá reyni ég mitt besta í að finna allar þær bestu lausnir í matarræði sem fylgja veganisma og hafa góð áhrif á jörðina okkar.
Ég hef alla mína tíð þurft að geta réttlætt allt sem ég geri og áhrif þess sem ég geri á annað í kringum mig. Þar af leiðandi um leið og ég áttaði mig á því að ég var ekki sammála því að til þess að ég fengi mat þyrfti að drepa og beita dýrum ofbeldi, svo að það þurfi ekki að vera þannig þá varð ég vegan.
Það er svo margt í mat sem lætur mér liða illa. Eins og mjólk og egg, Finnst betra að borða eitthvað se lætur mér líða vel.
Mér finnst það bara svo rétt, fyrir umhverfið, dýrin og mig.
Árið 2016 byrjaði heilsunni að hraka og ég hélt að ástæðan væri hækkandi aldur. Tveimur árum síðar voru bólgurnar í líkamanum orðnar svo slæmar að ég átti erfitt með jafn einfalda hluti og að klæða mig eða lyfta kaffibolla. Í október 2018 greindist ég með sjálfsofnæmissjúkdóminn liðagigt (Rheumatoid Arthritis). Það vildi mér til happs að nokkrum mánuðum fyrr var ég kynnt fyrir ótrúlegri konu, sem hafði náð bata eftir áratuga heilsuleysi með hjálp breytts mataræðis og lifnaðarhátta. Konan sem gaf mér nýtt líf heitir Hildur M. Jónsdóttir. Ég var ein af þeim fyrstu sem hún hjálpaði til betri heilsu og nú hef ég verið svo til einkenna- og lyfjalaus í 2 ár. Ég held mig við það vegna þess að það eru stórkostleg lífsgæði að lifa án verkja og þurfa ekki á lyfjum að halda.
Það sem hafði sennilega mestu áhryfin var að Kornmarkaðurinn opnaði á Skólavörðustíg. Það var nýr heimur sem opnaðist þar og við stelpurnar fórum að prufa okkur áfram með híðishrísgrjón, baunir og fleira. Forvitni og nýjung var sennilega eina ástæðan, ekki hægt að segja að ég hafi haldið mig við það mataræði.
Veganisminn er betri fyrir umhverfið, dýrin og heilsu okkar sjálfra. Ég gat ekki lengur logið að sjálfum mér að ég "elska dýr" en á sama tíma borga fólki til þess að pynta, misþyrma og myrða dýr bara svo ég geti fengið mér mjólk eða kjöt að borða. Þetta eru ástæðurnar sem koma í veg fyrir að ég neiti dýraafurða þar sem ég horfi ekki á dýraafurðir lengur sem mat heldur sé frekar alla þjáninguna sem liggur þar að baki.
Búferlaflutningur í sveit, þá sköpuðust aðstæður til ræktunar.
Ég var að borða of mikið af kolvetnum þó svo að ég hafi örugglega fylgt fordæmi WHO er varðar prótein, kolvetni og fitu. Að borða margar máltíðir á dag hafði neikvæð áhrif mig: ég þyngdist og fann fyrir verkjum í liðum. Síðan að ég hætti að borða á morgnana og minnkaði inntöku kolvetna hef ég viðhaldið þyngd minni og minnkað verki í liðum.
Helsta ástæða þess að ég tók upp grænmetisætu mataræði var vegna skoðana minna á dýravelferð og ég tel þetta mataræði einnig mikilvægt í baráttu við loftlagsbreytingar. Það þýðir þó ekki að ég telji að allir þurfi að gerast grænmetisætur, heldur átta okkur á öðrum möguleikum og þannig hafa mun fleiri valmöguleika hvað mat varðar.
Ástæðan fyrir því að leita aftur í ræturnar voru tímaskortur og að bjóða upp á mat sem börnum þykir góður. Það er líka tiltölulega ódýrt.
Ég hef aldrei verið spennt fyrir kjöti og með tíð og tíma hef ég fjarlægst það enn meira og þá mikið til vegna dýraverndunar hugsjónar. Nú síðast hafa egg dottið út hjá mér þó ég borði þau ef þau eru t.d. í innihaldslýsingu á mat en aldrei ein og sér.
Ér bóndi og fannst ekki rétt að borða það líf sem ég var að bjarga
Dýravelferð. Óhugnaleg og öfgafengin þróun í matvælaframleiðslu í heiminum, velferð dýra og dýrafóður.
Við hjónin fórum að fordæmi dóttur okkar. Ástæðan var m.a. hnattræn hlýnun og dýravernd. Einnig eigið heilsufar
Ég greinist með endometriosu 2019 og hætti þar af leiðandi að borða kjöt. Það hefur minnkað verkina mína svakalega og þessvegna hef ég haldið mig við það.
Þegar ég var að byrja að taka út kjöt þá tók ég einstaka svindl máltíðir, en það leiddi bara af sér mikla verki og þar af leiðandi var ég alfarið hætt því. Ég hef ekki borðað neitt kjöt síðan í mars 2019.
Ég ákvað að prófa að verða grænmetisæta þar sem æskuvinkona mín hafði ekki borðað kjöt lengi af siðferðisástæðum. Fyrst sleppti ég kjöti, síðan fiski og síðan öllum dýraafurðum. Upphaflega grænmetisætuákvörðunin var ekki drifin af neinum hugsjónum en síðan fór ég að leyfa sjálfri mér að sjá siðferðisvinkilinn, þ.e. að mannskepnan þarf ekki og ætti ekki að slátra dýrum sér til matar, og á endanum varð ég vegan því ég sjá að mjólk og aðrar „óbeinar“ dýraafurðir væru litlu skárri en sjálft kjötið.
Meiri meðvitund um loftslagsvána og kannski eru það dætur mínar sem hafa haft áhrif á mig, önnur borðar ekkert kjöt og hin borðar aðeins fuglakjöt.
Aðallega heilsunnar vegna, ég finn að þetta hentar mér betur þar sem ég er með liðagigt og ýmis óþol fyrir efnum í unnum matvælum.Ég held áfram þar sem þetta gerir mér gott og færi mig smá saman út í lífrænt og grænt mataræði vegna umhverfisins. Ég reyni að rækta grænmeti sjálf og borða það sem er í nærumhverfinu til að minnka kolefnissporið.Við hjónin eru með kartöflugarð, grænmetisgarð, býflugnarækt, íslenskar hænur og berjaland í bakgarðinum. einnig erum við með skógrækt og þar finn ég góða sveppi stunda fjallgöngur og finn mér fjallagrös.Einnig rækta ég bæði fjölærar kryddjurtir og sái árlega bæði inni og úti.
Þegar ég gerðist alveg vegan var það vegna þess að ég var búinn að læra mikið um slæma meðferð dýra og með þessa vitneskju gat ég ekki hugsað mér að borða aftur dýraafurðir. Ég hafði lært að hænur þyrftu að verpa svo mörgum eggjum vegna kynúrbóta að flestar hænur eru með beinþynningu og fótbrotna undan eigin þunga. Kjúklingar eru drepnir aðeins 6 vikna gamlir og vaxa svo hratt og í svo þröngum búum að þeir verða allir úrmyndaðir. Svín eru bráðgáfaðar og snyrtilegar félagsverur en þau eru geymd í þröngum búrum og halarnir klipptir af grísum án nokkurrar deyfingar. Kýr eru látnar eignast kálfa sem eru gjarnan strax hrifsaðir af þeim svo að hægt sé að mjólka kýrnar. Þær kalla sáran á afkvæmin sín og það er algengt að allar tegundir húsdýra séu beitt ofbeldi af starfsfólki búanna, sem slá og sparka í þau. Ein gífurlega algeng aðferð til að drepa svín er að troða þeim í gasklefa og kæfa þau sem gerist nógu hægt að þau öskra af sársauka og hræðslu á meðan.
Ég held mig við þetta mataræði fyrst og fremst af mannúðarástæðum, út af dýravernd. Í byrjun var það hins vegar bara út af loftlagsbreytingum og skiptir sú ástæða mig enn miklu máli enda sparast mikið magn vatns, lands og afurða þegar dýraafurðum er sleppt.
Ég man ekki hvar ég heyrði fyrst af þessu en ég á frænku og tvær vinkonur sem standa mér nærir og eru grænkerar. Þær hafa frætt mig og sýnt mér að þetta er ekki eins erfitt að man heldur.
Hef frá unglingsaldri fylgst með ráðleggingum um hollt mataræði og stefnur og strauma í því. Breytingar eiga sér stað á löngum tíma smá saman. Breytt val á uppskriftum sem ég nota skiptir mestu auk þess að nota meðvituð innkaup.
Ótrúlegt en satt þá heyrði ég orðið vegan ekki fyrr en árið 2016 og að það væri hægt að lifa án dýraafurða. Læknar voru alltaf svo mikið að innprenta í mig mikilvægi þess að borða járn- og próteinríka fæðu en bentu mér alltaf bara á dýraafurðir. Mig langaði rosalega mikið að verða vegan strax og ég gerið mér grein fyrir að fólk var að geta lifað án dýraafurða en því miður var starfsfólk í heilbrigðiskerfinu ekki sammála því. Ég var búin að finna lengi að mjólkurafurðir gerðu mér illt og því var ég löngu búin að takmarka þær mikið í matarræðinu. Fyrir um 5 - 6 árum fór ég að taka að mestu allt rautt kjöt út og borðaði einnig aðeins lítið magn af kjúklingi og fiski. Því miður var ég ekki þá farin að taka inn baunir og tófú en það kom inn þegar ég ákvað að verða vegan. Í rauninni var ég svo í 1 mánuð að gera nokkur ,,mistök" í veganvegferð minni á meðan ég prufaði mig áfram en það má segja að ég hafi orðið vegan á einum degi.
Ég man ekki hvenær ég heyrði fyrst af svona fæði. Samkvæmt læknisráði fastaði ég algerlega í 4 daga, svo tók ég hægt og rólega inn fæðutegundir og skráði samviskusamlega í langan tíma.
Það liggur fyrir að ég er viðkvæm fyrir einhverju fleiru, en við erum ekki búin að finna út úr því.
Ég heyrði um Slow food ca 1994 og veittist auðvelt að laga hugmyndafræðina að því sem ég var að gera svona almennt í matseldinni.
Ég sæki alltaf aftur og aftur upplýsingar til nutritionfacts.org þar sem Dr Greger hefur veitt mér miklar og skýrar upplýsingar og svo prufaði ég að fara 100% plant based/vegan daginn eftir að ég horfi a Game changer og hef ekki farið til baka
Vegan eða mataræði og lífsstíll án dýraafurða hefur verið í umræðunni í mörg ár. Ég hef orðið var við þetta mestmegnis vegna heilsufarslegra ástæðna.
Breytingin átti sér stað seinnipart árs 2015 og ég varð alfarið dýraafurðalaus um áramótin 2015/2016. Ætli það flokkist þá ekki sem smám saman.
Mér var búið að blöskra framkoma okkur gagnvart dýrum í þónokkurn tíma.
Ég hitti grænmetisætu sem var svo elskuleg að nenna að svara spurningum mínum og þar með var ég orðin grænmetisæta.
Ætli man hafi ekki vitað af þessu í einhvern tíma og fussað og sveiað, svona eins og tíðkast. Nágrannar buðu mér og manninum mínum í mat í Svíþjóð. Þau voru vegan. Það er svona fyrsta fræið sem var sáð. Var farin að hugsa töluvert um dýravelferð eftir að við fluttum frá Svíþjóð 2014. Keypti lausagönguegg og svínakjöt beint frá bónda. Cowspiracy var held ég síðasta hálmstráið og eins og fyrr segir tók breytingin 6 mánuði.
Ég heyrði fyrst um lífrænt matarræði í Danmörku, breytingin átti sér fyrst stað þegar ég varð ólétt í fyrsta sinn - en jókst svo smám saman fyrstu árin eftir að barnið fæddist.
sjá fyrra svar
Besta vinkona mín varð vegan og ég sá að þetta var ekki svo mikið mál. Prufaði fyrst mánuð vegan, svo þegat ég fór aftur í gamla mataræðið þá bara gat ég ekki borðað það. Var búin að vera grænmetisæta i 2 ár fyrir og það kom bara tímapunktur þar sem mér varð flökurt við tilhugsunina um dýraafurðir, myndi segja að þetta hafi bara verið mjög náttúruleg þróun fyrir mig. Horfði líka á myndband þar sem var verið að taka nýfæddan kálf frá mömmu sinni og hún var endalaust að leita af honum og þá gat ég ekki meir og álvað að verða vegan þar með.
Eins og ég segi - fyrst og fremst er að borða ekki og mikið og ekki of flókið og halda í heiðri eigin matarmenningu - rækta sjálfur er kostur er. Líkt heyrir helst undir Slow Food og efalítið hef ég fyrst heyrt um það í útvarpinu.
Upplifiði meira vegan mat frá 2005, svo smám saman.
Heyrði bara af þessu hér og þar, í gegnum vini og á samfélagsmiðlum
Ég byrjaði að hugsa um að hætta að borða khöt þegar systir mín gerði það 2015, ég horfði svo á heimildarmynd earthlings 2016 og hætti þá alveg að borða kjöt. ég hef lesið mer mikið til og horft á heimildarmyndir, fylgst með öðrum grænmetisætum osfrv og tók skrefin hægt að gerast alveg vegan
Veganúar líklega, ætlaði að taka þátt í Veganúar 2016 en borðaði mikið kjöt þann mánuð (líklega mótþrói) svo ég hætti því snögglega í febrúar og fann að mér leið miklu miklu miklu betur í maganum. Svo eins og ég lýsti þá tók ég dýraafurðir út í skrefum, en tók inn mjólkurvörur á meðgöngu (þar sem ég kreivaði mjólkurvörur þá)
Frá mömmu
Ég hef smám saman farið að taka út fleiri dýraafurðir. Svo eftir stendur 3 tegundir fiska, ostur, smjör og rjómi.
Auk þess að lesa ekki innihaldslýsingar á pakkavöru nákvæmlega með tilliti til dýraafurða annara en bókstaflega kjöts
Smám saman hafa matarvenjur heimilisins batnað. Þetta er afrakstur margra ára lestri á fróðleik og fræðslu, auk ,,try and error".
Engin breyting hefur orðið og spurningarnar því ekki viðeigandi.
Hef alltaf alist upp við þetta, ávalt fjöbreytt fæði á æskuheimilinu.
Ég er ekki viss hvenær ég heyrði fyrst af þessu mataræði en ég man eftir að hafa séð heimildamyndina Cowspiracy sem opnaði augun mín fyrir umhverfisáhrifunum og dýraníðinni sem fylgir því að borða dýraafurðir. Ég byrjaði fyrst á að prófa plöntumjólk í staðinn fyrir kúamjólk og ákvað svo á 18 ára afmælinu mínu að hætta að borða kjöt og hef aldrei litið til baka.
Breytingin átti sér stað smám saman með tímanum, en svona stór lífstílsbreyting tekur tíma og aðlögun. Ég byrjaði á að hætta að borða kjöt en hélt áfram að neyta mjólkurvara og fisks. Það leið rúmlega ár þangað til að ég tók út fiskinn og mjólkurafurðirnar fóru út stuttu síðar.
Breytinga á matavenjum mínum komu með tímanum. En ég hef líka prófað vegan mat í eitt ár sem fór vel í magann.
Varðandi vegan mataræðið þá var hægt að telja í fingrum annarar handar þá sem aðylltust það á Íslandi árið 2015. Ég heyrði af konu sem ég leit upp til sem var vegan og þetta var líka einhvers konar rebelismi að gera það sem fólki fannst fáránlegt þá og synda á móti straumnum, en fyrst og fremst því ég fann mun á líðan af því að sleppa kjöti og mjólkurvörum. Það tók samt heilmikið á samfélagslega á sínum tíma :)
Þetta er auðvitað ekki eitthvað skilgreint mataræði en umræðan um loftlagsvánna höfðu mikil áhrif á mig og svo fór ég á vegan ráðstefnu hér á Íslandi þar sem ég hlustaði á vísindamenn og lækna tala um þetta mataræði og varð enn vissari í minni sök að þetta væri breyting í rétta átt. Ég hlustaði líka mikið á vísindakonu sem er með podcast þar sem hún kafar ofan í rannsóknir á mataræði og lífstíl og gerir það mjög vel og faglega. Hún reyndar talar ekki fyrir veganisma eða neinu þannig og borðar kjöt eftir því sem ég best veit, en svona vísindalegt approach að heilsusamlegu líferni heillaði mig svo ég fór bara meira að pæla. Þetta var algjörlega "smám-saman" ferli hjá mér og til að byrja með minnkaði ég bara kjötneyslu og t.d. gerði ekki kröfu um að fá eitthvað annað í jólamatinn eða neitt, og borðaði kjötið ef mér var boðið í matarboð. En núna hef ég enga lyst á því og útiloka það alveg.
Í fyrri svörum mínum rakti ég þessa breytingu. Í fyrstu uppeldi sem kannski mótaðist af skorti, svipað má segja um áhrif námsáranna, í störfum mínum erlendis kynntist ég matarhefðum ólíkra þjóða og tileinkaði mér ýmislegt. Á tíunda áratugnum kynntist ég lífrænni framleiðslu, fékkst við vottun lífrænna afurða og gerði mér grein fyrirskaðsemi óhóflegrar notkunar eiturefna og ilbúinns áburðar. Krafa 21. aldarinnar um sjálfbærni hefur síðan kennt mér að hugsa ævinlega um gróðurhusalofttegundir sem falla til svo og um landnotkun, orkuþörf, vinnu og tíma sem eytt er í framleiðslu þess sem sóað er.
Sem sagt mataræði mitt hefur mótast af skorti, erlendum áhrifum, umhverfisvernd og loftslagsmálum en ekki síst af áhuga á hollustu og hefur verið að mótast allt mitt líf.
Hef vitað af þessu lengi. Íhugaði um nokkurt skeið að hætta að borða kjöt en þegar ákvörðunin kom þá tók ég hana skjótt.
meiri samfélagsleg meðvitund og áhrif frá vinum og fjölskyldu hafa fært matarvenjur fjölskyldunnar í þessa átt. Breytingin er smám saman að gerast.
Hjá næringarfræðingnum.
fyrir 3-4 árum
smám saman
Engin skyndileg breyting í mínu mataræði.
Samfélagsmiðlum, vinum og skólafélögum. Breytingin átti sér stað nokkuð snöggt með veganúar, var svo vegan í 2 ár áður en að egg t.d. fóru að koma aðeins inn. Kemur fyrir að ég borði eitthvað seþ inniheldur mjólk líka.
Eiginlega hefur lítil breyting átt sér stað.
Ég man ekki hvar ég heyrði fyrst um þetta mataræði, ætli maður vissi ekki bara af því. Ég hætti alveg að borða kjöt strax
frá barnæsku
Þetta er viðtekin heimspeki í Skandanavíu og heilbrigð skynsemi skilur hvað er í húfi.
Þetta var eiginlega eitthvað sem ég tók úr öllum áttum út frá áhuga á umhverfisvernd og matarræði tengdu heilsu. Þetta gerðist svo smám saman með aukinni sjálfsfræðslu og meðvitund um eigið hlutverk og framlag til samfélags og náttúru ásamt augljósum heilsufarslegum ávinningi. Ég hætti að versla eins framarlega og hægt öll unnin matvæli og fór að einfalda máltíðir og elda allt frá grunni.
Ég heyrði fyrst um veganisma í gegn um internetið. Ég hafði hætt að borða kjöt meira en þremur árum áður af sömu ástæðu en hélt mig við það sem fyrsta skref lengi vel. Með tímanum fór ég svo að kynna mér fleiri og fleiri vegan vörur á borð við jógúrt og mjólk og ég tók svo skrefið til fulls eftir að hafa horft á heimildarmyndina Dominion. Þá hætti ég að borða allar dýraafurðir fyrir utan það sem ég átti til heima og þegar það kláraðist lýsti ég mig formlega vegan.
Ég er enn að vinna í þessu og prufa mig áfram.
Ekki alveg viss hvar ég heyrði um það fyrst. Breytingin átti sér stað í skrefum. Þegar ég var yngri var ég grænmetisæta í svona 3 ár. Seinna meir fann ég hvernig það togaði í mig aftur. Ég byrjaði svo á einhverju eins og meatless mondays og slíku og að auka almennt grænmetisfæði í mataræðinu mínu. Svo varð ég grænmetisæta og fann að breytingin yfir í vegan var svo lítil að ég varð vegan u.þ.b. 3 mánuðum eftir að ég varð grænmetisæta.
Breytingin gerðist hægt og rólega, ég hlustaði á líkamann.
Sem krakki var lítið um grænmetisfæði en eins og áður sagði ólst ég upp við að borða hrátt grænmeti og mamma ræktaði gulrætur, kartöflur og rófur og ég geri það líka... og fleiri tegundir samt. Breytingin að sleppa kjöti og fara að elda rétti eingöngu úr grænmeti varð þegar ég var með vinkonu í sumardvöl sem kenndi mér að nota krydd og búa til góða grænmetisrétti. Það var algjör vendipunktur. Áður fannst mér að ég yrði alltaf að hafa oggólítið af kjöti eða fiski, annars væri þetta ekki matur eða þannig. Það má segja að læra að elda grænmetisrétti og nota krydd sé lykilatriðið í því að ég fór að sleppa kjöti og fiski. Eldri dóttir mín varð svo vegan fyrir 6 árum og síðan þá höfum við haldið allar stórhátíðir vegan. Árið 2020 var bjó hún svo hjá okkur svo við elduðum flest vegan svo þegar hún fór aftur þá vorum við bara búin að koma okkur upp rútínu að nota vegan lausnir í mat.
Las mér til um mataræðið, fann að kolvetni fóru verr í mig með hækkandi aldri. Breytingin átti sér stað jafnt og þétt.
Alinn upp við þetta
Fyrst byrjaði ég að skoða þetta í kringum árið 2006 þegar ég fór að stunda árlegar vorföstur. Sjá hér að ofan nánari lýsingu.
Vissi af þessu nokkru áður en ég byrjaði á því. Hjartalæknir benti mér á þetta og mælti mjög með því að fara á Ketó fæði. Gerði þetta einn tveir og þrír og naut dyggrar aðstoðar eiginkonu. Fór á þetta fæði í júní 2019
Bækur frá USA, t.d. Fit for life eftir Harvey Dimond Breytingin skilað árangri strax.
Ég heyrði fyrst formlega um Vegan mataræði í gegnum mannin minn. Þegar við byrjuðum saman þá fann ég heima hjá honum nokkrar matreiðslubækur um grænmetisfæði en hann hafði á sínum tíma gælt við þá hugmynd að gerast grænmetisæta. Við þetta þá fannst mér eins og það yrði allt í einu raunverulega valkostur fyrir mig að gerast formlega grænmetisæta og þar sem slík tilhneiging hafði alltaf blundað í mér þá held ég að ég þurfti bara smá ytra samþykki á því að þetta væri eitthvað sem væri mögulegt og eðlilegt. Ég gerðist grænmetisæta á einni nóttu. Breytingin í átt að Vegan mataræði gerðist smám saman eftir það eftir því sem ég fór að afla mér meiri upplýsinga og velta fyrir mér fleiri þáttum í tengslum við matvælaframleiðslu.
Ég fór til næringarþerapista erlendis sem leiddi mig á rétta braut. Breytingin átti sér stað af nauðsyn og eftir einn mánuð þá var líðanin öllu betri.
Ég minnkaði kjötát fyrst þegar ég var 15 ára og hætti svo alveg að borða kjöt um 5 árum seinna. Þá var ég fyrst pescatarian, sem er grænmetisæta sem borðar fisk, í um 2-3 ár. Svo ákvað ég að taka þátt í veganúar eitt árið til að sjá hvort það væri eins erfitt og ég var búin að ímynda mér og það gekk svo vel að ég gat ekki lengur rökstutt það að fara ekki alla leið.
Ég komst fyrst að þessu matarræði í gegnum 9gag þar sem var verið að gera grín af fólki sem væri vegan. Svo fór ég í Vegan Ísland hópinn til að gera grín af grænkerum með vinum mínum, en svo varð ég vegan út af hópnum. Ég byrjaði að sjá myndbönd úr verksmiðjum þar inn á og um ári eftir að ég fór í hópinn varð ég grænmetisæta.
Ég hætti að kaupa kjöt fyrir mig en kláraði það sem ég átti í frystinum. Svo ári seinna byrjaði ég að taka út mjólkurvörur og minnkaði notkun á eggjum og þá aðallega í bakstur. Svo rúmu ári eftir það ákvað ég að taka þátt í Veganúar 2020 og hef ekki aftur snúið.
smám saman
Ég hafði lengi vitað af veganmataræði og þótt það forvitnilegt. Breytingin átti sér stað á einni helgi.
Mataræðið er tilkomið vegna blankheita.
Það eru nokkur ár síðan. Ég hafði lengi borðað lítið kjöt og fisk (meira flexi) en svo var þetta ákvörðun sem við hjónin tókum saman einn daginn og hentum okkur samdægurs inn í nýtt mataræði án dýraafurða.
Man það ekki hef örugglega tekið eitt og annað héðan og þaðan.
Tók upp þessa föstu þannig að ég fasta frá ca. Kl19.00- 12:00 frá lækninum Mosley
Reyndar um jól og áramót eru matarvenjur ekki svona og ekki þegar ég er á ferðalögum.
Þar sem þetta er ekki sérstakt mataræði sem ber heiti eða yfirskrift þá hef ég ekki heyrt neitt þannig. Þetta koma smátt og smátt, nema þetta með kjötið það sá ég í grein í vísindatímariti um loftslagsmál og snarhætti.
Ég myndi ekki beinlínis segja að þetta sé eitthvað sérstakt mataræði en ég er samt með bannlista sem felur í sér að kaupa ekki vörur sem ég veit að eru að skaða jörðina. Annars er þetta bara að borða skynsamlega og meðvitað.
Svo kemst maður ekki hjá því að læra um áhrif matvælaframleiðslu á Jörðina bara með því að fara rúnt um internetið.
Þetta gerist hægt og rólega.
Las mér til um það og tók fyrst út kjöt síðan mjólkurvörur og endaði á að taka út fisk
Ég heyrði fyrst af þessu mataræði frá vinkonu minni. Fyrst um bil sagði ég engum frá því svo mánuðum skipti því ég nennti ekki að heyra skoðanir frá öðrum um grænkerafæði. Ég hætti alveg að borða rautt kjöt, kjúkling og svín á einni nóttu en mjólkurvörur fóru smám saman að minnka úr mataræðinu mínu.
Með því að fara sjálf að skoða niðurstöður rannsókna, ég var á hverjum degi í þrjá mánuði að skoða rannsóknir. Síðan eftir þessa þrjá mánuði þá breyttist algjörlega lífstíllinn en myndi segja smám saman á þessum þremur mánuðum með lestrinum.
Hjá vinnufélögum. Smátt og smátt
Veit ekki.
smám saman komst ég að því að ég er með laktósa óþol. en ég hef aðhyllst margskonar mataræði í gegnum tíðina.
Kjötlaust, sykurlaust og allskonar en þetta mataræði hefur verið að þróast með mér með árunum.
Hætti smám saman að geta borðað dýr, svo þróaðist það alveg út í grænmetisfæði og svo veganisma.
Ég hafði aldrei verið mikil kjöt- eða fiskiæta, þegar ég var lítil borðaði ég eiginlega bara kjúklingabringu og skinku. Ég borðaði aldrei lambakjöt, nautakjöt eða steikur og fannst það alltaf ógeðslegt. Mér fannst fiskur aldrei góður en píndi hann í mig vegna þess að hann átti vera svo hollur.
Systir mömmu minnar hafði verið grænmetisæta í mörg ár, ég heyrði fyrst af þessu mataræði útfrá henni en þá var það svo óvenjulegt á þeim tíma að mér datt ekki einu sinni í hug að ég gæti verið grænmetisæta líka. Hún var eina manneskjan sem ég vissi um þegar ég var yngri sem var grænmetisæta.
Í mörg ár vildi ég ekki borða kjöt og fisk í útlöndum, þá varð ég tímabundið grænmetisæta. Þarna var mér byrjað að finnast þetta vera rangt en var ekki búin að hugsa það alla leið.
Svo fattaði ég hægt og rólega að ég gat alveg sleppt öllu kjöti og fisk en það var erfitt að taka skrefið alveg þegar maður er svona vanur því að það sé uppistaðan í mataræðinu sínu.
Ég hafði verið að sjá myndbönd á facebook af kjötframleiðslu og kjötiðnaði en gat ekki horft á það án þess að líða hræðilega illa og tók þá ákvörðun um að það væri hræsni að halda áfram að borða kjöt þegar ég gat ekki horft á hvernig kjöt er gert. Einnig man ég eftir að hafa pantað kjúkling á veitingastað í Frakklandi af því það var ekkert grænmetis í boði á þessum veitingastað, en þegar ég fékk matinn í hendurnar þá gat ég ekki hugsað mér að borða hann. Eftir þessa Frakklandsferð tók ég fljótlega ákvörðun um að verða alveg grænmetisæta.
Mér leið svo vel eftir að ég tók þessa ákvörðun og það var þungu fargi af mér létt. Ég hef ekki séð eftir því í eina sekúndu síðan þá. Ég vildi bara að ég hefði fattað að gera það miklu miklu fyrr.
Margir í kringum mig voru grænmetisætur og það hefur líklegast haft áhrif. Ég fékk bara tilfinningu að mig langaði ekki að borða kjöt lengur og hætti því nokkuð hægt og rólega. Fékk mér einstaka sinnum eitthvað en þegar mér fór að líða illa með það eftir á þá hætti ég alveg.
Gerði þetta sjálfur út frá miklu trail and error með mataræði. Þetta virkar fyrir mig til að þyngja mig.
Breyting var smám saman (matarvenjan, borða á tveggja tíma fresti) en það sem ég borða (bara næringarríkur og hollur matur) kom inn á áramótunum á seinasta ári.
Sá mikið af umræðum á samfélagsmiðlum, aðallega facebook og fór í kjölfarið að kynna mér veganisma með því að lesa fræðigreinar og horfa á heimildarmyndir. Ég ákvað fyrst að hætta að borða kjöt en innan tveggja mánaða var ég búin að taka út fisk, mjólkurvörur og egg líka.
Kom frá lækni - nú á síðustu haustmánuðum
Ég man ekki hvar ég heyrði fyrst um grænmetisfæði en veganismi hefur auðvitað verið miklu meira í umræðunni á síðustu árum. Ég vann með fólki sem var vegan og kynntist því hvernig það borðaði, sá að það var ekki bara að borða salat og hnetur og lærði um gildin og hugmyndirnar á bak við mataræðið. Svo fór ég að kynna mér hamfarahlýnun, kjötiðnaðinn og læra meira um umhverfisvernd. Að lokum var mér augljóst að ég gæti ekki stutt við kjötiðnaðinn og að ég þyrfti að gera mitt til þess að sporna gegn hlýnun jarðar.
Hef vitað um grænmetisætur síðan ég man eftir mér. Breyting var nokkuð skyndileg, hætti fyrst í kjöti og svo í fiski 4 árum síðar.
Ég sá þátt í sjónvarpi, þar sem þessu mataræði var lýst, og ég ákvað að taka þetta mataræði upp með stuttum fyrirvara.
Mataræði mitt byggir á mínum eigin reynsluvísindum. Allar breytingar á því hafa átt sér stað þegar mér var farið að líða svo illa að við svo búið mátti ekki standa. Breytingar hafa því orðið frekar hratt.
Þetta hefur verið í umræðunni í mörg ár þetta byrjaði smám saman þegar ég tók út kjötið en svo hætti ég restinni (fisk og mjólkurvörum) á einum degi þar sem ég taldi mig ekki geta haldið áfram að borða það með góðri samvisku.
Ég hef alla mína tíð þurft að geta réttlætt allt sem ég geri og áhrif þess sem ég geri á annað í kringum mig. Þar af leiðandi um leið og ég áttaði mig á því að ég var ekki sammála því að til þess að ég fengi mat þyrfti að drepa og beita dýrum ofbeldi, svo að það þurfi ekki að vera þannig þá varð ég vegan. Ég er ekki viss hvernig ég kynntist veganisma, ábyggilega bara með því að spyrja mömmu mína út í eitthvað sem ég hef heyrt einhversstaðar annarsstaðar.
Heyrði um þerra fyrir ca 10 árum og þá var svo margt sen ég borðaði sem lét mér líða illi svo það var gott að skoða þetta.
Heg alltaf vitað af þessu mataræði en kynntist fjölskyldu fyrir tuttugu árum sem voru búin að vera grænmetisætur frá unglingsaldri og það hafði mikil áhrif.
Sá auglýsingu á netinu sumarið 2018 og fór á námskeið. Breytinging gerðist hægt. Þetta er engin skyndilausn heldur lífstílsbreyting til frambúðar svo það tók um hálft ár að breyta mataræðinu.
Eftir að hafa kinnst Kornmarkaðinum fór maður að leita að uppskriftum sem pössuðu við hráefnið, svo leiddi eitt að öðru.
Heyrði örugglega fyrst um veganisma einhversstaðar á netinu fyrir löngu síðan, man ekki nákvæmlega. Hélt alltaf að ég myndi aldrei verða vegan og fannst veganismi skrítinn en það var bara afþví ég skildi ekki út á hvað veganismi gekk og var ekki búinn að kynna mér það, auk þess sem að ég var í svolítilli afneitun hvað varðar að mínar ákvarðanir voru að valda öðrum dýrum þjáningu og vildi ekki gangast í augu við það.
Breytingin átti sér stað nokkuð skyndilega, eignaðist kærustu fyrir 3 árum síðan sem hafði verið grænmetisæta í nokkur ár þannig þar kynntist ég meira af grænmetisfæði (hún borðaði þó fisk og mjólkurvörur). Ég hélt hinsvegar alltaf áfram í þá ranghugmynd að prótín úr plöntum væri óæðra prótíni úr dýrum og hélt því að það væri nauðsynlegt að neita dýraafurða, það breyttist hinsvegar á einni nóttu þegar ég horfði á myndina Game Changers þar sem þessi míta var algjörlega brotin niður. Ég og kærasta mín ákváðum að prófa vegan fæði í einn mánuð og við höfum ekki aftur snúið eftir það.
Mætti kannski kalla þetta sveita mataræði.
Mínar skoðanir um mat og máltíðir höfðu verið mótaðar frá æsku: ég átti að borða oft og alltaf klára matinn á disknum mínum. Þegar ég varð eldri fór ég að mynda mínar eigin skoðanir og fór að ráða því sjálfur hvað og hvenær ég borðaði. Það tók mig sennilega áratug að komast í mína eigin rútínu og afbaka það sem mér hafði verið tamið í æsku.
Ég hafði heyrt um þetta mataræði lengi en var alltaf mjög mikið á móti því en það hefur líklega verið vegna fáfræði af minni hálfu. Fjölskylda kærustu minnar var Vegan um tíma og þar lærði ég að matur þarf ekki að innihalda kjöt til að vera seðjandi og góður. Breytingin hjá mér gerðist mjög skyndilega en ég og kærasta mín fórum á ferðalag um austur Afríku árið 2019 og við vildum reyna að minnka hættuna á matareitrun eins og við gátum og töldum því rétt skref að borða ekki kjöt í þeirri ferð. Við héldum mataræðinu síðan áfram þegar við komum heim.
Á æskuheimilinu - þegar veitingahús voru alls ekki hluti af daglegu lífi.
Ég heyrði aldrei neitt sérstaklega um þetta mataræði og bara í seinni tíð sem ég heyrði þetta kallað flexitarian og sá þá að þetta átti við mig. Hefur þróast í gegnm árin. Taldi mig stundum grænmetisætu en hef aldrei viljað setja ákveðin stimpil á mataræðið.
Fór á námskeið í veganfæði
Hafði fylgst með þróun mála í vegetarian fæði víða um heim og þróun framleiðslu í lífrænni ræktun. Ef ég á draga fram eitt atriði sem hafði djúpstæð áhrif á mig þá myndi ég benda á fræðslumynd sem bar heitið "Öfgar í Ameríku" og fjallaði um framleiðslu dýraafurða, aðbúnað dýra og erfðabreytingar á dýrum til að auka framleiðslugetu og hagkvæmni í ræktun. Þá hefur sú þróun einnig orðið í framleiðslu á grænmeti og ávöxtum með ýmsum hætti og því hefur aðferðafræði lífrænnar ræktunar orðið meira og meira mikilvæg að mínu mati.
Vissi af var orðin talsverð grænmetisæta fyrir löngu síðan, á annan áratug.
Tókum einfaldlega ákvörðun og breyttum til
Ég á margar vinkonur sem að voru vegan, grænmetisætur eða pescaterian áður en ég tók sjálf út kjöt og þeim fannst það ekkert mál. Það hjálpaði helling að hafa vini sem voru með reynslu til að leita ril ef það var eitthvað sem ég átti í erfiðleikum með að skipta út.
Ég tek ákvörðun um að hætta að borða kjöt í janúar 2019 en tók einstaka svindl máltíðir eins og kom fram ofar. Var alveg hætt að smakka kjöt í mars 2019.
Ég heyrði sennilega fyrst um vegan á netinu. Fyrst tók ég út fisk, síðan kjöt og loks allar dýraafurðir, eins og ég lýsti í kafla 1.
Smám saman, hafði aldrei heyrt orðið flexitarian fyrr en nýlega þó ég hafi áður tekið slíkt upp. Þetta er þróun hjá mér, mjög hæg nokkuð langt aftur, en kjötneyslan minnkaði nokkuð hratt síðustu tvö ár.
Ég hef aðallega lesið mér til um málið og breytingin kom smá saman yfir langt tímabil.
Ég man ekki hvar ég heyrði fyrst um veganisma, kannski bara frá vinkonu minni í háskóla. Á fyrsta ári í landfræði í háskólanum lærði ég mikið um inn- og útflutning matvæla, jarðvegseyðingu vegna landbúnaðar og um hnattræna hlýnun. Vinkona mín í náminu var grænmetisæta en borðaði að mestu vegan af umhverfisástæðum svo ég gerðist grænmetisæta líka með það að markmiði að verða alveg vegan. Ég fór að lesa meira um framleiðslu dýraafurða og horfa á heimildarmyndir. Það tók mig nokkur ár að sleppa alveg kjöti og fiski. Mér líkaði aldrei við rautt kjöt, svín, smjör eða rjóma en mér fannst erfitt að hætta að borða kjúkling, fisk og ost. Það var líka erfitt að útskýra þessa breytingu í fjölskylduboðum.
Þegar ég gerðist alveg vegan var það mjög skyndilegt, 1. desember 2020. Það small bara eitthvað í hausnum á mér. Ég var kominn með nóg af því að ljúga að sjálfum mér og fórna gildum mínum fyrir bragðlaukana mína.
Dýraverndar- og mannúðarsjónarmið hafa meiri áhrif á mig núna en þegar ég hóf vegferðina. Í upphafi var ég aðallega að hugsa um umhverfið en t.d. hafa framleiðsluaðferðir og velferð starfsfólks og dýra í framleiðsluferlinu meiri áhrif á mig í dag en þá.
Ég er stöðugt að gera breytingar eftir því sem reynslan og nýjar niðurstöður rannsókna bendir til. Nú síðast (4 ár) höfum við minnkað kjötneyslu niður í 2svar í viku og þá aukið grænmetið í staðinn bæði út frá hollustusjónarmiðum og umhverfissjónarmiðum. Borðum rautt kjöt sjaldnar en áður en samt 1 sinni í viku.
Ég er mun meðvitaðari um umhverfismál og tek mjög nærri mér hvernig við förum með dýrin, jörðina og mannkynið. Hef tekið mig mikið á í allri eyðslu og vel helst að versla grænmeti í ,,minnkum matarsóun" , nýti alla afganga vel, kaupi notuð föt og vörur og vel helst upplifanir í gjafir.
Ég get alveg sneitt hjá mjólkurvörum með því að biðja um vegan valkosti á veitingastöðum og í verslunum, en það kemur mér á óvart hversu lítinn skilning fólk hefur á því að það geti verið vont að neyta mjólkurvara og það virðist oft ekki skilja að smjör og ostur fellur undir þetta.
Það kemur mér hins vegar á óvart hversu erfitt er að fá vegan valkosti á vetiingastöðum. Ég fór í ferð um Norðurland (Blönduós, Skagaströnd, Skagafjörð) í haust og endaði á að hafa haframjólk með mér á kaffihús, þar sem ekkert þeirra bauð upp á slíka kosti.
Ég er fædd 1962 - á tímabili hefðbundins heimilismatar. Móðir mín eldaði en á unglingsárum tók ég við og fór að elda reglulega, henni til mikillar gleði, enda hafði hún litla ánægju af matseldinni.
Já mér finnst hugsunin um að framleiða og drepa dýr alltaf meira og meira fjarstæðukennd og galin. Og svo var ég langt yfir 20ara þegar ég áttaði mig á því að beljur mjólka ekkert frekar en konur, ss bara eftir að þær eignast afkvæmi, við erum alin upp við að mjolkurbeljur mjolki vara og að við verðum öll að drekka mjólk?! Það er nánast hægt að beintengja mjólkurþamb við brjóstakrabbamein. Og með brekka genið í fjölskyldunni og mikið tal um brjóstakrabbamein vill samt enginn hlusta á þetta því að landlæknir gefur út ráðleggingar um að drekk á mjólkurvörur og blabla. Svo hollt fyrir tennur og bein, hvar ætlaru annara að fá kalkið? (Sagt með kaldhæðni)
Áherslur mínar og viðhorf gagnvart mataræðinu mínu hafa eingöngu orðið jákvæðari og ég hef styrkst í þeirri trú og vitneskju um að ég sé að gera "rétt" með þessari ákvörðun minni um að alfarið sneiða hjá dýraafurðum.
Mér líður betur, sef betur og er öll mun léttari á mér.
Meira úthald. Borða minna af óhollum mat.
Já, úr því að hafa umhverfisáhrifin í forgrunni og í að hafa dýraréttindi í forgrunni. Hvaða mataræðið sjálft varðar, þá hefur það ekki mikið breyst. Ég hef svo sem aldrei verið hrifin af ruslfræði, þannig að ég hef alltaf verið svona í hollari kantinum.
Viðhorfin hafa einungis orðið þannig að ég legg meira og meira á mig til að borða lífrænt - þeim mun meira sem ég hef kynnt mér áhrifin á heilsu og umhverfi þeim mun meira legg ég á mig til að neyta nánast eingöngu lífræns fæðis.
er farin að þola betur mjólkurvörur þannig að ég er farin að svindla meira þannig lagað fæ mér meir ost og stelst í is
Finnst ég mun meðvitaðri um hvað er í gangi á bakvið tjöldin. Flestir sem ég þekki tengja ekki matinn simn við dýr sem var eitt sinn lifandi en ég sé í raun bara lík á disknum þeirra.
nei allt frá bernsku hefur þetta verið mitt leiðarljós en það hefur verið ákaflega erfitt stundum að innprennta það hjá kynslóðunum sem komu, börnum og barnabörnum en þó tekist að einhverju leyti.
Meira umburðarlyndi gagnvart öðru mataræði og minna dramb vegna eigins mataræði. Meiri eigin ræktun á mat, grænmeti og sveppi.
Ekki beint, nema ég finn að þetta matarræði hentar mér án þess að ég sé að biðja aðra fjölskyldumeðlimi um að aðhyllast sama lífsstíl
Algjörlega, mínar áherslur hafa breyst mikið um hvað heilbrigt matarræði er, mikilvægi þess að ná að næra sig á réttann hátt án öfga. ég áttaði mig ekki á mikilvægi þess fyrr en dóttir mín fór að byrja að borða og hef ekki farið hljótt með mínar skoðanir þ, við borðum alltof lítið af plöntufæði og það hefur því miður haft mikil ahrif a heilbrigði folks
Ég mun bara aldrei á ævinni breyta um mataræði held ég.
Ef ég borð hollari kostin liður mér betur
Ég geri meira ráð fyrir að fólk borði meira jurtatengt en fyrir áratug t.d.
Finnst fáránlegt að heyra fólk segja t.d við börnin sín að það verði að borða smá kjöt ef það er í boði.
Að sporna gegn matarsóun eru sjónarmið sem hafa aukist jafnt og þétt samhliða því sem að innkaup hafa verið taktískari og hreinni.
Nei. Tel þetta vera skynsamlegasta mataræðið.
Mér finnst ég ekki lengur sjá kjöt sem mat og upplifi ákveðið ógeð af því að sjá kjöt út í búð eða í ísskápnum heima. Þegar ég sé lambahrygg þá gæti þetta allt eins verið mannahryggur fyrir mér. Get ekki ímyndað mér að borða þetta.
Áherslur í matar venjum mínum eru þær sömu og þegar ég var krakki, svo hef ég frekar verið ónýtt við að smakka nýjan mat. Smakkaði hnetusmjör í fyrsta sinn í janúar og það er bara mjög gott.
Ég var mjög orthodox vegan í ca ár og fyrirleit lífstíl kjötæta - svo var ég fljót að átta mig á að það er ekki hægt að stjórna fólki nema með öðru en að gera það sem maður sjálfur telur rétt og aðhyllast það sem hentar manni hverju sinni, vera einhvers konar fyrirmynd. Að valda minni skaða í heiminum og jörðinni með ágangi manna, er það sem ég leitast sjálf við að gera og ég geri mér grein fyrir að maður mun aldrei gera það fullkomlega.
Veit ekki alveg hvað er átt við.. breytingar á viðhorfum mínum voru auðvitað ástæðan fyrir að ég breytti mataræðinu mínu en ég held að það ekki mikið breyst síðan annað en að bara styrkjast í mínum skoðunum um hvað er gott fyrir mig, aðra og jörðina.
Nýjar upplýsingar um illa meðferð á náttúrunni, s.s. eyðing regnskóga, einræktun eins og erfðabreytt soyja á þúsundum ferkílómetra í Bandaríkjunum
og víðar, landflæmi sem stórveldin brjóta undir sig til ræktunar á dýrafóðri, með skefjalausri notkun skordýraeiturs jafnt í Afríku sem Asíu kallar á viðbrögð. Afleiðingar þessarar stefnu um allan heim er gífurleg ógn gegn líffræðilegum fjölbreytileika og vinnur svo sannarlega gegn árangri í baráttunni gegn loftslagsvánni. Þessii staða hefur aðeins styrkt mig í því að neyta meira af lífrænt ræktuðum afurðum og minnka enn afurðir úr dýraríki.
Ég er almennt meðvitaðri um hvað ég borða, huga meðvitaðra um samsetningu og næringarefni. Til dæmis úr hverju ég fæ járn.
Nú eigum við alltaf til jurtamjólk en við kaupum ennþá kúamjólk og aðalrétturinn inniheldur oft ekki dýraprótein. Hugsunarhátturinn er því gjörólíkur því sem áður var.
já meira af fiski (oftast feitum fiski) oftar kjöt og meiri fita.
Nota góða ólífuolíu og smjör
Er ekki hæf til að svara þessu.
Farin að leggja meiri áherslu á lífrænt, meiri áherslu á að versla í heimabyggð ef það er möguleiki. Elda hreinni mat.
Nei.
Já ég er mun umhverfisverndunarsinni og dýraverndunarsinni, betri flokkun ofl
halda sig við það
Ég er bara harðari og harðari í að að það skiptir máli hverju við troðum í meltinguna, enda vísindin alltaf að finna nýjar sannanir hvernig örverur í meltingarvegi hafa áhrif á atferli og æði.
Verð alltaf ákveðnari í að halda þessu áfram enda ávinningurinn tvímælalaus. Heilsufar og hamingja í húfi.
Ég get ekki sagt að þær hafi endilega gert það mikið, þá frekar bara vegna þess að ég var 17 ára þegar ég varð vegan og hef þroskast með aldrinum, ekki að veganisminn hafi í sjálfu sér haft áhrif.
Ég hef ekki þörf til að hafa kjöt eða mjólkurvörur í mataræðinu eins og áður fyrr þar sem ég hélt að það væri lífsnauðsynlegt að hafa það með og hélt að ég væri ekki að fá nógu mikla næringu ef ég borðaði ekki kjöt.
Já áherslurnar hafa breyst. Fyrst var ég fókuseruð á eigin heilsu en nú hugsa ég líka um umhverfismál og réttindi dýra.
Ég borðaði lengi vel fisk en kaupi núna aðeins villtan lax eða fisk sem er veiddur á sjálfbæran hátt. Aldrei eldislax.
Ég hef ekki keypt svínakjöt í mörg ár enda er aðbúnaður þeirra hörmulegur. Ég kaupi aldrei innflutt kjöt.
Fyrst þegar ég fór að elda og borða alveg vegan mat fannst mér mikilvægt að eiga oumph og gervikjöt til að grípa í, en núna er ég mikið að færast frá því að kaupa tilbúið og bý stundum til sjálf bæði veganosta og gerfikjöt. Ég hef líka tekið meðvitaða ákvörðun um að minnka að kaupa hráefni sem kemur langt að og kaupi íslenskt þegar ég get og úr nærumhverfinu þegar það er í boði. Áhersla á að nýta villtar plöntur kom fyrir 2 árum þegar ég fór að vinna matvælaverkefni með kerfil og það hefur leitt mig út í að nota í meira mæli allskonar plöntur sem alla jafnan eru ekki mikið étnar. Á sumrin moka ég allskonar jurtum í matinn.
Huga meira að matarsóun og að nýta hráefnið betur. Kaups meira lífrænt og lesa betur innihaldsefnin.
Á ekki við
Ég er sannfærð um að umhverfislegir þættir vega meira hjá mér núna í takt við tíðarandann. Viðhorf mitt er ávallt jákvætt þegar ég hugsa til þess að ég er ekki að borða dauð dýr.
Hefur skapað betri heilsu og líður betur á því. Finn ekki fyrir bakflæði og öll melting þægilegri.
Ég fór að kynna mér t.d. úr hvaða fæðutegund ég fengi næringarefni eins og kalk, þar sem aðég hætti neyslu mjólkuvara.
Nei ég held að viðhorf mín hafi alltaf verið hin sömu en kannski fyrst og fremst að afstaða mín hefur mildast með árunum til fólks sem borðar kjöt og kannski einnig til sjálfrar mín að það er erfitt að fylgja eftir Vegan lífstíl 100% og betra kannski að gera bara alltaf sitt besta hverju sinni.
Nei.
Mér finnst tilhugsunin um kjötát erfiðari og erfiðari eftir því sem tíminn líður. Á td. erfitt með að horfa á kjöt vera eldað og labba hratt framhjá kjötkælinum í búðum.
Ég horfi öðruvísi á dýraafurðir, dýragarða og aðra staði sem nota dýr til afþreyingar.
Núna þegar ég horfi á kjöt sé ég ekki mat heldur dýrið sem það var. Þegar ég horfi á mjólkurvörur hugsa ég stundum um kálfana sem voru teknir frá móður sinni. Þegar ég horfi á egg hugsa ég um myndböndin í brúneggsmálinu.
legg meiri áherslu á fisk og að elda heima meira
Með árunum hefur mataræðið breyst að því leyti til að ég hef bætt inn ostum að vild.
Meiri meðvitund um hina geigvænlegu matarsóun sem viðgengst í sjúku og eyðandi kapítalsheimshagkerfinu.
Rækta sjálf svolítið.
Nei, ekkert sem ég get sett hönd á.
Alltaf eitthvað.
Já ég er bara orðin harðari á að hætta kjötáti
Ég held að ég sé mjög hægt og rólega að verða grænmetisæta. Þó með þeim fyrirvara að ég vil helst ekki kaupa súperunnar matvörur og vegan vörur eru margar hverjar nákvæmlega það. Ég vil frekar kaupa eitthvað beint frá bónda á Suðurlandi heldur en frá sojaökrum risafyrirtækja í Asíu með því sótspori og umhverfisspjöllum sem því fylgir.
Viðhorf til umhverfis - og dýraverndar hafa aukist
Ég finn hreinlega fyrir betri samvisku. Ég er ekki jafn stressuð í dag að segja fólki frá að ég borði ekki kjöt eins og þegar ég byrjaði.
Bara mjög mikið. Viðhorf til matar, dýra, jarðarinnar hafa breyst. Það urðu líka lífstílsbreytingar, mér fór að líða miklu betur í líkamanum og gat því stundað meiri hreyfingu en áður.
Nei
Nei
Já, ég borða mikið meira af grænmeti og ávöxtun.
Ég borða sífellt meira grænmetisfæði, ég vil borða það sem er gott fyrir mig og jörðina
Borða svipaðan mat í grunninn, nema meiri baunir og tófú.
Já, ég hef farið nær því að verða vegan heldur ég var fyrst og hætti að borða egg að mestu leyti. Ég er alltaf að prufa nýja vegan rétti og matvörur og elska t.d. að fara í Vegan búðina og skoða úrvalið þar.
Þegar ég uppgvötaði hvað er gert við kjúklinga og hænurnar í eggjaframleiðslu gat ekki ég haldið áfram að borða egg. Núna finnst mér egg vera mjög ólystug.
Ég hef reynt að gera mitt besta við að styðja eins lítið og ég get við iðnað sem tengist dýrum á einhvern hátt eins og mjólkuriðnað og eggjabú. Hef stundum hætt að neyta eggja og mjólkurvara en það hefur bara verið tímabundið.
Viðhorf hefur breyst, meira sjálfstraust og jákvæðni þar sem ég næ öllum markmiðum sem tengjast líkamsrækt og heilsu.
Þyngdi mig um 6 kíló á þremur mánuðum og fitnaði lítillega, auk þess að auka styrk mikið.
Ég hef orðið mun meðvitaðari um alla neyslu og spái ekki bara í því sem ég borða.
Óbreytt
Nei í raun ekki. Ef til vill bara að því leyti að ég hef reynt að minnka stöðugt magnið af mjólkurafurðum í mataræðinu.
Hætti fyrst bara í kjöti, en svo hætti ég að borða fisk og sjávarlífverur síðar. Verð meira afhuga dýraafurðurm með árunum ef eitthvað er
Ég legg meiri áherslu á grænmeti og fisk, og forðast kolvetnaríka fæðu, eins og t.d. brauð og sykraðar matvörur.
Ég borða meira kjöt en áður. Ég hef alltaf borðað fisk a.m.k. tvisvar í viku en nú kemur það stundum fyrir að ég borða fisk þrisvar í viku. Ég hef fundið að kjöt, sérstaklega lambalærissneiðar, eru vænar við magann. Mér líður hreinlega vel eftir slíka máltíð, einkum ef ég borða bara steikt grænmeti með. Sonur minn og tengdadóttir borða ekki kjöt en þau borða fisk. Ég fann að ég hafði svolítið samviskubit yfir kjötátinu, enda alltaf verið að tala um áhrif þess á umhverfið. Núna borða ég kjöt samviskulaust og án þess að blikka auga. Ég kaupi allt kjöt af bændum í Skagafirði og blessa þá í hvert sinn sem ég fæ kjötið frá þeim.
Ég er að upplifa nýjan heim eftir að ég varð vegan. Ég t.d. byrjaði að elda miklu meira sjálf og pæla meira í þeirri næringu sem ég er að fá. Einnig er ég upplýstari um hvaðan maturinn minn kemur og hvaða áhrif hann hefur. Ég er miklu meira að fræða mig um næringu heldur en áður að ég varð vegan og matarræðið mitt er mun fjölbreyttara en fyrr
Já, fyrst var þetta voða einfallt, ég vil ekki skaða dýr svo ég sleppi því en síðan þá hafa komið í ljós ýmsar aðrar góðar ástæður t.d. umhverfisvernd
Já ég er ekki hrifin af kjöti. Finnst það fara illa í maga.
Já fyrst hugsaði ég fyrst og fremst um heilsufarslegan ávinning fyrir mig en núna tikkar dýraverndin ekki síður inn.
Nei.
Já, það eru rúm 40 ár síðan ég tók mín fyrstu spor í Kornmarkaðinum. Ég hætti að borða kjöt og úrvalið af grænmeti og ávöxtum fór í gegnum árin vaxandi svo matreiðslan varð fjölbreyttari. Ég hef verið um 26 ára þegar ég hætti að borða kjöt, en fram að því borðaði ég allt og alskonar.
Já algjörlega, ég hugsa meira um hvaðan maturinn minn er að koma og ég er meðvitaðri um það sem liggur að baki við að framleiða dýraafurðir. Almennt hef ég upplifað meiri samúð með ekki bara dýrum heldur öllum öðrum, veganisminn hefur opnað mjög mikið fyrir mér hugsunarhátt sem var algjörlega lokaður fyrir mér áður og ég skil það vel þegar fólk á erfitt með að hugsa sér að gerast vegan afþví ég var 100% í þeirri stöðu áður. Ég veit hinsvegar að hver sem er getur breyst ef viljinn er fyrir hendi.
Kaupi ekkert annað kjöt lengur og leita leiða til að nýta afurðirnar sem best.
Viðhorf mitt til matar er ólíkt því sem það var: ég nýt þess mjög að borða í hádeginu.
Allt einfaldara og þægilegra.
Mest í átt að dýravendunar sjónarmiðum að það er að verða stærri ásæða fyrir að ég fjarlægist dýraafurðir. Nú síðast egg í sambandi við fréttir af kalki sem hænur fá í ofskömmtun. Allt slíkt hefur áhrif.
Verð alltaf harðari ií að borða ekki dýr finnst það ekki rétt
Já, fyrsta árið sem grænmetisæta hætti ég einnig fiskneyslu. Það breyttist mörgum árum síðar vegna hollustu sjónarmiða og ég fór að borða fisk aftur, einkum til að tryggja betur að líkaminn fengi öll helstu næringarefni, að auki er ég laxveiðimaður sem ýtti undir það að byrja aftur að borða (lífrænan) fisk.
Nei
Óvisvítandi þá leiddi þetta mataræði til meiri umhverfisvitundar, þar sem kjötiðnaðurinn er gríðrlega stór þáttur í mengun á jörðinni.
Mínar skoðanir hafa aðeins styrkst, ég hef alltaf kallað mig dýravin en finnst ég ekki hafa raunverulega lifað eftir því fyrr en ég sneri bakinu við kjöti og öðrum dýraafurðum. Ég tel að það sé auðveldara að finna samkennd með dýrum og óþörfum örlögum þeirra þegar maður er hættur að borða kjöt því þá er maður ekki jafnaugljós sökudólgur og þátttakandi í þjáningunni sem á sér stað, en það getur verið erfitt að horfast í augu við það og sjálfan sig.
Aðallega hvað varðar kjötneyslu, sbr. svarið hér á undan og er líka orðin allt of þreytt á lélegum ávöxtum!
Áherslurnar hafa breyst þannig að ég minnka alltaf dýrarótein og borða meira grænmeti. Þó borða ég enn fisk og kjöt en mun minna og þá ekki unnar vörur.
Ég varð fyrst grænmetisæta/vegan af umhverfistengdum ástæðum, ég hafði lært mikið um slæm áhrif dýraframleiðslu á lífríki, jarðveg, ferskvatn og áhrif hennar á hnattræna hlýnun í háskólanum. Eftir því sem ég lærði meira um þennan iðnað komst ég að því hversu illa er farið með dýrin svo núna legg ég meiri áherslu á dýravelferð en í byrjun.
Ég veit líka núna að whole foods plant-based mataræði (sem er vegan mataræði sem forðast unnar vörur) er talið besta mataræðið fyrir heilsuna af mörgum læknum og vísindamönnum. Ég er því farinn að borða meira af hollum mat en í upphafi.
Nei, engar breytingar.
Ef ég fylgi ekki þessu mataræði finn ég áhrifin af því svo til strax í verri líðan, verkjum og þreytu vegna heilsufarsvandamála. Aðeins meira vesen að fara í matarboð en flestir sem bjóða mér í mat vita af mínu matarvali svo það er ekki oft vesen. Sendi oft fyrirspurn á veitingastaði áður en ég borða hjá þeim og stundum hef ég hætt við að borða þar sem mér líkar ekki svörin sem ég hef fengið og treysti þeim ekki.
Það hafa orðið mjög miklar breytingar á mér eftir að ég varð vegan. Í fyrsta lagi þá er líkamleg heilsan mín mun betri sem ég veit að er 100% matarræðinu það þakka. Í öðru lagi færðist viss friður yfir mig sem erfitt er að lýsa en á móti einnig sorg yfir því að aðrir í kringum mig séu ekki búnir að ,,opna augun". Ég verð einnig að viðurkenna að ég á frekar erfitt með að mæta á mannamót, í saumaklúbba og boð þar sem matur er í boði þar sem ég fæ stöðugt að heyra eitthvað neikvætt um veganisma. Mér finnst einnig eins og ég sé orðin ,,vesen" í slíkum aðstæðum. Því miður umgengst ég engan sem vegan og fjölskylda og vinir eru flest afkomendur bænda og sjómanna eða starfa við þessar atvinnugreinar sjálft. Því upplifa margir í kringum mig að ákvörðun mín sé persónuleg árás á þeirra lífsviðrværi. Ég tek þó fram að ég er alls ekki að predika neitt við neinn en virðist þó þurfa að svara endalausum spurningum sem eru í rauninni frekar spurðar til að gera lítið úr veganisma.
Eðlilega finn ég heilsufarsbreytingar, m.a. minni verki í líkamanum. Til að mynda minni verkjum í liðum og kviðarholi.
Þær breytingar sem ég hef fundið fyrir félagslega eru helstar þær að veganistar reyna endalaust að fá mig yfir, eins og sértrúarsöfnuður hreinlega, en ég hef ekki hugsað mér að hætta að borða fisk, kjöt og egg. Allt það get ég fengið íslenskt og stóran hluta heimafengið.
Ég hef verið í meðferð hjá h sem er að aðstoða og finnst það alveg merkilegt hvað hún finnur upp á því að fá mig til að borða mat sem er framleiddur í suður Ameríku, s.s. avocado og kínóa, en ég endaði á að segja henni að ég ætlaði að taka hana á orðinu og fá mér rófur og bygg.
Sorrí með mig, en ég get hvorki hugsað mér að borða mat sem hefur farið heiminn á enda eða sem er búinn til í þeim tilgangi að líkjast öðrum mat.
Var búin að fara til gigtarlæknis því ég var viss um að ég væri komin með byrjun a gigt, vaknaði með stífa fingur og stundum fasta í kreppu. Fékk alltaf illt í liðina á höndum þegar ég fór út í aðeins kaldara loft og þurfti því alltaf að vera með vettlinga. Þetta hvarf a 3 dögum eftir að ég tók dýraafurðir út.
Mér finnst ég vera léttari á mér, bæði andlega og líkamlega og eiga auðveldara með að tækla hluti hvort sem þeir eru vegna vinnu eða "lífs".
Líkamleglíðan ét betri og ég er ánægðari.
Minni bólumyndun, betri melting, betri andleg líðan (gjörðir í samræmi við gildi), bragðskyn er öðruvísi - búin að venjast alls konar eins og t.d. vegan ostum, hráu tófúi, sojamjólk o.fr.v, fer ekki dýragarða eina neina skemmtun sem bitnar á dýrum en hef verið sjálfboðaliði í dýraathvarfi, ef ég ætla að fá mér vín á veitingastað gúggla ég hvort þau séu vegan, ég eyði meiri tíma í að kaupa mér skó eða útivistarfatnað til að forðast að þetta innihaldi dýraafurðir, ég er meðlimur í Samtökum grænkera á Íslandi og hef styrkt íslenskt dýraathvarf. Félagslíf hefur lítið breyst.
fæ engar bólur lengur (fékk samt ekki mikið fyrir), minni hausverkur, minni magabólgur og meltingarvandamál. Bragðskynið mitt breyttist, tek eftir gervi bragði um leið - og allt sem er með e-u gervi finnst mér bragðvont núna. Tek eftir miklu meira bragði af lífrænu grænmeti og ávexti og finnst margt grænmeti og ávextir alls ekki jafn bragðgott. Ég segi iðulega nei við ókeypis gosi ef það fylgir með mat (ef það er ekki lífrænt). Ég er búin að tengjast öðru fólki sem hefur mikla þekkingu á lífrænu matarræði.
Ef ég borða eitthvað sem á ekki við mig þá fæ ég mikinn bjúg og vanlíðan
Það að kötta dýraafurðir út hjálpaði líka exeminu mínu mikið og blóðþrýstingurinn sem var frekar hàr er kominn niður í eðlileg mörk.
Manni líður hreinlega illa af sykuráti, fitnar af of miklu brauðáti. Ég virðist þola mjólk ennþá en nota aðeins lífræna. Matartilfinning mín er þó háð árstíðum - get ekki borðað sjávarfisk á sumrin og finnst erfitt að borða mikið grænt salat yfir háveturinn. Eftir áramót eða svona í febrúar fer hins vegar að kvikna löngun í spírur og micro - grænt. Rótarávextirnir finnst mér betri á veturna. Ég tíni enn villijurtir úti t.d. fíflablöð þar sem hundar ná ekki til og bílvegir eru ekki nálægir og einhverja jurtir tíni ég líka í te.
Allavega léttari meltingu og óþarfi þess að upplifa mikil þyngsl og kjötvímu. Meiri virðingu fyrir plöntum, þegar ég neyti orku úr þeim beint en ekki gegnum millilið (dýr)
Nei ekki nema að mér líður betur í maganum og meltingarfærum eftir að ég hætti að borða kjöt. Var samt smá stund að læra almennilega inn á næringuna. Og jú, það eru sumir staðir sem ég fer ekki á til að borða af því maturinn höfðar ekki til mín
Svo mikið, ég hef lést sem ég mátti alveg við, líkamlegir verkir eru mun minni og andleg líðan er mun betri. ég finn mikinn neikvæðann mun á mér ef eg borða skyndibita. Bragðskynið hefur auðvitað breyst og eg sækjist í öðruvísi bragð en áður. Vegan ostur fannst mér ekki góður fyrst en í dag finnst mer hann mjög bragðgóður. Ég hef lært mikið að vinna með plöntufæði og elda það á allskonar hátt til að gera matinn skemmtilegann á bragði og aferð. Ég hef miklu minni áhuga a að fara utað borða þar sem eg veit að maturinn minn heima bragðast mun betur
Samviskan er betri, meltingin er betri (eftir að maginn aðlagaðist baunum, tófú, miklu grænmeti etc)
Hressari
Minni magavandamál,finn mikinn mun ef ég hef borðað smá kjöt.Fæ nábít. Er orkumeiri ef ég borða hollari grænmetismat
Líkamlega og andlega líður mér umtalsvert bebtur þegar ég passa upp á að leggja áherslu og hreint og fjölbreytt matarræði. Sukk og drasl hefur neikvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu, ég verð slöpp í kroppnum og líður illa og finn hvernig ég fæ yfir mig meiri drunga (eins og heilaþoku) þegar ég hef borðað mikið unna matvöru, sykur eða skyndibita.
Sjá svör að ofan - engar breytingar hafa orðið.
Engar breytingar en auðvitað koma inn nýjar uppskrifti og svo hátíðir með sínum hefðum sem eru afar sterkar, jól, þorri.
Fyrst þegar ég var vegan upplifði ég mig miklu léttari, líkamlega. Ég missti bara örfá kíló en upplifiði eins og það hefði byrði verið lyft af mér. Ég var í íþróttum og fannst ég geta hoppað hærra og hlaupið lengur.
Bragðskynið mitt breyttist miklu meira en ég bjóst við. Ég var rosalegur matargikkur áður en ég gerði þessar breytingar, en það hvarf frekar hratt þegar ég byrjaði að borða nýjan mat. Það sem hjálpaði var að ég var einhvernveginn ekki lengur að borða bara fyrir mig, heldur fyrir þessi dýr sem mér þykir svo vænt um og þá gátu bragðlaukarnir mínir þróast aðeins með.
Ég þjást af leiðinlegum sjúkdómi sem kallast endómetríósa, en það þýðir að ég hef í mörg ár verið að fá stöðug verkjaköst sem geta verið það alvarleg að ég get hvorki gengið né staðið. Eftir að ég tók út dýraafurðir, þá sérstaklega mjólkurafurðirnar, urðu verkrnir mínir skárri. Þeir eru ennþá til staðar, en fjöldinn af verstu verkjunum sem gerðu mig óvinnufæra, hafa fækkað gífurlega.
Mér líður betur og betur bæði andlega og líkamlega, eftir því sem ég þróa mataræðið mitt meira í átt að því sem hentar mér, ekki því sem samfélagið vill að ég geri eða að aðhyllast einhvern einn, strangan lífstíl og fylgja í blindni. Eftir að ég hætti að vera alveg vegan hef ég t.d. upplifað fordóma frá vegan fólki, svo maður gerir aldrei alla "ánægða", sama hvað. Stundum borða ég mikið af kolvetnum, stundum ekki, stundum meiri fitu, stundum ekki, bara eftir markmiðunum mínum hverju sinni, getur farið eftir árstíð, hvort ég er að viðhalda þyngd eða létta mig, hvort það er mikið álag og svo framvegis. Ég kýs að skilgreina mig ekki út frá því sem ég borða og reyni að forðast fordóma og næra mig vel á því sem hentar mér hverju sinni. Mér finnst persónulega mikilvægt að geta lifað í sátt við líkamann sinn, líða vel í honum, vera tilbúin að taka á mataræðinu þegar þarf en geta slakað á inn á milli og ekki gera mat að afli sem stjórnar lífi mínu.
Ég held það.. er ekki alveg viss samt. En mér finnst ég miklu ánægðari og hamingjusamari núna en ég var fyrir nokkrum árum en ég veit ekki hvort það tengist mataræðinu. Ég held samt örugglega að bragðskynið mitt hafi breyst, og að matur sé mun braðgmeiri og bragðbetri á þessu mataræði en þegar ég borðaði kjöt. Hegðun mín hefur bara breyst í tengingu við viðhorfsbreytingarnar sem ýttu mér út í þetta mataræði, svo ég held að það sé ekki mataræðið sem breyti því. Ég hef klárlega meiri áhuga á hollu mataræði eftir að ég fór að pæla meira í því og ég myndi segja að það hafi smá áhrif á félagslífið mitt þar sem bara einn lítill vinahópur er eins þenkjandi og ég, en í þessum stærri vinahóp er ég svoldið út úr og erfitt að hafa mig með í hlutum þar sem ég þarf alltaf sér mat. Þau eru svakalegir kjötgámar og ég verð eiginlega pínu veik á að horfa á matinn þeirra stundum.. þegar við gerum eitthvað saman þá er venjulega alltaf matur nefnilega..Þannig ég hef verið að mæta eftir mat og vera bara með þeim í drykkjum og svoldið að breyta þeim parti af félagslífinu mínu.
Matarræði mitt endurspeglar áhugamál mín, hegðun og líðan. Meðal áhugamála er líferni sem dregur úr kolefnisspori mínu, lífræn ræktun, ábyrg fiskveiðistjornun, bætt meðferð afla, útivist og náttúruvernd og ekki síst að nýta gæði náttúrunnar s.s. sveppi, ber, þörunga og ýmsar kryddjurtir. Hygg að mataræðið eigi þátt í góðri heilsu og ásættanlegu formi miðað við aldur.
Meltingin er léttari.
Sjá fyrra svar.
Þar sem ég borða aöalmáltíðina í hádegi finnst mér ekki gott að borða mikið og þungan mat á kvöldin.
já betri í húðinni
Bólgur í líkamanum snarminnkuðu
Líður vel með að borða lambakjöt reglulega, soðið eða steikt. Einhver enzím í því sem eiga vel við mig.
Betri líðan heilt yfir bæði andleg og líkamleg, minna þrútin eða bjúguð.
Nei
Það voru breytingar fyrst, betri andleg líðan.
nei, enn harðari í r0llukjeti og rjóma
Ég er sæl með hvert peningarnir mínir fara og ég er ágætlega á mig komin miðað við aldur og fyrrri störf og mun halda mig við lífrænuna.
Heilsa betri, bólgur og liðverkir á bak og burt. Mikið orkumeiri og andlega hressari. Sjaldnar lasin og laus við óþarfa höfuðverki. Skýrari í hugsun og á betra með einbeitingu og úthald.
Ég finn lítinn mun á mér andlega, fyrir utan auðvitað það að mér líður betur að lifa í samræmi við eigin gildi. Meltingin mín er betri en hún var, sem er nær algilt mynstur meðal þeirra sem ég þekki sem eru vegan.
Ég finn verulegan mun á því að nota minna af mjólkuvörum enda hef ég þróað með mér óþol þar. Mér líður vel þegar ég borða mikið af grænum mat og finn ekki fyrir sömu þyngslum eftir máltíð eins og þegar það er borðað kjöt.
Ég lít ekki lengur á það sem neina fórn að sleppa dýraafurðum, ég hreinlega lít ekki á það sem mat lengur. Líkamlega líður mér mun betur, minni bjúgur og ég er næstum aldrei jafn slenaður af seddu eftir máltíðir eins og áður fyrr. Ég hef svo sem alltaf elskað grænmetismat en nú fæ ég craving í tofu, brokkolí, grænkál etc. þannig að mögulega hefur bragðskyn breyst eitthvað.
Líkamleg heilsa er betri ef ég passa mataræðið og áhugamálin snúast um umhverfisvernd m.a.
Þetta hefur gerst á það löngum tíma að ég get ekki greint neinar breytingar sérstaklega. En áhuginn og hegðun mín við að gramsa í jurtum (illgresi mest) í nærumhverfinu eykst bara og ég er alltaf að mastera eitthvað nýtt þar.
Engar sérstakar.
Með því að borða ekki of mikið heldur hæfilega, finn ég að ég er í betra jafnvægi andlega
Andlega líðanin er umfram allt léttari. Mér líður vel með það að vera grænmetisæta.
Líkamleg líðan er léttari magi.
Áhugamálin snerta nú í auknum mæli velferð dýra og umhverfismál.
Þá ber að geta þess að aukinn kostur og úrval fyrir grænmetisætur gerir okkur kleift að vera ekki hornreka t.d. í mötuneytum eða veislum. Auk færri spurninga fólks um það að vera grænmetisæta gerir það að verkum að áreitið er minna.
Afslappaðri og líður betur. Er frjórri og held að minnið hafi batnað. Sef betur.
Ekki spurning, magaverkurinn hvarf og líkamlegir hvillar eins og bólgur og verkir hér og þar, hafa minnkað til muna.
Ég er í meiri sátt við sjálfa mig eftir að ég byrjaði að vera vegan og ég er stolt af sjálfri mér að standa "réttu megin sögunnar" að mínu áliti. Ég hef líka fengið marga í kringum mig til að taka upplýstari ákvarðanir um eigið mataræði með því að vera fyrirmynd. Áhugamál og félagslíf hafa lítið breyst. Vinkonur mínar og fjölskylda alltaf tekið þessu frekar vel og ekkert mál að fara saman út að borða eða bjóða í mat, fólk tekur tillit til mín. Ég losnaði við tvo líkamlega kvilla með mjög áberandi hætti eftir að ég breytti matarræði. Ég losnaði við járnskort þegar ég gerðist grænmetisæta og ég losnaði við exem þegar ég gerðist vegan.
Almennt hafa engar breytingar orðið nema til batnaðar. En samt er vandasamt að fara út að borða, fara í veislur og kaupa í matinn alltaf til staðar, því hvorki verslunareigendur eða fólk sem þekkir ekki hvað glúten og laktósafrír matur er.... skilur ekki að hér er ekki um neitt val að ræða.
Heldur fylgja þessar fæðutegundir hafa í för með sér mikil vandkvæði og getur jafnvel verið hættulegt fyrir okkur sem svona erum.
Ég hef alltaf verið með járnskort en hann lagaðist þegar ég varð grænmetisæta, einnig hefur þetta mjög góð áhrif á hægðir þar sem maður borðar almennt meiri trefjar á grænmetisfæði.
En samskipti við fólk sem er ekki vegan geta verið erfið, sérstaklega þegar maður fílar ekki athygli. Í matarboðum, fjölskylduhittingum eða á kaffistofunni í vinnunni fær maður reglulega leiðinlegar athugasemdir eða fólk sem gerir grín að manni. Það verður mjög þreytt til lengdar.
Ég gat hætt á bakflæðislyfjum. Ég var með slæmt bakflæði og oft daglega, en núna fæ ég kannski 2x í mánuði og þá oftast eftir að ég legg mig á daginn. Ég hafði ekki hægðir nema á 2-3 daga fresti þegar ég borðaði kjöt því ég borðaði svo lítið grænmeti. Núna hef ég hægðir 1-2x á dag.
Mér líður betur andlega að vita að maturinn sem ég borða hafi ekki valdið þjáningu.
Ég hef eignast fleiri vini í gegnum vegan samfélagið.
Ég hef meiri kvíða yfir að fara út að borða eða í matarboð því ég er með sérþarfir og finnst það stundum vera vesen. Dæmi um það er að ég var á Tenerife með vinum mínum fyrir stuttu og við gátum ekki borðað hvar sem er því það var ekki vegan kostur á öllum stöðum. Vinir mínir voru opnir fyrir því að leita af stað sem hentaði mér líka en mér fannst ég samt vera með vesen.
Mér fór samstundis að líða miklu betur þegar ég gerði þessar breytingar fyrir rúmum sjö árum. Liðverkir minnkuðu/hurfu. Ég léttist svolítið til að byrja með.
Mér fannst ekki eins gaman að fara út að borða fyrst á eftir því venjulega var úr litlu að velja. En það var ekki vandamál og er reyndar hvergi auðveldara en á Íslandi. Það er næstum alltaf eitthvað vegan á matseðlinum. Stundum margt, en því miður stundum aðein veganborgarar.
Morgunverður á hótelum er auðveldur. Starfsfólk hefur stundum boðist til að gera ráðstafanir þegar ég gaf upp að ég væri vegan (áður en ég bætti ostinum inn aftur). Ég sagði þeim alltaf að þetta væri ekki vandamál, ég myndi borða brauð og sultu og setja appelsínusafa út á morgunkornið.
Ef ég var boðin í mat einhvers staðar lét ég vita hvernig venjur mínar væru og fólk brást vel við. Hafði góðan fiskrétt og notaði olíu í stað smjörs eða rjóma.
Borða minni sykur og sælgæti, sætindaþörf minnkaði. Næmari á það sem er ekki svo gott, verður illt í maganum t.d., borða sjaldan yfir mig.
Nei, engar breytingar sem ég merki sérstaklega.
Með svona fyrirkomulagi að borða bara innan ákveðins tímaramma er líðan og svefn miklu betri.
Læt þetta samt ekki stjórna lífi mínu t.d. Ef ég er í matarboði eða ferðalögum.
Já, ég er betri í maganum.
Já, það er alveg öruggt að mér líður miklu betur í líkamanum/meltingarveginum og er ekki stútfull af bjúgi ef ég borða skynsamlega.
Breyting á bæði líkamlegri og andlegri líðan er betri
Helsta breytingin sem ég fann var að gigtarverkir minnkuðu.
Ég upplifi breytingu á öllum þessum þáttum. Mér finnst líðan mín miklu betri og ég í meira jafnvægi, mér líður betur líkamlega og eftir breytinguna er loksins kominn stöðugleiki en fyrir breytinguna var blóðsykurinn minn í ójafnvægi og ég var að díla við járnskort. Þetta hefur ekki verið vesen eftir að ég tók út allar dýraafurðir. Ég borða fjölbreyttari mat í dag en ég gerði, bragðskynið vissulega breyttist og á jákvæðan hátt. Ég nýt matar miklu betur í dag. Ég er með miklu meiri orku í dag sem lýsir sér í að áhugamálin mín eru að miklu leyti hreyfing.
Nei, svo sem ekki
Nei
Mér líður best ef ég fylgi mínu mataræði en ég finn breytingar ef ég dett í sælgæti eða borða rjómapönnukökur eða annað sem mér finnst gott. þá finn ég fyrir óþægindum og þreytu
Erfiðara að fara út að borða, ekki margir staðir með góðan vegan mat. Erfitt að horfa á flesta aðra borða mötuneytismatinn í vinnunni og fá ekkert fyrir mig þar. Hef ekki orðið heilbrigðari af því við borðum of mikið ruslfæði.
Ég er orðin miklu minna matvönd og eftir að ég varð grænmetisæta upplifði ég miklu meira frelsi í matargerð sem hljómar kannski kaldhæðnislega þar sem ég var að taka út heilan matarflokk. En þegar ég varð grænmetisæta byrjaði ég að prufa alls konar nýtt grænmeti og rétti sem ég hafði ekki vitað af áður og fannst það allt svo ótrúlega gómsætt.
Áður en ég varð grænmetisæta fannst örugglega ýmsum ég vera „matvönd“ vegna þess að ég borðaði eiginlega ekkert kjöt eða fisk nema það væri matreitt á ákveðin hátt. Ég er á allt öðru mataræði núna en þegar ég var yngri og mér líður miklu betur, bæði á líkama og sál. Ég elska allt grænmeti og finnst svo gaman að prufa að gera nýja rétti eða prufa nýtt grænmeti.
Samfélagslegt viðhorf og framboð á grænmetis/vegan mat hefur líka breyst svo hratt og mikið síðan ég varð grænmetisæta eða þetta er orðið allt annað líf. Núna er yfirleitt alltaf a.m.k einn vegan réttur á matseðlum á veitingastöðum og núna er lagt vinna og metnaður í vegan réttina. Þegar ég var nýorðin grænmetisæta þá fannst veitingastöðum bara nóg að vera með salat sem eina grænmetisréttinn þannig það var oft ekki spennandi fyrir mig að fara út að borða.
Það sem hefur breyst mest er áhugi minn á dýravernd, þegar ég var yngri elskaði ég dýr mjög mikið en hugsaði kannski ekki mikið um hvað var að gerast í heiminum varðandi dýraníð og kjötframleiðslu. Eftir að ég varð grænmetisæta fór ég að lesa mér meira til um dýravernd og er núna mikill dýraverndunarsinni.
Á seinustu árum hefur svo verið talað mikið um hvernig áhrif kjötiðnaðurinn er að hafa áhrif á umhverfið og ef ég væri ekki grænmetisæta útaf dýrunum hefði ég örugglega orðið það á endanum útaf umhverfisvernd. En fyrst og fremst tók þessa ákvörðun útfrá dýraverndunarsjónarmiðum.
Ég hef ekki upplifað neinar breytingar á mér sjálfri eða breytingu á líðan hvort sem það er líkamlegri eða andlegri. Ekki heldur á bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi.
Jákvætt
Jákvæðari, áhugameiri, sef betur, líður yfirhöfuð betur
Neikvætt
Finn til í liðum og slíku af og til vegna aukinnar þyngdar
Liðverkir sem höfðu verið að hrjá mig hurfu nánast alveg og svo tók bragðskynið stakkaskiptum. Áður borðaði ég ekki baunir og lítið af elduðu grænmeti en var farin að elska allskonar þannig innan nokkurra mánaða. Ég hef einnig orðið mun meðvitaðari um alla neyslu.
Enga sérstakar breytingar - líkamsþyngd minnkar lítið
Nei. Ég hef alltaf verið vinstrisinnuð og er mikill umhverfisverndarsinni. Breytt mataræði er bara partur af því að læra meira um kjötiðnað, vatnsnotkun í landbúnaði, neikvæð áhrif stórfyrirtækja á umhverfið, plastmengun, hlýnun jarðar o.s.frv.
Engar líkamlegar breytingar. Félagslega tek ég eftir viðhorfum fólks, fæ spurningar og oft neikvæð komment. á vinnustað talað um þetta. Finn lítinn stuðning, það er gert grín að veganisma og grænmetisætum, skilningsleysi
Mér líður betur almennt talað andlega og líkamlega, og mér gengur betur að halda mig nálægt kjörþyngd, sem endurspeglast í auknu sjálfstrausti.
Mér líður bæði betur líkamlega og andlega eftir að ég breytti mataræði mínu. Hægðatregðan gerði það að verkum að ég bólgnaði öll á höndum og fótum (sérstaklega um liðamót) þegar ég borðaði mikið brauð. Þó að fyrir komi að kerfið verði eitthvað tregt gerist ekkert slíkt eftir að ég hætti mjölátinu
Ég hef verið með magavandamál alla mína ævi sem hurfu eftir að ég varð vegan. Ég er mun léttari á mér andlega og líður betur eftir mat. Ég verð mun sjaldnar (eiginlega aldrei bara) svona ótrúlega södd eins og þegar ég borðaði kjöt og mjólkurvörur og auk þess fæ ég ekki lengur kláðaköst sem ég upplifði áður en ég breytti um mataræði.
Ég hef tengst vinum í gegnum veganisma og er hluti af samfélagi á Íslandi sem deilir þekkingu, ráðum og almennt bara spjallar saman. Eldamennsku er orðið meira áhugamál hjá mér og elska ég núna að prófa nýja hluti og þróa rétti áfram, eitthvað sem mér þótti mjög óspennandi áður fyrr.
Ekki eitthvað sem ég get tengt við mataræði fyrir utan það að áður en ég fékk að verða vegan (þar sem ég var barn og þurfti leyfi foreldra minna) þá kveið mér mikið fyrir því að borða og borðaði því lítið annað en ávexti og brauð en það lagaðist um leið og ég fékk að vera vegan (fékk leyfi fyrir því þar sem ég gat eldað sjálfur og sýndi framm á það)
Mér finnst mér líða mikið betur. Þess vegna hald é
Ég finn þann mun á mér líkamlega að eg er liðugri á grænmetinu en þegar ég borðaði úr dýraríkinu.
Já, ég léttist um fjölda kílóa - þó þetta sé alls ekki megrun - er orkumeiri og fókusinn betri. Mesta breytingin er á bragðlaukunum, sumt af því sem mér fannst áður gott get ég ekki hugsað mér að borða núna, en svo er ég sólgin í ýmislegt sem mér fannst áður vont. Ég get ekki einu sinni séð hrátt kjöt án þess að verða ómótt. Naga nú sellerí sem snakk, en það hafði mér alltaf fundist vont.
Ég er þeirrar skoðunar að hvert lífsskeið krefjist þess að mataræði sé aðlagað að breytingum á starfsemi líkamans. Í gegnum tíðina hef ég verið á allavega samsetningu mataræðis og ekki hægt að segja að ég hafi tileinkað mér algjörlega eitthvað eitt. Ég hef ítrekað breitt mataræði til að koma til móts við þarfir líkamans og heilsu. Það tekur oft tíma að finna út úr því hvar breytinga er þörf en eftir að það er fundið eru alltaf jákvæðar breytingar í kjölfarið.
Félagslífið breyttist töluvert þegar ég hvorki borðaði kjöt né drakk áfengi að neinu ráði.
Ég var alltaf með mjög mikið af bólum á upphandleggjum og baki en það hvarf alveg eftir að ég hætti að neyta dýraafurða.
Ég finn ekki lengur fyrir svona "food coma" eftir stóra máltíð eins og ég gerði áður, maturinn virðist ekki þyngja manni eins mikið niður.
Ég er farinn að prófa og njóta þess að borða mat sem ég hafði annaðhvort ekki fundist góður áður eða hreinlega hafði aldrei smakkað áður.
Ég er orkumeiri en samstarfsfélagar mínir sem borða morgunmat og fá sér svo morgunkaffi tveimur klukkustundum síðar. Mér verkjar ekki lengur í liðunum og ég þarf að hafa minna fyrir því að viðhalda þyngd. Þetta mataræði hefur ekki breytt miklu er varðar mitt félagslíf.
Ekki nema ég er mun lengur að melta kjöt og því þyngri á mér.
Hefur ekki breytt neinu
Með breyttu mataræði líður mér betur líkamlega og andlega og tel að heilsa mín sé betri fyrir vikið. Áhugi á náttúrunni og umhverfismálum hefur aukist jafnt og þétt í gegnum þessa áratugi sem og hegðun gagnvart náttúrunni og náttúruvernd.
Bólgur hættu nánast alveg, en tengi það sennilega við að hætta neyslu mjólkurafurða
Á þessum 3 árum þá hef ég borðað meira af grænmeti og léttist einnig í kjölfari. Var sem dæmi tæp 80 kíló í janúar 2019 og er núna um 63kg. Eina breytingin sem eg hef gert var þó bara að taka út kjötið sem óvart leiddi til þess að ég fór að sækja í meira grænmeti og hollari mat.
Ég hef ekki fundið fyrir miklum breytingum. Ég borða vissulega fjölbreyttari mat og mun meira af grænmeti og baunum, sem verður að teljast hollt.
Nei, ég get ekkert fullyrt um það, hef alltaf verið hraust.
Ég upplifði strax breytingar á liðheilsu og líka er maður glaðari að geta nýtt frá eigin ræktun.
Ýmist í Bónus eða Krónunni og einstaka sinnum í Hagkaup. Ég sækist eftir ákveðnum vörum í t.d. Krónunni og Bónus en hvaða verslun verður fyrir valinu fer líka eftir staðsetningu og stundum opnunartíma.
Versla yfirleitt í Krónuverslun næst heimilinu, kaupi samt fisk í fiskbúð og fer stundum í kjötbúð líka
Ég versla í Krónunni og er ánægð með vöruúrval og verð þar. Einnig hafa þeir yfirlýsta umhverfisstefnu og eru með talsvert úrval af umhverfisvænum vörum og lífrænum vörum líka þó það mætti vera meira. Uppruni vöru skiptir mig miklu máli og eins umbúðir. Skil eftir umbúðir í búðinni ef ég get og vel alltaf pappírsumbúðir framyfir plast sé þess kostur. Les upplýsingar á vöru og verð að taka með mér gleraugu til að geta það því oftast er letrið svo smátt. Auglýsingar skipta mig litlu máli. Uppröðun í búðinni er yfirleitt þægileg en hundleiðinlegt þegar henni er breytt mikið því það lengir verulega tímann sem tekur að versla.
Ég versla helst í Krónunni, Bónus og Veganbúðinni. Mér finnst æðislegt að nýta mér ,,Minnkum matarsóun" og matreiði ýmsa grænmetisrétti úr því sem ég finn þar. Sumt sem ég kaupi er mjög ódýrt s.s. baunir og korn en annað er frekar dýrt. Ég kaupi ekki mikið af tilbúnum veganréttum og nota frekar baunir, seitan og tófú. Mér finnst mikilvægt að hafa sem minnst af umbúðum og versla helst hreinlætisvörur sem hægt er að kaupa áfyllingu á. Þrátt fyrir að ég vilji helst velja íslenskt þá er því miður allt of lítil framleiðsla á vegan mat framleiddur hér á landi en ég geri mitt besta. Markaðsetning matvæla hefur eflaust alltaf áhrif á mig en ég hugsa oft að það sé sniðugt að prufa hitt og þetta en það lendir þó alls ekki allt í matarkörfunni.
Versla mest í Bónus og þá í Nettó. Svo versla ég beint frá bændum, þegar það býðst. Ég er vanaföst í innkaupaferðum og legg mig fram að kaupa ekki mikið af unnum mat. T.d. lítið af pakkaréttum, pasta, "matarlíki" (mat sem á að líta út og smakkast eins og einhver annar matur), sem og ég forðast að kaupa ísraelskan mat.
Eins og aðrir sem þurfa að sneiða hjá vissum mat þá er ég sérfræðingur í innihaldslýsingum. Því miður er einn galli á þeim, en framleiðendum er leyfilegt að skrifa "krydd" á vörur, en ég er með ofnæmi fyurir rósmarín og get oft ekki áttað mig á því hvort það er í mat eða ekki. Enda oftast á að kaupa ekki vörur sem eru samsettar.
Ég les ekki blöðdin, horfi ekki á línulegt sjónvarp og legg mig fram um að lesa ekki auglýsingar á netinu, þannig að ég er oft algerlega ómeðvituð um eitthvað sem "allir vita". Sem er frá mér séð kostur.
Uppröðun í búðinni skiptir mig ekki miklu máli, ég versla meira eins og veiðimaður en blómatínslumanneskja.
Oftast í Nettó því það er svo nálægt mér, fer líka í krónuna, bónus og vegan búðina. Elska ferskar vörur og grænmeti og verð spilar auðvitað inn í. Ég væri mikið til í meira lífrænt en það er oft svo sjúklega dýrt. Reyni að kaupa allt íslenskt sem ég get
Ég get verslað í allflestum verslunum.
Ég les mikið hvað stendur á pakkningum þegar ég er að skoða vörur sem ég hef ekki keypt áður.
Ég versla í Krónunni aðallega. Ég geri vikumatseðil fyrir mig sem byggir á því hvað ég á til í skápunum. Ég horfi ekki á verðlag, enda er ég bara að fóðra sjálfa mig (maðurinn minn er ekki vegan og er í ruslfæðinu - hann sér því bara um sig) og mataræði mitt er sérstaklega ódýrt. Ég reyni að kaupa íslenskt grænmeti og ávexti, hafra og bygg en hvað annað varðar, horfi ég ekki á uppruna vörunnar. Markaðssetning og auglýsingar á vörum í kjörbúðum vekja ekki athygli mína en auglýsingar grænmetis- og ávaxtabænda gera það sem og þeirra sem bjóða upp á grænmetis- og ávaxtakassa. Ég horfi einnig á merkingar og vottanir. Uppröðun í verslun hefur ekki áhrif á það sem ég kaupi.
Nettó, Krónan, Fjarðarkaup, Austurland food coop, Frú Lauga, Heilsuhúsið, Brauðhúsið, Hagkaup. Þarf að hafa mikið fyrir að fá allt lífrænt og oft að fara í margar búðir. Verðlag skiptir minna og minna máli - þegar ég gerði mér grein fyrir áhrifunum. Ég lít á matarinnkaup sem fjárfestingu í lífi barnanna minna og míns eigins, en einnig sem fjárfestingu í umhverfinu - er tilbúin að leggja mikið á mig fyrir það. Og einnig finnst mér ég meðvitað vilja sýna markaðnum að ég vil þessar vörur - auka eftirspurnina eftir lífrænum mat. Ég horfi á Evrópulaufið - treysti ekki jafn vel USDA organic merkinu þar sem ég veit þar er ýmislegt ábótavant. Ég pæli ekkert í uppröðun í búðinni - leita uppi það sem er lífrænt. Ég horfi 0 á auglýsingar og markaðssetningu. Uppruni vörunnar skiptir máli - en ég horfi samt meira á lífrænu vottunina - þó á íslensku vörunum veit ég um nokkra sem rækta 100% lífrænt en eru ekki með vottun og þá horfi ég á uppruna vörunnar og treysti þeim.
Krónan býður upp á ágætt úrval af lífrænum vörum og þeir eru ódýrari en Netto en fer samt í Netto til að kaupa hluti sem eru ekki til í Krónunni t.d. lífrænt örbylgjupopp og snakk, lífræn haframjólk.
Kaupi lífrænt þegar ég get svo sem haframjöl, egg, haframjólk chiafræ og hampfræ, einnig íslenskt þegar ég get það er bæði betra á bragðið og minni efni þó það sé ekki lífrænt. Myndi kaupa meira lífrænt ef ég hefði efni á því en ég þyrfti sirka eitt núll fyrir aftan launin mín til að það yrði að veruleika
Vegan búðinni, krónunni og bónus vanalega, fer eftir hvort èg þurfi einhverja ákveðna vöru í hvert skipti. Verðlagning fyrir mér skiptir minna máli en t.d. að hún sé cruelty-free.
Reyni að forðast plastumbúðir og nálgast lífræna fæðu ef þess er kostur - þarf ekki nú að hugsa um verðlag en þurfti þess lengst af ævinnar.
Uppruni skiptir mig máli og einnig að borða nokkuð árstíðabundið. Ég lít því gjarnan eftir upprunalandi.
Markaðssetning skiptir mig máli en hefur ekki endilega úrslit á hvað ég kaupi. Ef ég veit um misnotkun fólks við framleiðslu, sem er allt of sjaldan rannsakað eða á það minnst, þá forðast ég þá fæðu og eins er orðspor um eiturefnanotkun er vituð eða talin. Telji ég mig vita um vandaða framleiðslu vel ég hikaust þá vöru. Upplýsingar á pakkningu skipta máli núorðið. Ég reyni að vera sjálfstæð í vali og láta t.d. uppröðun ekki hafa of mikil áhrif.
Krónan. Hentugleiki og fjölbreytni fyrir matreiðslu. Staðbundin og fersk vara. Ekki siðferðislega vafasöm. Upplýsingar á pakka um efni hvort þau séu heilsusamleg, góð fyrir umhverfi og samfélag. Uppröðun skiptir miklu, tek oft einhverjar afsláttarvörur.
Verðlag
Bónus og Krónunni aðallega. Uppruni og innihald skiptir mestu máli
Ég versla í Bónus, líka Heimkaup stundum þar sem ég er ekki alltaf með bílinn á heimilinu. Úrval á jurtamjólkurvörum er best í Heimkaup þó svo að vörurnar eru almennt dýrari en ég kaupi svona almennan mat í Bónus, mest grænmeti, næringarger, baunir oþh. ásamt almennum heimilismat
Bonus eða krónan
Verka oftast í krónunni. Hvað er hentugt að elda ræður miklu auk vana. Sniðgeng vörur frá Ísrael.
Kaup eru gerð í kjörbúðum, bakaríi, á grænmetis- og ávaxtamarkaði, heilsuverndarverslunum.
Verðlag skiptir máli, sem og hvar vörurnar eru búnar til (uppruni) og hversu langt þarf að sækja þær í verslun, auk upplýsinga á pökkunum (varðandi t.d. aukaefni, litarefni og óæskilegar olíur).
Í matvörubúð hverfisins, alla jafna. Einnig er leitað eftir lágu verði á ákveðnum vörum og þá gerð magnkaup, t.d. eru ákveðnar vörur keyptar í Costco. Ég reyni alltaf að kaupa íslenskt, vel það fram yfir, kolefnisspor. Stundum tekum maður alveg eftir aulýsingum en oft er maður meira að kaupa sömu vörutegundirnar. Ég eltist því ekki daglega við innihladslýsingar og uppröðun í búðum er oftar frekar til pirrings þegar maður þarf að leita uppi um alla búð það sem maður vill finna
Ég versla mest í krónunni og í Bónus. Ég reyni að lágmarka kostnað eins og ég get því ég er háskólanemi og því ræður verð oft því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna. Ef það er til lífrænn eða vistænni kostur þá vel ég hann ef verðmunurinn er ekki mikill. Markaðssetning og auglýsingar hefur klárlega áhrif á mig og ef það er nýr drykkur eða nammi þá er ég líkleg til þess að prófa það. Ég er meðvituð um greenwashing en finn líka að það hefur áhrif á mig og vörur sem líta umhverfisvænni út þrátt fyrir að vera það ekki í raun eru líklegri til að enda í körfunni minni heldur en vörur sem líta ekki umhverfisvænar út. Ég reyni alltaf að velja íslenskar vörur og sérstaklega grænmeti og ávexti.
Bónus eða Krónunni.
Ég reyni að gerða innkaupalista en verð skipta mig máli.
Versla mest í Bónus bara af því að það er ódýrara og nokkuð ánægð með vöruvalið sem ég fæ þar. Í dag einblíni ég ekki mikið á innihaldsefni en forðast sykur og mjólkurvörur almennt. Einnig mikið unnin mat eins og vegan gervikjöt eins og ég get, en leyfi mér það inni á milli. Reyni að borða mikið af fiski og grænmeti. Ég eltist ekki við lífrænar vörur og skoða ekki endilega e-efna magn í vöru, reyni bara að borða eins mikið hreint og fjölbreytt og ég treysti mér til hverju sinni og efnahagur leyfir. Fæ mikið af fiski gefins frá fjölskyldunni minni sem veiðir mikið sjálf eða hefur aðgang að fiski í miklu magni.
Ég leitast við að borða mest "plant based" eins og ég get fyrir utan fiskinn.
Ég versla ekki dags-daglega. Ég er mjög óregluleg í búðarferðum, en er frekar regluleg í því sem ég vel að kaupa samt. Ég kaupi alltaf helling af grænmeti og ávöxtum og þar læt ég helst ráða að það sé íslenskt ef ég get. Verð skiptir ekki máli þar. Í frosnu vörunum þá kaupi ég það sem ég veit að mér finnst bragðgott en pæli smá í verðinu og upplýsingum á pakkningum. Ég er helst að pæla í verði í kaupum á bætiefnum en líka öðru eins og innihaldi og styrkleika efnanna. Allt svona til heimilisins eins og sápur ofl. ræðst af umhverfisáhrifum og verði. Ég vel alltaf braðgbestu jurtamjólkina (oatly eða heiða) en ef hún er ekki til þá tek ég möndlumjólk og pæli ekki í verði. Ég reyni svo alltaf að velja eftir hollustu og t.d. vel alltaf fjölkorna brauð eða grófar vörur yfir fínar og mikið unnar vörur. Þegar vörur eru svipaðar í öllum þáttum og ég er ekki með preference út af bragði eða einhverju þá læt ég verðið ráða. Hef einu sinni óvart keypt barnatannbursta út af ég var bara að horfa á ódýrasta bambustannburstan frekar en að horfa á hvað ég var að kaupa..
Uppröðun í búðinni skiptir mig ekki miklu máli út af ég veit hvað ég er að fara að kaupa og ráfa um búðina í leit af þeim hlutum frekar en að láta búðina stjórna hvað ég kaupi. Ég er alltaf til í að prufa nýja hluti samt svo ef ég tek eftir áhugaverði vöru í búðinni þá kaupi ég hana til að prufa en bara ef ég get hugsað upp plan um hvernig ég ætla að nota hana. Ég hata að henda mat svo ég er alltaf með plan um hvað ég ætla að elda með vörunni áður en ég kaupi hana.
Versla ekki daglega.fer tvisvar í viku til Hafnarfjarðar og versla því gjarnan í Fjarðarkaupum. Ef ekki fer ég ca einu sinni í viku út á Granda og versla í þeim fjórum stórverslunum sem þar eru.
Sé í boði tilboð gegn matarsóun kaupi ég slíkt og læt það sem í körfuna kemur ráða því hvað verður í matinn. Verðlag skiptir máli en þó gæði með tilliti til umhverfismála enn frekar. Uppruni skiptir milku máli, þvi styttra ferðalag vörunnar því líklegra að hún lendi í körfunni.
Reyni að vera á varðbergi gagnvart markaðssetningu og auglýsingum en viðurkenni að slíkt hefur áhrif á mig.
Les allar innihlaldslýsingar á umbúðum, kanna hvort pálmaolía hefur verið komið við sögu við framleiðsluna, kaupi þá ekki. Skoða næringarefnalýsingu, læt mig varða næringaefnasamsetningu.
Uppröðun hefur án efa áhrif á mig.
Mikið í Krónunni, en líka víðar svo sem Nettó, Bónus og Melabúðinni.
Verðlag skiptir mig ekki mjög miklu máli en þó nokkru. Reyni frekar að kaupa innlenda framleiðslu. Markaðssetning hefur ekki mikil áhrif á mig. Ég skoða gjarnan upplýsingar á pakkningum upp á næringarinnihald. Uppröðun skiptir smá máli.
Versla aðallega í Krónunni. Verðlag og uppruni skipta máli en ég reyni að kaupa staðgóðan og hollan mat öðru fremur. Uppröðun, markaðssetning og auglýsingar hafa auðvitað líka áhrif.
Ég fer oftast í Krónuna. Kaupi eingöngu það sem ég vil borða. Ég kaupi eins mikið íslenskt og ég get. Fer lítið eftir aulýsingum. Á sumum vörum les ég upplýsingar á pakkningum. Uppröðun skiptir ekki máli.
Oftast í Nettó
hollusta og tilboð
upplýsingar á pakkningum skipta miklu
og uppröðun í búðinni
Ýmist í Krónunni eða Bónus eða næsta fisksala í Hófgerðinu. Ekki um marga kosti að velja og sóoru keðjurnar ráða meira og meira um leið og útsölustöðum fækkar. Ekki gott fyrir yfirlýstan billausan lífsstíl.
Geri stundum magnkaup og frysti mat í hæfilegum pökkum.
Nettó, stöku sinnum grænmetiskassi hjá Austurland food coop. Gæðin ráða yfirleitt því hvað ratar í matarkörfuna en að sjálfsögðu slæðist oft líka eitthvað óhollt með. Kaupi helst íslenskt ef það er í boði og lífrænt. Góð markaðssetning á heilsuvörum nær mér oft til að fara og kaupa. Les utan á pakkningar, sérstaklega það sem að ég ætla að borða sjálf.
Ég reyni að fara í Bónus en fer stundum í krónuna eða Hagkaup. Það sem ræður því hvaða vörur rata í innkaupakerruna er hvað mig langar í, verðlag skiptir auðvitað einhverju máli enda "fátækur námsmaður".
nettó krónunni og melabúðinn.
veit hvar dótið er
Ég verlsa í Nettó þar sem að það er eina verslunin í bænum. Hún er allt of dýr og kemur verulega við budduna. Ef að ég fer í Bónus þá finn ég mikin mun á verðlagi. Ég kaupi yfirleitt bara það sem að ég ætla mér og hef hingað til ekki verið að pæla í verðinu. En ég er þó farin að gera það núna þar sem að allt er orðið svo dýrt. Ég er ekkert að velta fyrir mér uppruna vörunnar, nema grænmetis, ég reyni að kaupa íslenskt grænmeti. Uppröðun í búðinni hefur áhrif. Ég kippi oft með einhverjum óþarfa eða einhverju sem svo aldrei er borðað af því að það er á rekka á áberandi stað í búðinni, á miðju gólfi jafnvel.
Ég fer um allar jarðir til að ná í vandað fæði. Grímsbakarí, Frú Laugu sem oft er með gott kjöt beint frá bónda. Nettó hefur ágætis úrval en lítið kjötmeti en er annars næst mér. Fjarðarkauð hefur oft ýmislegt á þokkalegu verði svo ég kem þar við þegar ég á leið um Hafnarfjörð
Aðallega hreinar afurðir eins og kjöt, kjúkling og fisk án allra aukaefna og helst lífrænt vottað. Mikið grænmeti og þá helst trefjaríkt. Mikið af hnetum og fræjum. Verðlag skiptir líka máli en mestu skiptir að kaupa aldrei of mikið til að komast hjá því að eitthvað skemmist. Ég vel oft útlitsgallað og/eða vöru sem nálgast síðasta söludag til að það endi ekki í ruslinu og þá er það í matinn þann daginn eða ég nýti það og frysti. Markaðsetning skiptir litlu máli enda er einfaldleikinn í fyrirrúmi og hrifnust er ég ef varan er í sem minnstun umbúðum og helst í engum. Upplýsingar á vörum skipta máli en ennfremur kaupi ég ekkert sem hefur of mörg innihaldsefni í innihaldslýsingu, þá er hún ekki hrein að mínu mati og ofunnin.
Bónus eða Krónunni. Ég er frekar vanaföst og versla oftast það sama. Þar sem er merkt lífrænt á ávöxtum og grænmeti heillar mig og ég kaupi það oftast.
Dags daglega í Krónunni, Bónus, Hagkaup og Vegan búðinni. Ég versla þær vörur sem eru á innkaupalistanum, reyni að forðast impulse kaup. Verðlag skiptir þó auðvitað máli og uppruni að einhverju leiti. Þegar kemur að unninni matvöru þá skiptir máli að hafa greinargóðar upplýsingar á pakkanum (t.d. til að forðast óvegan mat og líka til að geta valið hollari kost ef um fleiri en einn er í boði).
Ég bý úti á landi þar sem er ein Krambúð með óheyrilega háu verði. Ég versla mest í Bónus, Krónunni og Costco. Svo skreppur maður í Krambúðina dýru þegar allt ferska grænmetið er uppurið og mann vantar eitthvað smálegt. Þetta er svona mest það sama sem ég kaupi en það er alltaf til mikið af þurrvöru og dósavörum, og frostvöru. Verðlag skiptir máli og ég kaupi ekki vörur frá fyrirtækjum fv. Monsanto núverandi Beyern af pólitískum ástæðum. Svo vel ég lífrænt þegar það er í boði og íslenskt ef það er í boði. Ég les allar umbúðaupplýsingar í þaula. Eflaust hefur uppröðun í búð einhver áhrif á mig en ég kem samt oftast með það sama heim. Ég er sérfræðingur í að hundsa auglýsingar og tek lítið eftir þeim.
Versla í dag mest í Krónunni, það fást góðar vörur þar. Læt þær vörur í körfuna sem vantar. Verðlag skiptir nokkru máli, Uppruni skiptir etv ekki máli fer ekki eftir áróðri, Já etv má segja að upplýsingar vörunn skipti máli, uppröðun í búðinn læt ég sem minnst hafa áhrif á mig.
Dags daglega versla ég í helstu matvöruverslunum. Einstaka sinnum (ca 1x í mánuði) fer ég í sérverslanir (eins og Veganbúðina og asískar matvöruverslanir).
Vikuáætlunin / matarplan vikunnar ræður því hvaða vörur ég kaupi. Já, verðlag skiptir máli og uppruni. Mér finnst mikilvægt að vita hvaðan varan kemur sem ég kaupi auk þess sem ég reyni að versla matvörur sem búnar eru til sem næst mér.
Já, markaðssetning og auglýsingar hafa áhrif og ég kaupi oft nýjar vörur sem hafa verið auglýstar sem mér lýst vel á til þess að prófa.
Upplýsingar á pakkanum les ég iðulega ef ég er að kaupa vöru í fyrsta sinn.
Og ég er viss um að uppröðun í búðinni hafi nokkur áhrif þrátt fyrir að ég líti alltaf vel í kringum mig og vel oft vörur sem eru í neðstu hillu / ekki í sjónhæð.
Kaupi í stórmörkuðum og svo beint frá bændum innan fjölskyldu og einnig versla ég sumt annað beint. Verðlag skiptir máli en þó skipta gæði meira máli. Reyni að forðast tilbúna rétti og vörur sem eru mjög samsettar. Forðast sykur og kolvetni í matvælum. Markaðssetning skiptir litlu máli. Upplýsingar á vörum skipta máli. Veit ekki með uppröðun í búðinni.
Bónus 2x í viku og Costco 1x í viku.
Verðlag og uppruni vörunnar
Já, ég skoða tilboð frá þessum verslunum.
Já, upplýsingar á pakkningum.
Nei, uppröðun í búðinni skiptir ekki máli
Ég versla þar sem ég helst finn GF og LF vörur, t.d. Nettó, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Krónan.
Ég þarf ævinlega að lesa vel á allar pakkningar og vera frekar vel að mér í allskonar upplýsingum og tæknimáli. Verðlag og uppruni vöru skipta líka máli.
Ég reyni að versla mest í Veganbúðinni til að styðja við þau. Ég veit að sumar vörur eru ódýrari t.d. í Bónus eða Krónunni en ég vil frekar versla þær dýrar hjá verslun sem hefur sömu gildi og ég.
Ég hef það gott fjárhagslega en reyni samt að eyða minna en 50000 kr á mánuði í mat, þ.m.t. skyndibita. Ég fer aðra hverja viku í búðina og geri innkaupalista út frá vikumatseðlinum sem ég geri og hversu mikið ég mun vera heima þá vikuna.
Ég reyni að kaupa vörur sem eru Íslenskar og/eða með vottanir um gæði varanna, t.d. sjálfbærni og umhverfisáhrif.
ég kaupi helst íslenskt grænmeti og fisk. Það skiptir mig máli að sjá uppruna vörunnar.
Ég versla mest á netinu og læt senda heim. tvisvar í manuði stórar pantanir. Fer í búðina eftir smotteríi
Ég kaupi inn í lágvöruverslunum og fiskbúðum. Vel eftir gæðum en læt verðlag líka ráða. Vil helst velja vörur sem koma ekki of langt að. Skoða einnig út frá ferskleika, til dæmis grænmetis. Horfi ekki mikið á auglýsingar. Les á umbúðir, framleiðsludagsetningar og innihald.
Versla í “síðasta séns” körfum stórmarkaða oftast,
reyni að styðja við litlu búðina á horninu hjá mér m ýmislegt smálegt t.d mjólk í kaffið o.þ.h
Ég versla helst í stórmarkaði eins og Krónunni en reyni líka að fara reglulega í Veganbúðina til að styðja við reksturinn þeirra. Ég horfi í uppruna vara og reyni að taka tillit til kolefnisspor innkaupanna hverju sinni. Vel frekar lífrænt ef ég get - reyni frekar að kaupa minna en betra. Kaupi svo að segja bara íslenskt grænmeti og sleppi frekar að kaupa til að mynda paprikur þegar innlend framleiðsla er ekki í boði. Markaðssetning og auglýsingar skipta mig litlu og það sama gildir um uppröðun í búðinni.
Oftast í Bónus. Verðlag skiptir mjög miklu máli.
Geri oftast allt frá grunni er ekki mikið að nota unnin matvæli nema osta og mjólkurvörur.
Uppröðun uppruni upplýsingar á pakka og markaðssetningu spái ég ekki mikið í.
Krónunni
Verð skiptir máli, ég reyni að spara en líka að skoða hvort varan er Fair Trade, lífrænt ræktuð.
Pakkningar úr öðru en plasti (biodegradable er betra en gamaldags plast) pappír
Kaupi ekki vörur frá Ísrael.
Ef vantar upplýsingar á vöru þá kaupi ég hana ekki.
Stundum fæla auglýsingar frá... þoli ekki bull markaðssetningu eins og t.d. á vörum sem innihalda collagen (sem líkaminn getur ekki tekið upp)
Eflaust hefur uppsetning áhrif á mig án þess að ég veiti því eftirtekt, stundum er eitthvað sett fremst í ávaxtadeild sem ég ætlaði ekki að kaupa en kaupi af því ég sé það.
Reyni að kaupa vöru sem kemur úr nærsamfélaginu
Ég á alltaf egg, smjör og mjólk í ísskápnum mínum. Ég kaupi líka grænmeti, kjöt og ost þegar mig vantar og er alltaf með innkaupalista. Ferskleiki og umhverfissjónarmið skipta mig meira máli en verð þótt ég stoppi auðvitað alltaf hjá tilboðunum. Ég skoða t.d. alltaf hjá því sem er á síðasta séns þar sem ég þoli ekki matarsóun. Þumalputtareglan mín er að ef ég les aftan á pakkann og þekki ekki innihaldsefnin þá kaupi ég vöruna ekki ef ég mögulega kemst hjá því.
Auðvitað hljóta markaðssetning og auglýsingar að hafa áhrif á okkur öll og ég er eflaust ómeðvitað að kaupa eitthvað sem einhver sniðugur er búinn að lauma að mér að ég verði að kaupa. Hinsvegar veit ég líka að það er t.d. minna af sykri í Euroshopper bökuðum baunum heldur en þeim frá Heinz og það er alltaf innhaldslýsingin sem hefur úrslitavaldið en ekki vörumerkið.
Bónus og Krónunni. Uppruni og uppl. á pakkningum skiptir mestu en verð síðan
Ég versla helst í krónunni eða hagkaup því mér finnst þau hafa besta úrvalið upp á ferskleika. Ég reyni mitt besta að versla hreinar vörur og nota frekar krydd eða svoleiðis til að bæta þær vörur. Verðlag skiptir mig ekki mestu en upplýsingar á pakkningum er skilyrði, ég nenni ekki að fara yfir allan listann á pakkningum til að komast að hvort þær eru grænmetis "safe" eða ekki.
Ég reyni að velja árstíðabundin matvæli, ég reyni að velja lífrænt og íslenskt. Það sem ratar í körfuna er grænmeti, ávextir, baunir, heilkorna matvæli og jurtamjólk. Ég reyni alltaf að velja trefjarík brauð og forðast vörur sem innihalda alls konar e efni.
Yfirleitt alltaf Bónus, stundum Krónunni, Hagkaup eða Nettó. Auðvitað skiptir verðið máli. T.d. nota ég síður lífrænt ræktað því það er yfirleitt dýrara. Reyni að kaupa íslenskt.
´Kjörbúðinni. Hvað fjölskyldan borðar líka og verðlagið skiptir öllu máli.
Krónan. Vel alltaf íslenskt fyrst og það sem er ekki til íslenskt kaupi ég lífrænt. Pæli ekki mikið í verði.
Ég versla aðallega í Krónunni og Vegan búðinni. Stundum í Hagkaup og Bónus. Ég veit hvaða vörur mér finnst vera góðar og kaupi þær alltaf aftur og aftur. Ég reyni að hugsa um umhverfið þegar kemur að matvælakaupum og ef vörurnar eru merktar sem „grænar“ (þ.e. betri fyrir umhverfið á einhvern hátt) þá kaupi ég þær frekar.
Ég var hætt að kaupa grænmeti í pakkningum áður en Covid byrjaði og tók alltaf með mér mína eigin grænmetispoka. Eftir að Covid byrjaði þá kaupi ég frekar í umbúðum til þess að minnka áhættuna á smiti.
Ég ELSKA þegar vörur eru merktar á einfaldan hátt sem Vegan eða Vegetarian friendly, svo maður þarf þá ekki að lesa alla innihaldslýsinguna til þess að vera viss um að það sé í lagi fyrir mig. Krónan merkir t.d. vörur sem Vegan (man ekki hvort það sé merkt með litlu V hjá verðinu eða eitthvað svoleiðis) sem gerir innkaupin svo miklu auðveldari fyrir mann.
Ef vara er merkt á þennan hátt er miklu líklegra að ég kaupi hana heldur en ef það er óljóst hvort hún sé vegan/vegetarian friendly eða ekki.
Ég kaupi helst íslenskt ef það er í boði en annars horfi ég á hvort vörurnar séu merktar t.d. fairtrade eða með svansmerkinu. Ég kaupi t.d. mikið Gron balance vörurnar í Krónunni.
Ef uppruni vöru og framleiðsluferli er skýrt þá er líklegra að ég kaupi þá vöru heldur en einhverja aðra, svo lengi sem að hún er ekki margfalt dýrari en sambærileg vara sem er ekki merkt sérstaklega.
Versla yfirleitt í krónunni, fæ allt sem mig vantar þar.
Ég hef yfirleitt gert lista annað hvort skriflega eða í huganum og kaupi eftir því, það fer sjaldan eitthvað spontant ofan í körfuna en það gerist stundum.
Ég reyni að pæla í verðlagi eins og ég get.
Ég reyni að kaupa mest það sem er local þegar ég get en stundum er það ekki hægt.
Ég fylgist lítið með markaðsetningu og auglýsingum og upplýsingar á pakkningum ná sjaldnast athygli minni.
Ég hef voða lítið pælt í uppröðun í búðinni.
Krónunni
Innkaupalistinn minn ræður því og verðlag á vöru ásamt gæðum vöru
Versla oftast í Krónunni og Bónus. Veganismi, heilsa og hvað mig langar í hverju sinni ræður því hvað ég kaupi. Verðlag skiptir mig oft máli þó ég leyfi mér oft að versla dýrari vörur. Ég hef nýlega aðeins farið að spá í uppruna vara. Auglýsingar hafa auðvitað áhrif og upplýsingar á pakkningum smávegis. Uppröðun verslana stýrir ekki miklu.
Kaupi að öllu jöfnu í minni hverfisverslun. Það sem ratar í körfuna er það sem á að nota í matseld hvert og eitt sinn og þær almennu neysluvörur sem eru notaðar. Verð er ekki almennur ákvarðanakvarði. Uppruni hefur í einhverjum tilvikum áhrif, en markaðssetning og auglýsingar ekki. Kem í verslunina að öllu jöfnu með að gera ákveðin innkaup og læt það ganga eftir.
Haframjólk, brauð, baunir, ávexti og grænmeti, kaffi, bökunarvörur, dósamat og sósur, frosnar vegan vörur eins og vegan hakk, falafel bollur og oumph. Ég reyni að kaupa matvöru sem er innlend og ekki pökkuð í plast, og vel þá frekar vörur pakkaðar í pappír, pappa, ál eða gler. Ég kaupi ekki erlent grænmeti nema það sé í lausu eða í pappaöskjum eða slíku. Ég kaupi íslenskt grænmeti þó það sé í plasti af því að það er mjög sjaldan sem íslenskt grænmeti er selt í lausu. Ég kaupi frekar lífrænt ef það er hægt. Ég reyni þegar ég get að versla í búðum sem hafa umhverfisvæna stefnu og reyna að selja lífrænt og plastlaust eða án umbúða, eins og Frú Lauga, Veganbúðin eða Matarbúðin. Ég er tilbúin til þess að eyða meiri pening í það að kaupa plastlaus, umhverfisvænt og lífrænt af því að það er mér mjög mikilvægt.
Versla í Bónus, og kaupi það sem mig vantar, án þess að verð, uppruni, auglýsingar eða uppröðun í búðinni skipti mig nokkru máli.
Ég versla ekki daglega. Ég fer einu sinni í viku í Krónuna (tek stundum tímabil þar sem ég versla við Bónus). Svo fer ég í Melabúðina eða fiskbúðina við Vegamót ef mig vantar fisk eða vanhagar um eitthvað sérstakt.
Verð og gæði ráða því hvaða vörur enda í innkaupakörfunni. Maðurinn minn er sá hagsýni í hjónabandinu og hann lætur verð oftast ráða. Ég er veikari fyrir fíneríinu og hugsa meira um uppruna og upplýsingar á pakkningum. Ég þarf líka að passa upp á innihald vöru, að ekki sé mjöl í henni, en svo er mér líka meinilla við að miklum sykri sé akkað í hana.
Ég versla mest í krónunni og vegan búðinni. Ég horfi mikið á verð og uppruna vörunnar. Ég reyni að kaupa minna plast, t.d ef sama varan er í boði í plasti og án plasts þá vel ég án plasts.
1. Veganbúðin, 2. Krónan/Nettó 3. Hagkaup/Bónus og svo versla ég umbúðalaust í heilsuhúsinu eða nándinni þegar ég get það. Verð skiptir mig máli og meiri hluti innkaupakörfunnar eru á ávextir, grænmeti, baunir... En svo líka ýmist annað t.d. frosnar vörur, snarl, ... Ég reyni eftir fremsta megni að kaupa vörur frá góðum fyrirtækjum, versla t.d. ekki við fyrirtæki sem stunda mikið ofbeldi gagnvart dýrum (þ.m.t. fólki) eða jafnvel frá áhveðnum löndum (eins og Ísrael)
Versla mikið í Nettó og Hagkaup. Ég vel það sem mér líst best á og stundum kaupi ég tilbúna rétti.
Versla yfirleitt í krónunni og bónus. Kaupi alltaf íslenskt þegar það er til. Auglýsingar hafa áhrif. Kaupi lífrænt ef það kostar ekki mikið meira. Fer reyndar líka oft í nettó og kaupi lífræn frosin ber - vil hafa berin lífræn.
Ég versla venjulega í Krónunni, Nettó og Vegan búðinni. Einfaldlega vegna þess að þar fást vörurnar sem ég nota. Mest af því sem ég kaupi er ferskmeti og helst það sem kemur stutt að. En ég þarf líka að gæta þess að ekkert innihaldi viðbættan sykur eða aukaefni og það er flóknast. Lestur á innihaldslýsingum tekur mikinn tíma.
Versla mest í Krónunni, Bónus, Hagkaup, Veganbúðinni.
Ég og kærastan mín gerum plan fyrir kvöldverði vikunnar, skrifum niður það sem þarf í réttina og það ræður því hvað er verslað inn.
Verðlag skiptir að sjálfsögðu máli en við erum bæði í góðri vinnu með góð laun þannig það skiptir ekki höfuð máli.
Viljum helst kaupa íslenskt ef hægt er.
Við horfum ekkert línulega dagskrá í sjónvarpi þannig auglýsingar á Rúv eða stöð 2 eða öðrum slíkum stöðum hafa ekki áhrif á okkur (þar sem við sjáum ekki þær auglýsingar). Helstu "auglýsingar" sem hafa áhrif á okkur er ef einhver á Vegan Ísland facebook grúppunni póstar um eitthvað geggjað vegan úrval einhversstaðar, þá fer maður stundum og verslar þar til að prófa.
Upplýsingar á pakkningum skipta 100% máli, ef ég sé eitthvað sem er ekki vegan á miðanum þá fer varan ekki í körfuna mína.
Uppröðun í búð skiptir örugglega máli, en ég geri mér ekki grein fyrir því.
Versla í Krónunni á Hvolsvelli. Alltaf það sama sem fer í körfuna. Mjólk og mjólkurvörur. Brauðmeti. Laukur, tilbúnar sósur s.s majones. Hveiti og sykur o.þ.h. Yfirleitt allt íslenskt.
Ég versla í Krónunni eða Bónus. Gæði og verðlag ráða því hvað ratar í innkaupakörfuna. Undanfarið hafa markaðssetningar farið að hafa áhrif á það sem fer í körfuna: til að mynda hefur tveggja ára dóttir mín viljað fá Gurru Grís rúsínur. Síðan tek ég oft tyggjóið við búðarkassann.
Heimkaup, þykir best að versla á netinu til að koma í veg fyrir að keyptar séu óþarfa vörur, annars versla ég í Krónunni. Fer alltaf með lista og í búð sem ég þekki.
Matvöruverslun í heimabyggð
Það sem ræður mestu í innkaupum mínum er uppruni vörunnar og lífræn framleiðsla. Ég vil frekar kaupa 10-20% dýrari vöru sem er lífræn frekar en ódýrari vöru sem ekki er lífræn. Upplýsingar á pakkningum skiptir miklu máli. Auglýsingar hafa lítil áhrif á mína innkaupa hegðun.
Bónus, Nettó og Kostur. Veganbúðin er líka oft.
Úrvalið skiptir máli en verðlag minna. Innihaldslýsingar líka, forðast sykur og hvítt hveiti
Það fer í rauninni eftir skapi og einstaka sinnum verði en ég vel mér þá verslun sem ég veit að er ódýrari. Þá td krónan eða bónus í staði fyrir td hagkaup.
Ég borða og kaupi til dæmis mikið af pasta, osti, papriku, kartöflum, gúrku, gulrótum, próteinstykkjum, nocco, fisk, blómkáli, ab mjólk og múslí, ávöxtum, vegan hakki og baunum.
Markaðssetning vörunnar skiptir mig ekki máli en ég reyni að velja íslenskt frekar en erlent þegar ég get.
Ég versla langmest í Krónunni og Bónus. Ég spái lítið í lífrænan mat, aðallega því hann er ansi dýr, og reyni að halda mig í ódýrari vörum. Ég prófa iðulega nýja vegan kosti sem fjölgar nánast daglega, t.d. vegan hamborgara eða þvíumlíkt. Annars kaupi ég oftast svipaða hluti: grænmeti, stundum sojakjöt (t.d. oumph) og vegan mjólkurvörur, t.d. smjör og ost.
Kaupi mest í Bónus og vel íslensk matvæli, helst lífræn og án sykurs og bætiefna. Borða lítið eða ekkert unnin matvæli, eldum allan mat úr náttúrulegum hráefnum. Kaupi líka í Krónunni, Hagkaup og Melabúðinni. Mér finnst gott að versla í Bónus svo það er alltaf fyrsta val, m.a. vegna verðsins. Það er nokkuð merkilegt en mér finnst ávextirnir ekkert betri í dýrari verslunum, í raun eru þeir betri í Bónus því þeir eru geymdir í kæli þar, sem skiptir miklu máli, t.d. eplin eru þá köld og þannig haldast þau betur safarík. Samt hafa ekki fengist góð epli undanfarið, hvorki í Bónus né annars staðar.
Ég versla stundum í heimabyggð en oftast í nettó Glerártorgi. Einstaka sinnum í Costcó en þeir hafa oft lífrænar vörur s.s. hnetur og fl. Ég les oftast upplýsingar á pakkningum og reyni að velja lífrænt og sem fæst innihaldsefni. T.D ef keyptur er kjúklingur sem gerist orðið sjaldan þá kaupi ég aldrei vöru þar sem sprautað hefur verið salt/sykurvatin í hann, bara 100% kjúkling.
Mjög gott
Aðgengi að matarverslunum ágætt
Fæ flest allt sem ég þarf og mig langar að nota. Kaupi einstaka krydd erlendis sem ég fæ ekki hér og bý til mínar eigin kryddblöndur.
Það er þokkalegt aðgengi að mat fyrir mig þar sem ég bý.
Framboðið í matvörubúðinni í héraðinu er fáránlegt, þegar kemur að mínu mataræði. Ég get keypt 12 tegundir af jurtamjólk, en ekki eina af jurtasmjöri. Ég get keypt 68 tegundir af snakki, en ekki algengar tegundir fersks grænmetis. Hvað þá íslensks. En það er val verslunarkeðjunnar og ég virði það og versla annars staðar. Ferðast 100km til að versla í matinn.
Það sleppur til en væri mjög til í meira.
Það er mjög gott aðgengi að hráefni þar sem ég bý
Ég bý í Reykjavík og því er aðgengi mjög gott.
Alls ekki nógu gott. Þarf að hafa mikið fyrir þessu - og oft fæ ég ekki nauðsynjavörur lífrænar í almennum búðum. Veitingastaðir eru varla til sem nota lífræn hráefni - einn veitingastaður sem ég treysti og veit að eru 100% lífræn (Bíóborgari) en í matarbúðum er ég iðulega að þræða nokkrar búðir til að fá allt sem ég vil fá lífrænt.
Það er orðið miklu betra aðgengi en var googla mikið uppskriftir og renni yfir hráefni ef þetta hentar okkur þá er bara um að gera að prufa.
Vanalega mjög gott, stundum skortur á ákveðinni vöru vegna eftirspurnar en ég lít á það sem ákveðinn sigur að fólk sé farið að kaupa meita vegan þannig get ekki pirrast yfir því
Alveg þokkalegur - mjög fín fjölskyldurekin fiskbúið _ Bónus og Hagkaup hlið við hlið. En eins og ég segi rækta ég enn svolítið til að fá alveg nýtt, lífrænt grænt en það er hægt að fá miklu meira úrval í búðunum heldur en mér finnst skynsamlegt að vera að selja. Mjög framandi matartegunir og ávextir finnst mér tilheyra sínum eigin menningarheimi og með ferðalögum gætum við notið þeirra þar. En
þótt mér finnist einfaldleikinn skynsamlegur þá ætlast ég ekki til að öllum öðrum finnist það líka.
Gott
Gott
Mjög gott, bý miðsvæðis í Reykjavík
Aðgengið er fínt, mætti vera betra úrval af vegan kjöti í Bónus og Heimkaup
Vanalega keyrsla 10 mín
Mjög gott aðgengi
Mjög gott.
Aðgengi er nokkuð gott, allar daglegar neysluvörur finnast í nærumhverfinu.
Ég bý í Reykjavík og aðgengi að mínu mataræði er mjög gott. Það er auðvelt að finna valkosti í staðinn fyrir kjöt.
Aðgengið er mjög gott en þó mætti vera meira að fersku grænmeti.
Mjög gott, ég er mjög heppin og með gott bakland þegar kemur að því að fæðir mig og mína og klæða.
Ekkert svakalega gott en ég aðlaga mig. Ég bý í Grafarholti þar sem er bara ein Krónubúð og ekkert annað og hún er frekar lítil. Ég keyri mjög lítið svo ég fer bara í þessa krónu-búð nema í einstaka skipti sem ég nota bílinn til að fara í bónus. Það er ekki mjög mikið úrval í þessari krónubúð vegna þess hvað hún er lítil en ég er með uppskriftir á hringrás hjá mér sem ég get búið til úr vörunum sem fást þar.
Kom fram í svari mínu hér fyrir framan. Fjarðarkaup er verslun með afar gott úrval lífrænna matvæla, með fjölbreytt kjöt og fiskborð þar sem hægt er að kaupa kjöt og fisk eftir vigt.
Á Granda er auðvelt að fara á milli verslana í leit eftir vöru sem ekki fæst einni þeirra en kannski í þeirri næstu. Og fáist viðkomandi ekki úti á Granda má gefa sér að hún sé til í Melabúðinni. Og er síðan vel staðsett búandi í Reykjavík, stutt að fara út í náttúruna að tína sveppi og ber og í fjöru til að afla mér þörunga.
Nokkuð gott, í seinni tíð hefur framboð á kjötlausum vörum aukist töluvert hérlendis.
Mjög gott.
Gott.
Mjög gott
Stutt í fisksalann. Annað er lengra eða maður verður að versla í okurbúð (Krambúðin).
Mia gott eftir dögum, alla jafna þokkalegt
Það er gott, miku betra en fyrir nokkrum árum
gott
Það er mjög lélegt úrval í Nettó hér, þannig að sem betur fer er ég ekki á einhverju sérfæði, þá væri ég eflaust mjög pirruð.
Ekki gott almennt á Íslandi og verðið algjörlega út í hött.
Mjög góð.
Fínt aðgengi og úrval.
Gott, sérstaklega með tilkomu asísku markaðanna. Það er þó auðvitað alltaf dálítið leiðinlegt að sjá hversu takmarkað úrvalið er af grænmeti ræktuðu á Íslandi. Þegar keypt er mjög viðkvæm ferskvara (eins og t.d. aspas) sem þarf að flytja langar leiðir með flugi þá verður kolefnisfótsporið mun stærra en það þarf að vera. Það er einnig líka ömurlegt að það er varla hægt að fá íslenskt grænmeti sem er ekki pakkað í plast.
Það er eiginlega í fyrra svari.
Allt innan seilingar
Mjög gott aðgengi þar sem ég bý í Reykjavík.
Gott aðgengi. Stutt í bæði stórmarkaði og minni búðir.
Aðgengi er ágætt , verð að hafa bíl, næsta Bónusverslun er í 5 km fjarlægð
Ég geri mér far um að kaupa mat sem hentar mér, þegar ég er nálægt verslun sem hefur þessar vörur.
En að öðru leyti fer ég ekki verslun nema til að kaupa fisk og kjöt og það er alls-staðar hægt að nálgast þær vörur.
Mjög gott.
fínt
Það er ágætt.
Það fer bara eftir því hvað leynist í gámunum/afsláttarkörfunum hverju sinni.
Aðgengið er mjög gott.
Bara nokkuð gott nema mér finnst grænmeti og åvextir oft vera ansi daprir og oft skemmt.
Það er stappfullt af búðum í hverfinu mínu þannig að ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að fá ekki hráefni. Mér þætti hinsvegar til bóta almennt meira úrval af umhverfis- og dýraverndarvænni dýraafurðum (mjólk, kjöt, ostur o.þ.h.).
Gott aðgengi
Mér finnst aðgengi að grænkera vörum vera einstaklega gott. Þú getur fundið mat eða hráefni í nær öllum búðum.
Ég myndi segja mjög gott. Ég bý á höfuðborgarsvæðinu og get því fengið allt sem ég þarf í Vegan búðinni. Ég myndi vilja auka lífrænt grænmeti og ávexti. Ég sakna þess mjög að geta fengið mér vínber til dæmis.
Það er ágætt, en mætti vera betra
Ekkert kjötborð.
Mjög gott í Reykjavík, margfalt betra en þegar ég bjó á Akureyri.
Mjög gott, það er mikið úrval og létt fyrir mig að kaupa í matinn. Þetta hefur breyst svakalega mikið á seinustu ca. 3 árum, áður fyrr var þetta erfiðara.
Aðgengi að mat og hráefnum er mjög gott þar sem ég bý.
Æðislegt, bý á höfuðborgarsvæðinu
Verulega gott. Bý td mjög nálægt vegan búðinni.
Mjög gott aðgengi
Það er eins gott og það verður held ég. Ég bý miðsvæðis í Reykjavík þannig að það er stutt fyrir mig að fara í sérverslanir og auðvelt fyrir mig að velja vegan vörur og umhverfisvænni kost í stórmörkuðum.
Mjög gott, þar sem stutt er verslanamiðstöð í mínu hverfi.
Ég held ég verði að segja að það sé býsna gott.
Það er fínt, mun betra eftir að vegan búðin kom til sögunnar og svo er vöruúrval að aukast með hverjum deginum!
Bara flott :)
Það er mjög gott.
Mjög gott.
Ég bý í Reykjavík, svo það er orðið ágætt. Kemst þó eðlilega ekki í hálfkvisti við úrvalið í London þar sem ég bjó áður og maður gat fengið allt beint frá býli og heim að dyrum.
Mjög gott aðgengi, margar búðir í nágrenni sem er hægt að flakka á milli ef hráefnið finnst ekki í einni af þessum búðum.
Mjög gott.
Ég get alltaf nálgast þann mat sem ég vil borða - þegar að ég vil borða.
Mjög gott.
Ekki alveg nógu gott en fer batnandi
Aðgengi að hollum og lífrænum vörum og grænkeravörum er mjög gott og hefur sífellt aukist á umliðnum árum.
Gott og fer batnandi
Ég bý í reykjavík og á bíl þannig að það er í raun ekkert sem skertir aðgengi mitt að þeim mat sem ég vil kaupa og elda.
Það er mjög gott og verður sífellt betra.
Mjög gott, mikið úrval verslana á svæðinu, en þó ekki í göngufæri í dagsins önn.
Það hefur verið frekar lélegt og dýrt en 50 km. eru í betri búðir.
Ég hef ekki mikinn áhuga á matargerð en matur er mikilvægur í lífi mínu og ég elska að borða góðan mat. Ég ver þó litlum tíma í að hugsa um og laga til mat en prófa nýjar uppskriftir kannski 2-3 í mánuði. Bý þó aldrei til mínar eigin.
Hugsa mis mikið um mat eða matargerð, frekar leiðinlegt að ákveða hvað á að vera í matinn daglega. En stundum gaman að elda eitthvað fínna.
Hef talsverðan áhuga á matargerð og nota mikið af nýjum uppskriftum i hverjum mánuði. Mest uppskriftir frá Miðjarðarhafslöndum, bæði norðan og sunnan hafsins. Leiðist verulega að borða vondan mat. Bý oft til matseðil fyrir vikuna til að nýta hráefni sem best og til að fækka búðaferðum. Hugsa um mat og hvað eigi að vera í matinn daglega. Fylgist með nýjum uppskriftum hjá uppáhalds kokkunum mínum. Breyti oft uppskriftum og bý til mínar eigin.
Ég hef frekar mikinn áhuga á matargerð og er núna mikil mat-elskandi, sem var ekki raunin áður en ég varð vegan. Ég les mikið af uppskriftum, prufa sumar og breyti eftir mínu höfði. Stundum vildi ég óska að ég gæti borðað meira svo ég geti eldað allt það sem mig langar til.
Elda á hverjum degi, elska góðan mat, finnst gaman að prófa nýtt. Ver amk einum klukkutíma á dag í að elda.
Ég tek tímabil þar sem ég hef mikinn áhuga og prufa mikið nýtt og svo önnur tímabil þar sem ég væri helst til í taka pillu til að verða södd, þeas nenni ekkert að hugsa um mat eða hafa fyrir honum. Það sveiflast líklega með því hversu mikið er að gera hjá mér og mögulega lok aeftir árstíðum, nenni meira af öllu að vori og sumri
Ég vil eyða eins litlum tíma og ég kemst uppmeð í eldamennsku. Ég er svo heppin að þar sem ég vinn er boðið uppá mjög flottan grænmetimat á góðu verði
Ég lifi ekki til þess að borða, ég borða til að lifa. Alltaf verið þannig. Hins vegar er það þannig að ég verð auðveldlega hangry og því þarf ég að halda rútínu á þessu: morgunmatur, millimál, hádegismatur, millimál, kvöldmatur, millimál/nasl. Ég finn ekki upp mínar eigin uppskriftir en finn á netinu og aðlaga stundum að því sem ég á til. Ég geri eiginlega aldrei sama kvöldmatinn tvisvar (eflaust ADHD'inu að kenna). Ætli ég eyði ekki um klst í kvöldmatinn en geri stundum meira í einu og geymi í frystinum fyrir þá daga þar sem ég hef ekki tíma eða nennu í eldamennsku.
Áhugi minn á matargerð hefur aukist eftir að ég fór að pæla í lífrænum mat. Fyrir 10 árum pældi ég ekkert í mat, borðaði það ódýrasta og pældi ekkert í innihaldi, litarefnum eða hvaðan maturinn kom. Hann birtist mér bara í búðinni e-n veginn. Í dag finnst mmér jög gaman að prófa nýjar uppskriftir - og ég eyði tíma í mat og matarpælingar þó ég sé bara frekar mellow í þessu. Hef líka aðeins farið að pæla meira í samsetningu á innihaldi..... mitt fyrsta skref að breyta matarræði var semsagt bara borða lífrænt (sama hvort ég er að borða súkkulaði, gos og annað) - svo var það umbúðir og minn akjöt en núna er ég líka farin að kynna mér næringarsamsetningu - en alltaf út frá lífrænum vörum.
Fólki mitt verður frekar leitt á því að borða það sama og við erum 5 þannig að maður reynir að prufa nýja hluti til þess þau verið ekki leið á hlutunum, við maðurinn minn eldum 3-4 sinnum í viku til skiptis en eldum mikið og reynum að hafa afganga daginn eftir, honum finnst samt mun skemmtilegra að elda en mér og nennir allskonar sem ég nenni ekki eldar t.d. alltaf jólamatinn sem tekur BARA 2 daga að gera, en er t.d. búin að þróa sína eygin fyllingu. Hugsum í raun allt of mikið um mat þannig lagað
Er mjög léleg að elda en ég reyni samt alltaf, finnst gott að elda mikið í einu og frysta því ég er i 100% master og 50% vinnu þannig hef lítinn tíma i að pæla í mat.
Ég hafði mikinn áhuga á matargerð en aðal áhugamál mitt er forn matargerð í okkar eigin heimshluta allt frá steinöld og ég safna bókum um það efni og þá helst frá Þjóðminjasafninu danska en þeir gefa út rit og sinna þessu. Ég hef, eins og fram hefur komið, minni áhuga á að vera að elda austurlenskan mat eða eitthvað framandi - heldur njóta þess í eigin heimkynnum. Ég hef lifandi áhuga á t.d. því sem Eggert Ólafsson skrifaði um matargerð og eins rannsóknum Hallgerðar Gísladóttur um íslenska matargerð á öldum áður. Smáréttir hafa hjálpað okkur til að gera meira sinnt og endurvakið ýmsilegt gamalt og smálegt hvað þetta varðar. Varðandi erlenda matargerð hallast ég þó mest að Frökkum sem fyrirmynd.
Mikinn áhuga og unað að útbúa mat. Er með ýmsar uppskriftir í hausnum sem ég nota oftast og einstaka sinnum leita ég að nýjum uppskriftum. Var mjög fljótur að elda á tímabili en hægði svo á því til þess að njóta þess betur svo, svona sirka hálftíma í hverja máltíð.
Engan áhuga
Mjög mikinn áhuga og bæði ég og maðurinn minn erum dugleg að prufa okkur áfram við matargerðina
Ég hef mjög mjög mjööööög mikinn áhuga á mat og ætlaði lengi að verða kokkur en ég fór frekar í viðskiptafræði. Ég ver miklum tíma í að hugsa um mat en það hefur samt dregið úr áhuga samhliða barnauppeldinu þar sem börnin mín eru ekki miklir sælkerar (ennþá)
Sæmilegan ahuga
Hef fremur mikinn áhuga á matargerð og bakstri. Rækta eigin súr og kryddjurtir.
Finnst gaman að gera grænmetis útgáfur af kjötréttum.
Matur og matargerð er mér mikilvæg og áhugaverð.
4-5 kist fara í matargerð og neyta matar á dag, u.þ.b.
Iðulega prófa ég nýjar uppskrifir og aðlaga eldri með nýjum hugmyndum.
Gott að borða góðan mat en sjálfur er ég ekki mikill kokkur þótt ég taki það verk alveg að mér. Ég lifi ekki fyrir mat, bara á honum. Hugsa frekar lítið um mat, þó gaman stundum að horfa á matreiðsluþætti. Er ekki mikill grúskari í matreiðslubókum. Oftast er gripið til einvhers sem hefur verið gert áður.
Ég hef ekki mikinn áhuga á matargerð og eyði ekki miklum tíma í að hugsa um eða laga mat. Mér finnst samt gaman að borða góðan mat.
Ég er ekki áhugamanneskja um mat né matargerð né matar uppskriftir. Maturinn sem ég elda tekur um 10-15 mín.
Ég elska mat og matargerð og hann skiptir gríðar miklu máli því hann er stórt áhugamál, en ég hef þurft að slaka aðeins á áhuganum í gegnum tíðina til að forðast öfga og að matur verði ekki stýriafl í lífi mínu. Ég elda flest frá grunni og er mjög dugleg að gera tilraunir. Reyni að elda í töluverðu magni nokkrum sinnum í viku og borða afganga lon og don. Ég kaupi alla jafna ekki mikið af skyndibita og ef ég geri það, sem koma tímabil af þegar t.d. rútínan fer úr skorðum, þá leitast ég við að velja hollan og/eða vegan skyndibita.
Mjög mikinn áhuga held ég. Mér finnst samt ekki brjálaðslega gaman að elda en ég geri það út af mér finnst matur góður og mig langar að borða næringarríkan mat.. myndi aldrei nenna að lifa á brauði og take-away mat alla daga.
Ég eyði því töluverðum tíma í að hugsa um mat. Ég reyni að plana hvað ég ætla að borða alla daga svo það sé ekki jafn erfitt að finna eitthvað þegar ég er orðin svöng. Ég eyði alveg 2 tímum á kvöldin í að útbúa og borða kvöldmat held ég.. og svo er ég oft með eldaðan hádegismat líka. Mér finnst gaman að prófa nýjar uppskriftir en yfirleitt nenni ég ekki að fylgja uppskriftum svo það er eitthvað spari fyrir mér að prufa nýjar uppskriftir. Er samt alltaf að prufa að setja nýja hluti í uppskriftir sem ég kann.. eða "uppskriftir" út af það er yfirleitt bara eitthvað sem ég hugsa upp sjálf og geri örugglega aldrei nákvæmlega eins..
Ég hef gríðarlegan áhuga á mat og matargerð. Á hundruð bóka með mataruppskriftum, fer líklegast aldrei eftir uppskrift en fæ hugmyndir og prófa mig áfram. Matarhefðir fjarlægra þjóða finnast mér spennandi, þær segja mér svo mikið um menningu þeirra.
Eyði skelfilega miklum tíma í matarinnkaup og þó fyrst og fremst í eldamennsku. Veit ekki hve miklum tíma en aðeins morgunmatur tekur eilífðartíma hjá mér. Held ég gæti ekki útbúið og borðað morgunmat á styttri tíma en hálftíma. Þá fer náttúrulega mikill tími í að sækja sér mat í náttúruna og ganga frá honum. ´Nú orðið frysti ég ber og nota eftir hendinni, Sveppi frysti ég en þurrka einnig ásamt þörungum.
Prófa mig áfram, mistekst oft og man aldrei hvað gekk vel og hvað illa. Hálfgert tilraunaeldhús.
Töluverðan áhuga. Matur skipar töluverðan sess í mínu lífi sem og eldamennska. Ég eyði kannski klukkutíma á dag. Hef gaman af að prófa uppskriftir, finna upp mínar eigin og aðlaga uppskriftir og gera tilraunir.
Ég eyði einhverjum tíma í að skoða uppskriftir og prófa nýtt. Mér finnst gott að borða mat en hversdagslega er þetta oft mikið Maud og barnið fær oft fkesr einfaldan mat.
Mjög lítinn og borða bara til að lifa. Eins litlum tíma og ég get og er ánægð að geta borðað í mötuneyti svo að ég þurfi ekki að elda handa mér einni. Það líka erfitt að fá litla skammta í búðum. Nei ég nota gamlar uppskriftir og slekk á sjónvarpinu þegar það eru matreiðslu þættir í þvi
Já mjög mikinn áhuga
Matur er mikilvægur, mjög
Miklum í að hugsa um mat, minni í að laga hann og neyta
Mjög gaman að prófa nýar og finna upp
Matur er undirstaða vellíðunar. Það er gaman að elda og svo er fátt eins róandi og að sjóða t.d. saltað, reykt folaldakjöt eða annað í nokkra tíma og vita af matnum gera sig og maður þarf eki að hafa neitt fyrir honum. Það hlýtur að flokkast undir velsæld að geta búið við slíkt.
Hef mikinn áhuga á mat og matargerð, skoða mikið uppskriftabækur og wyði ábyggilega allavega 2 klst á dag í að græja mat og borða mat. Elska að prófa eitthvað nýtt.
Ég hef mikinn áhuga á mat og matargerð. Matur er mikilvægur þáttur hjá mér. Það er mismunandi hvað mikill tími fer í matargerð og mér finnst mjög gaman að prófa nýjar uppskriftir,
Bara eitt það mikilvægasta. Maður er jú lítið annað en það sem maður borðar
Mikinn áhuga og hef jafnframt gaman að því að búa til nýjar uppskriftir og finna nýjar leiðir til að nýta matinn betur. Matur er þó fyrir mér fyrst og fremst næring en einnig samvera með fjölskyldu bæði við undirbúning og neyslu eins og ritual eða helgisiður sem sameinar fjölskylduna.
Alveg ágætur áhuga og ég get tímabil þar sem ég legg metnað í nýjar uppskriftir, en stundum er það bara hefðbundið fjölskyldulíf og máltíðir sem hafa vinningin.
Ég hef mikinn áhuga á mat. Mér finnst mjög gaman að elda, prufa nýjar uppskriftir og sérstaklega gaman að fara út fyrir uppskriftir: blanda saman fleirum en einni og gera hlutina dálítið eftir mínu eigin höfði.
Ég hef mikinn áhuga á mat og matargerð og það er mikilvægt í lífi mínu. Ég pæli mikið í næringarfræði og ólíku hráefni. Ég eyði kannski ekki miklum tíma i að hugsa um mat þannig séð, en ég er góður kokkur og elda úr ólíkindalegasta hráefni. Ég kíki oft á uppskriftir til að fá hugmyndir en á erfitt með að fara eftir þeim í einu og öllu. Í langflestum tilfellum elda ég bara eitthvað sem mér dettur í hug eftir skapi og lagerstöðu hráefna og einungis fáir réttir hafa nafn og eru borðaðir reglulega. Annars bara spilað af fingrum fram.
Hef ekki sérstakan áhuga á mat, en hann er mikilvægur til að halda áfram að draga andann, eyði ekki miklum ´tima í þessi mál. Googla oft á netinu eftir skemmtilegum uppskriftum og prófa að þær, kemur fyrir að ég bregði út af uppskriftinni.
Matur skiptir mig miklu máli. Mér finnst mikilvægt að orkan sem ég innbyrði sé góð og að maturinn sem ég borða sé lagaður af alúð og kærleika. Ég hugsa nokkuð um mat, þá sérstaklega að elda hann þar sem mér finnst mjög gaman að lesa uppskriftir, aðlaga þær að mínu mataræði og finna nýtt bragð í eldhúsinu mínu. Ég er mun meira fyrir það að elda minn mat heldur en að kaupa hann tilbúinn. Mér finnst maturinn minn yfirleitt mjög góður.
Hef talsverðan áhuga á mat og matargerð og við bæði hjónin. Mjög mikilvægur þáttur í lífinu. Nota ca 1 til 2 klukkutíma á dag í að matast og að útbúa og ganga frá. Hef gaman að nýjum uppskriftum.
Ég er áhugamaður um mat og mataræði, ég sé um eldamennskuna á heimilinu og þaarf því að skipuleggja hvað verður í matinn t.d á morgun og svo framvegis
Mjög mikinn áhuga og er stórkostlega mikilvægur í mínu lífi. Mikill tími fer í undirbúning, spekúlasjónir og matarupplifun alla jafna.
Ég les uppskriftir en fer yfirleitt frjálslega með í ljósi aðstöðu minnar.
Ég hugsa mikið um mat og nýt þess að elda. Ég elska að borða góðan mat. Ég geri alltaf vikumatseðil til að vita hvað ég ætla að elda út frá vöktunum mínum, skólanum, hvað ég á til í búrinu og frystinum og hversu miklum tíma ég mun vilja eyða í matargerðina.
Ég eyði örugglega meirihluta dagsins í að hugsa um, laga og neyta matar. Ég nýt þess mikið að taka 1-3 klukkutíma í að elda kvöldmat og dunda mér við það.
Ég hef mjög gaman að því að prófa nýjar uppskriftir og gera þær að mínum eigin með breytingum eða jafnvel "veganæsa" þær. Mér finnst gaman að horfa á myndbönd og þætti af fólki að elda, jafnvel þótt það sé verið að elda dýraafurðir en þá reyni ég að hugsa um hvernig ég gæti gert uppskriftina vegan.
elska að elda og myndi vilja hafa meiri tima fyrir það
Ég hef eldað mat í 57 ár og eyði minni tíma en áður í matargerð, finnst nú orðið mikilvægast að seðja hungur. Áður fyrr var ég mikið fyrir að prófa uppskriftir en gerði svo tilraunir út frá þeim. Nú bý ég þær aðallega til eftir hendinni og finnst ég vita nokkuð vel af reynslunni hvað passar saman.
Hef ekki mikinn áhuga að standa í fæðuöflun og eldamennsku, en get og kann að elda góðan mat úr litlu/handahófskenndu. Góður matur er mikilvægur fyrir mig, líður illa ef ég borða lélegan mat, kann virkilega vel að meta að vera boðin í mat.
Hef yfirhöfuð lítinn áhuga á mat og matargerð. Borða vegna þess að ég þarf að nærast, ekki út af því að mér þyki matur svo sérlega góður. Hugsa ekki mikið um matseld en er engu að síður orðin duglegri við það í seinni tíð - það er auðvelt að veganæsa flestar uppskriftir og held mig þar.
Frekar mikinn og tel hann mikilvægan og myndi svara öllu með jái.
Ekki mikinn áhuga, borða til að lifa (lifi ekki til að borða) Matur og matargerð sem áhugamál finnst mér mjög neysluhyggjulegt og vestrænt ofneyslu-samfélagslegt... sem stystum tíma ca. 2 klst á dag er max.
Ég hef samt gaman af að prófa nýtt - sulla gjarna saman einhverju frumlegu ef ég nenni.
Ég rækta á sumrin eigin kryddjurtir og tómata (hef gert í nokkur ár), var með garð í gamla daga og smá ræktun 2-3 ár.
Matur er mannsins megin! Ég er svona foodie og hugsa þ.a.l. rosalega mikið um matargerð og eyði alveg drjúgum tíma þegar ég get í að elda. Það veitir mér líka yfirleitt ánægju að dunda mér í eldhúsinu við að galdra eitthvað spennandi fram. Á virkum dögum tekur eldamennska yfirleitt ekki mikið lengri tíma en 1 klst. en um helgar er gjarnan hægeldað.
Hef ágætis áhuga á mat og matargerð. Eyði stundum ágætis tíma í matargerð.
Ég hef mikinn áhuga á mat og matargerð. Er samt alltaf að læra eitthvað nýtt. Mér finnst ekkert betra en að borða góðan mat.
Ég hef mjög mikinn áhuga og það er klárlega eitt af mínum áhugamálum að matbúa, skoða uppskriftir og prufa nýtt. Það er oft djókað mikið í fjölskyldunni að Hrefna sé á staðnum sínum, eldhúsinu.
Matur er mjög mikilvægur í lífinu mínu og fjölskyldunnar minnar. Það skiptir mig miklu máli að dóttir mín fái góða næringu. Eftir að við breyttum um mataræði þá hætti hún að þurfa að fá astma púst daglega og bakflæðilyf. Einnig varð hún sjaldnar veik.
Mikinn áhuga en hef ekki áhuga á að eyða of miklum tíma í matargerð. Það er gaman að prófa nýjar uppskriftir og stundum bý ég til mínar eigin útgáfur
Hef mikinn áhuga en finnst all mikill tími fara í matargerð. Prrófa stundum nýjar upp skriftir eða nota bara mínar.
Mikinn áhuga á mat og matargerð. Eyði of miklum tíma í að pæla í mat og borða. Prófa oft nýjar uppskriftir eða bulla eitthvað sjálf.
Ég hef mikinn áhuga á matargerð og finnst gaman að elda góðan mat. Ég vil að hann sé hollur og góður, dýravænn og umhverfisvænn eins og hægt er. Einnig vil ég að hann sé gerður frá grunni eins og hægt er.
Ég eyði í kringum 30 mín-1,5 klst á dag í að gera kvöldmat en það fer samt alveg eftir því hversu upptekin ég er þann daginn. Ég eyði minni tíma í t.d. hádegismat en þá borða ég yfirleitt eitthvað fljótlegt eins og afganga frá kvöldinu áður eða jógúrt með ávöxtum og múslí.
Ég prófa oft nýjar uppskriftir og aðlaga oft uppskriftir þannig að þær henti mér betur. Ég hef breytt mörgum kjötuppskriftum sem ég borðaði áður en ég varð grænmetisæta og sett grænmæti eða baunir í staðinn fyrir kjöt.
Ég hef mjög gaman af því að elda og prófa mig áfram í eldamennsku, mér þykir það mjög róandi og gott.
Matur er mjög mikilvægur í mínu lífi, ég eyði miklum tíma í að hugsa um mat, laga han og neyta. Ég horfi mikið á efni sem tengist mat og matargerð.
Ég hef gaman af því að prófa nýjar uppskriftir og set yfirleitt mitt spinn á þær ef það er eitthvað sem mig langar að breyta.
Mikinn áhuga
Matur er mér mjög mikilvægur
Megnið af deginum mínum, elda mikið af áhuga og borða mikið
Já, finnst gaman að prufa nýtt og búa til nýtt
Hef mjög mikinn áhuga á matargerð og eyði líklega um þremur tímum á dag að jafnaði í að undirbúa mat og borða. Ég er mikill sælkeri og ástríðukokkur. Er mikið að leika mér í eldhúsinu að búa til uppskriftir og elska líka að prófa nýjar.
Hef mikinn áhuga á matargerð og er mitt helsta áhugamál og matur því mikilvægur - að jafnaði fer ein klst. í þetta á dag.
Ég hef mjög mikinn áhuga á matargerð. Ég elda og baka mikið frá grunni. Ég hugsa mikið um mat, hef gaman af því að prófa nýjar uppskriftir og bjóða fólki í mat.
Hef ekki mikinn áhuga á mat eða matargerð.
Konan mín sér að mestu um matseld á mínu heimili, og matur er ekki mikilvægur í mínu lífi.
Matur skiptir mig miklu. Ég er frekar mikil stofuplanta, þarf helst að borða á þriggja tíma fresti. Ef ég borða t.d. ekkert í þrjúkaffinu er ég komin með flensueinkenni kl. 17. Mér finnst gaman að elda og að prófa eitthvað nýtt, en enn meira gaman að láta góðan kokk elda ofan í mig (eins og manninn minn). Matmálstímar eru mér heilagir og ég vil borða í friði og spekt. Mér þykir hreint og beint gaman að borða.
Ég geri mér hins vegar enga grein fyrir því hversu miklum tíma ég eyði í umhugsun um mat. Hún hlýtur þó að vera nokkur.
Matur er stór partur í mínu lífi, ég nýt þess að elda, bjóða fólki í mat og fara út að borða. Ég elska að prófa nýjar uppskriftir og þróa þær þannig þær verði að mínum uppskriftum.
Ég hef mikinn áhuga á mat :D og elda mikið, gæti alveg hugsað mér að verða kokkur. Finnst skemmtilegra að elda en að borða (leiðist það stundum). Ég eiði oft tíma í að hanna uppskriftir (mest bara í huganum).
Alltaf haft áhuga fyrir mat og. Prófa nýtt. Enn meira eftir að ég varð ein í heimili.
Hef mikin áhuga á öllu sem viðkemur mat. Finnst gaman að elda og gera mínar eigin uppskriftir.
Mjög mikilvægur. Ég hef alltaf haft áhuga á mat og matargerð, en nú held ég úti vefsíðu sem heitir PurelySigga.com eða Sæluréttir Siggu. Hún er með uppskrifum sem ég hef þróað fyrir fólk í sömu stöðu og ég er í - en líka fyrir þá sem vilja bæta grænmeti í mataræðið og hugsa um hvað þeir setja ofan í sig.
Sækist ekkert sérstaklega í matargerð en finnst samt sem áður mjög notarlegt að elda, ákveðin hugleiðsla og stund með sjálfum sér sem getur verið yndislegt. Ég reyni að eyða sem minnstum tíma að spá í mat eða ákveða hvað ég eða fjölskyldan þurfum að borða, reynum þessvegna að plana matseðil út vikuna.
Við erum mjög dugleg við að prófa nýjar uppskriftir, eldum vanalega eftir uppskrift á hverju kvöldi og reynum að velja alltaf eitthvað nýtt.
Ég hafði almennt lítinn áhuga á matargerð. En eftir að ég fór að rækta mitt kjöt sjálf jókst áhugi á að nýta skepnuna betur, hirða allan innmat, svíða hausana, gera kæfu. Nýta eldri ær sem þarf að slátra í bjúgu og hangikjöt o.þ.h. Gamlar aðferðir við geymslu matar hafa vakið áhuga minn, ss söltun og súrsun.
Mér finnst ekkert sérstaklega gaman að elda. Ég kann að búa til hitt og þetta en kýs þó oftast að hafa matinn frekar einfaldan.
Ekki sérstaklega mikin áhuga á matargerð en skoða mikið uppskriftir og hef áhuga á næringarfræði og slíkum pælingum.
Frekar mikla
Hef mikinn áhuga á mat og matargerð almennt, matur er mikilvægur þáttur í mínu lífi. Matartímar eru mikilvægir og er orðin snar þáttur í menningarlífi fjölskyldunnar.
Er lítill kokkur
Ég er ekki mikið í því sjálf að eyða miklum tíma í að elda og fer þá frekar í að elda auðvelda rétti, eins og til dæmis allskonar pastarétti.
Það koma tímabil þar sem mér finnst gaman að prófa nýjar uppskriftir.
Mér finnst mjög gaman að elda þótt ég eldi ekki heima á hverju kvöldi. Ég elda talsvert af asískum mat en líka mexíkönskum og ítölskum. Oftast tekur mig ekki mjög langan tíma að elda en mér finnst þó gaman að leggja mikið í eldamennskuna og hafa fjölbreytt meðlæti. Ég reyni að vera dugleg að prófa nýjar uppskriftir og baka líka talsvert.
Mikinn áhuga, finnst gaman að elda, gaman að prófa uppskriftir. Til dæmis hef ég engan áhuga á skyndimat, kaupi í raun aldrei slíkt, því ég skil ekki þessa hugsun, skyndimatur! Mér finnst óhugsandi að flýta mér að redda mat og skutla honum ofan í mig! Þá vil ég nú frekar bara kaupa mér góðar hnetur eða eitthvað annað hollt, en annars tek ég alltaf nesti með mér í vinnuna, annað hvort afganga eða bara soðið egg og grænmeti. Það er síðan mikil slökun að koma heim eftir vinnudag og elda góðan og næringarríkan mat, sérstaklega grænmeti í alls konar útgáfum það er veisla.
Hef mikinn áhuga á mat og matargerð. Elska að prófa nýjar uppskriftir og hafa matarboð.( Ekki gengið vel í Covid). Held að það fari minnst 2-3 tímar dag hvern í innkaup, umhugsun og matartilbúning. Svo fer tími í að rækta og hugsa um plönturnar.
Gott bragð og ilmur er mikilvægast, svo áferð.
Ferskt hráefni skiptir mestu máli
Ferskt hráefni, mátulega eldað með góðu og fjölbreyttu kryddbragði, fallega fram borið og lystilegt að sjá.
Úfff... ætli það sé ekki mikilvægast að maturinn sé bragðgóður, með góðri áferð, alls ekki eitthvað mauk.
Góður matur er ferslur, bragðmikill, seðjandi og fallegur. Alls ekki vanmeta fegurð mats. Ég til dæmis held að fæstir ætu hrútspunga ef þeir væru ekki formfallegir.
Ferskleik!
Mér finnst mjög mikilvægt að matur líti vel út að áferðin sé falleg því ég borða líka með augunum
Erfitt að segja. Fyrir mér er mikilvægt að mauksjóða ekki matinn, hvort sem er pasta eða baunir eða hvað annað. Hann verður samt að vera mjúkur undir tönn ef maður er á annað borð að sjóða. Ofnbakað grænmeti eða tófú þarf einnig að ná ákveðni stigi bökunar til að höfða til mín og fara þarf sparlega með olíu. Helst þurfa kantar að vera smá brúnir. Finnst gott ef matur er pínu spicy. Lykt skiptir ekki öllu máli, en ef hún er vond, þá er maturinn eflaust vondur. Útlit skiptir mig líka litlu máli.
Að þetta sé alvöru matur = ekkert vatnsbragð (sem er mikið af mat sem ekki er ræktaður í lífrænni mold) - eldaður með alvöru hráefnum og krydd ekki notuð eingöngu heldur ertu að finna bragð af matnum sjálfum - af hráefnunum sjálfum.
Auðvitað þarf þetta allt að vera gott bragð, lykt útlit, samt summar kássur/gúllas að fá nein útlitsverðlaun en er mjög gott á bragðið, en það eru fyrst og fremst innihaldaefni sem skipta máli þa getur þú byrjað að spa í hinu.
Fyrst og fremst að hann bragðist vel og að áferðin sé góð. Útlit og lykt skipta líka máli en ekki jafn miklu fyrir mér, t.d. er vegan parmesan mjög góður en lyktar hrikalega.
Allt þetta en einkum og sérílagi að hráefnið sé gott. Ef það er verður maturinn aldrei leiðigjarn þótt
tilbreyting sé lítil hverja árstíð fyrir sig. Það skiptir máli að fjölskyldan sameinist við máltíðina og hún sé ótrufluð og því einmitt að ræða aldrei leiðinlega, viðkvæma eða erfiða hluti við matarborðið - það er samverustund og hún á að sameina og næra. Fallega framborinn matur eykur á ánægjuna. Hins vegar er tilgangslaust að pína nokkura manneskju til að borða það sem hún ekki hefur lyst á. Maturinn á að vera til ánægju úr því við búum í landi þar sem er ekki skortur. Og fyrir það má vel þakka.
Ferskleiki, margslungið bragð, litadýrð.
Hungur
Bragð og áferð aðallega og hvort maturinn sé rétt eldaður (ekki of lítið eða mikið)
áferð, sambland af bragðtegundum. Lykt skiptir minna máli finnst mér
Bragð
Gott bragð og heillandi lykt skipta mestu.
samsetning hráefnanna og leyfa hverju þeirra að njóta sín, ekki spurning um fjölda þeirra heldur að eiginleikar þeirra komi fram. Skynfærin öll skipta máli: sjón, lykt, brag, útlit og áferð.
Gott hráefni, bæði aðalréttur og meðlæti. Gott að hafa góða sósu með. Allt hefur áhrif, lykt bragð og útlit. Ekki gott að lenda á seigum kjötbita eða bein- eða brjóskbita í hakki.
Það sem einkennir góðan mat er góð lykt og bragðgott. Áferð á mat er líka mikilvæg
Fyrir mér skiptir máli að maturinn sé frekar venjulegur. Að þótt ég borði grænkerafæði, þá vil ég ekkert bara borða rauðrófur og gulrætur, heldur borða ég ennþá hamborgara, pylsur og meira að segja steik.
Góður matur er matur eins og ýsa í raspi eða góður pastarétturþ Bragdaufur matur er mér að skapi.
Ferskleiki, rétt eldun, rétt áferð - sama hvað það er. Góð krydd og ástríða kokksins sem eldar skín alltaf í gegn og er mjög mikilvæg að mínu mati.
Hmm veit það ekki. Mér finnst hollusta í mat oft einhver sér skynjun.. bara að vita að í matnum sem ég er að borða er þetta og hitt næringarefni eða ekki þetta og hitt slæma efni finnst mér gera hann betri en annars. Litur finnst mér líka skemmtilegur.. t.d. er þorramatur einstaklega ógeðslegur vegna þess að allt er grátt...
Önnur krydd en salt og pipar finnst mér líka mikilvægt í góðum mat.
Útlit skiptir miklu máli! Hollusta líka en hún má ekki ganga á bragð. Fjölbreytni lífsnauðsynleg. Matur þarf eiginlega að búa að öllum þessum einkennum. Fallegur, hollur, bragðgóður, lokkandi lykt, góður undir tönn. Af reynslu get ég staðhæft að með þörungum sem krydd náist einstök bragðgæði.
Sterkt bragð og fjölbreytt. Einföld áferð.
Alltsaman! Léttur bragðgóður og sterkur matur, mikil og fersk brögð og góð áferð.
Bragð og lykt
Bragð, hráefni, félagsskapurinn, ferskleikinn
Að hann er óskemmdur þegar á að fara að nota hann. Að rétturinn líti vel út og lykti vel og örfi meltingarkirtlana. Svo er ekki verra að manni verði gott af matnum.
Allt ofantalið. Gott bragð, áferð, útlit, lykt og líka næringargildi
Ég er almennt hrifin af öllum mat, nema kjöti auðvitað
bragðið
Hreinleiki, ferskleiki, hollusta, þó ég geti líka vel hámað í mig gamla íslenska matinn við hátíðleg tækifæri.
Einfaldleiki og samsetning máltíðar útfrá næringu og innihaldi.
Ferskleiki, úrval og fjölbreytni
Hann þarf að vera bragðmikill. Krydd þurfa að vera í réttum hlutföllum og oft einhver chili-hiti. Áferðin má ekki vera of einsleit og maturinn þarf að vera litríkur og fallegur á að horfa. Maturinn þarf að vera ferskur og helst smá bit í grænmetinu (þó það fari algjörlega eftir grænmeti, uppskrift og stemningu).
Mér finnst þetta allt skipta máli. Fjölbreytni í samsetningum og krydd skipta miklu máli. Þá finnst mér áferð skipta máli líka, t.d. ef maður er með eitthvað mjúkt eins og dahl þá þarf að vera eitthvað sem er hart undir tönn með til að vega upp á móti kássunni, þétt brauð eða ristaðar hnetur. Útlit er líka talsvert og mér finnst ferskt krydd ofan á og ristuð fræ og hnetur oft gera punktinn yfir i-ið.
Góður matur hefur gott bragð útlitið skemmir ekki
Bragðið verður að vera rétt samsett og ilma vel. Áferðin skiptir mig ekki öllu máli. Mér finnst gaman að leggja fallega á borð (þó það sé mánudagur) og bera matinn fram á huggulegan hátt. Logandi kerti í eldhúsinu við matargerð finnst mér notalegt sem fer síðan á eldhúsborðið þegar snætt er. Ferskleiki skiptir mig líka máli, t.d. í salati.
Gott bragð og ferskleiki. Útlit skiptir minna máli.
Ferskleiki, útlit og gott krydd.
Bragð, lykt, áferð, útlit og ekki síst félagsskapur við matargerð og meðan á máltíð stendur.
Það er mismunandi hvað einkennir góðan mat hjá mér, en það sem ég aðallega get tengt er að góður matur lætur mig vilja dansa smá þegar ég borða hann.
góð krydd, bragð og útlit
Hann er fallegur, hefur ferskt yfirbragð og er samsettur úr mörgu. Margir litir og áferð. Og svo er auðvitað nauðsynlegt að hann bragðist vel.
Litríkur
Að hann sé bragðgóður lykti vel og hann se fallega borinn fram
Ferksleiki er aðaðlatriði, ekki mikið steikt eða brasað. Bragð fái að njóta sín en líka ef er verið að nota krydd að blanda ekki öllu saman.
Gott hráefni er auðvitað lykilatriði. Litur segir mér líka mikið. Ef matur er litríkur þá finnst mér strax að hann sé hollari en drapplitaður maður.
Bragð, lykt, útlit og hollusta
Ég pæli lítið í útliti á góðum mat en bragð, lykt og áferð skipta mig miklu máli.
Öll þessi atriði skipta máli, það þarf að passa upp á bragðið. Alltaf að nota matvæli í hverja máltíð sem inniheldur umami bragð - eins og laukur, hvítlaukur, soja sósa. Það þarf líka að passa upp á sýruna í matnum. Útlit skiptir gríðarlega miklu máli þvi að við borðum með augunum.
Að hann sé ekki mjög feitur og ekki of sterkur
Að hafa gott og ferskt hráefni.
Gott bragð er það mikilvægasta, ekki of bragðlaus.
Mér finnst að það þurfi að krydda grænmetismat almennilega og mér finnst mikilvægt að það sé góð áferð á matnum. Ég t.d. borðaði aldrei ákveðnar tegundir af kjöti vegna þess að mér fannst áferðin svo skrítin. Ég á erfitt með að borða Tófú útaf áferðinni. En mér finnst flest grænmeti hafa góða áferð.
lyÞað sem einkennir góðan mat að mínu mati er bragð, áferð og útlit. Lykt hefur ekki mikil áhrif því mér þykir hún ekki segja allt.
Jafnvægi bragða (salt, sæta, sýra)
Áferð matar
Best er ef matur er bragðmikill og ekki eintóna hvað varðar áferð. Lykt og útlit getur alveg gert upplifunina skemmtilega en skiptir ekki mestu máli
Gott bragð, jafnvægi í upplifun, litur, þ.e. hafa mismunandi liti á því sem fer á diskinn - ferskleiki og hollusta.
Sterkt bragð, ríkt bragð. Sæt sætindi og bragmiklir seðjandi eldaðir réttir.
Það sem einkennir góðan mat er gott hráefni,matreitt af fagmennsku og girnilega borið fram.
Góður matur er bæði bragðgóður, litskrúðugur og lyktar vel.
Að það sé skemmtilegt að borða hann, til dæmis tacos, hrísgrjónavefjur eða sushi, maturinn sé bragðgóður og vel kryddaður. Það fer rosalega eftir mat hvernig hann á að vera kryddaður þannig það er erfitt að segja frá því í skrifuðu máli.
Mér finnst gaman að blanda mjúkum mat með smá stökku hráefni, til dæmis hrísgrjónavefjur með fersku grænmeti.
Mér finnst líka skipta máli að maturinn líti vel út, þar sem þú borðar líka með augunum. Þannig skemmtileg framsetning getur skipt miklu máli.
Það fer svo mikið eftir því hvað þú ert að gera (: en það er endalaust hægt að leika sem með mismunandi kridd og áferðir til þess að gera nákvæmlega það sem þér langar
Að manni líði vel af honum og auðvitað les ég innihaldslýsigarnar
Gott hráefni, að maturinn sé litríkur einfaldur og fallegur
Ferskleiki og samsetning kryddtegunda. Mér finnst líka mikilvægt að það sem ég borða ilmi vel og sé fallegt.
Veit hreinilega ekki hvernig ég ætti að svara þessari spurningu, vel kryddað, hæfilega saltað en ekki of mikið?
Finnst kolvetnaríkur og saðsamur matur æðislegur.
Ferskleiki. Að vita hvaðan maturinn kemur og hvernig hann var unninn. Það er mjög ánægjulegt að borða mat sem maður hefur sjálfur aflað og unnið.
Góður matar bragðast vel og lyktar ekki illa.
Bragð og áferð.
Útlit og bragð
Það sem einkennir í mínum huga góðan mat er ferskleiki, gæða hráefni, eldunaraðferð, fallegt útlit og góð lykt, áferð skiptir líka máli.
Mjög erfið spurning og fer í raun alveg eftir því hvað ég er að borða. Finnst útlitið skipta minnstu máli þegar ég er að elda sjálf en hins vegar gríðarlega miklu máli þegar ég panta mat á veitingastað
Minn uppáhaldsmatur er bragðmikill, helst aðeins sterkur, litríkur, og hefur fjölbreytta áferð.
Fjölbreyttur matur, alls konar grænmeti, baunir, fiskur og ég elska hollar sósur. Góður matur er hollur, bragðgóður og best er að gefa sér tima til að borða og njóta. Elska líka hnetur og gróft korn.
gott bragð þar sem hráefnin fá að njóta sín án þess að kafna í kryddi. Fjölbreytt áferð og litríkt útlit finnst mér best.
Ég kaupi bæði ferskvöru og unnar vörur og fyrir mér snúast gæðin um að framleiðsluaðferðir séu góðar og velferð starfsfólks tryggt.
Kaupi frekar ferskar vörur, mjög sjaldan unnar kjötvörur. Skoða alveg viðbætt efni þegar ég kaupi unnar vörur.
Vil helst ferska vöru, með fáum innihaldsefnum (kaupi ekkert sem er með fleiri en 5 innihaldsefnum), engum bragðbætandi efnum og helst engum rotvarnarefnum.
Ég kýs helst hráefni sem eru sem minnst unnin en vel þó líka alveg unnin matvæli inn á milli.
Lítið unninn, heimafenginn, heimaeldaður, ferskur og gjarnan íslenskur matur.
Ég hef algjöra óbeit á gerfibragði í mat, t.d. gerfi jarðarberjabragði og melónubragði.
Ég reyni að horfa á það já sem mest en það kemur alveg unnið með því það er svo einfalt og oft eru börnin ekki til í hvað sem er
Vil helst ekki að vara sé ofmikið unnin og ég vil helst ekki of mikið af aukaefnum
Gæði í mínum huga er ferskleiki, sem fæst hráefni í innihaldslýsingu og vottuð með svansmerkingu, blóminu eða öðrum umhverfisstöðlum.
eins hrein og hægt er - eins lítið unnið og hægt er og eins lítið af viðbættum efnum og hægt er.
Reyni að kaupa lítið unnar vörur, einnig þar sem við borðum kjöt reyni ég að spá í hvernig líf viðkomandi dýr hefur átt. Kaupum bæði lamb og folaldakjöt af bændum sem við þekkjum og borðum mest af þvi. Borða helst ekki svínakjöt, stelst reyndar stundum til að borða beikon en annars er það eitthvað sem ég myndi ekki velja mér bæði út af velferð dýrsins og bragði. Brúneggjamálið varð samt til þess að maður ber mun minna traust til eftirlitsstofnanna en áður
Pæli ekkert rosa mikið í því, ferskt er alltaf bragðbetra en stundum er það ekki í boði
Ferkleiki fyrst og fremst eða þá nærgætnisleg geymsla svo sem frysting eða þurrkun. Mjög fersk
og góð hráefni eru venjulega þannig að þau þarf ekki að krydda - þau hafa sitt eigið bragð. Þessi
mikla kryddmenning stafar að hluta af því að fæðan er ekki fersk.
Fersk og færri viðbættum efnum en fleiri.
Ferskleiki skiptir máli og að hún sé ekki uppfull af aukaefnum og mikið unnin
Ferskar vörur, ekki mikið unnar (nema þá vegan kjötlíki)
Fylling , protein og bragð
Pæli ekki svo mikið í hvort varan sé unninn dagsdaglega.
Þykir gervikjöt frekar vont og vil ekki finna kjötkeim af matnum mínum. Þá gæti ég allt eins bara borðað kjöt.
Ferksleiki þeirra skiptir fyrst og fremst máli, og sem minnst af aukaefnum eða viðbættum efnum.
Vel frekar fersk matvæli, lítið unnin og þá helst með sem minnstum viðbættum efnum. Krydd eru þó notuð við matseldina.
Ég borða ekki unnin mat og helt ekki skyndibita.
Hrein matvæli, helst fersk.
Já ég held að ég vilji mun frekar ferska vöru frekar en unna. Finnst ég ekki vera með jafn flottan kvöldmat þegar ég er með ferskan fiskrétt heldur en þegar ég er með eitthvað unnið sojakjöt. Ég held samt að gæði fyrir mér sé næringarinnihald.
Ferskleiki grænmetis og fisks ræður gæðum míns mataræðis.
Helst fersk og með litlum viðbættum efnum.
Fersk matvæli er oftast best en það skiptir líka máli hvernig þau eru unnin, sursað grænmeti finnst mér til dæmis æði. Ég hef ekki alltof miklar áhyggjur af viðbættum efnum þar sem svoleiðis er ekki stór hluti af mataræðinu.
Fallegt útlit, góð lykt og fersk
Góðar fitur
ferskleiki
vel síður unnar afurðir
Er ekki með neina sérstaka dynti, bara ferskt og gott.
Hrein matvæli, helst fersk og engin viðbætt efni
Eina sem skiptir mig máli er að það séu engar kjötvörur í honum, og extra plús ef hann er vegan
sé í dýrar´+ikinu
Út með allt viðbætt!
Hún verður að vera hrein og ekki verra ef hún er fersk en einnig er mikilvægt að hafa í huga að margt er nýtilegt þó það sé útlitsgallað og/eða ekki glænýtt og forðast að henda nýtilegum mat.
Ég er hrifin af ferskum matvælum og reyni að sækja meira í það en mikið unnar vörur.
Ferskur matur er alltaf betri en annar matur. En oft er gott að kaupa unna vöru eins og hakk eða einhverja sojabita og gera uppskriftir sem minna á kjötrétti sem maður naut áður (borgara, lasagna, osfrv.).
Gæða matvæli eru hrá upprunaleg hráefni, baunir, bygg, hrísgjón, mjöl í bakstur, ferskt eða frosið ómeðhöndlað grænmeti. Engin aukaefni og ekki unnið. Vissulega nota ég samt unnar vörur, t.d. er soyasósa og næringarger í mörgum mat, kryddblöndur og grænmetiskraftur. Unnin matvæli eru svo með svona til tilbreytingar, vegan pulsur, oumph, soyjahakk og falafel.
Kaupi nú yfirleitt ferskt kjöt og fisk já er ekki mikið fyrir viðbættum efnum.
Gæða matvæli eru þau matvæli sem ég elda frá grunni. Já, ég vel ferskt grænmeti, sneiði hjá unninni matvöru og reyni að halda viðbættum efnum í lágmarki.
Ferskar matvæli og lítið eða ekkert unnin eru best.
Já.
Fersk matvæli, helst ekki unnar matvörur (nema einstaka s.s. hráskinka og fl í þeim dúr ) og ekki skemmir að vera matur úr héraði.
Svo er heimaræktun á grænmeti og berjum svo og tínsla á villtum berjum, sveppum og fl.
Ég reyni að nota frekar ferska vörur, eins og baunir og grænmeti en ég nota líka alveg unnar vörur.
Ég hugsa ekki mikið um viðbætt efni nema til að athuga hvort varan sé vegan. En ef varan sem mig langar í er laus við aukaefni þá er það bara plús.
fersk
Ferskleiki skiptir mestu málin. Fiskur, grænmeti, ávextir, hnetur, baunir. Ég forðast að mestu unnar vörur með viðbættum efnum.
Innlend framleiðsla, helst ekki verksmiðjuframleidd.
Ég er hrifnari af minna unnum mat en nota þó talsvert af tilbúnum soja- eða baunaafurðum (s.s. hakk, birtar etc) sem grunn við matseld
Reyni helst að nóta fersk matvæli með sem minnstum viðbættum efnum.
Ferkst. Borða helst ekki mikið unnin matvæli.
Varan þarf að vera fersk og með eins fáum aukaefnum og mögulegt er.
Ferskleiki og hollusta
Mér finnst best að nota sem ferskar vörur og ég get.
Fersk matvæli eða frosin. Ég kaupi til dæmis oft frosið lífrænt grænmeti og ávexti sem er mjög gott því að matvælin eru fryst þegar þau innihalda bestu gæðin næringarlega séð.
Varan þarf ekki að vera nýkomin í verslanir, en samt í lagi. Vil síður viðbætt efni
Forðast viðbætt efni.
Fersk vara frá Íslandi er alltaf best í mínum huga, lífrænt ferskvara þar á eftir. Kaupi sem minnst með viðbættum efnum.
Já, ég vil að vörurnar séu sem minnst unnar og með viðbættum efnum. Ég vil helst gera matinn minn frá grunni en það er oft ekki tími til þess að gera allt frá grunni þannig ég vel að hafa ákveðna hluti tilbúna, t.d. tortilla kökur, naan brauð og pizzasósu, einfaldlega vegna þess að ég hef ekki tíma til að gera allt frá grunni.
Ég reyni alltaf að velja vörur með sem minnstum sykri og salti í, t.d. kaupi ég bara niðursoðnar baunir sem eru ekki með neinu viðbættu salti eða sykri (Biona organics merkið í Krónunni t.d.).
Gæða matvæli að mínu mati er fersk vara sem er lítið unnin og lítið að viðbættum efnum.
Sem minnst unnin
Já, neyti eins lítið og ég get af unnum vörum
Ég kýs minna unnar vörur þó svo að ég borði líka unnar vörur.
Vinna matinn að mestu frá grunni. Ferskleiki mjög mikilvægur og nota mjög sjaldan unnin matvæli - nema það sé einhver sérstök vinnsluaðferð sem gerir vöruna sérstaka.
Lífrænar vörur eru að mínu mati gæðavörur, fair trade vörur og íslensk umhverfisvæn framleiðsla. Svo þarf bara að huga að því að borða næringaríkan mat, hvort sem hann er ferskur, frosinn eða hvað.
Grænmeti og fiskur þarf að vera fersk, og hvað varðar kjötvörur, þá falla óunnin matvæli best að mínu mataræði.
Mér finnst miklu skipta að matur sé ferskur, að maður ráði sjálfur hvernig bragðið af honum verður. Ég er ekki hrifin af mikið unninni matvöru með miklum viðbótarefnum. Mér finnst slíkur matur hreinlega ekki bragðgóður. Yfirleitt er eitt bragð ráðandi og frekt í slíkum matvælum og það þoli ég illa.
Ég reyni að velja eins ferska vöru og hægt er. Ég nota grænmeti mjög mikið og reyni þá frekar að búa til eitthvað öðruvísi úr því. Því færri hráefni sem eru í vöru því betri gæði er hún að mínu mati.
Þætti voða gaman að fá fjölbreyttara úrval af íslensku grænmeti og ávöxtum svo baunum og allskonar!
Skiptir miklu máli, ferskur og lítið unninn
Fersk og óunnin matvara er best að mínu mati.
Ferskleiki og að varan sé án aukaefna.
Gæða matvæli eru matvæli sem eru sem minnst unnin og með sem minnst af viðbættum efnum.
Ferskleiki, jafnvel þótt maturinn sé unninn þá veit maður nákvæmlega hvernig hann var hanteraður og geymdur.
Helst þarf maturinn að vera eins ferskur og kostur er. Ég reyni að gefa dóttur minni góðan og hollan mat og sýni gott fordæmi með því að borða hann sjálfur.
Sem mest af ferskri vöru án aukaefna.
Nógu ferskt
Gæða matvæli í mínum huga eru ferskar afurðir úr héraði og lífrænt ræktaðar afurðir.
Fersk er betra
Mér finnst ferskar vörur auðvitað mest heillandi en fjárhagur háskólanema leyfir það því miður ekki alltaf.
Best er þegar grænmetið er sem ferskast og kemur t.d. úr íslenskum gróðurhúsum. Ég borða þónokkuð af unnum mat en hann er þó ekki endilega óhollur, t.d. oumph, sem er fyrst og fremst úr sojabaunum.
Lífræn, hrein og íslensk, það er toppurinn á öllu.
gæða matvæli eru þau sem eru sem minnst unnin eða bætt í aukaefnum. Fersk og lífræn ef mögulegt er.
Hef ekki breytt neinu neitt sérstaklega nema þá að í dag hef ég meiri efni á að kaupa betri mat en áður fyrr.
Nei ekkert nema kannski væri gaman að geta smakkað hangikjöt einu sinni á ári. Þoli ekki saltpétur sem sett er í reykta og saltaða matvöru.
Það er í rauninni ekkert sem ég sakna en það tók mig um ár að hætta að hugsa um ostana. Borða núna nokkrar tegundir af vegan ostum og er alsæl.
Já, osta. Þeir gera mat oft mun bragðbetri og fyllri.
Osturinn líklega helst því það er ekkert sem kemur í stað hans og börnin mín sætta sig ekki við vegan ost
Ég sakna einskins
Sakna ekki neinna fæðutegunda, en sakna kannski fáfræðinnar minnar. Ignorance is bliss.
Nei ég sakna mjög fárra hluta - nema það sem ég ekki get fengið lífrænt í dag..... vegna þess að það sem ég borða ekki í dag veit ég að margt af því líður mér ekki vel af - ef ég drekk kók, borða ekki lífrænt súkkulaði o.s.frv. þá finn ég vanlíðan - þannig ég sakna ekki þeirrar tiflinningar - þó það hafi komið fyrir mig dreymi um ákveðið bragð - þá veitir það mér enga ánægju að borða það í dag.
SÚRDEIGSBRAUÐ, sakna þess mikið, það er bara frábærlega gott á bragðið og í raun ekkert sem kemur í staðinn fyrir það, baka mitt eigið brauð úr glútenlausu haframjög og chiafræ og eitthvað þannig það er svona allt í lagi en það er alltaf barningur þannig lagað hvað á ég að borða er það er ekki elduð máltíð.
Ekki lengur eftir að það kom á markað vegan ostasnakk.
Ég held upp gamlan og íslenskan mat - innan marka þó. Nú vitum við að saltreiðin mýveska og
laufabrauðið eru ekki endilega góð fyrir meltinguna en þá er spurning að fá sér aðeins bragð sem forrétt og því er ég hrifin af franskri kokkamennsku því hún leyfir slíkt. Sama gildir t.d.um hangikét - reyni ekki að fá mér "væna flís" en það þýðir ekki að smásneið sem hreyfir við bragðlaukum og minningum sé í banni.
Kannski slátur
Stundum langar mig í pylsur og hamborgara. Það sem kemur í staðinn er bara ekki sambærilegt
Neiii í rauninni ekki..
Nammi
Nei nema kannski nautasteik úr öðru hverju.
Á ekki við.
Ég hélt ég myndi sakna nautakjöts og súkkulaði en það kom mér á óvart að sú er ekki raunin. Það er mjög gott úrval af súkkulaði þannig það er aldrei vandamál, og ég sakna nautakjötsins ekki neitt þar sem ég hugsa ekki lengur um það sem mat. Það eina sem ég sakna virkilega, er lax. Ég get ekki fundið neitt sme líkjist lax í áferð og bragði, og það er ennþá matur sem ég sakna.
Já ég sakna nautasteikur en það gaf ég upp á bátinn vegna magavesens
Nei get í rauninni ekki sagt það. Það var fiskur áður en ég fór að borða hann aftur og ostar, en núna eru komnir svo góðir mjólkurlausir ostar að þetta er easy peasy.
Lengi vel var það pylsur og ég veit ekki alveg afhverju út af þær eru viðbjóður þegar maður pælir í því. Það var samt einhver svona skyndibiti sem maður gat fengið sér allstaðar.. allir staðir allstaðar á landinu voru með pylsur og þær voru svo skömmustulega góðar og engin vegan vara hefur getað líkst þeim. Einhverntíman mun ég líka hætta að borða ost, og ég veit að ég mun sakna hans út af hann er góður og auðvelt hráefni til að gera annan mat betri.
Það sem hefur horfið úr mataræði mínu hefur farið vegna ess að mig langaði ekki í það lengur
Nei.
Nei
nei
Get ekki svarað þessu, et n ánast allt.
Nei
Nei
er aðalmataræðið
Sakna einskis. Ég er ekki heilög og get vel borðað ólystugir hvítt spagettí með börnunum í leikskólanum. En það er nú bara þannig að þér finnst það ekki lystugt þannig að ég tek bara litla skammta.
Skyr með rjóma, ég gat lifað á því heilu dagana.
Nei ég held barasta ekki. Það eru komnar svo margar góðar vörur sem minna kjöt og slíkt að það er alltaf hægt að gera frábærar vegan útgáfur af gömlum uppáhalds réttum. Það er kannski einna helst að það þurfi að þróa vegan ost meira til að geta gert góðar pítsur eða grillaðar samlokur, en þó hafa verið miklar framfarir þar undanfarin ár.
Nei
Á ekki vit
Alls ekki.
Sakna aðeins hafragrauts og ávaxta svo sem banana.
Nei, ég er laus við magaverkinn.
Nei ekkert sem ég man eins og er.
Ég sakna aðallega kúaost því það er mjög auðvelt að finna góðan og jafnvel ódýran kúaost í hvaða búð sem er. Það er mun erfiðara að finna góðan vegan ost og í mörgum búðum er lítið úrval og oft bara vondir vegan ostar til. Það eru til góðir og fínir (fancy) vegan ostar í veganbúðinni en þeir eru mun dýrari en kúaostar.
nei
Ekkert. Ég hélt að ég myndi sakna þess að borða ekki lambasteik, en það var ljóst frá fyrsta degi að ég sakna einskis. Hins vegar bætti ég ostunum við af því að ég saknaði þeirra. Nú er þetta alveg eins og ég vil hafa það.
Stundum fæ ég löngun í eitthvað salt og óhollt, t.d steiktar pulsur og kartöflustöppu. Held ég sé þreytt á þeim stundum.
Ég átti í upphafi erfiðast með að segja skilið við osta og egg en ég sakna þeirra ekkert í dag. Mataræði snýst um venjur og hefðir. Við þekkjum ákveðin brögð og áferð á mat og eigum í sumum tilfellum erfitt með að venjast nýjungum (bragðið af ólífum vafðist til að mynda lengi fyrir mér því ég var orðin fullorðin þegar ég smakkaði þær fyrst).
Nota yfirleitt allt sem mig langar en reyni að takmarka sykur og hveiti svona dags daglega.
Já, kartöflur og brauð, sem mér fannst gott. T.d. baguette, snjóhvítt brauð, nýtt með brakandi skorpu. Mér fannst þetta gott. (Sakna örsjaldan rauða kjötsins)
Í raun og veru ekki.
Nei ekkert, hef enga löngun í fyrra mataræði
Eiginlega ekkert.
Nei, ég bara get ekki sagt það. Fyrst um sinn fannst mér erfitt að fá mér ekki kúaost. Núna finnst mér svo vond lykt af kúaosti eins og lyktarskynið sé að segja mér að ég eigi ekki að borða þetta.
Nei
Að geta valið úr úrvali á veitingastöðum og þurfa ekki að pæla í því eins og núna.
Nei, eiginlega ekki. Það eina sem ég sakna er að geta ekki keypt tilbúnar samlokur í matvöruverslunum, það er eiginlega aldrei til vegan/grænmetissamlokur. Þær eru yfirleitt alltaf búnar og ef þær eru til þá eru þær annað hvort með vegan kjöti, sem ég vil ekki borða, eða með eggi sem ég vil heldur ekki borða.
Ég sakna þess líka að borða túnfisksalat en ég elskaði það áður en ég varð grænmetisæta. Ég er alltaf að leita að salati sem myndi virka í staðinn fyrir túnfisksalat.
Ég sakna stundum að borða kjöt og þá sérstaklega þegar ég finn lykt af grilluðu kjöti. Þá stundum langar mig að borða það.
Nei, ekkert
Nei.
Lítil breyting - ekki innihald, meira spurning um að draga úr magni
Já, ég sakna sjávarrétta Mér hefur alltaf fundist þeir mjög góðir en það er ekki til neinar vegan útgáfur af sjávarréttum. Það er til vegan beikon og hakk og allt það en ekkert sem kemur í staðinn fyrir rækjur eða túnfisk.
Ég sakna stundum mjólkurafurða eins og t.d. skyrs og súrmjólkur, sem ég nota minna nú en áður, þar sem ég borða aldrei morgunmat.
Ég sakna vitaskuld brauðs. Ég hreinlega elska brauð enda er það svo áberandi í matarumhverfi okkar.
Nei alls ekki, sem hefur komið mér smá á óvart en það er svo sem búið að veganæsa flest allt sem mig dettur í hug. Auk þess er ekkert sem ég má ekki borða, ég vel það sjálf að borða það ekki.
Nei (ojj)
Mjólk og rjómi, en mér verður svo illt af því.
Nei
Ekki lengur.
Sum súkkulaði stykki t.d. eins og Þristur. Afhverju? Afþví það er mjög gott á bragðið haha.
Ekkert, man ekki eftir öðru mataræði og sakna aldrei óhollustu eins og t.d. sætabrauðs sem ég borðaði meira af.
Nei
Sakna einskis úr fyrra mataræði.
Nei
Nei. Hef ekki fundið fyrir neinu sérstöku crave-i í eitthvað sem ég borðaði áður.
Nei, ég get ekki sagt það. Einstaka sinnum hugsa ég um reyktan lax en vegna þess hve ákveðin ég er í siðferðissjónarmiðum mínum hefur mér aldrei dottið í hug að „svíkja lit“ - það er einfaldlega ekki þess virði.
Nei
Enginn söknuður.
Ég elda heima 4-6 sinnum í viku og hef ekki fundið fyrir þvi´að það vanti serstök áhöld eða tæki
Elda yfirleitt á hverju kvöldi. Góðir pottar og pönnur og góðir hnífar eru mikilvægir hlutir
Daglega yfirleitt. Elda þó oft tvöfalldan skammt og á þá auka máltíð í frystinum sem er mjög þægilegt stundum. Þarf ekkert sérstakt umfram það sem venjulegt er í eldhúsum, góða hnífa, góða pönnur og potta, tréáhöld, rétt hæð á vinnuborði og þokkalegt vinnupláss. Nota sjaldan rafmagnstæki við matreiðslu nema töfrasprota við súpugerð.
Ég á mjög gott eldhús sem er fullt af góðum tækjum og tólum. Ég á t.d. hrærivél, gaseldavél, pizzaofn, airfrier, matvinnsluvél, blandara, töfrasprota, steypujárnspönnur og potta. Þetta átti ég allt áður en ég varð vegan en ég er duglegri að elda og nýta mér tækin mín núna. Það er ýmislegt sem ég gæti alveg hugsað mér að bæta inn í eldhúsið svo sem hraðsuðupott en hann tekur pláss sem ég er ekki til í að fórna.
Á hverjum degi. Ég þarf ekkert sérstakt, nema til að kæla eða hita mat.
Við maðurinn minn skiptist á, flesta daga er eitthvað eldað en mismikill metnaður. Vil alltaf eiga til baunir, hafra, haframjólk og ferskt grænmeti.
Ég elda þegar ég á frí
Um 4-5x í viku. Inn á milli eru frystimáltíðardagar. Ég nota hefðbundin áhöld, ásamt blandara, hrærivél og matvinnsluvél. Mér finnst best ef ég er með vinnupláss upp á 120 cm og svo aðra 120 cm af plássi fyrir stóru tækin. Uppþvottavél er nauðsynleg.
Við fjölskyldan eldum flest kvöld í viku. Mér finnst mikilvægt að eiga blender og matvinnsluvél - til að geta gert hollar lífrænar kökur. Ég hef einnig losað mig við flest plastáhöld í eldhúsinu.
eldum 3-4 sinnum í viku til skiptis hjónin, jurtarjómi, mjörlíki og kaldar sósur sem ekki innihalda mjólk eða korn þarf að vera til staðar í eldhúsinu og hrein matvara t.d. ekki smjörsprautað eða reykt eða eitthvað þannig
Svona 3-4x í viku. Þarf aðallega bara 2 potta, hníf og skurðarbretti og þá er èg góð
Ég reyni að elda allt heima og held svolítið upp á Marokkanska leirdiska með loki til að elda í - þótt ég vilji vera þjóðleg. Eins hef ég gefið í nefndri bók uppskrift að mat fyrir einn. Taka stóran disk og raða á hann ýmsu smálegu úr ísskápnum - mest ólíku grænmeti, ólífum, tómötum osti eða kotasælu en hita allaf eitthvað með - hrísgrjón, kartöflur, kjötbita eða fisk ... Þarf bara einn pott. Enfalt en skemmtilegt.
Á hverjum degi. Allavega þegar ég er að ferðast þá tek ég eftir því að það er mikilvægt að hafa beittan hníf og gott bretti og góða pönnu eða bara pott. Þarf að vera til olía og talsvert magn af kryddi.
Á hverjum degi. Ég þarf ekki mikið, tvo potta, pönnu, skurðarbretti, góða hnífa, flysjara, hvítlaukspressu, rifjárni og eldfast mót
Ég elda mjög oft heima
2 -3 í viku
Elda flesta daga.
Nota mikið töfrasprota og steypujárnspott
Elda á hverjum degi. Fjölbreytt úrval grænmetis verður að vera til staðar, hrísgrjón og pasta, m.a.
Góðir hnífar og skurðbretti, ofn og eldavél.
Oft er hjálpast að við matseldina. Ekki gerir mitt mataræði kröfu um sérstök tæki, pottur og panna, ausa og sleif.
Ég elda á kvöldin, hollur matur. Kjúkjingabringur eða fiskur.
Ég elda nokkrum sinnum í viku. Ég þarf að hafa ansi gott úrval í kringum mig af kryddum og bragðefnum, sætuefnu stevia t.d.
Ég elda á hverjum degi næstum. Kannski tveir dagar í viku sem ég sleppi því með því að kaupa skyndibita eða fara annað í mat.
Ég þarf ekkert sérstakt til að elda.. er með minnsta eldhús sem ég hef nokkurn tíman haft, t.d. bara tvær hellur og hálfur ísskápur.. en það skiptir litlu máli. Ég nota ofninn mikið, og nota potta og pönnur í að sjóða og steikja. Þarf svo bara pláss til að choppa grænmeti en það er hægt að gera það á eldhúsborðinu.
Ég er reyndar með frystikistu inní geymslu sem mér finnst mikilvæg út af þar sem ég er bara ein er mjög erfitt að kaupa inn án þess að þurfa að henda hlutum reglulega. Svo ég frysti mikið og kaupi mikið af frosnum vörum til að sleppa við að fara í búð of oft.
Daglega.
Þarf að eiga lauk, hvítlauk, góða matarolíu, ferskt grænmeti og svo kornmeti, helst lífrænt.
Bretti, hníf, pönnu og eldavél
Svona þrisvar í viku. Þarf ekki sérstök áhöld, bara vanaleg eldhústæki og áhöld.
Ég elda 3-4 sinnum í viku. Það þarf að vera pláss og áhöld.
Mjög sjaldan þá aöallega um helgar og hátíðir
alla daga vikunnar
Eldavél og bakaraofn
Hverjum degi. Ekkert sérstakt þarf.til.
Elda yfirleitt á hverjum degi. Ofn og eldvél ásamt áhöldum og góðum blandara duga. Mer finnst gaman að elda þannig að ég hef átt slow cooker, airfryer osvfr. Nota mikið thermomix í wldhúsinu núna
Elda oft heima nema þegar ég er á kvöldvakt. Nei það þarf ekki að vera neitt sérstakt, maður reddar sér bara.
seytján sinnum á misseri
Bara eitthvað lífrænt og svo jógúrt sem er í meðal Ægi auðvelt að verð sér úti um lífræna hér á landi, sem segir allt um sofandahátt Íslendinga varðandi búskapar hætti, enda allt í voða.
Þarf ekkert pláss og gæti eldað á prímus allajafna, enda vön að bjóða upp á algjörar veislur í tjaldútilegum. Ég elda oft en ekki þegar það er hægt að nýta afganga en oft elda ég þó algjörlega nýja máltíð úr afgöngum, svo eru stundum snarldagar eða föstur.
Einu sinni á dag oftast.
Ég elda flesta daga vikunnar heima hjá mér og þarf ekkert öðruvísi eldhús eða tól til að geta gert það. Það eina sem ég á sem er ekki til á öllum heimilum (en ætti að vera til á öllum heimilum) er tortillu pressa. En hún er ódýr og það fer lítið fyrir henni.
Ég elda alla daga heima hjá mér. Ég er með mjög stórt og gott eldhús en hef alveg eldað í litlum og lítið búnum. Góðir hnífar, rifjárn, blender og eða matvinnsluvél eða töfrasproti og kaffikvörn eru kannski svona mest notað. Annars get ég eldað með pott, hníf og sleif ef svo ber undir.
Elda heima og það þurfa að vera til hefðbundin áhöld og hráefni og venjulegt eldhús.
Ég elda daglega. Er með allt til alls í eldhúsinu.
Alla daga. Bara það helsta sem er í öllum eldhúsum. Engar sérstakar græjur.
Alltaf, ég s+e um eldamennskuna á heimilinu eins og áður sagði.
Daglega.
Þarf kannski réttu kryddin, olíuna og góða hnífa, potta og pönnur.
Ég elda flest kvöld sem ég er heima og nenni því. Það gerist af og til að ég nenni ekki að elda og þá er bara reddað sér eða pantaður skyndibiti.
Til að elda þarf ég bara grunn áhöld og tæki. Stundum þarf ég t.d töfrasprota eða tofupressu, en það fer eftir hvað ég ætla að búa til.
4-5 sinum i viku
Hér á heimilinu er borðað heima flesta daga. Oft er eitthvað til frá deginum áður og stundum bætt við það. Til dæmis fær afgangur af fiski grænmeti með sér á degi 2. Það þarf að vera til fiskur, kartöflur, sætar kartöflur, gulrætur, laukur, hvítlaukur, annað grænt grænmeti eftir árstíðum, olífuolía, tómatar, salat á sumrin. Einnig baunir og hnetur. Áhöld eru aðallega pottur til að sjóða í og panna til að svita matinn á. Svo handverkfæri eins og hnífar, sleifar, spaðar, ausur.
Elda svona c.a 3svar í viku stóra skammta sem endast í nokkra daga og/eða set í frysti svo það er fljótlegt að hita seinna.
Oftast er ofgnótt af mat eftir ferðir í stórmarkaðina eftir lokun og ríður á að vinna úr hráefninu strax og koma í frost. Er með mjög lítið eldhús og þ.a.l leiðinlegt að elda þar, hef aðgang að frystikistu hjá ættingja.
Ég elda 1x á dag (kvöldmat). Þarf engin sérstök tæki eða áhöld til að fara eftir mínu mataræði.
Yfirleitt alla daga vikunnar. Á alltaf til öll grunnatriði sem þarf til matargerðar. Hef ágætisplåss og tæki.
Næstum alla daga vikunnar. Ég kaupi inn líka ... ekkert sérstakt.
Við eldum á hverjum degi nema þegar við förum út að borða.
Eftirfarandi er alveg nauðsynlegt í eldhúsinu:
Góður hnífur, skurðarbretti, rifjárn, hvítlaukspressa, grænmetisskrælari, sigti, smíðajárnspottur og góð panna.
Einu sinni í viku marga skammta
Ég elda a.m.k. 5 sinnum í viku, leyfi mér alveg að sækja mat einhverstaðar á helgum.
Ég elda 4-5x í viku. Geri stóra skammta til að eiga alltaf í hádegismat og líka stundum í kvöldmat. Ég þarf að eiga góð áhöld, eins og góðan blandara og matvinnsluvél. Uppáhalds græjan mín er instant pottur en það hefur sparað mér mikinn tíma í eldhúsinu. Það er líka mjög mikilvægt fyrir mig að eiga stórt og rúmgott eldhús.
ca. 6-7 daga vikunnar - ég hef allt sem ég þarf og nóg pláss
Oftast á hverju kvöldi.
Elda nokkrum sinnum í viku, er alltaf að reyna að elda oftar. Þarf bara ofn og helluborð í rauninni.
Ég elda oftast daglega heima hjá mér. Grunnvörur sem mér finnst gott að eiga: salt og pipar, krydd, grænmetis- og sveppateningar. Tómatar, zuccini, sveppir, avocado, paprika. Kjúklingabaunir, svartar baunir, linsurbaunir og tómatar í dós. Heilhveitispagettí, grjón og vefjur. Ostur og vegan-majónes, ab-mjólk, sýrður rjómi, tómatsósa. Ef eitthvað af þessu er til get ég yfirleitt mallað mér eitthvað gómsætt.
Ég nota töfrasprota og blandara mikið í matargerð. Annars skiptir ekkert öllu máli hversu mikið pláss er eða hvað áhöld ég er með.
Ég reyni að elda allavega 6 sinnum í viku heima hjá mér.
Ég þarf ekkert voðalega mikið þegar að kemur að eldamennsku bara þetta basic dót, góður hnífur, skurðbretti, pottar og pönnur, ofn og helluborð, og svo áhöld eins og sleif, spaði og töng.
Þarf ekkert sérstök tæki þannig, ég á reyndar sjálfvirkan hrísgrjónapott sem er mjög þægilegt.
Einu sinni á dag
Hráefni, olía, panna og pottur
Ég elda ca 5-6 sinnum í viku. Nauðsynlegt að eiga hnífa, skurðarbretti, ofn og potta.
Elda að öllu jöfnu á hverjum degi. Allt er til staðar, hráefni og hjálparefni og almenn eldhústæki
Ég elda heima um 5-6 sinnum í viku. Ég þarf bara að eiga allt þetta venjulega, potta og pönnur og nóg pláss í frystinum.
Ég elda mjög sjaldan mat heima hjá mér, og geri engar kröfur um aðstöðu áhöld eða tæki, nema þá að mér finnst nauðsynlegt að hafa aðgang að örbylgjuofni í eldhúsinu.
Við eldum á hverjum degi og í eldhúsinu okkar er allt það sem við þurfum, pláss og áhöld.
Ég elda flesta daga heima, fer mögulega út að borða eða kaupum take away 1-2 í viku max. Ég þarf eldavél og það er gott að hafa ofn (en ekki nauðsyn eins og ég hef upplifað). Ég bý í litlu húsnæði og með lítið eldhús þannig ég hef lært að þarf alls ekki mikið pláss né nein sérstök tæki. Það eina sem ég elska og langar ekki að lifa án er flóari sem er meira svona nice to have en ekki need to have.
Flestar máltíðir (er mikið með nesti og hef vanist því). Ég get unnið með allskonar en þúst hnífur, skurðabretti, eitthvað hita element, ískápur voða næs...
4- 5 sinnum. Þarf matvinnsluvél og gufu suðu pott.
Elda nánast daglega. Þarf svo bara týpiskt eldhús, matvinnsluvél og blandara.
Ég er með lítið og gamalt eldhús, en gæti ekki verið án matvinnsluvélar, hrærivélar og blandara. Við eldum flesta daga.
7 daga vikunnar, nema okkur sé boðið í mat annarsstaðar.
Það þurfa að vera til staðar eldunaráhöld og matur til að elda?
Elda mat daglega. Stór Pottur, hakkavél, bjúgnasprauta
Um það bil þrisvar. Ég þarf yfirleitt pott eða pönnu og eldavél. Gott er að vera með beittan hníf og skurðarbretti.
Elda alla daga kvöldverð.
Alla daga er nokkuð vel græjuð
Ég tek þátt í eldamennsku í meðallagi. Eldhús þarf að vera búið öllum helstu tækjum og áhöldum. Þá er kryddúrval einnig mikilvægt í hverju eldhúsi, líka ferskar kryddjurtir sem framleiddar eru í lífrænni rækun.
Ekki oft
Ég bý ekki ein svo ég elda mér sjálf sjaldan. En það er heitur matur í kvöldmat heima hjá mér öll kvöld.
Mér finnst gott vinnupláss þó mikilvægt þegar ég ætla að fara að elda mér eitthvað, það er meira fráhrindandi að hafa lítið pláss.
Ég elda nokkrum sinnum í viku og baka líka. Ég nota mest einföld og algeng tól eins og pönnur, potta og ofninn og áhöld en hef líka keypt sérhæfðari tæki, t.d. hrísgrjónapott sem ég nota talsvert.
Svona þrisvar í viku, þarf að hafa úrval af grænmeti og elska sveppi, nota mikið grænmetiskraft, salt og pipar og gott þegar hægt er að fá íslenskan chili, á alltaf alls konar baunir og skelfisk í frysti.
Ég elda flesta daga heima, Góðir hnífar eru málið hjá mér og pottar og pönnur mikilvæg.
Stöku sinnum. Engin ákveðinn staður sem verður oftast fyrir valinu en ég skoða matseðilinn yfirleitt fyrirfram þar sem ég vil geta valið vegan rétti sem mér líst vel á.
Fer ekki mjög oft út að borða. Staðir t.d eins og Nauthóll, Jómfrúin eða Hamborgarafabrikkan.
Við förum einu sinni til tvisvar í mánuði út að borða. Veit hvaða veitingastaðir henta mínu mataræði og kanna málið með tölvupósti ef ég þekki það ekki. Fer alls ekki á suma veitingastaði sem ég veit að henta ekki mínu mataræði.
Ég fer ekki oft út að borða þar sem mér finnst skemmtilegt að elda. Það er ágætis úrval af góðum vegan möguleikum á höfuðborgarsvæðinu og ég er enn að prufa mig áfram í veitingastöðum og því fer ég helst á nýjan stað í hvert skipti. Ef ég er í tímaþröng þá nýti ég mér stundum að sækja skyndibita og þá helst hjá Jömm, Dirty burger and ribs, Serrano og Junkjard.
Ef ég fer út að borða, sem er ekki oft, þá vel ég eitthvað spennandi sem ég hef ekki smakkað áður. Vel yfirleitt staði sem bjóða upp á eitthvað ferskt og fer út á stöðum þar sem mínum þörfum er ekki sýndur skilningur.
Ekki oft en úrvalið er að snaraukast
Fer ekki oft út að borða. Hef ekki lent í vandræðum fæ alltaf mat sem hentar mér
Sjaldnar eftir að ég flutti nýlega úr miðbænum. Á engan uppáhaldsstað en ég skoða matseðla áður en valið er. Það eru þá miklar líkur á því að það sé eitthvað vegan á stöðum nútildags, bara spurning hversu spennandi það er.
ég fer ekki oft út að borða en panta stundum mat. Það er mjög erfitt að fá lífrænan mat heimsendan/ á veitingastöðum. En ég get farið á bíóborgara, og svo er Nings með lífræn bygghrísgrjón í nokkrum réttum, það er eiginlega það eina sem ég get fengið lífrænt. Og einstaka kaffihús sem ég veit að eru með smá lífrænt - en ekki til aðf ara út að borða á.
Það er svo sem auðvelt að fá mat sem henntar mínu mataræði á dýrum stöðum þú getur alltaf fengið þér steik t.d. en margir réttir þarftu að spyrja nákvæmlega hvað er í þeim.
Hollum stöfum hefur fækkað mikið eftir covid byrjaði en það er hægt ódýrari veitingastaðir þar sem hægt er að fá mat sem upfyllir mínar þarfir eru Culiacan, Saffran, Gló (samt ekki gott lengur), Serano og Wokon en þoli hrísgrjónanúðlurnar þar og þeir nota góð krydd og sósur annars verð ég venjulega veik af austurlenskum mat af öðrum stöðum. Local er líka staður sem væntnlega væri hægt að fá mat sem uppfyllti skilyrði en þar sem við erum venjulega að kaupa mat fyrir alla og erum með 3 stálpaða stráka sem hafa núll áhuga á sallati þá verða hinir staðirnir frekar fyrir valinu.
Já alveg frekar oft myndi ég segja, og já það er alltaf eitthvað hægt að finna vegan nútildags. Einstaka staðir sem eru ekki með vegan rétt en ég fer líka ekki þangað. Mínir uppáhaldsstaðir eru vegan world peace, public house og caruso.
Ég fer stundum út að borða einkum með barnabörnum. Oft er það bara kaffihús. En við reynum að finna góða þá helst grænmetisstaði með salötum sem ég nenni ekki að gera sjálf. Slíkir eru ekki á hverju strái en við eltum þá uppi.
Nei, fer helst á skyndibitastaði en frekar þá í hollari kantinum, annars helst, asíska, indverska eða miðausturlenska staði.
Ágætlega oft. Er hrifin af stöðum sem bjóða upp á smárétti, t.d public house, Matbar, Sumac og Fjallkonan. Finnst fínt að borða á þessum stöðum
Fer sjaldan út að borða, finnst betra að borða það sem ég elda eða maðurinn minn.
Fer nokkuð reglulega út að borða.
Suður og suðvesturasískir staðir verða gjarnan fyrir valinu. Enda oftast í boði mikið úrval bæði fyrir kjöt og grænmeti á slíkum stöðum. Sem hentar vel þar sem aðrir fjölskyldumeðlimir borða kjöt.
Nei, það er ekki oft farið út að borða, kannski í kring um 10 sinnum á ári. Einstaka sinnum standa börnin fyrir því að "pannta pizzu" eða austurlenskan mat.
Nei, aðallega til að hafa stjórn á því hvað ég læt ofan í mig og útaf kostnaði. Það er hins vegar ekki mjög erfitt lengur að finna staði með t.d. góðum vegan mat og ég fer helst á þannig staði.
Ég fer ekki oft út að borða (fyrir utan take-away staði), og það er yfirleitt auðvelt að finna eitthvað út af ég borða fisk. Ég hef engan svona go-to stað.. elska public house gastro pub samt. Finnst svo bara gaman að prufa nýja staði þá sjaldan sem ég fer eitthvað og finn þá alltaf eitthvað sem ég get fengið mér þó það væri auðvitað skemmtilegra að hafa fleiri valmöguleika stundum.
Afar sjaldan
Jómfrúin, indverskir matstaðir, grískir matstaðir
Borða í sjálfu sér allt sem að kjafti kemur, langar hinsvegar ekki í kjöt.
Hef alltaf með mér box til að taka afganga með mér heim
Já töluvert. Á alls konar staði en er sérlega hrifinn af austurlenskum. Líka á skyndibitastaði svo sem KFC. Oftast auðvelt að finna eitthvað sem ég get borðað.
Kannski einu sinni í mánuði á veitingastað. Er svo flex að það er ekkert mál.
Sjaldan.
annan hvern dag
Nettó
nei alls ekki
Nokkrum sinnum þegar það dettur í mig, stundum ein, stundum með börnum mínum eða vinum. Ligg aldrei lengi yfi rmatseðlinum, samveran er dýrmætari en svo að það eigi að eyða tíma í að spá í bakgrunn rétta eða þvíumlíkt. Samveran getur eyðilagst ef sífellt er verið að senda þjóninn að gá hvaðan silungurinn sé, hvaða krydd sé með þessu og hinu eða annað sem maður treystir að sé í lagi á vetiingastaðnum, nema hann sé því auðvirðilegri en hvað er maður að fara á svoleiðis staði?
Nei. Lítið úrval af veitingastöðum hér
Bara við eitthvað tilefni og mjög mismunandi hvert. Það er nú á dögum auðvelt að panta grænmetismat.
nei, mjög sjaldan
Nei, kaupi stundum pulsu með öllu og miklu sinnepi þegar ég er á ferðalögum.
Ekki oft út að borða en það er einfalt að finna eitthvað á flestum stöðum með smá útskýringum og tilfærslum á matseðlinum.
Já alveg kannski 1-3 í viku.
Ekki svo oft. Það er auðvelt að fá góðan vegan mat á Íslandi í dag. Mér finnst frábært að fara á Jömm eða Junkyard þegar mig langar í borgara, Mandí þegar mig langar í hollari skyndibita en borgara og svo asíska staði (t.d. Dragon Dim Sum).
Þar sem ég bý fer ég afar sjaldan út að borða. En í Rvk fer ég oft enda þá í helgarskreppiferð og nýti þá tækifærið að kaupa tilbúinn mat eða fara út að borða og spara tímann í oft erilsömum ferðum. Ég fer á Gló, Thai staði, Loving Hut, Vegan world piece, nings, Mandy. Já það er bara nokkuð auðvelt ef maður er vegetarian en aðeins meira mál ef maður er vegan.
Út að borða ca 1x - 2x í mánuði. Reyni að velja góða staði þar sem ég fæ góðan mat.
Það er orðið mun auðveldara að fá grænmetisfæði þegar ég kaupi tilbúinn mat á veitingastöðum í seinni tíð. Núorðið bjóða allir veitingastaðir sem ég hef farið á einhvers konar gænmetisútfærslu af réttum sínum ef ekki eru grænmetisréttir þá þegar á matseðli. Þarna hef ég merkt miklar breytingar til batnaðar á sl. 3 árum.
Ég veit ekki hvað er oft, en mér finnst ég ekki fara oft út að borða. Kannski 4x á ári á veitingastaði til þess að setjast inn og eiga notalega stund. En ég kaupi tilbúinn mat til þess að taka með heim nokkuð oftar.
Förum frekar sjaldan. Það er flóknara vegna þess að sykur er notaður talsvert í mat á veitingahúsum og einnig kolvetnisrík matvæli. Oft erfitt að sniðganga þau. Auðveldara að panta mat og taka með heim.
Nei, 2x í mánuði. Það er ekki vandamál að fá mat á veitingastöðum sem hentar mínu mataræði.
Kannski 6 sinnum á ári. Fer aðeins á staði sem ég get verið viss um að hafi GF og LF mat á boðstólum.
Þar sem íslenskir veitingastaðir bjóða ekki uppá matseðla þar sem innihaldið er útlistað að þá gerir það fólki eins og mér erfitt fyrir og það er bæði þreytandi og niðurdrepandi að þurfa alltaf að vera að spyrja og fá nánari lýsingu á innihaldi frá kokkinum (þjónustufólk veit sjaldnast hvað er í matnum)
Ég fer mjög sjaldan út að borða þar sem ég sest við borðhald. Ég er meira í að kaupa skyndibita en það er þó líka sjaldan.
Ég fer oftast á Sæta Svínið. Það eru fáir staðir sem eru ekki með vegan valkost og ég forðast þá. Það er oft auðvelt að panta vegan mat nú til dags, það eru mun fleiri á Íslandi sem vita hvað það þýðir að vera vegan.
2 i viku ca - grænmetis eða fiski staði helst
Ég fer líklega út að borða einu sinni til tvisvar í mánuði. Helst á veitingastaðina í göngufæri við heimili mitt, og af þeim er gott úrval. Það er auðvelt að panta mat sem hentar mér.Og auðvitað veit ég orðið hvaða staðir hafa gott úrval.
Fer sjaldan en vildi gjarnan fá mér t.d góðan indverskan, sushi, gott hreint fæði t.d á coocoo’s nest, en fylgist lítið með veitingastaðaflóru bæjarins.
Fer ekki oft út að borða. Úrvalið á veitingastöðum er að aukast jafnt og þétt og frábært hveru margir staðir bjóða upp á afburðagóðan vegan mat. Það er þó enn of algengt að veitingastaðir séu ekki að sinna þessum hópi af mikilli alvöru og bjóði upp á allt að því samtíning á disk (eða baunabuff í hamborgarabrauði...)
Mjög sjaldan. Enginn staður neitt aðal, fer svo sjaldan
Sjaldan út að borða. Fer sjaldan á betri veitingastaði, stundum í mathöll (borða þó ekki pizzur eða hamborgarar)
Ég fer að jafnaði kannski aðra hverja viku út að borða. Stundum sjaldnar og stundum oftar. Ég á yfirleitt auðvelt með að finna eitthvað á matseðlum flestra staða.
Mjög sjaldan en þegar þá á staði sem bjóða upp á holla grænkerarétti
Ég fer reglulega út að borða. Uppáhalds staðurinn minn í Reykjavík í augnablikinu er Monkeys. Það er auðvelt að panta mat sem hentar mínu mataræði á veitingastöðum á Íslandi a.m.k.. Getur verið smá basl í öðrum löndum.
Kannski ekki oft en mér finnst mjög gaman að fara út að borða. Uppáhalds staðurinn minn er Mama. Síðan fer ég líka alveg á veitingastaði þar sem er góður vegan matur en þar fæ ég ekki Whole food plant based mat. Mér finnst ekki erfitt að fara út að borða því ég get alltaf valið vegan.
Mjög sjaldan ca. einu sinni á tveggja mánaða fresti
Nei borða heima.
Kaupum mikið af skyndibita take away. Erfitt að finna staði með góðan mat, hvað þá hollan.
Nei, ég myndi ekki segja að ég fari oft út að borða. Staðirnir sem ég panta oftast take-away á eru t.d. dragon dim sum, sali thai, american style, hraðlestin, dominos og spaðinn.
Það getur verið erfitt ef ég vil breyta rétti á matseðlinum. T.d. eru margir veitingastaðir með vegan kjöt sem vegan réttina en mér finnst það ekki gott og vil ekki borða það. Þannig ég panta oft t.d. samloku en bið um mínus kjöt en vil halda ostinum. Það er oft sem það mistekst en ef maður biður um að sleppa kjötinu ákveða þeir oftast að maður vill heldur ekki ostinn.
Ef ég fer út að borða þá prófa ég oft nýja staði en finnst t.d. Sumac og Punk vera með æðislegan mat.
Fer stundum út að borða eða panta mat heim.
Fer sjaldan á fína veitingastaði þó það sé gaman, fer yfirleitt á aðeins ódýrari staði sem bjóða uppá pizzur, hamborgara, núðlur, sushi eða eitthvað álíka.
Mjög auðvelt að panta mat sem hentar mínu mataræði.
Einu sinni í viku
Þriðjudagstilboð á Dominos
Nei, hugsað sem svindlmáltíð
Stundum. Fer á Íslensku Flatbökuna, serrano, Subway, Tasty og Yndisauka svo dæmi séu nefnd.
Fer tiltölulega sjaldan á veitingahús - auðvelt að fá mat sem passar á veitingahúsum
Nei ekki oft, kannski 1-2 í mánuði. Ég fer eiginlega bara hvert sem er, langflestir staðir eru með allavega 2-3 grænmetisrétti. Mér finnst sjaldan erfitt að panta mat, hef helst lent í því í litlum plássum úti á landi að það eina sem er í boði fyrir mig sé bara franskar eða eitthvað. Það er ekki alveg jafn auðvelt ef maður er að leita að vegan mat samt.
Fer út að borða einu sinni eða tvisvar í mánuði að jafnaði, og geri engar sérstakar kröfur um veitingastað eða hvaða réttir eru á matseðli, þannig að það er auðvelt fyrir mig að panta rétti sem henta mínu mataræði.
Ég fer mjög sjaldan út að borða enda er erfitt fyrir mig að finna mataræði við hæfi á veitingastöðum. Kannski einu sinni í mánuði borða ég á Zorbían og svo förum við út að borða þegar einhver í fjölskyldunni á afmæli.
Ég hefði viljað sjá meiri fjölbreytni á veitingahúsum í Reykjavík. Mér finnst magnað hvað það er lítið í boði miðað við að það sé 2022. Ég get alltaf fundið eitthvað en mjög oft er það hamborgari sem er orðið smá þreytt í dag sem betur fer eru nokkrir veitingastaðir sem bjóða upp á fjölbreyttan mat eins og Loving Hut, Zumac, SÓMÓ matseljur og tokyo sushi.
Já yfirleitt 1x í viku, mér finnst það oftast lítið mál en mætti vel vera ennþá auðveldara (en ég veit núna hvað ég vil helst forðast) elska alla 100% vegan staðina Jömm, Loving hut, Vegan world peace, Mama, Junkyard (rip), en líka margir óvegan staðir með mjög fína valkosti.
Já. Dóttir mín býður mér og í mat annars er ég ekki úti að borða.
Fer mjög sjaldan út að borða, en þegar ég fer þá er langoftastt eitthvað sem ég get borðað en það er misjafnlega vandaður matur.
Nei, mjög sjaldan því það er dýrt. Og svo er erfitt að fá mat sem hentar mínu mataræði þó það hafi lagast mikið á undanförnum árum.
Fer ekki oft út að borða, kemur fyrir einstaka sinnum. Þá helst að taka með heim, t.d. borðum við stundum Mandi eða pöntum pizzu á Pizzunni. Flestir veitingastaðir bjóða upp á eitthvað vegan nú til dags þannig það er ekki mikið mál.
Fer nánast aldrei út að borða.
Ég fer sjaldan út að borða því dóttir mín er með ýmis fæðuofnæmi. Annars er ekkert mál að panta mat fyrir mig á veitingastöðum.
Finn alltaf eitthvað á veitingastöðum, grænmetis eða fiskrétti. Fer ca. 2-3 í mánuði.
Nei mjög sjaldan ekki nógu gott úrval í boði
Fer nokkuð oft út að borða í miðborg höfuðborgarinnar og nágrenni. Mikil þróun hefur verið í grænkerafæði á umliðnum árum. Nánast öll veitingahús bjóða orðið uppá gott úrval af grænmetisfæði og fisk, fyrir 40 árum síðan var það alls ekki raunin, 1982 var flókið og erfitt að fá alvöru grænmetisfæði.
1 - 2 í viku
Finn veitingastað. Of margir staðir með málamynda vegan
Ég fer ekki oft út að borða á veitingastaði en þeir skyndibitastaðir sem að ég borða helst á eru subway, falafel vefjur á mandi, grænmetisborgarar á búllunni eða hagavagninum og svo einstaka pizzu. Finnst ekki erfitt að finna mat sem hentar mínu mataræði.
Ég fer stundum út að borða, oftast á Fönix sem er kínverskur veitingastaður sem er með frábæra vegan rétti. Loving hut er líka asískur staður sem er alveg vegan og ég fer líka stundum á íslenska vegan staðinn Jömm, sem er með sveittari rétti eins og hamborgara. Það er sjaldnast neitt mál að fá vegan rétti á veitingastöðum á Íslandi en þeir eru mjög misgóðir og mismikill metnaður lagður í þá.
Nei, miklu sjaldnar nú, en fór reglulega áður fyrr, en þá var Jómfrúin í uppáhaldi, og er enn þá, lyktin og stemningin engu lík, panta mér alltaf rauðsprettuna, hún er bara snilld.
Fer sjaldan, reyni að velja staði sem bjóða uppá mat í hollari kantinum s.s. Krúsku ef ég kem til höfuðborgarinnar eða Gandi en þeir vinna allt frá grunni í indverskan mat. Einnig hef ég gaman að því að fara fínt út að borða en það er sjaldan.
Greinagóðar leiðbeiningar frá Landlækni um vegan mataræði fyrir ungabörn og á meðgöngu. Er með ungabarn sem er að byrja að borða og kann ekki nógu vel á þetta til að treysta mér í að halda barninu í grænmetisfæði. Hef ekki nógan metnað í þessum málum til að finna þessar upplýsingar sjálf, mér finnst það flókið og ég veit ekki hvaða upplýsingum ég get treyst.
Engar hindranir
Engar sérstakar og ég hef fundið lausnir á flestu. Tek með mér nesti i vinnuna og flugferðir. Sleppi að borða ef mér líst ekki á það sem er í boði. Stærra letur á umbúðum myndu auðvelda mér lífið.
Það sem mér finnst erfiðast er fáfræði annarra. Ég væri einnig til í að vörur sem eru ,,óvart" vegan væru með vegan merkingu til að gera verslun auðveldari. Krónan gerir þetta upp að ákveðnu marki en það eru þó fullt af vörum sem þeir hafa ekki merkt. Það er því æðislegt að versla í Veganbúðinni því þar eru alltaf nýjar og spennandi vörur sem hægt er að vera viss um að séu 100% vegan.
Ef framleiðendur mundu hætta að troða mjólkurdufti í ótrúlegustu matværi þá væri veröldin góð. Hvers vegna þarf t.d. mjólkurduft í lakkrís, eða pylsur?
Fordómar og fáfræði. Fólk mætti fá að via hversu skaðlegt "venjulegt" mataræði er. Þó að eitthvað hafi verið gert einhvernveginn í langan tíma þýðir ekki endilega að það sé best.
Hætta að merkja vegan því það hræðir óvegan frá og þau halda að þau geti ekki borðað neity merkt vegan.....gætu borðað of mikið grænmeti sko. Merkja frekar plant based og þá fattar anti-vegan fólk það ekki.
Ég verð ekki vör við hindranir
Í daglegu lífi eru fáar sem engar hindranir. Þær birtast fyrst og fremst á mannamótum eða þegar ég fer að ferðast. Fór til Frakklands og Þýskalands fyrir jólin. Ég borðaði töluvert af bönunum í Frakklandi til að redda mér. Þýskaland var veganvænna. Fór til Portúgal árið 2019. Lifði að mestu á kexi þar (bananar ekki á hverju horni eins og í París). Hins vegar var ekkert mál að vera vegan í Víetnam, Tælandi og Nepal (nb í Himalayafjöllunum). Þannig að það væri auðveldara fyrir mig ef veganismi væri útbreiddari í Evrópu.
Úrvalið í búðunum - vitund veitingafólks og starfsfólks í búðum á hvað lífrænt er. Ef lífrænar vörur myndu hætta að flokkast sem lúxus-heilsuvörur og færu að flokkast sem almennur matur - ef fólk í kringum mig færi að neyta lífrænnar fæðu einnig.
get alltaf keypt mér hummus og gulrætur eða álíka en annars þarf maður bara að plana sig.
það eru t.d. til tilbúnir réttir í bónus en flest allt er með glúteni/korni og mjólk, eina sem ég hef fundið er ungversk gúllassúpa. Strákurinn minn sem er óþolsmaður mikill það væri rosalega fínt að geta keypt tilbúinn mat sem er ekki dýr sérstaklega ef það er enginn heima til að elda en hann er álíka liðtækur í eldhúsinu eins og hundurinn og hefur ekki áhuga og nennu á að elda sjálfur
Þegar það er ekki gert ráð fyrir mér. Held að fólk væri tillitssamara ef ég væri með ofnæmi fyrir eggjum og mjólk en af því ég valdi að vera vegan þá er fólk oft með dólg.
Mér finnst ekkert erfitt í því sambandi nema ég sakna eins og margt fullorðið fólk að fá ekki upprunaskyr og að kjötborðið finnst ekki lengur nema í Hafnarfirði og Melabúðinni svo kjötskammtar eru of stórir fyrir einstaklinga og sambandið hefur rofnað við sláturmeistarann og orðið vélrænt. Því borða ég t.d. minna kjöt.
Stundum á vinnustöðum er lítil næring í boði nema kjöt og verður þá málsverðurinn stundum svoldið þunnur. Til bætingar ef það væru fleiri staðir með ræktun í sínu nærumhverfi, t.d. veitingastaðir, skólar og víðsvegar um hverfi.
Kannski bara ef mér er boðið í mat og fólk gleymir að ég borða ekki kjöt en ég pirra mig nú lítið á því
Verðlag á vegan kjötlíki mætti alveg vera lægra... og meira af íslensku grænmeti þar sem mér finnst það langbest á bragðið. Það er eiginlega það versta við veturinn að geta ekki fengið íslenskar papríkur oþh
Að eld og kostnað á hollum mat
Rekst ekki á neinar hindranir.
Hef ekki rekist á hindranir
Einu hindranirnar sem ég hef rekist á, eru fjölskylduboð og vina hittingar. Dags daglega er mataræði mitt ekkert mál, og veldur mér engu veseni. Erfiðu aðstæðurnar eru hittingar þar sem fólk er að borða saman og það er ekki til útgáfa af grænkera mat. Ég hef komið með minn eigin mat í boð, eða borðað vel áður. Einnig er það viðhorfið og stríðnin sem ég lendi stundum í sem getur verið ákveðin hindrun. Það fær mig samt aldrei til þess að vilja neyta dýraafurða aftur, en getur stundum verið leiðinlegt.
Að sleppa að borða nammi eða sykraða drykkir. En ég ákvað að sleppa því úr matavenjum eftir áramót
Engar hindranir í dag myndi ég segja nema einstaka sinnum leti að elda.
Áhugi minn á eldamennsku held ég að sé mesta hindrunin. Ég væri til í að vera duglegri að finna mér nýjar uppskriftir og hafa sjálfstraust í að elda t.d. meira úr tofu og þannig. Það er helling af uppskriftum frá öðrum löndum sem eru fullkomnar fyrir ekkert-kjöt mataræði en ég nenni oft ekki að finna þær og leita að hráefnum sem ég svo kannski myndi ekki nota aftur ef uppskriftin virkaði ekki fyrir mig.
Svo finnst mér mjög mikilvægt að koma upp svona skammta-sér-sjálfur búðum þar sem þú getur mætt með dalla og keypt þér nkl það magn sem þú þarft. Mjög margir búa einir, sérstaklega eldra fólk, og það myndi auðvelda manni að elda úr fleiri hráefnum ef maður þyrfti ekki alltaf að kaupa super-sized pakkningar sem skemmast í ískápnum manns út af maður nær ekki að nota þær nógu hratt.
Breyti matarræði í takt við framboð
Fáar hindranir.
Vei ekki
Engar hindranir
Engar fyrir mig, et þá bara eitthvað annað ef ég fæ ekki það sem ég hafði framleitt munnvatn fyrir.
Ekkert í boði annað en kjöt á matseðlum sumra veitingastaða, annars engin vandamál
Nei engar áberandi hindranir
fordómar kálkúrskalla og kellinga
Að loftlagsváin væri í alvöru tekin alvarlega.
Hversu mikið er til af unnum matvælum og hversu oft er búið að eyðuleggja matvöru með óþarfa aukaefnum.
Það var skortur á framboði og skilning, en ekki lengur. Framboðið er mikið og skilningurinn er allur annar og miklu meiri en hann var áður. Það er ekkert í mínu daglega lífi sem er hindrun þegar kemur að mataræði mínu.
Að það væri hægt að kaupa tilbúinn mat á fleiri stöðum, t.d. á landsbyggðinni þar sem úrvalið er mjög takmarkað og erfitt að ferðast og ætla að kaupa sér mat á veitngastöðum. Ef tilbúnar vörur væru betur merktar hvort þær væru vegan eða ekki myndi hjálpa mikið til. Áður en dóttir mín varð vegan þá hélt ég t.d. að sumt væri örugglega vegan eins og vín sem er búið til úr þrúgum, en það er ekki svo. Og svo annað sem maður heldur að sé örugglega ekki vegan eins og smjördeig er allt vegan. En þarna þarf að stauta sig í gegnum allar innihaldslýsingar sem er tímafrekt.
Engar hindranir
Hef ekki rekist á neinar hindranir. Veit ekki hvað myndi gera mér það enn auðveldara að fara eftir grænmetismataræði.
Skilningsleysi fólks á hættum samfara sykur og kolvetnisáti. einnig vanþekking fólks á helstu efnum í fæðu.
Það er helst í einkasamkvæmum, það hefur lagast á undanförnu árum, þar sem fjölgar í Vegan hópnum.
Það ætti að festa í lög að matseðlar eigi að tiltaka hvað maturinn inniheldur. (s.s. GF, LF, NF, SF, og svo framvegis)
Þetta er gert mjög víða á stöðum sem ég farið á í Evrópu, Norðurlöndum og BNA og gerir að verkum að það léttir mjög val og upplifun við að fara út að borða. Íslenskir matstaðir mættu sannarlega bæta sig í þessum málum.
D3, rautt litarefni og mjólkurduft í allskonar hlutum. Oft þarf ekki að vera mjólkurduft í vörunum, eins og t.d. papriku Pringles. Ég þarf oft að athuga hvort vörur séu vegan því það geta leynst efni í þeim sem eru það ekki.
meiri timi
Helstu hindranir hafa verið á ferðalögum erlendis, en ég ferðast nokkuð mikið. Ef ég er í hópferð erlendis segist ég vera vegan, því ég vil ekki borða hvaða fisk sem er. Það hefur svo sem ýmislegt gerst, til dæmis var ég í nokkra daga á hóteli á suðurströnd Frakklands og fékk fyrsta kvöldið hraukaðan disk af frönskum kartöflum og brúnni sósu í aðalrétt. Fararstjórinn var fljót að fara og lesa yfir kokkinum, enda hafði verið látið vita af mataræði mínu með löngum fyrirvara og svo einnig þegar við komum á hótelið.
Annars eru hindranir ekki í frásögur færandi nú orðið.
Verðlag, hollur matur er of dýr fyrir mig að kaupa.
Helsu hindranirnar eru skoðanir annarra. Einkennilegt að finna hversu mörgum finnst þetta mataræði vera ógn við sína tilvist og finnst þetta jafnvel öfgar. Það vefst fyrir fólki að bjóða upp á mat án dýraafurða í veislum eða matarboðum og "tiktúru" stimpillinn vill loða við mann. Ég er svo heppin að á mínum vinnustað er mötuneyti þar sem það er alltaf boðið upp á vegan valkosti í hádeginu svo í það heila eru ekki margar hindranir í hversdeginum.
Það er fátt . . .
Það eru engar sérstakar hindranir en búðaferðir væru að mörgu leyti einfaldari ef allir matvöruframleiðendur hefðu umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Ekki boðið upp á grænkerafæði í mötuneyti hjá vinnustaði mínum
Stundum væri yndislegt að geta keypt tilbúinn Whole Food plant based mat í matvöruverslunum til að spara mér tíma.
Engar hindranir - ég laða mig að því sem er fyrir hendi
Að fj0lskyldan borðar ekki sama mat og ég.
Meira úrval alls staðar og að fleiri væru opnari fyrir þessu.
Það er kannski aðallega að kjötneysla er ennþá „default“ mataræðið þannig maður þarf alltaf að taka fram að maður sé grænmetisæta og ég þarf alltaf að spyrja sérstaklega hvort það verði ekki örugglega grænmetismatur í boði ef ég er t.d. að bara í matarboð eða veislur. Það er dálítið þreytandi að þurfa að gera það en er samt oftast eitthvað í boði fyrir mig.
Mér finnst lítið sem ekkert af hindrunum í mínu daglega lífi þegar að kemur að mataræðinu mínu. Þarf ekki neitt til að auðvelda mér það að fara eftir mínu mataræði.
Fordómar annara fyrir því að velja holt mataræði (erfitt að borða næringarríkan mat hliðiná fólki sem étur sóma samlokur og coca-cola í öll mál)
Stundum vesen í veislum og oft ekki hægt að fá tilbúna hluti eins og samlokur í verslunum og bensínstöðvum til að grípa í en annars eru ekki margar hindranir.
Engar
Mér dettur engar sérstakar hindranir í hug. Kannski helst að það er frekar lítið úrval af tilbúnum samlokum og öðru nesti í búðum, það eru yfirleitt ekki nema tveir valmöguleikar af vefjum og samlokum fyrir mig í búðum á meðan aðrir hafa meira úrval.
Helstu hindranir eru þessi félagslegi þáttur, að geta ekki borðað með vinnufélögum og fjölskyldu þá daga sem ég fasta.
Meira framboð af tilbúnum fiskréttum myndi gera mér auðveldara fyrir að fylgja eftir mínu mataræði.
Alla jafna blasa fáar hindranir við mér í mínu daglega lífi hvað varðar mataræði mitt. Hins vegar gæti ég alveg hugsað mér að veitingastaðir og kaffihús mundu bjóða upp á laktósafríar veitingar og hafa meira af ávöxtum á boðstólum þannig að ég gæti sneitt hjá öllum mjölmat.
Helst er það annað fólk og athugasemdir þeirra. Fáfræði virðist ennþá frekar mikil hjá öðru fólki og fer mikill tími hjá mér í að útskýra og meira að segja stundum verja það hjá öðru fólki. Ég sé aukna fræðslu sem betur fer skjóta upp kollinum út um allt en svo sem auðvelt að forðast hana ef þú vilt ekki heyra neytt um það.
Að fara í mat hjá sumu fólki en þá aðalega vegna þess að þau geta bara ekki leyft mér að gera mitt í friði þá eða njóta bara með mér eða tala um veganisma á uppbyggilegan hátt (ekki bara tuð og afsakanir, nenni ekki að heyra það)
Í félagslífi þegar ég hitti annað fólk, kem ég með nesti. Ég ég fer í stórum hóp, hringi ég á undan mér og það er auðleyst. Aftur á móti er ekki gott að mæta og koma svo með óskir. Betra að hringja á undan.
Engar hindranir??
Ef hætt yrði að blanda alls kyns óþarfa í matvæli, eins og sykri, þykkingar- og rotvarnarefnum.
Hreinlega ekkert sem kemur í huga.
Að rækta meira sjálf. Þá helst rófur og gulrætur. Langar líka að fá mér hænur til að þurfa ekki að kaupa egg.
Það kemur fyrir að samstarfsfélagarnir mínir koma með rosalega gómsætar kræsingar með morgunkaffinu: oftast læt ég þær vera en þó hef ég látið undan og þurft að finna fyrir því seinna um daginn.
Man ekki eftir neinu.
Vöruúrval
Það vantar meira og betra úrval af "lífrænum" afurðum, verslanir og veitingastaður gætu gert mun betur í því að bjóða uppá meira af slíkri vöru.
Vantar skyndibita
Mér í raun finnst erfiðast að vera boðin í matarboð, þá sérstaklega stór matarboð. Finnst það virkilega óþægilegt að vera með sérþarfir og borða oftar en ekki bara meðlætið þegar ég er boðin í mat.
Helstu hindranirnar eru „óþarfa“ innihaldsefni úr dýraafurðum í vörum sem eru annars vegan, t.d. mjólkurduft sem má t.d. finna í súkkulaði og snakki. Gelatín í nammi er líka óþarflega algengt.
úrvalið af ávöxtum er til skammar! Það mætti vera meira af íslensku, hreinu og lífrænu hráefni.
Úrvalið mætti vera betra á heimaslóð.
Við erum tvö í sambúð með 12 mánaða barn. Ég er auk þess ófrísk.
Maðurinn minn og barn borða meira kjötmeti en ég en við eldum þó oft vegan eða grænmetisrétti fyrir alla.
Tveir fullorðnir í heimili, borðum yfirleitt sama matinn
Við erum bara tvö hjónin í heimili en reglulega fáum við dóttur okkar og hennar fjölskyldu í heimsóknir í nokkra daga í senn þar sem þau búa erlendis. Hún er með 1 barn. Við erum öll á sama mataræði svo það er ekki vandamál.
Ég bý með maka og 1 barni. Ég er ein vegan en það gengur vel. Maðurinn minn eldar oftast fyrir sig og son okkar en ég fyrir mig. Sumt er þó sameiginlegt s.s. meðlæti og sósur sem við pössum að sé vegan.
Við erum 2, bæði á sextugsaldri. Minn maður borðar bara venjulegan mat.
Við hjónin erum plant based og 2 stelpur 6og8 ára eru það hér heima mestmegnis en í skóla og annarsstaðar borða þær það sem þær kjósa. Það er ekki boðið upp a grænmetis fæði í skólanum.
Bý ein með tveimur kisum
Bý með manninum mínum og hundi. Engin börn. Ég sé um mig og maðurinn minn sér um sig. Það hefur neikvæð áhrif á manninn minn því hann nennir ekki að spá í mat fyrr en of seint. Áður fyrr eldaði ég alla jafna fyrir okkur bæði. Nú elda ég bara fyrir mig, því hann vill ekki það sem ég borða.
4, 2 fullorðnir og 2 börn (og eitt barn á leiðinni). Allir eru á sama matarræði, þó börn og sumir geti ekki fengið l´lifrænan mat í leikskóla/vinnu.
við erum 5 í heimili yngsti 17 ára, einn 20 og einn 24 og við hjónin. Eldum oftast sama matinn fyrir alla glúten/korn laust, mjólkur og sykurlaust.
En t.d. þegar er spagettí þá eru útbúnir 2 réttir, fyrir mig og óþolsgaurinn 20 ára þá er súkíní pasta og salsasósa í réttinum en hinn rétturinn er með venjulegu spagettí rjóma og allskonar.
Ég, kæró, mamma og pabbi. Engin börn. Ég er ein vegan, nær oftast ekkert mál en fæ stundum leiðinleg komment sem eru óþarfi.
3. Nei, ég borða þá síður með öðrum af því það þarf að elda í sitt í hvoru lagi, en ef eldamennskan er ekki fyrirstaða er ekkert verra að borða með öðrum þó matarsamsetningin sé aðeins öðruvísi.
5 manns, 3 börn, aðrir aðhyllast ekki sama mataræði og ég en það er komið til móts við mig. Það hefur lítil áhrif á mig þó aðrir borði stundum kjöt hérna heima
Við erum 4, 2 fullorðnir og 2 börn. Dóttir mín (5) er grænmetisæta að mestu og sonur minn og maður borða allt. Við eldum oftast vegan/grænmetismat (þá er ostur td á þeirra mat)
Stúdent íbúð
Erum 3 í heimili. Eitt 2 ára barn og önnur fullorðin.
Þau borða bæði kjöt en heima eldum við venjulega grænmetismat. Stundum er sett kjötálegg á t.d pizzu öðru megin.
Þau borða svo bara kjötmeti i leikskólanum og vinnu og í öðrum aðstæðum utan heimilis.
Erum tvö, hjón. Börnin eru flutt að heiman.
Við förum eftir sama mataræði.
Við erum 5 í heimili, börnin búa enn heima öll komin yfir tvítugt. Það eru ekki allir alveg á sama mataræði en þá sjá þau um sig. Skapar ekki vandamál.
Við erum bara tvö á heimilinu og fylgjum sama mataræði sem er mjög þægilegt.
Ég og sonur minn. Og við erum með mjög svipaðan matasmekk.
Er ein aðra hverja viku og með 9ára strákinn minn hina hverja. Hann er mjög matvandur og borðar mest kjöt og grænmeti, alls ekki fisk.
Ég bý ein með einn hund og finnst það æðislegt og aldrei jafn auðvelt að elda. Ég elska að elda fyrir einn, en eins og ég segi með magnið sem þarf að kaupa sér.. þá er stundum leiðinlegt að þurfa að henda einhverju út af þú náðir ekki að borða það allt in time.
Ég hef búið með 5 manna fjölskyldu þar sem enginn borðaði eins og það var pain.. hef líka búið tveir þar sem hinn aðilinn var bara að fylgja mínu mataræði vegna þess að hann nennti ekki að elda eða hugsa út í það sjálfur og það var bara burden.. þannig að elda einn er yndislegt.
Nýlega orðin ekkja.
Þurfti að taka tillit til óska mannsins míns sem var kjötæta og hafði lítinn áhuga á grænmeti.
Ég bý einn.
3 a heimili, eitt barn. Allir á svipuðu fæði.
Ég bý ein
2
nei, engin börn
já sama mataræði
Bý ein, hef stundum matargesti einn eða fleiri.
Gift manni og erum með 3 börn. Ég er win áessu mataræði þó að maðurinn minn borði að miklu leiti það sama og ég. Börnin borða lítið af mjólkurvörum en það er eldað kjöt fyrir bæði börn og mann
Við erum 2, ég og sambýlismaðurinn minn og svo tvær kisur. Engin börn. Kærasti minn borðar kjöt en við eldum grænmetismat á þessu heimili, þegar ég er ekki heima fær hann sér kjöt og svona
er einn
Ég er ein eftir að börnin fluttu að heiman. Sem betur fer hafa þau tileinkað sér lífræna lifnaðarhætti að miklu leyti.
Við erum fjögur fullorðin og allir borða það sem ég elda en borða þó aukalega ýmislegt sem er ekki í boði á mínum borðum en er þeirra val. Það hefur engin áhrif enda hver og einn sjálfráður og enginn að gera athugasemdir eða skipta sér af matarræði annarra. En greina má aukinn metnað annarra fjölskyldumeðlima til að sleppa ýmsu óhollu á köflum en hver og einn þarf að finna sína leið í þessum málum. En það er aðallega matarsóun sem við sammælumst um.
2 fullorðnir og 2 börn. Börnin borða meira af mjólkurvörum en við erum frekar samstíga í öðru.
Ég bý einn.
Við búum bara tvö að staðaldri heima. Ég borða ekki kjöt og elda mest. Maðurinn minn borðar kjöt annarsstaðar en eldar líka kjötlaust eða vegan heima og allir eru sáttir. Þegar dæturnar eru heima er alltaf veganmatur. Það er bara mikil sátt um þetta alltsaman.
Við erum tvö hjónin engin börn og við borðum það sama,
Ég bý ein með hundi. Aðra hvora viku bætast 2 börn (10 og 13 ára) við hópinn.
Hundurinn er kjötæta.
Þegar börnin eru hjá mér borða þau sama fæði og ég (grænmetisfæði).
Þegar börnin eru á hinu heimili sínu (aðra hvora viku) og í skóla borða þau almennt skólafæði og kjöt og fisk.
Almennt truflar þetta ekki heimilislífið, en þó heyri ég eitt barnið segja heima hjá mér að það ætli að vera grænmetisæta. Það á eftir að koma í ljós.
Erum 2 í heimili, 65 ára og 66 ára. Engin börn en uppkomin börn og tengdabörn borða oft hjá okkur. Við 2 sem erum í heimili eru á svipuðu fæði nema konan etur kartöflur og venjulegt brauð. Notar sykur í hófi
Við erum tvö í heimili, frúin er mjög sátt við þetta mataræði.
Við erum tvö í heimili núna, vorum áður fjögur. Hin þrjú borðuðu nokkurn veginn það sama og ég en fengu sér skyr, ost og brauð reglulega.
Í dag borða hvorugt barna minna brauðmeti af sömu ástæðu og ég en eitthvað lítillega borða þau mjólkurvörur.
Það er ekkert mál að búa til mat svo öllum líki og því er engin vandamál að því leiti.
Ég bý með sambýlismanninum mínum og hann borðar allt (omnivore). Stundum hefur það áhrif á mína líðan að hann hugsi ekki eins og ég en við byrjuðum saman þegar ég borðaði kjöt. Ég reyni að láta það ekki trufla mig því tilfinningin líður hjá. Hann virðir mínar lífsskoðanir þannig ég virði hans.
Við hjónin erum tvö í heimili. Eiginmaðurinn elskar að borða kjöt. En við samræmum þetta með því að elda grænmeti sem hentar báðum og svo sitt hvort til hliðar ef hann er með kjöt. Börn og barnabörn borða reglulega hjá okkur og þá er alls konar fiskur í matinn. Einstaka sinnum kjöt en þá líka fiskur því margir aðrir borða ekki kjöt.
Hjón á sama mataræði
Við erum tvö og 17 ára unglingur sem er í menntaskóla (heimavist). Allur matur sem er eldaður hér er án dýraafurða og unglingurinn fylgir því mataræði hér heima fyrir án vanræða. Hann borðar engu að síður dýraafurðir í skólanum eða annarsstaðar þar sem hann er.
Erum 2 í heimili en fæ oft fjölskylduna í mat
2 í heimili, uppkomin börn koma einu sinni í viku. Eiginmaðurinn borðar unnin mat, bjúgu og fleira, hann borðar ekki kryddað svo það eru eldaðar variasjónir af matnum. Ég sér, hann sér.
Við erum barnlaus hjón og mikill samhugur ríkir um matinn sem við eldum stundum saman og stundum fyrir hvort annað.
Tveir fullorðnir á heimilinu á sama mataræði
Ég bý með kærasta mínum og syni. Við borðum alls ekki sama mataræðið að fullu en oftast borða allir það sama því það auðveldar allt.
Við erum þrjú og við borðum bara grænkeramat hér heima. Maðurinn minn borðar stundum dýraafurðir en það tengist þá félagslegum viðburðum. Hann á erfitt með að taka ekki þátt í því sem er boðið upp á og vera með sérþarfir. Síðan eru tveir hundar sem borða mikið grænkerafæði og hefur heilsa þeirra batnað mikið eftir þá breytingu.
Ég bý ein - tvö börn og bæði farin að heiman - annað borðar allt og hitt líka en kýs frekar grænmetisfæði
2 fullorðnir í heimili. Annar borðar ekki grænmeti né ávexti en kartöflur samt.
Par með 10 mánaða barn. Maki er ekki vegan, borðar allt. Maki borðar allt sem ég elda en segist sakna að fá ekki kjötið eða fiskinn sinn. En barnið verður amk grænmetisæta.
Ég bý með sambýlismanni mínum og ketti. Sambýlismaður minn er mikil kjöt- og mjólkurvöruæta en honum finnst samt yfirleitt grænmetismaturinn sem ég elda vera góður. Hann þarf að borða öðruvísi mat en ég til þess að verða saddur þannig ég myndi örugglega borða öðruvísi ef ég væri bara að elda fyrir sjálfa mig (myndi t.d. nota minna mjólkurvörur og brauð, hrísgrjón og myndi borða meira salat og léttari mat).
Ég myndi örugglega vera alveg vegan ef sambýlismaðurinn minn væri með mér í því en hann er mikil kjöt-, fisk og mjólkuræta. Við hittumst í miðjunni með mataræðið þar sem ég sleppi öllu kjöti og fisk en nota enn mjólkurvörur. Hann sér svo alveg um kjötmatvæli en ég kem ekki nálægt þeim. Ef hann vill fá sér kjöt þá gerir hann það en ég vil ekki elda það né kaupa.
Erum tvö á heimili. Maki minn borðar kjöt þegar við förum út að borða eða pöntum mat, en þar sem ég sé um að matreiða á heimilinu þá borðum við grænmetisrétti eða fisk.
Erum þrjú, ég, móðir mín og bróðir minn.
Nei, er einn sem borðar svona.
Engin áhrif, ég borða mitt og þau sitt.
Bý með konu og 7 mánaða barni og við erum öll vegan.
Erum tvö í heimili - börn uppkomin. Samhugur um mataræði
Við erum tvö á heimilinu, ég og maki. Hann fer ekki eftir sama mataræði en þegar við eldum saman er það alltaf grænmetisfæði.
Það búa þrír á mínu heimili, þar af einn unglingur.
Það vinna allir úti, þannig að virka daga er kvöldmatur eina sameiginlega máltíð fjölskyldunnar.
Ég er sá eini í fjölskyldunni sem stundar hlutaföstu, og aðrir fjöskyldumeðlimir sýna því fullan skilning.
Á heimilinu búa þrjár manneskjur. Engin börn eru á heimilinu. Ég er sú eina sem borða ekki mjölmat en aðrir hafa líka orðið að taka upp laktósafrían lífsstíl (vandræðalaust). Mataræði mitt hefur þannig lítil áhrif á aðra fjölskyldumeðlimi enda er sá sem borðar ekki kjöt oft að heiman.
Ég bý ein sem hefur auðveldað mér lífið til muna. Áður bjó ég heima og þá vorum við 4 fullorðnir og ég ein vegan. Það var oft smá vesen með að elda sér og oftast þinn matur settur á hakann (annað hvort þurfti ég að vera búin að elda og þá orðið kalt eða þurfti að vera að vesenast í kringum hina í litlu eldhúsi að reyna að elda fyrir mig líka ef við vorum ekki að elda saman). Sem betur fer hefur fjölskyldan mín verið mjög opin fyrir þessu og lært fullt og er til dæmis bara keypt haframjólk núna í staðinn fyrir kúamjólk. Auk þess hefur flest allt meðlæti verið gert vegan þegar við borðum saman sem auðveldar eldamennskuna til muna.
En að búa ein og geta verið viss um að allt í eldhúsinu mínu sé vegan er mjög næs.
Ég bý með Mömmu og systur minni, þær eru ekki vegan en það hefur samt alltaf gengið fínt :) nýlega flutti kærastið mitt til mín (erum að bíða eftir að fá okkar eigin íbúð afhenda) og hán er vegan sem er mjög gaman
Ég bý ein. Þegar ég fæ gesti bæti ég við sem ég borða ekki. En börnin mín samþykkja alveg matinn minn.
Erum fimm á heimilinu. Ég elda oftast grænmetisrétt og svo smá kjöt egg eða fisk sem hinir geta borðað með og notað grænmetisréttinn sem meðlæti. En það gengur betur með hverju árinu að hafa eingöngu grænmetisfæði. Vissulega eru dýraafurðirnar líka stundum í aðalhlutverki og ég borða afganga.
En t.d. í jólamáltíðinni var alltaf og er hamborgarahryggur og hnetusteik. Fyrst leit enginn við hnetusteikinni, svo fór fólk að borða hana með og í ár fór verulega lítið af hamborgarahryggnum.
Við erum bara tvö hjónin núna en uppkomin börn koma mjög oft í mat. Við borðum sama mat og synir og tengdadætur eru vegan líka svo það einfaldar hlutina.
Tveir fullorðnir og eitt 20 mánaða barn. Allir á heimilinu eru vegan.
2 í heimili sem borða eins mat.
Við hjónin eigum eina tveggja ára stelpu og eigum von á annari bráðum. Við erum frekar samstíga er varðar mataræði.
Við erum þrjú á heimilinu, getum yfirleitt borðað það sama en hef stundum tvíréttað þar sem maðurinn minn vill meira kjöt, þá hefur maður t.d. grænmetisbuff enn hann snitsel. Strákurinn minn aðhyllist meira mataræði eins og mitt.
Erum tvö fullorðin ég grænmetis maki mikil kjötæta
Í dag erum við hjónin tvö á heimilinu. Grænmetis- og fiskneysla mín hefur ekki haft nein áhrif á fjölskyldu mína í gegnum tíðina, þau borða öll kjöt. Tek fram að ég hef einnig gaman af því að elda veislumáltíðir fyrir fjölskylduna og vini til hátíðarbrigða, þ.m.t. elda líka kjötrétti fyrir aðra og hef gaman af.
3. Við hjónin og 24 ára sonur. Sonurinn er ekki vegan en fær sér samt annað slagið. Hann eldar fyrir sig
Ég bý með 3 fullorðnum aðillum. Ég er sú eina sem borðar ekki kjöt en það er aldrei neitt vesen þar sem við borðum meira af kjöti en fisk. Ef það er kjöt í matinn þá er nánast undantekningarlaust til afgangar sem ekki innihalda kjöt.
Þrjú á heimilinu.
Ég elda oftast.Við erum tvö flesta daga nú orðið en barnabarn oft hjá okkur.Á sumrin og um jól /páska eru oft fleiri af fjölskyldunni heima, T.D síðustu jól vorum við sex í mat alla hátíðina.
Aðallega stuðning en finn fyrir því í matarboðum að fólki finnst stundum erfitt að þurfa að finna rétt sem hentar mér. Það skiptir mig litlu máli á þessu stigi og ég borða yfirleitt það sem er í boði þó eitthvað sé af kjöti í, reyni þá frekar að forðast akkurat þá bita.
Hvorki stuðning eða gagnrýni en oft forvitni yfir því hvað ég sé með í nesti því það eru oft afgangar frá deginum áður. Ég er líka oft spurð ráða um mat og mataræði.
Nánasta fjölskyldan mín er styður mig mjög en ég upplifi mig sem ,,vesen" í matarboðum og saumaklúbbum. Það getur verið erfitt að í hvert skipti sem borðað er í félagskap með öðrum þá þarf að ræða veganisma...og oftast að hálf vorkenna mér, eins og hann eigi að vera svo svakalega erfiður. Einnig finn ég að bændur og sjómenn fara í mikla vörn og koma með ýmsar ,,hroka" athugasemdir við mig án þess að ég sé neitt að ræða veganisma. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif á mig en með tímanum hefur þetta minnkað og ég farin að kunna að láta taka svona athugasemdir ekki inn á mig.
Furðulegast finnst mér þó að stofnanir hjá ríki og sveitafélögum eiga stundum erfitt með að taka tillit til veganisma og reyndist það t.d. kokknum á Reykjalundi frekar flókið. Þar var lausnin þurrt grænmetisbuff í flest mál ásamt salati. Þegar næringarfræðingurinn fór að hafa áhyggjur að ég fengi ekki nægilegt próteinmagn í matnum hvatti hann mig til að ræða við hann. Svarið sem ég fékk var þá ,,já þú borðar ekki kjöt og fisk". Eftir það var baunabuff til skiptis við grænmetisbuffin lausnin.
Upplifi stuðning alls staðar frá.
Gagnrýni fyrst en flestir í lagi nuna
Upplifi algjöran stuðning frá öllum
Maðurinn minn var mjög skúffaður yfir þessari ákvörðun á sínum tíma og ég fékk alls kyns komment frá fólki til að byrja með (t.d. að maður verði heimskur af því að borða ekki kjöt, að það væru bara beljur sem borðuðu gras, hvað ætti að gera við öll dýrin ef allir yrðu vegan á núll einni, hvort ég myndi borða svín ef ég væri föst með því á eyðieyju, hvar ég fengi prótein, o.s.frv.). Í dag styður maðurinn mig heilshugar, les innihaldslýsingar, passar að veitingastaðir séu veganvænir og hvaðeina. Mamma tryggir að flest meðlæti sé vegan á jólunum og áramótum, gerir fyrir mig hummus og skellir kannski í pottrétt ef ég er í heimsókn. Fæ ekki lengur leiðindakomment nema kannski frá ókunnugum eða kunningjum.
Ég hef upplifað að þónokkrir hafa tekið upp lífrænt fæði eftir að hafa talað við mig, en ég veit líka um fólk sem hristir hausnum yfir mér. Það skiptir mig engu máli - því ég er búin að kynna mér þetta það vel - að ég forgangsraða þessu ofar öllu - ég kaupi frekar notaða hluti fyrir heimilið, notuð leikföng, notuð föt en að sleppa því að kaupa lífrænan mat.
Það hefur engin verið leiðinlegur við mig í vinnuni t.d. en er oftast með það sama mitt skrítna brauð eða gulrætur og hummus, er komin með ógeð á eggjum. En venjulega er matur í vinnunni sem er mjög góður en ég bara þoli ekki. Sennielga er enginn að gagnrýna mig af því að þetta er innan gæsalappa ekkert val, ekki heldur einhver klikkaður kúr til að missa kíló eða þannig, ef ég ætla að fúnkera þá verð ég að borða svona. Allir hafa sýnt þessu skilning sérstaklega t.d. mamma og pabbi það er erfiðara að bjóða okkur i mat en mörgum öðrum, þau eru orðin mjög góð í að búa til sósu með engu hveiti (nota maismjöl) og engum mjólkurvörum nota jurarjóma í staðinn. Í eftirrétt eru yfirleitt líka keypt fesk bláber og jarðaber sem eru í boði ásamt t.d. Ísnum eða kökunni. Það væri erfiðara ef fólk tæki ekki tillit til manns en mér finnst umburðarlindi yfir allskonar hafa líka færst yfir á mat, ekki bara skilgreinigu á kyni eða kynhneigð, þannig að barátta fyrir allskonar hefur líka haft góða hliðarverkun fyrir aðra.
Margar vinkonur mínar eru vegan eða grænmetisætur þannig get reitt á þær en fæ oft leiðindi frá tengdó og er oft ekki boðið í mat hjá þeim sem mér finnst mjög leiðinlegt. Vinnu og skólafélagat eru líka flestir næs og gera alltaf ráð fyrir mér.
Já og það skiptir máli. Fólk spyr stundum klisjukenndra spurninga um mataræði en allmennt þjónar það oftast þeim tilgangi að vera til stuðnings.
Aðallega bara stuðning. Eldra fólk og tengdafjölskyldan mín sem eru bændur tuða stundum yfir mataræðinu en það hefur engin áhrif á mig
Stuðningur... en það er alls ekkert lykilatriði. Engin gagnrýni sem ég tek inn á mig.
Ekki mikið
Nei flestum þykir það eðlilegt í dag og kannski enn frekar vegna þess að ég er ekki alfarið grænmetisæta.
Finn ekki fyrir neinni gagnrýni.
Engin utanaðkomandi afskipti af mataræðinu, enda "varla hægt". Hvað aðrir telja um mitt mataræði skiptir mig ekki máli.
Ég er stundum kölluð matvönd en það á við um fleirri í fjölskyldunni.
Aðallega stuðning i dag en það hefur verið alls konar í gegnum tíðina. Mamma veit t.d. aldrei hvað hún á að gefa mér að borða þegar ég er heima og ég kem oftast með minn eigin mat. :)
Hvorki stuðning né gagnrýni, en mér finnst langskemmtilegast að plana eitthvað matartengt með vinunum sem borða eins og ég. Ég finn fyrir gagnrýni frá sjálfri mér á þá sem borða "eins og mér finnst rangt" eða eitthvað þannig. Finnst ekki gaman að borða með þessum kjöt-vinum mínum og mér finnst leiðinlegt að horfa upp á skeytingaleysið og virðingaleysið sem fólk hefur gagnvart mat, umhverfi og sjálfum sér stundum. En ég segi það ekki upphátt samt.. maður veit hvað fólk er viðkvæmt fyrir einhverju "vegan propaganda". En umhverfismálin eru mál okkar allra og það er leiðinlegt að horfa upp á fólk sem er alveg sama.. sérstaklega foreldra sína sem ættu að vera að hugsa um að skapa góða framtíð fyrir næstu kynslóð en er bara að hugsa um sín eigin þægindi.
Hef setið undir margvíslegri gagnrýni sem er kærkomin, gefur mér tilefni til að reka áróður í loftslagsmálum og náttúruvernd.
Almennt stuðning og skilning.
Upplifi stuðning ng og það skiptir máli
já stuðningur
Á ekki við mig.
Frekar gagnrýni ef eitthvað eða óþarfa leiðinda athugasemdir
Fyrst var frekar mikill gagnrýni frá fjölskyldu en núna eru þau hætt því. Vinir eru á sama matarræði og ég. Nei það skiptir mig ekki miklu máli, ég borða það sem ég vil
skammast út í okkur kjetæturnar
Alls ekki í vinnunni. Matar uppeldi er í miklum ólestri í íslensku skólakerfi. Bæði hvað varðar þjóð hætti og svo hollustu og fjölbreytni
Mikinn stuðning þó að í fyrstu hafi eldri foreldrar efast en hafa nú algjörlega snúið við blaðinu. Vinir og vinnufélagar eru aðallega forvitnir og áhugasamir sérstaklega þegar árangurinn leynir sér ekki. Og auðvitað skiptir það máli en við styðjum hvort annað í flestu í fjölskyldunni.
Upplifi ekkert annað en stuðning og skilning. Það skiptir auðvitað máli.
Veit ekki hvað segja skal. Það eru alltaf einhverjir sem eru með athugasemdir um eitthvað, en ég get alveg svarað þeim ef ég nenni og sleppi því ef ég nenni ekki. Það kemur fyrir að ég læt eitthvað fara í taugarnar á mér eins og þegar það er ýjað að því að maðurinn minn fái ekki að borða kjöt heima hjá sér og þá þurfi nú að stöffa hann upp af kjöt annarsstaðar. Eða athugasemd sem ég fékk í mötuneyti vinnustaðar míns nú rétt fyrir jól hvort ég leyfði mér ekki einu sinni að borða kjöt á jólunum. Svona algjört skilningsleysi á að þetta sé eitthvað sem maður vill en ekki einhver meinlæta uppátæki sem maður sé alltaf við það að springa á limminu.
Á ekki við
Núorðið vita þetta flest sem eru mér næst. Oftast þegar ég er boðin til fjölskyldu minni ég á að ég er grænmetisæta og bið þau að láta mig vita ef ég ætti að koma með eitthvað. Já, fæ óbeinan stuðning þegar tekið er tillit til mataræðis míns.
Upplifi oftast stuðning en sums staðar tómleika eða hlutleysi. Skiptir mig litiu máli.
Nei, það hafa allir skilning á mínum aðstæðum.
Ég fæ algeran stuðning frá fjölskyldu og engum finnst þetta neitt skrítið eða óþægilegt.
Öðru máli gegnir um suma i vini og fjar-fjölskyldu sem skilja ekki alveg hvað þetta er og halda að þetta sé val eins og td að vera vegan sem það er ekki. Aðallega er þreytandi að þurfa að útskýra hvað glútenóþol og laktósaóþol er og hvaða afleiðingar matvörur hafa fyrir líkamlega og andlega líðan.
Ég fæ mikinn stuðning frá tengdamömmu og systkunum sambýlismannsins míns. Þau eru öll mjög opin fyrir því að prófa nýjan mat og læra að elda vegan.
Honum fannst ég vera með vesen fyrst en svo sættist hann við þetta og er opinn fyrir að prófa nýtt. Honum finnst líka allt sem ég elda gott þannig það hjálpar.
Vinir mínir sýna mér stuðning þótt þau borði allt og passa alltaf að það sé eitthvað sem ég get fengið mér í partýum eða veislum.
Mér finnst gott að fá stuðning frá vinum og ættingjum.
Það helsta sem er erfitt er að reyna að útksýra vegan matarræði fyrir ömmum mínum, þær skilja það ekki alveg en þær eru forvitnar og reyna að læra hvað ég vil borða og hvað ekki.
Mamma sýnir þessu mikinn skilning því hún er sátt ef hún fær einhver til að elda fyrir sig. Pabba er sama á meðan hann má borða það sem hann vill.
Bara stuðning, aldrei gagnrýni. Stundum forvitni. Það skiptir mig engu máli, ég borða fyrir sjálfa mig.
Beggja blands, fyrst hneykslun og fordæmingu frá ákv aðilum, minna á seinni árum þar sem matarsóun og að sporna við henni er nú orðið mainstream hugtak.
Skiptir mig engu máli, ég ræði þetta ekki einu sinni við stórfjölskylduna eða vinnufélaga.
Ég hef ekki lent í neinum vandræðum með vini eða fjölskyldu vegna mataræðis.
Fyrst gagnrýni frá nokkrum á vinnustaðnum en það er hætt núna. Það var þreytandi að fá athugasemdir
Upplifði gagnrýni fyrst en nú er orðið frekar "normal" að borða grænkerafæði.
Ég hef upplifað mikla gagnrýni og fordóma frá fjölskyldu. Meira að segja skömm foreldra yfir því hvernig ég borða. Ég upplifi góðan stuðning frá vinum og margir hafa breytt mataræði sínu og borða alfarið grænkerafæði eða hafa aukið grænkeramat. Mér hefur þótt mjög erfitt að takast á við gagnrýni og neikvæðum kommentum.
Þau hafa ekkert um það að segja hvernig ég borða
Nei
Meiri gagnrýni almennt. Fólki finnst þetta skrítið sem ég skil ekki, ég skil ekki hvernig það getur borðað dauð dýr en ég segi ekkert um það en samt þurfa allir að gagnrýna það sem ég geri. "þú borðar það sem maturinn minn borðar", "gæti aldrei hætt að borða kjöt", "hvar færðu prótein og næringu?"
Ég hef aðallega uppfliða stuðning en það er alltaf einhverjir sem skilja þetta ekki. Þetta hefur reyndar breyst mikið á nokkrum árum og flestir farnir að sætta sig við að aðrir séu á þessu matarði.
Ég hef reyndar oft lent í því að fólki finnist það þurfa að réttlæta kjötneyslu sína fyrir mér og kemst jafnvel í uppnám þegar maður byrjar að rökræða við það. Ég nenni varla lengur að taka þátt í þessari umræðu þannig ég reyni að sleppa því að tala um þetta ef ég get. Fólk fer í svo mikla vörn og hættir að hugsa rökrétt þegar kemur að þessum málum Það stuðar alveg suma að heyra að ég sé grænmetisæta en sem betur fer eru flestir sem ég umgengst opnir og jákvæðir fyrir þessu mataræði.
Já ég upplifi mikinn stuðning frá öllum sem er mjög gott.
Ekki frá fjölskyldu og vinum, oft frá samstarfsfólki
Já, þreytt að þurfa að alltaf skilgreina hvað ég er að borða, afhverju og slíkt.
Upplifi langoftast stuðning, sérstaklega frá vinum og fjölskyldu en stundum gagnrýni og þá sérstaklega frá vinnufélögum.
Ekkert sérstaklega í umræðunni
Ég upplifi stuðning frá fjölskyldu og vinum, fólk borðar almennt minna kjöt þessa dagana og það er yfirleitt ekkert mál að ég borði ekki kjöt. Ég bjó úti á landi í 3 ár og upplifði þar mjög lítinn skilning, en það skipti mig svosem engu máli.
Flestir í mínu nærumhverfi sýna mínu mataræði fullan skilning, og eru áhugasamir um það hvað felst í þessum lífsstíl og almennt mjög hvetjandi og umburðarlyndir.
Fjölskyldumeðlimir hafa allir sýnt mér stuðning sem og vinir. Já, það gerir málin auðveldari.
Ja ég upplifi mikinn stuðning frá fjölskyldum og vinum sem mér finnst skipta máli. Það auðveldar öll mín samskipti við þau um mat og leyfir okkur að ræða málin og skipast a upplýsingum og fræðslu án þess að það sé vandamál.
Einnig skiptir það máli í samfélagslegum aðstæðum, eins og þegar vinahópurinn fer út að borða. Það munar öllu að þurfa ekki alltaf að minna á að ég sé vegan og passa að það sé pottþétt til eitthvað sem ég get borðað. Það hjálpar mikið að eiga vini sem hugsa um það og passa að ég sé með í öllu.
Nánasta fjölskylda er yfirleitt fín en þar fyrir utan reyni ég að forðast það að vera neitt að ræða það mikið. Auðvitað væri næs ef fólk gæti bara sýnt mér virðingu. Mest bara óþolandi tuð og mér svo jafnvel kennt um þrátt fyrir að vera mjög mjög sjaldan sá sem byrjar umræður
Já og það skiptir máli þau hafa líka séð mig veika af mat.
Ég upplifi allt frá forvitni til “hvar færðu prótein manneskja?”
Mikinn stuðning frá fjölskyldu og vinum. Það skiptir miklu máli. Ég hef fundið fyrir fordómum frá fólki sem þekkir mig ekki og það er óþægilegt að þurfa að svara fyrir það sem margir kalla dynti og sérvisku - þegar það eina sem ég er að gera er að huga að heilsunni. Ég er fegin að þurfa ekki að díla við fordóma meðal fjölskyldu og vina.
Upplifi mikinn stuðning, margir af okkar vinum eru vegan. Tengdamamma er vegan, foreldrar mínir eru ekki vegan en þau sýna mjög mikinn stuðning og skilning.
Mikill stuðningur of flestum finnst þessi lífsmáti spennandi
Eldri vinnufélagar mínir setja oftast út á það þegar ég fæ mér próteinsjeik í hádegismatinn. Ég læt það ekki á mig fá.
Mataræði mitt virkar ekki mikið öðruvísi en annara þannig séð svo það er ekki mikið spáð í því t.d. á vinnu stað, við erum öll ólík þar t.d. upplifi mikinn stuðning hjá fjölskildu þó sumir setji útá að maður fái sér ekki kjöt og telja það ekki gott fyrir mann að mann gæti vantað bætiefni - haha
Nei ekki í dag en var frekar fyrstu árin
Ég upplifi góðan og ríkan stuðning og skilning frá fjölskyldu minni, vinum og vinnufélögum þó ég borði ekki kjöt. Í dag er það ekkert mál miðað við viðhorf sem voru gagnvart grænmetisætum fyrir 40 árum síðan.
Hlutlaus fjölskylda. Vinnustaðurinn er ekki að taka mið af mér í t.d. jólahittingum
Fyrst þá upplifði ég gagnrýni frá sumum fjölskyldumeðlimum en það var fljótt að breytast. Vinir mínir hafa aldrei sýnt mér annað en stuðning.
Á tímabili hætti ég alveg að borða kjöt, en það var félagslega ekki þægilegt. Það eru svo margar kjötuppskriftir sem eru stór þáttur í heimilishaldinu sem ég vil ekki eyðileggja, er orðin of gömul líka til að fara alla leið, hefðirnar eru dýrmætar. En ef ég byggi ein eða með dætrum mínum væri aldrei kjöt á borðum :)
Ég upplifi mikinn stuðning og flestir hrósa matnum. Unga kynslóðin þ.e. barnabarnið hefur gagnrýnt að það sé orðið of mikil áhersla á grænmeti hér á bæ.
Já, þær hafa skipt mig máli og ég prófaði í fyrsta skipti um liðin jól að fá mér sérstakan grænmetisrétt á aðfangadag. Það var ekki svo flókið þar sem allt meðlæti hentaði mér svo þetta snerist bara um eitthvað í staðinn fyrir hamborgarhrygginn.
Er alin upp við breytilegt mataræði á hátíðum og hef haft það þannig að mestu. Hef sleppt hangikjöti og öðru söltuðu og reyktu kjöti en það er ekkert stórmál.
Ég hef búið mér til mínar matarhefðir á helstu hátíðum og það gengur vel. Fyrstu tvö árin mætti ég oftast með nesti í fjölskylduboð en núna upp á síðkastið fóru fjölskyldumeðlimir að leita ráða hjá mér og ég aðstoðað þá við matargerðina heima hjá þeim. Það er mikil framför á stuttum tíma.
Þetta er góð spurning. Möndlugrautur er til dæmis nauðsynlegur, en má alveg vera vegan. Hangikjötið get ég borðað með melónum eða perum, í stað uppstúfs. Maður á ekki að mála sig inni í einhvejrum kreddum.
Nei ekki þurf að aðlaga neitt
Ég reyni að passa að ég sé með mat sem passar við það sem er á boðstólnum. Á jólunum var ég með hátíðarhleif frá Junkyard, brúna sósu, rjómasalat (með vegan rjóma) og fékk með vegan brúnaðar kartöflur og grænmeti. Kom með eigin ís í eftirrétt. Aðrir fengu heimagerðan Toblerone-ís. Svipað skipulag hjá mér á gamlárskvöld. Hvort þessar hefðir skipti mig máli, er síðan annað mál. Ég gæti allt eins verið sátt við Mexíkósúpu á aðfangadag, eða lasagna á páskadag.
Þær skipta mig litlu máli - en það eru vissulega eftirréttir og annað tengt hátíðarhöldum sem ekki er hægt að gera nema nota ekki lífræn hráefni..... og ég er ekki að stressa mig á því öðru hvoru. En jú ég er hætt að drekka malt&appelsín - sakna þess smá - en þegar ég veit um litarefnin þá skipti það mig minna máli.
Þolum ekki reykt eða eitthvað þannig en við höfum yfirleitt kalkún, bara passa að hann sé ekki smjörsprautaður og þá getur þú bara haft þetta eins og þú villt. Það tekur tíma að þróa góða sósu sem er mjólkur og hveitilaus en þær eru ordnar fínar í dag
Ég elda fyrir mig sjálf á jólunum. Systir mín er grænmetisæta þannig við borðum það sama. Fyrstu jólin alveg vegan voru erfið en núna er ég orðin mjög góð í að útbúa jólamatinn.
Já, veit stundum ekki alveg hvað ég á að borða þá, sætti mig kannski við meira hversdagslegan mat og stundum hvetur það mig áfram til að prófa nýja og spennandi rétti.
Já ég fæ sér mat á meðan aðrir borða hamborgarhrygg. Það skiptir mig máli að fá góðan hátíðarmat líka
Já. ég geri geggjað portóbelló wellington yfir hátíðirnar
Ég ólst upp við að það væri bæði í boði grænmetiskkostur og kjöt a hátíðum svo ég hef haldið í þær hefðir.
Já, matarhefðir skipta máli. Fer eftir þeim án vandkvæða.
Já, ég og fjölskyldan nokkuð sterk í matarhefðum við hátíðir. Hefur verið óbreytt alla tíð.
Matarhefðir skipta mig miklu máli og ég er mjög þakklát fyrir að auðvelt sé að finna staðgengla fyrir dýraafurðir. Jólin og áramótin eru gott dæmi þar sem ég borða ótrúlega góðan mat, sem er mjög svipaður og maturinn sem fjölskyldan mín borðar. Einnig hef ég keypt mér vegan páskaegg um páskana og það er alveg æðislegt. Það eru mikil forréttindi að geta fylgt grænkera mataræði en samt átt svipaða matarupplifun og annað fólk
Nei þær skipta mig ekki máli með þeirri undantekningu að ég borða fisk á fösturdaginn langa.
Matarhefðir í kringum jól skiptia mig miklu máli t.d. en ég hef aðlagað þær að mér. Borða alltaf góðan vegan jólamat og mikið af graxlaxi og síld sem mér finnst sjúklega jólalegt og nauðsynlegt á þeim árstíma í dag.
Nei ekki neitt. Hefðir eru ekki neitt fyrir mér og mér finnst þær eiginlega bara pirrandi. Virði samt annarra manna hefðir og held jólin bara fyrir foreldra mína... annars væri ég til í að borða bara sushi heima hjá mér yfir gilmore girls eða eitthvað á jólunum.
Matarhefðir skipta máli og þykir mér sjálfsagt að taka tillit til þeirra þótt þær gangi þvert á matarræði mitt. Dæmi: Hreindýrasteik og lambakjöt á hátíðum
Ég hef þurft að aðlaga hefðirnar svo sem í kringum jólin þar sem hefðir snúast mikið um kjöt.
Nei ég hef ekki aðlagað sérstaklega fyrir utan áfengið.
Nei
já miklu máli.
Stór hluti af matarupplifun eru hefðirnar, þær veita notalega tilfinningu
Já, hefðir gera það, hangikjöt á jólum, ákveðnar kökur á ákveðmnum afmælisdögum o.s.frv.
Já hefðir skipta máli. Nota svipuð krydd í minn mat og hefðbundin, sömu sósuuppskriftir og meðlæti en bara aðlaga að jurtamjólk
Nei skipta mig ekki miklu máli
nei alls ekki
Já og ég hef ekki átt í neinum vandræðum með að gera lífrænt slátur, þegar ég kaupi slátur er hægt að fá það án sojuprotíns og viðbættra efna. Ég borða líka allan mat, en í eldhúsinu mínu er allt það lífrænt sem hægt er að fá lífrænt.
Það er einfalt að aðlaga hefðir og hátíðir og snýst aðallega um að sleppa sumu og aðlaga annað.
Þær geta gert það. En það er hægt að gera svo hátíðlegan mat sem passar vel inní þessar hefðir. Jafnvel svo að allt meðlæti getur verið vegan og það eina sem vegan og ekki-vegan fólk borðar öðruvísi er aðalrétturinn. Svo eru komnar kjötlíkis vörur sem minna mjög á ýmsar hefðbundnar jólavörur (t.d. hangikjötslíki og slíkt)
Helda að þetta hafi komið fram áður. Heima eldum við vegan um hátíðir og höfum gert í næstum 10 ár áður en vegan barnið varð vegan var hún grænmetisæta.
Á ekki við
Nei, matarhefðir skipta mig ekki miklu máli. En t.d. klassíska jólameðlætið á enn sess í minni eldamennsku, þ.e. grænmetisréttirnir.
Já við erum alltaf með rjúpur á aðfangadag og hangikjöt á jóladag. Get borðað allt slíkt þrátt fyrir sykur og kolvetnabann.
Ég geri heimsins bestu Hnetusteik, svo það er ekki vandamál.
Matarhefðir skipta svolitlu máli.... en mataræði mitt hefur töluvertt breyst frá minni barnæsku, en það hefur líklega breyst meira vegna veru minnar í útlöndum þar sem við kynntumst allskonar mat og venjum viðkomandi lands og við síðan tekið með okkur heim og gert að okkar. Þá helst frá Frakklandi og Ítalíu.
Ég þurfti að finna annan mat til að hafa á hátíðum því það var alltaf kjöt í matinn.
Dæmi um það er sprengidagurinn, ég þurfti að finna eitthvað annað en saltkjöt. Æðislega tengdamóðir mín gerir alltaf sér baunir fyrir mig án kjötsoðsins svo ég geti líka borðað með þeim.
Já, matarhefðir skipta máli og ég er ekkert að breyta þeim fyrir aðra. Á aðventunni bý ég til birgðir af hnetusteik og borða hana eða góðan fisk þegar aðrir borða kjöt. Við höldum fjölmenna hangikjötsveislu á jóladag og þá er alltaf líka hnetusteik.
Skiptir engu.
Já töluvert. Borða það sem mig langar í á hátíðum.
Já, það er búinn til sérstakur "gervi-stúfur" (sem sé uppstúfur/jafningur með hangikjöti) úr laktósafrírri mjólk (eða haframjólk) og ekki notað smjör ... það finnur enginn muninn.
Ég hef engar sérstakar matarhefðir og finnst gaman að prófa allskonar. Þetta er því í raun ekkert vandamál. Ef eitthvað er borið á borð sem ég get ekki borðað eða vil ekki borða, svo sem hvalkjöt, þá bara útskýri ég hvers vegna og það hefur mætt skilningi.
Já, ég hef aðlagað hátíðarmat að okkar mataræði og elska hátíðarmatinn okkar.
Já þær skipta mjög miklu máli en höfum sleppt hamborgarahrygg s.l. 7 ár, en ég elda alltaf hangikjötsrúllu. Reyni að kaupa þá allra minnstu sem ég finn, en stundum þarf þó að henda restinni
Já og nei.
Hefur tekist vel að aðlaga það, svo mikið úrval í boði núna. Breytti hamborgarhrygg í vegan wellington eða neatloaf. Auðvelt að veganvæða allt meðlæti og eftirmat.
Nei, það skiptir mig ekki miklu máli. Ég reyni bara að gera vegan eða grænmetis hátíðarmat í staðinn fyrir kjötið sem er venjulega borðað. Ég elska t.d. sveppa wellington og góðar hnetusteikur og finnst það alveg koma í staðinn fyrir kjötið.
Já ég hef gaman af matarhefðum, ég reyni þá að aðlaga mitt mataræði eftir ákveðnum hefðum þegar ég get.
Nei, skiptir mig engu.
Finnst hefðir skemmtilegar en ekki nauðsynlegar. Hef aðallega búið til nýjar matarhefðir í kringum jólin eða veganisað gamlar góðar jólahefðir sem hefur bara verið gaman.
Fjölbreytileiki er það sem skiptir máli
Já. Ég hef reynt að aðlaga hefðir að mataræði og það hefur verið mjög auðvelt. T.d. skipta út hamborgarahrygg fyrir vegan wellington en borða allt sama meðlæti og aðrir og fá mér hangioumph í staðinn fyrir hangikjöt.
Gamlar matarhefðir eins og t.d.þorramatur og kæst skata skipta mig mjög miklu máli, og þegar kemur að matarhefðum fjölskyldunnar um jól og áramót, þá hef ég þurft að aðlaga mig að breyttum áherslum og tíðaranda.
Já, matarhefðir skipta mig miklu, einkum þær hefðir sem skapast hafa um jól. Það hvarflar t.d. ekki að mér að borða hangikjöt án laufabrauðs. Hangikjötið er svo dásamlega þungt og um kvöldið drekk ég rauðvín þannig að meltingin hefur ekki farið á hliðina við það.
Það hefur komið mér mikið á óvart hversu auðvelt er að veganæsa flesta hluti þannig ég hef lítið þurft að breyta því sem mig langaði að halda.
Nei ekki þannig en hef veganæsað flestar hátíðarmáltíðir með góðum árangri (að mínu og annara (óvegan) mati)
Ég er búin að lenda í miklum veikindum þetta ár og lenti í vandræðum þegar kom að jólaboðinu sem öllum fannst ég eiga að halda. Jólamatarboðið var haldið og veitingarnar voru Dominos pizzur og ís á eftir og allir glaðir.
Þær skiptu mig meira máli þegar ég var yngri. Hef bara búið til nýjar hefðir með nýju mataræði.
Þær skipta mig ekki miklu máli, enda hef ég þurft að breyta öllu. Það er samt bara skemmtileg ögrun t.d. að búa til bolludagsbollur sem eru glútenlausar og vegan.
Fer eftir því hvað er verið að tala um með matarhefðum. Hefð að borða saman er mikilvæg eins og t.d. á jólunum og það hefur ekkert breyst. Hefð að borða dýr á jólunum er ekki mikilvæg hefð og það hefur breyst.
Já gamlar matarhefðir skipta mig miklu máli.
Það skiptir mig voða litlu máli enda var það ekki viðloðandi í minni fjölskyldu. Ég væri til í að fá malt og appelsín yfir hátíðarnar en annars er fæðurútínan mín nokkuð gegnumgangandi út árið.
Fæ mér hnetusteik t.d. á jólum í staðinn fyrir kjöt, það var auðveld aðlögun enda mun betra enn hitt. Elda tvíréttað í slíkum tilvikum.
Já það var frekar snúið fyrst
Matarhefðir og hátíðarhöld skipta miklu máli. Í mínu tilviki þegar kjöt er á borðum fyrir fjölskyldu og gesti er einfalt mál að bæta við einni hnetusteik eða fisksteik fyrir grænkerann.
Nei
Nei það skiptir mig ekki máli. Mamma til dæmis hefur alltaf haft wellington steik á jólunum en eftir að ég hætti að borða kjöt þá hefur hún bara gert sér deig fyrir mig með fyllingu, þá í raun aðlagaði mamma sig að mínu mataræði.
Já mjög miklu, en grænmeti og sveppir verða alltaf fyrirferðameiri, líka á hátíðum.
Matarhefðir skipta miklu máli og hef ég ekki breytt þeim nema var t.d. áður með hamborgarahrygg á páskum en nú get ég ekki hugsað mér að borða þannig mat.Er svo heppin að jólamáltíðin er villisveppasúpa og villigæs sem ég held mér við.
Ég get yfirleitt valið eitthvað sem er í boði sem er án kjöts eða fisks, þar sem ég borða enn egg og ost er það ekki mikið mál.
Læt vita um mínar sérþarfir ef mér er boðið í mat og yfirleitt er það ekki vandamál en ég hef þó lent í því að geta bara borðað kartöflurnar en það hefur sjaldan gerst. Sumir gestgjafar hafa verið stressaðir yfir þessu en ég reyni að gera lítið úr því og sleppi þá bara sósu eða öðru sem er líklegt til að henta mér ekki.
Því miður lendi ég oft í því að ekki er gert ráð fyrir mér í boðum og lendi ég þá í að þurfa að borða meðlæti eða þurrt brauð. Stundum er ég beðin um að mæta með nesti og í einstaka tilfellum hefur verið keypt vegan réttur fyrir mig.
Flestir koma af fjöllum að taka á móti mér í veislum, sumir verða alveg miður sín. Í síðustu viku gat ég bara borðað brauð með sultu í veislu. En mér er sama og finnst fólk ekki eiga að vera að eltast við mínar þarfir sérstaklega.
Stundum, en flestir eru mjög tilbúnir til þess að aðlaga að plant based/vegan. Við erum samt oft send heim með afgangs því enginn vill borða þá...
Það er alltaf nóg fyrir mig að borða þarf ekki að gera ráðstafanir
Ég fer nú ekki oft í veislur eða matarboð, en ég hef borðað áður en ég kem, ég hef tekið með mér nesti, ég hef tekið með mér fancy nesti sem ég hita upp á staðnum. Afi og kona hans hafa boðið fólki í mat á jóladag síðustu ár og í reglulega í sunndagssúpu. Ég hef alltaf mætt og eftir að ég varð vegan fór ég að koma með nesti, enda hafa þau ekki kunnað/nennt að hafa fyrir mér. Nú er frænka mín orðin vegan líka og við fengum nóg af því að vera boðið en geta (vilja) ekki borðað neitt sem á boðstólnum, þannig að frænka mín fór fyrr og bjó tl vegan súpu með konu afa míns.
Ég borða það sem er á boðstólnum þegar ég fer í matarboð - ég er ekki að predika yfir öðrum, en ég fjárfesti í öllu lífrænu fyrir öll matarboð/afmæli sem ég held - þó það kosti mig meira.
Hef ekki lent í veseni allir sem bjóða okkur í mat vita af þessu, t.d. köku afmæli þá er ég oft búin að borða áður og strákurinn tekur með sér mat t.d. Wokon Annars spyr fólk bara, komum oft með okkar eigin sósu. Bara það t.d. að hafa ostinn sér en ekki í sallatinu skiptir öllu
Kem oft sjálf með mat fyrir mig heim til tengdó og ömmu, mamma eldar alltaf eitthvað vegan fyrir mig. Heima hjá vinum þá elda þau vegan fyrir mig. Eldra fólkið er oft að skipta sér af og vera með dólg. Jafnaldrar mínir eru mest næs og skilja alveg. Ung börn eru meira bara forvitin afhverju ég er með öðruvísi og ég útskýri bara að ég vilji ekki borða dýrin.
Leiðinlegt stundum að þurfa að spyrja hvað er með kjöti og hvað ekki en oftast bara fínt og betra að vera forvitinn um hvað er á borðum en sinnulaus fyrir alla aðila.
Ég hef komið með minn eigin mat í matarboð en líka bara ekki gert mál úr þessi og bara borðað meðlæti. Finnst ég ekki geta gert þá kröfu að allir muni þetta eða sýni þessu tillit. Auðveldar líka töluvert að ég er ekki vegan held ég
Ég borða oftast fyrir veislur, það er bara vani.. en af minni reynslu gera gestir langoftast vegan mat fyrir mig (og aðra grænkera)
Já stundum
Stundum borða ég áður eða borða einfaldlega matinn sem í boði er. En mitt nánasta fólk er oftast með bæði í boði.
Svo viðhorfið er yfirhöfuð jákvætt
Þegar veislur og matarboð eru haldin, spyr ég ávallt boðsgesti hvort þeir hafi einhverjar sérstakar þarfir eða hvort það sé eitthvað sem þeir borða ekki. Mér finnst augljóst að spyrja því margar hafa óþol fyrir t.d. mjólkurvörum eða viðhafast sérstakt mataræði. Sjálfsagt að koma til móts við það.
Fer í veislur og matarboð. Engar rérstakar ráðstafanir að gera vegna þeirra eða vegna mín. Ekki upplifað nein viðhorf gagnvart mínum matarhefðum.
Nei ég lendi ekki neinu í veislum en þó borða ég bara dökkar kökur en ekki ljósar og helst ekki rjóma
Ég borða bara það sem mig langar í hverju sinni eða ég tel mig þola. Stundum er ég einfaldlega búin að borða og er ekkert að afsaka mig lengar með mataræðið mitt í flestum tilfellum. Oftast finn ég mér líka eitthvað að narta í.
Ég fer ekki mikið í veislur og matarboð. Ég held stundum matarboð með þessum vegan vinum mínum sem er mjög gaman. Ég mæti ekki í matinn í veislum með hinunm vinum mínum eða kem með eitthvað sjálf. Foreldrar mínir eru ágætir í þessu samt og bjóða okkur (við erum þrjár systur sem erum hættar að borða kjöt) alltaf upp á eitthvað vegan ef þau bjóða okkur í mat. Til að byrja með borðaði ég bara meðlætið í matarboðum samt. En sem betur fer hefur covid svoldið minnkað matarboð. Betur fer út af ég hata matarboð, ekki út af ég átti í erfiðleikum að borða í þeim. Hef ekki upplifað mikið svoleiðis. Annars finnst mér viðhorf langflesta vera bara nokkuð góð, allavega láta ekki í ljós skoðanir sínar ef þau hafa þær. Hef fengið einstaka spurningar bara og reyndar einn frændi sem elskar alltaf matinn sem við systur komum með meira en kjötið sem hann er með, svo það er bara jákvætt.
Í kaffiboðum býð ég ávallt upp á brauð og osta með kökum, jafnvel eitthvert grænmeti,. Hafi ég tíma baka ég gjarnan brauð.
Í matarboðum reyni ég að hafa fjölbreytt framboð, eitthvað fyrir alla. Samt oft eithvað sem þykir of framandi en gefur mér þá tækifæri til að segja frá og útskýra. Fólk prófar en er greinilega ekki hrifið af einhverju sen það þekkir ekki. Nefni t.d. rétti með þörungum. Gestir mínir kurteisir og bragða, gefa kananski ekki álit en fá sér ekki að borða.
Þarf að láta vita að ég borða ekki kjöt og viðhorfið gagnvart því er alltaf jákvætt. Hjálpar til að ég er opinn fyrir fiskmeti.
Nei engar ráðstafanir
Engar ráðstafanir. ég borða í raun allt þegar ég er annarsstaðar þó ég dragi úr kolvetnum heimafyrir.
Á ekki við mig.
Hef stundum tekið með mér en er minna upptekin af því dag, borða bara meira af meðlætinu, farin að líta meira á samveruna sem tilgang heldur það að borða matinn beint. Sumir gestgjafar reyna alltaf að bjóða upp á eitthvað annað en kjöt líka, aðrir jafnvel nákomnir muna enn þann dag í dag ekki að ég borða ekki skinku td. (4 árum síðar). Allur gangur árssu.
Ég borða það sem er í boði og ef það er kjöt þá borða ég bara meðlæti.
nei ekki enn þá
Það er alltaf eitthvað sem hægt er að borða og svo má gera einstaka undantekningar en það kemur þó fyrir að ég taki eitthvað með mér og fólk er þá forvitið og spennt að prufa en fordómarnir koma aðallega frá eldra fólki.
Hef yfirleitt upplifað góð viðhorf og hef alltaf boðist til að hjálpa til/gera eitthvað sjálfur til að létta undir. Þegar ég býð fólki í mat þá elda ég vegan og allir eru sáttir.
En ef maður fer eitthvað í veislu er þetta stundum svona ergilegt að það sé t.d. skinka í öllum heitum réttum og brauðtertum.. Að fara í veislur hefur samt breyst bara á sl. 2-3 árum og einnig þegar maður fer á ráðstefnur, þá er nú eiginlega alltaf eitthvað vegan í boði. Ég hef samt meira verið áhorfandi af þessu en endilega upplifað sjálf. Í veislum eru oftast kökur sem ég get étið þó þær séu ekki vegan en dóttirin hefur mörgum sinnum mætt í veislur þar sem ekkert hefur verið vegan.
Á ekki við
Hef bara upplifað jákvæðni frá gestgjöfum. Sér í lagi þegar ég læt vita að ég er grænmetisæta, þá segist ég oft geta komið með mitt eigið. Það endar sjaldnast þannig og gestgjafar útbúa vanalega einhvern grænmetisrétt.
Í standandi veislum finnst mér þó oft vanta að merkja rétti ef það er blandað veisluborð (þ.e. blandað af grænmetisréttum og kjötréttum).
Í veislum sleppur þetta yfirleitt. Vel það sem ég má borða og borða lítið sem ekkert af hinu. Gestgjafar sýna því yfirleitt skilning.
Í dag er þetta ekki vandamál, það er annarhver maður/kona sem eru ýmist Vegan, borða ekki rautt kjöt, borða ekki fisk og ekkert sem hefur augu, þar með talið kartöflur.
Þegar ég hef veislur og matarboð á mínu heimili að þá fá gestir það sama og ég get borðað og ég ræði það ekkert sérstaklega við fólk. En ef við erum á leið til annars fólks að þá verð ég alltaf að ítreka að ég geti engar mjólkurvörur fengið eða brauðmeti. Oft kem ég sjálf með GF brauð með mér.
En annars reyni ég að ræða þetta ekki, enda orðin yfir 20 ár sem ég hef verið svona og flestir vinir vita af því og gera ekkert mál úr því.
Ég hef lítið þurft að fara í veislur eftir að ég varð vegan út af Covid. Matarboð eru snúin, ég tala oft við gestgjafann mikið um matinn nokkrum dögum fyrir boðið og hef þurft að koma með eigin mat.
Seinast um jólin átti ég að fara í matarboð til ömmu og ég ætlaði bara að elda allt sjálf til að spara henni vesenið að finna út úr hinu og þessu. En svo forfallaðist ég.
Ég man ekki eftir að hafa fengið slæmt viðhorf frá neinum, gestgjafar spyrja mig oft hvort eitthvað sé vegan áður en þau kaupa það fyrir mig. Aðrir gestir eru oft forvitnir og ég er glöð að svara spurningunum þeirra.
Ef ég er boðin í mat læt ég vita af því mataræði mínu. En ég bið fólk að gera ekki mikið úr því og ég væri alveg sátt við að koma með einhvers konar aðalrétt með mér og fá meðlæti sem væri laust við smjör og rjóma.
Ég hef alltaf upplifað velvilja, en stundum veit fólk ekki vel um hvað ég er að tala.
Sumir vilja ekki borða mat sem það veit að kemur úr ruslinu( því það er yfirleitt maturinn sem er á boðstólum hjá mér), en þurfa kannski að láta sig hafa það og borða þá mj lítið.
Dæmi: Í stóru fjsk boði voru tvö lambalæri framreidd, annað þeirra hafði ég lagt til. Hitt lærið kláraðist.
Er ekki að spá í það varðandi veislur og matarboð.
Læt sem ekkert sé, sleppi því sem ég vil sleppa. Smá vesen með brauðið stundum en þá borða ég bara álegg (án þess að vera með vesen)
Sama svar og að ofan. Ég er með fæðuofnæmi og fólk skilur það vel. Það sem ég borða ekki af umhverfisástæðum hefur líka mætt skilningi. Ég er greinilega heppin með fólkið í kringum mig.
Stundum tek ég með mat en oftast er eitthvað á borðum sem ég get borðað
Ég hef verið mjög heppin að vinir elda þá vegan mat handa mér. Frænka mín hefur líka gert það þegar hún hefur boðið okkur. Ég elda sjálf þegar ég er með fjölskyldunni minni. Mér finnst ég almennt bara fá gott viðmót. Frá fjölskyldunni hafa komið athugasemdir að þau geti ekki eldað svona mat. Það hefur samt verið að breytast undanfarið og þau eru farin að matbúa oftar eitthvað fyrir okkur.
Nei, fer ekki í matarboð
Ég þarf stundum að taka með mér eða spyrjast um fyrirfram. Oft kemur leiðinlegt viðmót og fólk nennir þessu ekki, sérstaklega í tenglsum við vinnuna. Í stórum veislum eins og brúðkaupum, skírnum og fermingum borða ég nánast ekkert og þegi bara um það til að láta fólki ekki líða illa.
Já, ég þarf alltaf að athuga hvort það sé ekki alveg örugglega eitthvað í boði fyrir mig svo ég komi ekki sársvöng í matarboð þar sem ég get ekkert borðað. Þá vil ég frekar vera búin að borða á undan eða koma með minn eigin mat. En ég lendi eiginlega aldrei í því að það sé ekki eitthvað fyrir mig. Fólk er eiginlega alltaf yndislegt við mig en finn alveg stundum að fólk skilur þetta ekki alveg og finnst þetta óþarfa vesen. En það er mjög sjaldan, yfirleitt reynir fólk sitt besta við að búa til góðan mat fyrir mig.
Mér þykir mjög vænt um þegar fólk reynir sitt besta að gera góðan grænmetismat fyrir mig og aðrar grænmetisætur. Mér fannst t.d. ótrúlega krúttlegt þegar ég var í hádegismat hjá Ömmu og afa og þau höfðu keypt vegan hamborgarabuff sérstaklega fyrir mig. Amma fékk sér meira að segja vegan hamborgara með mér sem mér fannst dásamlegt, en þau eru sko alls ekki vön því að borða þannig mat sjálf.
Mér finnst oft leiðinlegt að þurfa að vera með vesen í kringum mataræði og stundum langar mig helst að sleppa matarboðum ef ég veit að það er mikið vesen fyrir gestgjafann að gera sérstakan mat fyrir mig.
Ég geri ráðstafanir í stærri veislum eða matarboðum og kem stundum með sjálf ef ég þekki ekki alveg vel til.
En þarf ekki að gera það í mínum nánasta hring, þar eru allir af vilja gerðir til að koma til móts við mig.
Borða það sem mér er boðið fyrir utan svínakjöt
Það er misjafnt eftir því hjá hverjum en oft býðst ég til að koma með 1-2 rétti í veislur. Langflestir gestir og gestgjafar eru mjög jákvæðir gagnvart veganisma og gera oftast sitt besta til að bjóða upp á eitthvað.
Engin áhrif
Yfirleitt býður fólk upp á grænmetisfæði ef það veit að það er von á grænmetisætum í mat. Ég hef samt lent í því að þurfa að borða bara meðlætið. Ég lenti einu sinni í því á Soroptimistafundi á Blönduósi að það var bara boðið upp á kjötsúpu, þá endaði ég á því að borða bara nokkrar sneiðar af snittubrauði. Ég fór líka á þorrablót á Skagaströnd þar sem það var ekki gert ráð fyrir því að fólk borðaði ekki dýraafurðir, en ég vissi alveg út í hvað ég var að fara og var búin að borða heima áður en ég fór af stað. Nokkrir samstarfsfélagar, menn á sjötugsaldri, voru á því þorrablóti og gerðu grín að því að ég hafi ekki fundið neitt að borða. Þeir meintu það ekki endilega illa, en þeir áttu ansi erfitt með að skilja mataræðið.
Engar sérstakar ráðstafanir með veislur og matarboð.
Ég læt gestgjafa mína yfirleitt vita og þeir hafa brugðist mjög vel við. Ég hef vissulega gleymt því og þá tek ég bara "laktósatöflu" og drekk rauðvín samviskulaust.
Það fer mjög mikið hvort það sé hjá nánum vinum og fjölskyldu eða einhverjum öðrum. Oftast er tekið tillit en það er meira í pálínuboðum sem ég hef þurft að koma með fleiri hluti til að vera viss um að ég fái pottþétt að borða. Ég hef oftast spurt þegar mér er boðið í mat hvort ég þurfi að koma með eitthvað til að vera viss.
I fjölskylduboðum, eins og á jólunum, þá hef ég oftast komið með mat sjálf, þá er meðlætið gert vegan og ég kem með aðalrétt sjálf ef ég er sú eina sem er vegan.
Það er mjög mismunandi en mér leyðist að fara í matarboð þar sem er ekki hægt að gera ráð fyrir mér (væri alveg sáttur með eitthvað keypt frosið og hent inn í ofn þess vegna) og mæti því sjaldan til fólks sem viðist ekki finnast það skipta miklu máli (hef verið vegan það lengi að þau ættu alveg að geta fundið út úr þessu, nú eða spurt mig :))
Ég. Hef ekki lent í vandræðum. Venjulega býð,ég upp á fisk og grænmeti og það er alltaf vinsælt.
Þegar ég er með matarboð þá er ég yfirleitt ekkert að segja fólki að þetta sé vegan matur, geri mjög góðan mat og fólk mjög ánægt. Hins vegar ef ég er að tala um að þetta sé vegan þá fara sumir í baklás en öðrum finnst þetta áhugavert.
Ég held mjög oft matarboð, en við erum sjaldan boðin í mat - enda martraðarpar, ég með mitt mataræði og maðurinn minn kokkur.
Vanalega eldar fólk vegan mat fyrir okkur ef við komum í matarboð, ef við förum í veislur þá gerum við annaðhvort bara ráð fyrir því að fá ekki mikið að borða og borðum því fyrir/eftir eða þá að við spurjum sérstaklega hvort það verði eitthvað í boði fyrir okkur. Ég er ekkert að stressa mig yfir því ef það er ekkert í boði fyrir mig, finnst hinsvegar mikilvægara að barnið mitt fái að borða.
Allir alsælir sem ég býð. Barnabörnin sem búa í Reykjavík finnst frábært að fá heimatilb bjúgu, saltkjöt, saltfisk o.þ.h
Það þarf ekki að gera neinar ráðstafanir varðandi mataræðið mitt. Það er ágætt þar sem að það þarf að gera nóg af ráðstöfunum fyrir ofnæmisstúlkuna mína.
Finn alltaf eitthvað sem ég get fengið mér. Eða fólk veit af því að ég er að koma og hafa eitthvað sem passar.
Já vantar oft að sé gert ráð fyrir að menn borði ekki kjöt
Í veislum og boðum höfum við boðið uppá eitthvað úrval af kjötlausum réttum til viðbótar við kjötrétti, gestir hafa verið hæst ánægðir með meira úrval. Oft vekur græna fæðið meiri lukku en kjötréttirnir.
Engar veislur í covid. Vinir taka tillit
Fyrst þegar ég hætti að borða kjöt þá olli það mér kvíða að mæta í fjölskyldumatarboð, en ég hef bara borðað meðlætið.
Þegar vinir mínir hafa boðið mér í mat þá passa þau að bjóða mér þegar þau ætla að elda eitthvað annað en kjöt.
Nei, ég borða það sem mér er boðið.
Þegar ekki er covið held ég matarboð og ég hef ekki þurft að gera sérstakar ráðstafanir því tengt .Ef ég er boðin í mat hef ég getað aðlagað mig oftast vel þá það sem hentar eða læt mig hafa það sem er á boðstólum og geri ekki sérstakar kröfur.
Hef aldrei vitað að fólk borði misjafnlega eftir kyni eða að viðhorf til matar fari eftir því, nema að margir karlmenn borða e.t.v aðeins meira magn
Nei það held ég ekki.
Bara tekið eftir tillitsemi í minn garð
Ekki út frá kyni, nei.
Ekki beint.
Nei en ég veit að þetta hefur verið erfitt fyrir strákinn og hann hefur borðað mat sem hann vissi að hann yrði veikur af, af því að honum fannst svo erfitt að vera öðruvísi en strákarnir en þetta er eitthvað að lagast með auknum aldri hjá honum
Sko já því ég er vegan feitur femínisti og fólk hefur mikið að segja við því öllu. En ég pirra mig lítið á því því ég veit hvað mér finnst rétt.
Nei ekki beint, kannski frekar sleggjudómum frá körlum en konum.
Já að ég ætti ekki að sleppa að borða kjöt af því ég er kona og fer á blæðingar og gæti fengið járnskort
nei..
Já það þykir eðlilegra að konur eða kynseginfólk sé grænmisfolk en t.d karlar
Nei, engar.
Nei en þegar ég var á vegan mat þá varð ég oft að útskýra hvað það sé og flestir bara rólegir eftir það. Kannski líka að mér verður oft flögurt af mati sem er bragð sterkur, fitumikil eða mikill sykur í.
Veit það bara ekki, held ekki. Líklega minni fordómar gagnvart mér að borða t.d. ekki kjöt heldur en t.d. karlmenn sem borða ekki kjöt upplifa.
Nei held ekki. Ég er ekki með það strangt mataræði að einhver hafi séð sér ástæðu til að böggast í mér yfir því held ég. Og þetta er orðið miklu meira "mainstream" en það var.
Nei
Nei.
Nei
Já fólk rekur stundum upp stór augu þegar talið berst að feitum mat og hollustu hans.
Á ekki við mig.
Nei
Nei
nei, við kallar erum svoddan kellingar
Ég hef ekki tekið eftir neinum viðhorfum gagnvart því að vera vegan karlmaður í mínu nærumhverfi. En ég hef séð á netinu allskyns áhugaverða eitraða karlmennsku þar sem það þykir eitthvað ókarlmannlegt að borða ekki kjöt t.d.
Nei get ekki sagt það. En hef tekið eftir að það eru fleiri konur en karlar vegan.
Engir fordómar eða sérstök viðhorf.
Nei.
Nei hef ekki tekið eftir því.
Ég á einstaka kunningja og vinnufélaga sem geta engan veginn skilið það að ég geti ekki borðað lambakjöt, sumir líta á það sem ,,landráð".
Nei ekki get ég sagt það.
Nei
Nei. En fólk á kannski ekki von á því að kona á mínum aldri hafi gert svona breytingar á mataræði.
Nei, ekki get ég sagt það.
Nei.
nei
Nei ekki tengt kyni.
Já, ég alveg tekið eftir því að það telst vera kvenlegt að vera grænmetisæta. Ef ég er t.d. að tala um einhvern vin minn sem er vegan þá spyrja mjög margir hvort hann eigi þá kærustu sem er vegan og sé bara að gera þetta útaf henni. Eins og karlmenn geti ekki tekið þess ákvörðun sjálfir.
Nei ég hef ekki tekið eftir slíku.
Nei, hef ekki tekið eftir neinu slíku
Fólki finnst eðlilegra að ég sé vegan útaf því að ég er kona. Fæ oft athugasemdir frá karlmönnum oftast að þetta sé kvenlegt.
Nei
Nei, svo sem ekki. Ég hef meira upplifað að viðhorf hafi tengst aldri mínum og stöðu, komment eins og "menntaelítan", "lattelepjandi", "sérfræðingur að sunnan" og þar fram eftir götum.
Ég hef ekki tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði mínu út frá kyni mínu.
Nei. Þeir feðgar hafa hins vegar bent á að það búi tvær þjóðir á heimilinu þegar ég sit, yfirstéttarkonan, með lærissneið í hádeginu en þeir með brauð.
Mér finnst ég vera meira samþykkt út af því að ég er kona, karlmenn eru oftar sá hópur sem tekur það fram að þeir myndu aldrei gera þetta.
En núna nýlega finnst mér sú umræða vera að breytast og að það sé að opnast meira að karlmenn séu meðtækilegir fyrir því að þeir gætu líka verið vegan
Jájá hef alveg fengið það að það sé nú ekkert voða karlmannlegt að vera vegan, þá gefið í skyn að mín karlmennska sé ekki nógu góð að einhverju leyti (ég ögra henni samt alveg líka á aðra vegu) en það er asnalegt og ég nenni ekki að pæla í því
Ekkert sérstaklega. Mér finn samt óþægilegt ef mér er boðið eitthvað sem ég veit að ég verð veik af.
Það er þetta með próteinið??. Margir eru mjög hræddir að ég verði fyrir próteinskorti. Sem er ekkert skrítið miðað við próteináróðurinn í samfélaginu.
Nei, man ekki eftir því.
Hef svosem ekki persónulega tekið eftir því að fólk hafi ákveðin viðhorf gagnvart mér en ég veit að almennt séð lítur fólk stundum á vegan karlmenn sem aumingja sem hafa engan vöðvamassa og eru bara allir að verslast upp, finnst þetta persónulega ekki geta verið fjarri sannleikanum.
Ég hef verið spurður hvort ég verði vöðvameiri á því að sleppa máltíðum og borða prótein. Ég hef velt því fyrir mér hvort ég fengi þessar spurningar ef ég væri ekki karlmaður.
Nei ekkert sérstakt.
Nei ekki tekið eftir því
Nei.
Nei
Nei, hef ekki tekið eftir því.
Nei.
nei ekkert tengt kyni.
Vegan Ísland, Veganistur, Vegan búðin
Googla svo ef ég er með grófar hugmyndir eða vantar replacement í ákveðna rétti.
Leita stundum á netinu að uppskriftum, engar sérstakar netsíður
Landlæknir.
Vefirnir:
mataraedi.is
vinotek.is
jamieoliver.com
ottolenghi.co.uk
Pinterest
Ég horfi talsvert á myndbönd á Youtube og fæ hugmyndir af Instagram. Síðan nýti ég mér Pinterest til að vista þær uppskriftir sem mér líst vel á. Vegan Ísland hópurinn á facebook hefur oft komið sér vel og þaðan fær ég margar upplýsingar og góðar hugmyndir.
Á goolge.
https://nutritionfacts.org
Netinu
Veraldarvefinn. Ég fylgi Hildi Ómars (https://www.instagram.com/hilduromarsd/), Veganistum (https://www.instagram.com/veganistur.is/) og Huldu B. Waage (https://www.instagram.com/huldabwaage/) á Instagram, er á Vegan Ísland (https://www.facebook.com/groups/1528322114068316) á Fb og alls kyns vegan hópum á Reddit. Ég leita að uppskriftum í gegnum Pinterest.
Aðallega mikið af vísindagreinum í byrjun um áhrif eiturefna í mat á heilsu fólks.
A Systematic Review of Organic Versus Conventional Food Consumption: Is There a Measurable Benefit on Human Health?: https://www.mdpi.com/2072-6643/12/1/7
The 2018 European Union report on pesticide residues in food: https://efsa.onlinelibrary.wiley.com/doi/epdf/10.2903/j.efsa.2020.6057
Efni með markaðsleyfi - varnarefni: https://ust.is/library/sida/Efni/T%c3%admabundnar_skr%c3%a1ningar_40-veflisti_%c3%a1g%c3%bast-2020.pdf
Impaired Reproductive Development in Sons of Women Occupationally Exposed to Pesticides during Pregnancy: https://ehp.niehs.nih.gov/doi/full/10.1289/ehp.10790
Effects of organic food consumption on human health: the jury is still out!: https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/16546628.2017.1287333
Attention-deficit/hyperactivity disorder and urinary metabolites of organophosphate pesticides: https://pediatrics.aappublications.org/content/125/6/e1270.short
Maternal urinary concentrations of pyrethroid and chlorpyrifos metabolites and attention deficit hyperactivity disorder (ADHD) symptoms in 2-4-year-old children from the Odense Child Cohort.: https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0013935119303305
Increased risk of ADHD associated with early exposure to pesticides: https://jamanetwork.com/journals/jama/article-abstract/186163
Characterization of HRGC/MS unidentified peaks from the analysis of human adipose tissue. : Onstot, J. D., Ayling, R. E., & Stanley, J. S. (1987). Characterization of HRGC/MS unidentified peaks from the analysis of human adipose tissue. National Human Monitoring Program, Field Studies Branch (TS-798), Exposure Evaluation Division, Office of Pesticides and Toxic Substances, US Environmental Protection Agency.
Review of current evidence on the impact of pesticides, polychlorinated biphenyls and selected metals on attention deficit/hyperactivity disorder in children: https://link.springer.com/article/10.2478/s13382-013-0073-7
Children’s low-level pesticide exposure and associations with autism and ADHD: https://www.nature.com/articles/s41390-018-0200-z
The association between exposure to environmental factors and the occurrence of attention-deficit/hyperactivity disorder (ADHD): https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0013935118302494
Nitrate in drinking water and colorectal cancer risk: A nationwide population-based cohort study. International journal of cancer,: https://onlinelibrary.wiley.com/doi/full/10.1002/ijc.31306
Are organic foods safer or healthier than conventional alternatives? A systematic review. Annals of internal medicine, - ATH MJÖG ÞEKKT GREIN SEM TÚLKAR NIÐURSTÖÐUR NEIKVÆTT: https://www.acpjournals.org/doi/abs/10.7326/0003-4819-157-5-201209040-00007
Association Between Exposure to Pesticides and ADHD or Autism Spectrum Disorder: A Systematic Review of the Literature.: https://journals.sagepub.com/doi/full/10.1177/1087054720940402
Is organic diet really necessary for children?: https://ijponline.biomedcentral.com/articles/10.1186/1824-7288-41-S2-A75
Efficiency control of dietary pesticide intake reduction by human biomonitoring: https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1438463916302929
Ársskýrsla Mast 2019 - eiturefnaleifar m.a.: https://www.mast.is/is/um-mast/utgefid-efni/skyrslur/arsskyrsla-2019
Starfsskýrlsa Mast 2018 - eiturefnaleifar m.a. : https://www.mast.is/static/files/library/Sk%C3%BDrslur/starfsskyrslaMAST2018_vef_A3.pdf
Neurodevelopmental effects in children associated with exposure to organophosphate pesticides: A systematic review: https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0161813X13001514
Chlorpropham given during the organogenesis period at high oral doses caused malformations and various types of developmental toxicity (Gupta, 2012).: https://www.sciencedirect.com/topics/medicine-and-dentistry/chlorpropham
Genotoxicity of mixture of imidacloprid, imazalil and tebuconazole: https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S2214750020303838
Quantitative Analysis of Neonicotinoid Insecticide Residues in Foods: Implication for Dietary Exposures: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC4081123/#:~:text=Additionally%2C%20flonicamid%20has%20been%20categorized,from%20that%20of%20other%20neonicotinoids.&text=Neonicotinoids%20are%20systemic%20insecticides%20and,have%20superb%20plant%2Dsystemic%20activity.
Trends in neonicotinoid pesticide residues in food and water in the United States, 1999-2015: https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/30634980/
Polycyclic aromatic hydrocarbons (PAHs) and organochlorine pesticides (OCPs) in sediments from lakes along the middle-lower reaches of the Yangtze River and the Huaihe River of China: https://aslopubs.onlinelibrary.wiley.com/doi/full/10.1002/lno.10197
Organophosphate Toxicity: https://emedicine.medscape.com/article/167726-overview
A systematic review of neurodevelopmental effects of prenatal and postnatal organophosphate pesticide exposure: https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0378427413014252
Physiology, Acetylcholinesterase: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/books/NBK539735/#:~:text=Acetylcholinesterase%20(AChE)%20is%20a%20cholinergic,into%20acetic%20acid%20and%20choline.
Worldwide decline of the entomofauna: A review of its drivers: https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0006320718313636
Neurodevelopmental effects in children associated with exposure to organophosphate pesticides: A systematic review: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC3899350/
"Organophosphate Toxicity - ekki grein en fín síða": https://emedicine.medscape.com/article/167726-overview
Managing pesticide chronic health risks: U.S. policies: https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/18032337/
ORGANIC FOOD INTAKE EFFECTS IN HUMAN HEALTH: file:///Users/andrimarstefansson/Downloads/ORGANICFOODINTAKEEFFECTSINHUMANHEALTH.pdf
Ekki grein - pesticide market: https://www.thebusinessresearchcompany.com/report/pesticides-market
Are EDCs Blurring Issues of Gender?: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC1281309/
Atrazine induces complete feminization and chemical castration in male African clawed frogs (Xenopus laevis): https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC2842049/
Glyphosate - DNA damage: https://www.gmwatch.org/en/news/latest-news/19776-proven-glyphosate-herbicides-change-gene-function-and-cause-dna-damage?fbclid=IwAR29JKsCCvu5SWRmnmK_Ny1IiFZ6iUJjKHu9kTYc0oMAD5L3-EbcL2hj9PM
Upplýsingar um Bt toxin - bakteríu: https://www.fs.usda.gov/Internet/FSE_DOCUMENTS/fsbdev7_015300.pdf
Mákona mín er búin að lesa sig mikið til og hún hefur hjálpað okkur mikið, mér féllust hedur fyrst þegar þurfti að breyta svona miklu í mataræðinu.
Einnig hefur Ásdís grasalæknir hjálpað okkur mikið. Svo googlar maður mikið
Veganistur, vegan ísland, vegan vinkonur, goggle ef èg vil eitthvað ákveðið, svo líka veganvæði ég uppáhaldsmatinn minn
Bara gúgla.
Netið aðallega, t.d. instagram og svo gúggla ég bara
veganistur, Vegan Ísland á facebook... ýmsar síður á Instagram... :)
Netinu
Netið aðallega á hinum og þessum síðum.
Mismunandi uppskriftabækur og nýjar uppskriftir frá vinum og vandamönnum.
Flestar uppskriftir á bak við eyrað en sitthvað hefur verið skrifað niður. Einnig er til nokkuð af uppskriftabókum á heimilinu. Einnig kemur fyrir að leitað er að uppskriftum á netinu, googlað.
Ég skoða yfir hjá ýmsum síðum og fb. vegan en oft er ég með svipaðan mat í hverri viku.
Googla bara uppskriftir og aðlaga að mér og því sem er til í skápunum :) Geri aldrei það sama... Er líka bara mjög dugleg að búa til mat frá grunni út frá einhverjum hugmyndum eða cravings sem ég er með hverju sinni. Er ekki dugleg að far eftir uppskriftum í þaula.
Úff veit það ekki.. er bara að hugsa sjálf yfirleitt en hef aldrei googlað einhverjar uppskriftir og nota þá bara það sem kemur fyrst upp.
veganistur.is er skemmtileg síða líka, var að gera tartaletturnar þeirra í áramótamat núna...
Sæki í eiginn sarp, hundruð bóka með fróðleik um mat, næringu, matarræði, þjóðlega matarhefð jafnt innlenda sem erlenda svo og uppskriftir af öllum gerðum.
Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna og því sem skifað er á þeim vettvangi um matvælaframleiðslu
Leita á vefnum og fæ reglulega upplýsingar og ábendingar t.d. frá Mark Bittman https://www.markbittman.com og uppskriftir á . eatsmarter@eatsmarter.de.
Á netinu. Gúgla það sem ég vil finna hverju sinni.
Reddit.com
Hinar ýmsu matarbloggsíður og pinterest
Er áskrifandi að danskri vefsíðu og baka stundum eftir henni, þar er bara almennur matur og slíkt.
https://www.veganistur.is/
held mig við hefðirnar
Hvert sem er. Mín heimspeki hefur ekkert með uppskriftir að gera. Þetta er val á hráefni og ég hef t.d. ekki átt hveiti í meira en áratug. Nota spelt.
Á internetinu helst.
Í "Vegan Ísland" Facebook hópnum. Annars bara einfaldlega gúggla ég.
Ég bara gúgla ef mig vantar upplýsingar eða innblástur, engar sérstakar vefsíður. Hef keypt nokkar sértækar bækur, s.s. um vegan ostagerð og seitangerð en annars er ég bara nokkuð vel upplýst.
Á netið, og stöku sinnum lít ég í matreiðslubækur.
Á ekki við þar sem tenglarnir eru svo margir. En google vísar mér oft leiðina í fyrstu.
Á bók um ketó fæði. Fylgist með á keto island sem er fb síða og á fleiri stöðum
Það er nú aðallega Google.
Ég er mjög dugleg að nota google til að finna uppskriftir og innblástur út fra hráefnum sem ég á. Svo á ég nokkrar uppskriftarbækur, sumar eru vegan en aðrar þarf ég að breyta eða nota til að fá innblástur. Ég er líka mikið á Facebook og fæ fróðleik og annað frá Vegan Ísland.
Annars nota ég mikið þessar síður:
veganistur.is
Sovegan.com
Tasty.co
Fyrst til að byrja með sótti ég upplýsingar á netið. Ég á líka bók um veganfæði. En matargerðin mín hefur lengi snúist um að kíkja á uppskriftir og búa svo til mínar eigin.
Stundum gúggla ég hvað er hægt að gera með þessu og hinu random hráefni (t.d salami og ertur) og fæ alltaf eitthvað skemmtilegt upp
Å netinu, sænskar matarsíður finnast mér góðar og aðgengilegar.
Netið yggldrasill.is svo er síða fyrir glútenlaust...man ekki slóð, hun.is og svo er ég í áskrift hjá sharecare.com
Ég nota bæði uppskriftabækur og netið. Fæ pósta frá womensweeklyfood.com.au sem er síða með mjög fjölbreyttum og skemmtilegum uppskriftum. Þá finnst mér alveg ótrúlega gaman að henda uppskriftum inn í næringaröpp til að vita hvernig maturinn minn er samsettur t.d. happyforks.com. Ég nota líka app sem heitir Supercook sem heldur utan um "búrið" mitt og ég get fengið óteljandi uppskriftir út úr því með því að velja hvað ég á til og hvaða hráefni á að vera í aðalhlutverki. Frábært tól til að sporna við matarsóun.
Vegan netsíður
Mikið á YouTube.
https://youtube.com/c/TheWholeFoodPlantBasedCookingShow
https://youtube.com/c/thehappypear
https://youtube.com/c/JaneEsselstyn
https://youtube.com/c/Simnettnutrition
Vefsíða með fullt af rannsóknarniðurstöðum:
https://nutritionfacts.org/
Síðan á ég fullt af uppskriftarbókum til dæmis frá Dr.Greger, China study, Forks over knives og fleiri.
á netinu, mbl.is og þess háttar
Í uppskriftir og í huga mér. mbl.is
Instagram (Hilduromarsd og veganistur) og Vegan Ísland á Facebook.
Ég skoða mikið pinterest og fæ síðan líka uppskriftir frá vinum og vandamönnum sem eru líka vegan eða grænmetisætur. Það er auðvelt að finna uppskriftir á google eða pinterest með því að googla uppskrift eða hráefni og setja "vegan" eða "vegetarian" með. Hérna eru nokkrar vefsíður sem ég hef notað í gegnum árin:
https://www.jamieoliver.com/recipes/category/special-diets/vegan/
https://www.jamieoliver.com/recipes/category/special-diets/vegetarian/
https://www.himneskt.is/uppskriftir/
http://www.veganistur.is/
https://grgs.is/
https://deliciouslyella.com/recipes/
https://ljufmeti.com/
https://minimalistbaker.com/
Horfi mikið á youtube og þar eru margir sem veita mér innblástur í matargerð.
Hér eru nöfn á nokkrum stöðvum:
Food wishes
Carla Lalli Music
Claire Saffitz
Honeybunch of onion tops
Jenn Imm
The Viet vegan
Brad Leone
Good Eatings
Cooking with dog
Maangchi
Hot for food
Eigin reynsla, vefsíður og námið mitt.
Á uppskriftabækur og leita mikið af upplýsingum á netinu. Vegan Ísland á facebook er líka góður kostur til að finna upplýsingar.
Las áður matreiðslubækur, en er í dag kominn með þá færni sem dugar fyrir það sem ég vil gera
Síður sem bjóða upp á mikið úrval af vegan og grænmetisréttum, t.d. Gulur, rauður, grænn og salt (http://www.grgs.is), veganistur.is (http://www.veganistur.is/), http://www.pinterest.com. Uppskriftabækur eins og heilsuréttir fjölskyldunnar.
Sæki upplýsingar og fróðleik og innblástur í vefsíður, umfjöllun og greinar á netinu.
Ég hef því miður ekki fundið neinar uppskriftir eða fróðleik sem taka sérstaklega mið af fólki eins og mér.
Ég fylgist með allskonar fólki á instagram og síðum þar. Helstu íslensku eru Hildur, GÓ Heilsa og Veganistur, auk þess sem Veganbúðin býður upp á alls kyns fræðslu.
Einnig nýti ég oft verkefni tengd náminu mínu í að fræðast meira um veganisma og sjálfbærrni og þá les ég allskonar rannsóknir, fræðilegar greinar og bækur.
Auk þess er ég mikil ahugamanneskja um heimsmarkmiðin og fylgi ýmsum síðum tengt þeim á samfélags miðlum og þar kemur fram margt tengt veganisma.
Ég googla yfirleitt bara það sem mig langar að gera, skoða nokkrar uppskriftir og hanna mína eigin. Veganistur eru líka snillingar.
Cafésigrún.com og svo almennt gúggla ég á netinu.
Hilduromars , fræ , jonoghelena , purelysigga , ebbaguðny á instagram. Svo er ég með app frá forks over knives og delissius ella. Nota þetta mikið og svo bara gúggla ég.
https://www.heilsubankinn.is/hildur/
og svo ótal erlendar vefsíður. Engar sérstakar, bara það sem ég finn hverju sinni.
himneskt.is
instagram
youtube
Googla eða leita í gömlum uppskriftabókum, s.s Jóninnu. Spyr eldra fólk í sveitinni um aðferðir.
Ég hef lesið bækur um föstur. Til að mynda Obesity Code - https://www.goodreads.com/en/book/show/24945404
Sé yfirleitt eitthvað á mbl.is matarvefnum þar eða inni á Heimkaup uppskriftir þegar ég er að versla. www.grgs.is og gott í matinn.
pinterest og svo ýmislegt annað sem maður dettur inná.
Á nokkrar bækur svo skoða ég á netinu ekkert neinar sér síður safna á pinterest.com
Ég sæki upplýsingar mjög víða að.
Bækur
Ég fæ oft uppskriftir frá vinkonum mínum sem eru duglegri en ég að prófa sig áfram í eldamennsku. Annars stunda ég það oft að elda bara úr því sem er til heima.
Mjög víða, alls konar vefsíður, erlendar og íslenskar.
Helst les ég uppskriftir í bókum og svo á miðlum s.s. matarvef mbl og fl.
Ekki nema ég sé spurð um það. Er ekki í neinu trúboði með mataræði.
Það mér mikilvægt að fræða aðra um matarræðið, en þó aðeins ef fólk hefur áhuga eða er að koma með athugasemdir varðandi það. Reynsla mín er að predikun virkar oftast öfugt og fær fólk frekar til að fara í vörn. Best er þegar hægt er að gefa þeim að smakka og sýna fram á hversu auðvelt er að gera bragðgóðan vegan mat á auðveldan hátt. Mér finnst auðvitað mikilvægt að sem flestir taki sem mest af dýraafurðum úr matarræðinu og því þarf að gera vegan afurðir vel sýnilegar í búðum og á veitingastöðum. Það þarf að koma því í umræðuna hversu mikilvægur veganismi er fyrir náttúruna, heilsuna og auðvitað dýrin. En einnig að láta það ekki líta út fyrir að vera svo mikil fórn í því að sleppa dýraafurðum...eins og virðist heyrast svo oft þegar fjallað er um veganisma í fjölmiðlum.
Nei. Ég veit um skemmtilegri umræðuefni.
Mér finnst alltaf gaman að tala um mat en hef enga sérstaka þörf fyrir að telja fólk á mitt mataræði. Ég virði skoðanir annarra þó ég sé innilega ósammála bæði um hollustu og hugmyndafræði.
Já væri til í það en kem ekki vel frá mér orði. Myndi óska að einhverju mundi þýða meira efni ts bækur frá https://nutritionfacts.org/ how not to die og how not to diet svo eg gæti gefið fjölskyldumeðlimum
Ég er ekki að fræða neinn um neitt nema ég sé spurð
Ekki mataræðið, per se, heldur dýrasiðferðið á bakvið það sem við borðum. Ég hef t.d. skrifað og deilt færslum um blóðmerahald og hvernig blóðið er nýtt til þess að búa til frjósemislyf fyrir gyltur svo hægt sé að ala fleiri grísi til að slátra.
Já mér finnst það mjög mikilvægt og ég er að reyna að gera það án þess að predika beint við fólk stöðugt - fólk verður að finna út úr þessu sjálft. Þar sem þetta matarræði er umhverfis og lýðheilsu mál þá er þetta mjög mikilvægt að þetta fái meiri umfjöllun.
Er búin að tala við þá sem skipta máli annars nenni ég ekki veseni
Já því veganismi leysir kannski ekki öll umhverfismál en hann er góð byrjun
Já ef fólk hefur áhuga, sérstaklega á því að rækta grænmeti til eigin neyslu og deila með þeim í kringum sig.
Nei ekkert í óspurðum fréttum en ef einhver spyr þá finnst mér gaman að ræða það
Já mér finnst það mikilvægt því ég trúi því að grænkeramataræði sé best fyrir heilsuna og umhverfið. Ég get engan veginn fundið nein rök sem mæla gegn grænkeramataræði.
Já til liða best
Nei finnst að mataræði annara komi mér ekki við svo ég ræði það lítið við aðra.
Ekkert sérstaklega. Mataræði mitt hefur ávallt tíðkast og er ekkert nýtt.
Ég er ekki mikill prédikari, fólk má hafa sýnar skoðanir á mataræði. Ég stend þó alveg fyrir því að fjölbreytt mataræði sé skynsamlegast, maður þarf að ná sér í svo fjölbreytt næringarefni.
Þegar ég var á vegan fæði þá fékk ég spurningar sem ég svaraði og er það vel.
Ekki lengur, nei, nenni því bara ekki nema ég viti að viðkomandi vilji ólmur fræðast um það og muni hafa gagn af því.
Ekki um mitt mataræði nei, en mér finnst mikilvægt að fræða aðra um t.d. áhrif mataræðis þeirra á umhverfið og þau sjálf. Við getum ekki haldið lífinu áfram eins og það hefur verið annars gerum við bara út af við plánetuna mun hraðar en ella. Ég er ekki bjartsýn á að við munum ekki gera út af við plánetuna anyway.. en betra ef það er hægt að hægja á því I suppose.
Og svo væri minna um sjúkdóma ef fólk tæki sér aðeins tíma í að pæla hvaða áhrif maturinn sem þau borða hefur á líkama þeirra. Þetta er bara bensín fyrir mörgum, og engin pæling umfram það um áhrifin.
Finnst nauðsynlegt að miðla upplýsingum um þátt matvælaframleiðslu í vexti CO2 í andrúmslofti og hlýnun jarðar. Og þar af leiðandi um nauðsyn að huga að sjáflbærni við matvælaframleiðslu, sporna við mengun af völdum eiturefna og stuðla að fjölbreytileika lífvera.
Nei í raun ekki. Finnst að fólk geti hæglega ákveðið sig sjálft í þessum efnum.
Nei. Er lítið fyrir áróður.
Já en án þess að predika.
Ágætt að fólk myndi sér sjálft sína skoðun og prófi ef það vill prófa. Hvort sem það er þetta mataræði eða annað.
Á ekki við mig.
Já mér finnst að allir ættu að borða helst veganfæði þar sem kjötneysla mun eyðileggja jörðina okkar.
nei, leyfa sérvitringunum að hafa sitt í friði, ef ég fæ mitt
Já, það væri t.d. eðlilegt að lækna- næringarfræðings- og líffræðingastéttin gerðu sér far um að leggja áherslu á gott og holt mataræði, sem líka væri í takt við verndun vatns og jarðarinnar allrar
Nei, ég er enn að finna minn takt sjálf.
Já mér finnst það, en þó ekki þannig að ég vilji vera að predika. Það er mjög mikilvægt, framtíðarinnar vegna, að fólk almennt minnki neyslu dýraafurða og ef ég get miðlað af einhverri þekkingu eða reynslu til þess að hjálpa fólki þá er það frábært. Dæmi um þetta hefur verið að tala við fólk um það að það getur fengið öll næringarefni út plöntu-miðuðu mataræði (en passa verður þó B12) og að það mataræði sé muuuun minna skaðlegt náttúrinni en hefðbundið kjötmiðað mataræði.
Já og nei, ég nenni ekkert sérstaklega að tala um matarræðið en kem því að þegar mér finnst það við hæfi að kjötframleiðsla sé afar þung á vogaskálum umhverfismála. Þar sem ég bý í bænda- og sjómannasamfélagi er það ekkert alltaf vinsælt og ég þarf að velja svoldið hvað ég tjái mig mikið þar sem ég verð líka að búa í samfélaginu. Ég kem þessum sömu sjónarmiðum samt skýrt til skila í starfi mínu sem kennari og hef sýnt nemendum kvikmyndir um þauleldi dýra og afleiðingar kjötframleiðslu fyrir umhverfið.
Nei, lít á það sem mitt mál, hef samt gaman að ræða um mat hverskonar við vini og vandamenn.
Nei, mataræði mitt er mitt mál. Geri ráð fyrir að fullorðið fólk í mínum hring taki sjálfstæðar og upplýstar ákvarðanir. Ef fólk spyr mig, þá svara ég og tek umræðuna ef áhugi er fyrir hendi og get þá bara lýst minni upplifun af grænmetisfæði. Fræði jú börnin mín um mataræði mitt til þess að þau geti tekið betur upplýstari ákvarðanir varðandi sitt mataræði síðar.
Hef ekki lagt mikið upp úr því að fræða aðra en svara og upplýsi ef fólk spyr. Vil ekki vera að troða upplýsingum upp á fólk sem hefur ekki áhuga á þeim. Svo hentar almennt mataræði mjög mörgum sem eru ekki að berjast við ýmsa velmegunarsjúkdóma.
Nei, ég geri það ekki að fyrra bragði, sumir eru með spurningar hvað varðar mataræði mitt, þá svara ég þeim með ánægju.
Já, til dæmis ef það er verið að elda fyrir mig eða kaupa eitthvað fyrir mig. Ég vil að fólk viti frekar að ég sé vegan svo ég geti borðað það sem er í boði.
Ég tala samt ekki mikið um það í vinnunni að ég sé vegan nema ef einhver spyr mig. Það eru enn nokkrir sem vita ekki að ég sé vegan eða lærðu það nýlega. Fólk þarf ekki alltaf að vita að ég sé vegan en ef það ætlar að gera fyrir mig mat þá vil ég að það viti það.
Ég er alveg til í að tala um mataræði mitt og hvað það hefur gert fyrir mig. En ég er ekkert sérstaklega að halda því að öðrum. Finnst það bara vera orðið hversdagslegt.
Það er tvíeggjað sverð, ef það er of almenn vitneskja og útbreidd um gnægtarborð gámanna og þeirri sturlun sem ofgnóttin þar sýnir fram á bregða verslanir á það ráð að læsa gámum og/eða ráða verði til að hindra för fólks í þá.
Hins vegar álít ég það að einhverju leyti vera ákveðna skyldu mína-og allra- að láta ekki matvæli, með öllum þeim tilkostnaði, vinnu, vatni og lsndrými sem framleiðsla þess útheimtir, bara enda í ruslinu. Allir ættu að vita af sóuninni og neita að taka þátt. Afsláttarkörfurnar (v/dagsetniga) sem nú eru komnar í sölu inni í verslunum eru að ákv leyti svar við ákalli mainstream neytenda gegn matarsóun, en stærra samhengið og vandamálið er kapítalisminn og ofgnóttin og fólk vill minna vita af því.
Nei ekki endilega
Nei - ekki nema með kjötið sem er loftslagsmál
Nei, kannski ekki þannig lagað séð en mér finnst mjög mikilvægt að fræða fólk um hvað við erum að gera plánetunni með því að versla "óupplýst". Við þurfum að skilja að við sem neytendur höfum ótrúlega mikil völd og valkostir einstaklinganna skipta bara mjög miklu máli.
Mér fannst mikilvægt að fræða fjölskylduna mína því ég vildi að þau lifi við góða heilsu en ég hef hætt því í dag. Ásetningurinn minn var góður en ég áttaði mig á því að fólk verður að fara sjálft í sína vegferð og það er mikilvægara að þessi fræðsla komi frá öðrum fagaðilum eina og til dæmis læknum. Því miður virðast læknar á Íslandi ekki vera að skoða niðurstöður rannsókna á mataræði og áhrif á sjúkdóma.
nei, mitt mataræði er mitt mál - ef ég er spurð þá svara ég
Nei
Ég yfirleitt nenni því ekki, oft enginn tilgangur í að eyða orku í það.
Já, ef fólk sýnir því áhuga er mjög spennt að hjálpa þeim og fræða það um mataræðið. Ég nenni yfirleitt ekki að þræta eða rífast við fólk um hvers vegna það er gott að vera grænmetisæta samt. Mér finnst það leiðinleg umræða og hefur ekkert upp á sig.
Mér hefur fundist það bera mestan árangur að vera grænmetisæta en gera lítið mál úr því. Að vera ekkert að reyna að troða mínum skoðunum á aðra því þá fer fólk í vörn. Ef ég sýni þeim í staðinn fram á það hvað grænmetismatur getur verið góður og lítið mál að elda þá er líklegra að það beri árangur. Ég tala samt oft um dýravernd og kjötiðnaðinn og hvað hann er slæmur en tala þá um það út frá því sjónarmiði að mataræði getur verið fjölbreytt og jafnvel það að sleppa því að borða kjöt einu sinni í viku getur verið frábært skref að taka.
Nei mér þykir það ekki mikilvægt, hver og einn ætti bara að sjá um það sjálfur.
Já og nei, flestir halda sig við að borða óhollt sama hvað þú segir þeim.
Já, í von um að fólk fari að hugsa um hvað það er að borða, dýranna og jarðarinnar vegna. Mér finnst best að gefa fólki bragðgóðan mat og lauma upplýsingum að fólki hér og þar. Ekki í bræði heldur mjög rólega að fá fólk til að hugsa.
Nei
Ekkert frekar en fólk vill fræðast. Skemmtilegast er bara að bjóða fólki í mat og sýna því að það þarf ekki að vera kjöt í matnum til þess að hann sé góður. Aðallega lendi ég bara í því að fólk er hugmyndasnautt um hvað ég borði í kvöldmat af því að við erum alin upp við það að kjöt er miðpunktur heitra rétta. Ég er helst að gefa fólki sem spyr um þetta dæmi um hentuga eða fljótlega grænmetisrétti.
Mér finnst ekki mikilvægt að fræða aðra um mitt mataræði, og finnst það vera alfarið mitt einkamál. Það er samt nauðsynlegt að upplýsa þá sem standa manni næst þ.e. fjölskylduna um mataræðið og þann lífsstíl sem því fylgir til þess að forðast misskilning.
Nei, en það er auðvitað mikilvægt að vinir og fjölskylda viti að ég borða hvorki mjöl- né mjólkurmat (nema laktósafrían).
Ja auðvitað, þetta er málefni sem varðar allt og alla. Ég sækist eftir því að bæta heiminn og að heimurinn verði áfram til þannig að allir geti lifað u satt og samlyndi og án þess að neysla okkar hafi slæm áhrif (eins og er að gerast í dag..) og því finnst mér mikilvægt að upplýsa aðra um það sem er að gerast og hvernig við getum bætt okkar hegðun.
Ég nýti instagram til að deila upplýsingum og fróðleik og á oft í samræðum við vini og fjölskyldur þar sem við ræðum saman og deilum reynslu og upplýsingum sem við vitum.
Já mér finnst það mikilvægt og vildi að öll myndu kynna sér veganisma að alvöru. En ég er samt ekki að fara að kynna hann hvar eða hvenær sem er
Nei mér finnst ekki mikilvægt að allir hafi sömu langanir og ég.
Mér finnst mikilvægt að fræða fjölskylduna mína.vegna þess að ég tel þetta mataræði vera best fyrir þeirra heilsu. Öðrum svara ég ef þeir spyrja en er aldrei með einhvern áróður.
Já, því mig langar til að hjálpa öðrum til betri heilsu. Það hef ég þegar gert með uppskriftunum mínum og það gleður ósegjanlega að fá bréf og skilaboð frá notendum.
Ef fólk hefur áhuga á að læra um það þá er ég tilbúinn að svara spurningum, er annars ekki að fræða fólk að fyrra bragði afþví það getur bara túlkast svolítið fráhrindandi ef fólk er ekki tilbúið að meðtaka.
Almennt finndist mér leitt ef gamaldags íslenskar aðferðir við vinnslu matar gleymast, mætti verða vakning hjá yngri kynslóðum.
Ég hef haldið þessu svolítið fyrir mig. Þó ákvað samstarfsfélagi minn að gera eins og ég og fann fyrir jákvæðum breytingum á lífi sínu.
Nei ekkert sérstaklega
Nei hef ekki mikið gert af því
Hef ekki mikla þörf á að útskýra mitt matarræði sérstaklega eða að fyrra bragði, sýni fólk því hins vegar áhuga þá eru slík samtöl uppbyggileg og ánægjuleg.
Nei. Bara ef spurt er
Mér finnst bara að fólk eigi að bera virðingu fyrir öðru fólki óháð því sem það borðar.
Nei, ég geri það ekki mikið en það þyrfti að koma á átaki, vegna loftslagsbreytinganna.
tala nú ekki mikið um þetta við aðra en fólkið mitt í fjölskyldunni og reyni að útskýra fyrir t.d. barnabarninu um áhrif eiturs í náttúrunni og hollustu matvæla.
Hugsa um allar neysluvenjur og velja sjábæra hluti og mat þegar hægt er, t.d. varðandi geymslu matvæla, sápur og heimilisvörur og fatnað.
Minni neysla, minni matarsóun, minni notkun jarðefnaeldsneytis, endurnýting og endurvinnsla, skógrækt og grænmetisrækt, Umhverfisvænna val á vörum og þjónustu, Umhverfisvænni hús og efnisnotkun í húsum.
Ég er byrjuð að rækta kartöflur, kryddjurtir og ætla mér að auka við heimaræktun á næstunni. Það er liður í sjálfbærni að passa að taka ekki meira frá jörðinni en við gefum til hennar. Best væri ef hægt er að rækta og framleiða sem mest af matvælum á Íslandi á umhverfisvænan hátt. Ég vona að það verði mikil þróun í grænni matvælaframleiðslu hér á landi sem allra fyrst.
Að geta gert tiltekna hluti áfram til eilífðar án þess að skemma umhverfið, nær og fjær.
Að eiga fyrir mat og reikningum
Það sem ég geri er að neyta engra dýraafurða og versla innlenda matvöru ef hún er til, flokka sorp eins og ég fái borgað fyrir það, molta, keyri um á rafmagnsbíl sem ég keypti notaðan, kaupi fátt og þá helst notað, nýti allt fram í rauðan dauðann, versla vottað ef það er fyrir hendi, versla umbúðalaust ef það er fyrir hendi, nota sem minnst einnota vörur, kaupi vörur sem eru frekar í pappaumbúðum en plastumbúðum, tala um fyrir sjálfbærni, kýs með það í huga, vinn við það, læt gera við.
að öll þín neysla taki mið af sjálfbærni, maturinn okkar er eitthvað sem viðkemur okkur öll alla daga, alltaf og hvað við veljum að kaupa í búðinni hefur afleiðingar. Við neytendur höfum mikil völd í það í hvaða átt umhverfið og heilsa okkar er að þróast.
Sjálfbærni er að borða lífrænt, minna kjöt og dýraafurðir, og minni matarsóun.
Fyrir mér er fullkomin sjálfbærni torfbær og sjálfþurftarbúskapur en ég efa að það sé hægt ná því og nútíma lífstíl.
Æskilegast væri að rækta sjálfur en ég er ekkert sérstaklega góð í því, fuglarnir átu öll jarðaberin mín, fékk reyndar góða hindberja uppskeru.
En svona fyrir utan að ræka sjálfur þá væri ákveðn sjálfbærni að kaupa innlent, því minna þurfum við að treysta á aðra því lengri keðja því meira sem getur farið úrskeiðis og meiri mengun
Aðalatriðið fyrir mér er að ef ég eignast börn að þau þurfi ekki að berjast jafn róttækt fyrir umhverfinu
Að taka með í reikninginn umhverfisáhrif á persónulegar ákvarðanir og vera meðvitaður og með opin huga upp á að gera breytingar.
Að ganga ekki um of á auðlindir jarðarinnar, taka akkúrat nóg þannig að það bitni ekki á öðrum manneskjum og lifverum
Jafnvægi milli þriggja þátta sjálfbærni, efnahagslega, samfélagslega og efnahagslega. Reyna að versla við nærsamfélagið, sóa minna og nýta meira. Gera betur gagnvart jörðinni og reyna stuðla að því að börnin mín og þeirra kynslóð ásamt þeim sem fylgja á eftir munu geta búið við mannsæmandi lífsgæði um ókomna tíð. Það á ekki að skemma framtíð komandi kynslóða að borða kjöt og aðrar dýraafuðir.
Hamingja
Sóa minna, nýta betur
Að nýta afurðina sem best, og endurnota úrgang í moltu ef hægt er. Kaupa afurði sem næst búsetu og nota ekki bíl til verslunakaupa.
Það að allt sem við notum sé í hringrás, efnið sem við notum komi aftur inn í fæðu og fat.
Þegar fólk ræktar sitt krydd, er duglegt að elda frá grunni.
Ég bara veit það ekki lengur, er búin að fara í marga hringi með það og nenni ekki lengur að ofhugsa það. Eins og ég sagði einhvers staðar í öðru svari hérna er það helst að valda bara eins litlum skaða án þess að tapa geðheilsunni í að ofhugsa allt.
Matur fléttast mikið inn í það hugtak að mínu mati. Held ég hafi talað svoldið um það í öðrum spurningum. Hugsa um áhrif matarins út fyrir orkuna sem hann veitir þér. Velja mat sem getur sustain-að þér til lengri tíma án þess að lenda inn á stofnun en einnig mat sem skemmir ekki plánetuna eða skaðar aðra í heiminum. Reyna að lifa bara þannig að þú hafir sem minnst áhrif (allavega slæm áhrif) út frá þér, eins og að labba það sem þú þarft að fara að nýta almenningssamgöngur. Flokka ruslið þitt... hugsa vel um náungan...eitthvað svoleiðis
Minnka vistspor mitt. Það geri ég með því að nota bílinn minn helst aðeins fyrir ferðir út á land. Geng og nota strætó í Reykjavík.
Fer sparlega með vatn og rafmagn, læt ljós ekki loga að óþörfu. Borða sáralíið kjöt. Ætti að draga út neyslu mjólkurvara, vistspor nautgriparæktar óheyrilegt, gífurleg landnotkun, vatnsnotkun, metangasútblástur og svo mætti lengi telja.
Að lágmarka úrgangsmyndun. Velja innlenda framleiðslu og umhverfisvæna.
Líf sem er meðvitað um þær auðlindir sem það byggir á og forðast ofnotkun.
Að nota afganga, að kaupa skynsamleg inn. Rækta sínar eigin kartöflur ef hægt er.
Fara vel með jörðina
veiða hvali því Guð skapaði hvalina til að éta þá og viðhalda eðlilegri fæðukveðju
Vera ekki öðrum háður í daglegum rekstri.
Minni sóun og betri nýting, jafnvel ræktun á grænmeti og öðrum afurðum sem hægt er að rækta.
Að neyta eins lítils af öllu og mögulegt er. Að endurvinna það sem hægt er og skapa nýtt úr hráefni sem annars fer í rusl. Að rækta matvæli og nýta mat vel og lifa heilbrigðum lífstíl í sátt við náttúruna.. frekar en fólkið.
Sjálfbærni er þegar ekki notað of mikið af mat sem hefur hátt kolfefnisspor.
Sjálfbærni í daglegu lífi mínu er mín tilraun til þess að gera sem mest úr því sem ég hef og velja að nýta kosningarétt minn (peninga) til góðra verka og styðja umhverfisvæna framleiðendur.
Að kaupa sem hreinustu afurðir. Henda engum mat. Nýta alla afganga.
Sjálfbærni er víðfeðmt hugtak, getur átt við svo margt. Umhverfismál t.d. sem síðan tengist matvælaframleiðslu.
Kaupa árstímabundnar vörur, t.d. grænmeti sem er í uppskeru í þeim mánuði.
Athuga hvort vörurnar sem þú kaupir séu ræktaðar á sjálfbæran hátt.
Nýta það sem er núþegar til.
Ég myndi vilja borða miklu meira af mat beint frá býli og stutt aðkominn. Í því væri falin góð nálgun að sjálfbærni. En það er ekki einfalt hér á Íslandi.
Skref mín til sjálfbærni í daglegu lífi varðandi matargerð eru helst þau að borða mat sem kemur stutt að og er í takmörkuðum umbúðum. Yfir sumarið ræktum við kartöflur, salat, rauðrófur, gulrætur og sitthvað fleira fyrir utan rabarbara og rifs. En það er dropi í hafið af öllu því sem við borðum.
Ég vil bera sem minnst heim af umbúðum utan um matvæli og finnst fúlt að geta aðeins fengið fisk í einföldum pappírsumbúðum í fáum fiskbúðum. Og ég hef til dæmis hætt að borða risarækjur því þær eru fluttar svo langt að.
Að borða mat sem annars hefði endað á haugunum, nýta almennt það sem til fellur, kaupa helst ekkert.
Að flokka sorp þ.m.t. lífrænt , að borða úr nágrenni, að skila til baka eins og ég kom að. Fara með dósir og gler,
Hún felur það í sér að það sem ég kýs að gera í mínu daglega lífi muni ekki skaða plánetuna og skila henni í verra ásigkomulagi til næstu kynslóðar.
Ekki sólunda auðlindum jarðar
Búandi í borg þá myndi ég kalla sjálfbærni að geta keypt sem mest af íslensku grænmeti, ávöxtum og kornmeti. Mér finnst galið að ríkið setji ekki meira fjármagn til grænmetisbænda því að við höfum heldur betur mikla möguleika á að framleiða mikinn mat hér. Mér finnst alltaf áberandi á haustinn hvað íslenska grænmetið klárast alltaf fljótt.
að taka ekki af því sem ekki endurnýjast sjálft
Að vera ekki að eyða í óþarfa, minnka matarsóun, bensínskostnað, fatakaup og því um líkt. Ásamt því að borða vegan mataræði. Kaupa sem mest íslenskt.
Að reyna að kaupa sem mest local, t.d. grænmeti og annað sem er búið til á Íslandi. Reyna að sóa eins litlum mat og hægt er og nýta allt sem maður kaupir. Reyna að kaupa umbúðalaust ef það hægt.
Hef ekki hugsað út í það
Ekkert pælt í því
Að nýta hluti sem best.
Leiði ekki hugann sérstaklega að þessu
Að borða umhverfisvænar afurðir, helst íslenskar og helst frá smábændum eða bara úr garðinum ef það er hægt. Að molta og endurnýta og henda ekki mat.
Í mínum huga felst í sjálfbærni í daglegu lífi, sá skilningur að vera sjálfum sér nægur með flesta hluti, þar með talið ræktun, landbúnaðarframleiðslu og aðföng til daglegrar notkunar.
Ég verð því miður að viðurkenna að ég hef ekki hugsað út í það. Þetta er eitt af þeim hugtökum sem ég tengi frekar við landbúnað eins og hann var stundaður á 19. öld og öldunum á undan.
Sjálfbærni í mínu daglega lífi felst í því að skilja ekki eftir mitt vont fótspor, ég reyni að passa það að neysla mín hafi sem bestu áhrif á jörðina og umhverfið mitt.
Það felst í því að vera ekki að kaupa óþarfa hluti, reyna að kaupa notað eða skipta við aðra ef það virkar. Ég forðast fast-fashion og almennt bara að kaupa án þess að hugsa og skoða hvort ég nái að finna aðra lausn en að kaupa nýtt.
Hugsaðu um hvað þú ert að gera og sýndu öllu virðingu, ef þú sýnir virðingu þá held ég að þú getir ekki gert neitt slæmt?
Sem allra minnst rusl og nýta vel. Ég bý hátt uppi og hef ekki fundið leið til að flokka í lífrænt, set samt mold og gróðuafganga sér og flokka ruslið mitt, Ég gef frá mér föt sem ég nota ekki lengur og kaupi notuð föt.
Að reyna að nota sem mest úr nærumhverfinu, ég er með gróðurhús og ræktunarkassa og reyni að rækta sem mest sjálf. Líka mikilvægt að nýta allt til að koma í veg fyrir matarsóun og kaupa eins lítið og ég get af því sem kemur langt að. Það er erfitt fyrir mig þar sem allt efni í glútenfrían bakstur kemur langt að.
Þegar ég hugsa um sjálfbærni þá hugsa ég um að þurfa ekki að neita einhvers útávið og geta lifað af með því t.d. að rækta sinn eigin mat. Á mínu heimili er ekki verið að rækta mat en það má hugsa um þetta í stærra samhengi, sjálfbærni Íslands t.d. og því mikilvægt að versla íslenskar afurðir.
Hugsa um féð mitt. Hvað þær borða og hvað ég þarf að gera til að hindra að þær fái sjúkdóma. Rækta mitt eigið fóður fyrir þær þ.e hey. Þær eru sólgnar í hvönn og því sker ég hvönn fyrir þær á vorin
Við erum með nægan fituforða til þess að keyra okkur áfram í lengri tíma. Ég er tiltölulega sjálfbær næstu vikurnar - en ég þyrfti alltaf vatn og steinefni.
Borða það sem fæst úr nær umhverfi sínu.
Að nota það sem er næst manni rækta grænmeti og lítill flutningur
Sjálfbærni er táknrænt um "hið góða líf" þar sem tekið er mið af þörfum og takmörkunum náttúrunnar. Sjálfbærni snertir ekki bara umhverfismál heldur líka félagslegt réttlæti, heilsu og velferð, menningarmál og efnahagslíf. Að baki sjálfbærni býr vitund og þekking um þau takmörk sem náttúran setur umsvifum fólks. Jafnframt felst í sjálfbærni viðurkenning á því að mannkynið stendur frammi fyrir flóknu samfélagslegu verkefni ef takast á að sætta hugmyndir fólks og væntingar um „hið góða líf“ við takmörk náttúrunnar.
Sjálfbærni í mínum huga er að ganga ekki óhóflega á auðlindir náttúrunnar og minnka neyslu.
Að ganga ekki á náttúruna, endurvinna o.þ.h.
Að geta haft sem mest frá sér eða nærumhverfinu til að nærast og dafna.
Fjölbreytt mataræði og litríkt, lítil sem engin kjötneysla. Ferkvörur og lítið unninn matur er hollari en mikið unninn.
Fjölbreytni í fæðuvali, bæði kjöt, fiskur, grænmeti og kornvörur mikilvægt
Fersk matvara, rétt fituval, lítill sykur, rétt hlutfall af næringarefnum miðað við leiðbeinandi reglur landlæknis.
Hollur matur er í mínum huga matur sem er lífrænt ræktaður og sem minnst unninn og með sem fæstum aukaefnum. Í mínum huga eru dýraafurðir ekki hollar...kannski af því að ég fann svo mikinn heilusfarslegan ávinning af því að taka þær út úr matarræðinu mínu.
Hollur matur er ferskur, lítið unninn og etinn í passlega litlu magni.
Hollt er án dýraafurða og lítið unnið, helst allt frá grunni. Meira meira og meira grænmeti, baunir, hnetur fræ
Matur sem er ekki bransanum er hollur
Ég hugsa til nýgerða kanadíska fæðuhringsins. Á honum er helmingurinn grænmeti og ávextir, fjórðungur er kornmeti og fjórðungur er próteingjafi (og þau mæla með baunum þar), þ.e. fjölbreytt plöntumiðað mataræði. Mikið af grænu og dökkgrænu grænmeti, sem minnst unnið og sem fæst innihaldsefni.
Lífrænt fæði - en einnig að horfa á að borða minna af dýraafurðum og pæla í hvernig umbúðum maturinn kemur í. Þú getur keypt lífrænan mat sem pakkað er inní mjög mengandi umbúðir sem "eitra" matinn. Þannig heilsusamlegt matarræði þarf að vera lífrænt - en í umbúðum sem ekki menga matinn okkar.
Hollur matur í mínum huga er litið/ekkert unninn og helst lífrænn eða þar sem lítið er notað af efnum eða keyptu fóðri t.d. Íslenskir tómatar eða lambakjöt.
Matarfrelsi og hlusta á líkamann.
Matur í borðaður með virðingu og fenginn með virðingu, í passlegur magni og með mikilvægum næringarefnum.
Fjölbreyttur og næringarríkur, litríkur, oft lífrænn og laus við aukaefni. Ekki unnar matvörur.
Grænmeti, Ávextir, fjölbreytni, næringarríkar máltíðir, jafnvægi.
Huga vel um sig
Vel uppbyggð máltíð næringarlega séð sem er jafnframt bragðgóð og veitir þannig ánægju
Að hann sé ferskur og sem minnst unnin. Uppruni hans frá vistbænu búi og matræddur með virðingu fyrir hverju hráefni.
Fjölbreyttur matur, Allt er gott og sumt er gott í hófi, samspil af magni og gæðum.
Hollur matur er grænmetis réttir eða matur sem er eldaður í skamman tíma, þó getur verið þörf á að taka inn bætiefni.
Hollir, lítið unnir prótíngjafar, mikið grænmeti, glúteinlaus korn og fitugjafar úr jurtaríkinu.
Fyrst og fremst að fá orkuna og næringarefnin sem líkaminn þarf úr matnum þínum og vera ekki að skaða heilsuna með því sem þú borðar. En einnig er svona huglæga sambandið við mat mikilvægt. Að vera ekki að verðlauna sig eða refsa sér með mat, telja kaloríur og vigta allt ofan í sig eða eitthvað þannig. Eiga heilbrigt samband við mat bara og bara hugsa út í það sem þú velur þér að borða. Ekki vera á autopilot.
Hollur matur er fyrst og fremst fjölbreyttur matur, trefjaríkur, sem uppfyllir þarfir líkamans hvað snertir orkuefni (prótein, fitu og kolvetni), vítamín og önnur snefilefni. Dæmi um hollan mat eru þörungar. Þér innihalda allt sem líkaminn þarfnast. En að sjálfsögðu væri afar leiðigjarnt að tönnlast eingöngu á þörungum. Og heilsusamt mataræði þarf að ppfylla kröfur um sjálfbærni.
Rétt samsetning á næringarefnum. Ekki mikið af unnum matvælum.
Það sem tekur tillit til vistkerfisins og viðheldur heilsu neytandans Og dregur úr lyfjanotkun.
Alvöru matur sem gerir fólki gott.
Hollur matur er maturinn sem fer vel í okkur, fyllir af góðum næringarefnum, steinefnum og vítamínum
Ekki steika og brasa of mikið, ekki úða í sig skyndifæði eða tilbúnum réttum of oft. Hollur matur er upprunalegur og fer í einstaklinginn.
Næringarríkur matur
það sem manni verði gott af
Fjölbreytni, hollusta, ómengað af aukaefnum og vinnslu.
Lítið eða ekkert unnið, ferskt og mikið af grænmeti og ávöxtum. Minna/lítið/ekkert kjöt og mjólurvörur.
Hollur matur er fjölbreyttur og plöntu-miðaður. Sama hvort fólk hættir að borða kjöt eða ekki þá hafa allir gott af því að borða meira af grænmeti, meira af ávöxtum, meira af baunum, meira af lítið unnu kornmeti og meira af hnetum.
Fjölbreytt grænkerafæði úr heilu og upprunalegu hráefni, helst lífrænt ræktað og úr nánasta umhverfi.
Kjöt og fiskur er mjög hollur með grænmeti og ávöxtum.
Hollur matur er sá matur sem fólk hefur aðgang að og veitir næga næringu hverju sinni. Í draumasamfélagi, þar sem enginn ójöfnuður ríkti væri hollur matur lífrænn, óunninn, með litlu / engu magni af sykri og hvítu hveiti og umhverfisvænn.
Matur sem er ræktaður sem næst manni og sem minnst meðhöndlaður í verksmiðjum. Matur sem inniheldur næringaríkt fæði. Feitt kjöt og fiskur.
Lítið unnin matvæli, trefjarík fæða, ferskur fiskur. Hnetur ýmiskonar, ávextir og ferkst grænmeti.
Allt mataræði getur verið heilsusamlegt, það fer eftir hvað hentar hverjum og einum. Fyrir mig þá er það grænmeti, , ávextir, kornvörur og baunir.
Hollur matur er m.a. lítið unninn.
Í mínum huga er létteldaður ferskur matur heilsusamlegastur og hollastur. Ferskur fiskur, nýuppteknar kartöflur, brakandi ferskt grænmetissalat með nokkrum dropum af ólífuolíu, salti og hnetum ásamt góðu brauði og olíu er minn uppáhaldsheilsusamlegur matur.
Lítið unninn matur, framleiddur án eiturs, sem ekki er fluttur langa leið.
Að hafa það sem oftast eldað frá grunni og með sem fæstum aukaefnum. Mikið grænmeti
Og holla fitu ,fisk og kjöt.
Fjölbreyttur matur, ferskur, ekki of mikið. (Gleymist að spyrja um vítamín og lýsi, se, sé bætiefni)
Í hollum mat er eldað úr fersku hráefni.
Eins hreint og grænt mataræði og hægt er
Borða sem mest af heilnæmri plöntufæðu. Ekki mikið unnin matvæli, borða til dæmis ólífuna en ekki ólífuolíu, borða appelsínuna en ekki appelsínusafa. Þannig að við fáum alla næringuna úr matnum en ekki hluta þess. Elda mest frá grunni og passa upp á að borða baunir á hverjum degi. Einnig þarf að passa upp á að tala d vítamín og b12.
Svo finnst mér líka mikilvægt að við njótum matarins, gefum okkur tíma (sem er oft erfitt í þessu hraða samfélagi), séum sveigjanleg og getum leyft okkur stundum að til dæmis að borða mat sem er minna heilsusamlegur eins og þegar við förum út að borða.
það er svo misjafnt, en ég held að ég hafi lýst því hér fyrir framan hvernig mataræði mitt er og það er hollur matur fyrir mig
Hráefnið sé ómengað.
Nóg af grænmeti, ávöxtum, baunum og tófú. Sem minnst unninn matur og ruslmatur, lítil sykurneyslu.
Hollur matur er matur sem er gerður sem mest frá grunni og inniheldur eins mikið grænmeti og hægt er. Mikilvægt er líka að borða fjölbreytt svo maður fái sem mesta mismunandi næringu úr mataræðinu. Reyna að sleppa sykri eins og hægt er og passa sig að hafa ekki of mikið af salti eða unninni matvöru.
Borða gott magn af grænmeti og ávöxtum og reyna að hafa gott jafnvægi á hlutunum.
Fjölbreytt, nóg af næringarefnum. Óunnar vörur.
Hollur matur er óunninn matur sem hefur jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu.
Hollur matur er lítið unninn og vel samansettur af hollum fitum og prótínum. Mikilvægt að borða fjölbreytt og mikið af grænmeti.
Ferskur, hollur og fjölbreytilegur matur
Næringarríkur og lífrænn matur. Hollur matur er seðjandi, nærandi og án aukaefna. Dæmi um hollan mat eru baunir, hafrar, grænmeti, ávextir og hnetur. Heilsusamlegt mataræði er að blanda þessum hráefnum saman í bragðgóða rétti og hafa gott jafnvægi á því hvaða næringarefni líkaminn fær.
Heilsusamlegu mataræði er í mínum huga hollur og næringaríkur matu á borð við grænmeti, ávexti fisk og óunna kjötvöru.
Í mínum huga er heilsusamlegt mataræði það sem er ferskt og maður þolir án þess að fá ofnæmi. Ég er t.d. með svæsið nikkelofnæmi og get því ekki sett hvað sem er ofan í mig. Mér þykir t.d. grábölvað að geta helst ekki borðað hnetur, baunir og fræ.
Borða fjölbreytt, góðan mat án þess að setja sér neinar hömlur (það býr til neikvæða tenginu við mat) og velja það sem gefur mér góða orku og mér líður vel þegar ég er búin að borða.
Það sem nærir þig og lætur þér líða vel, það er mismunandi eftir fólki hvernig það lítur út. Ég vil taka það framm að það eru til nokkrar ástæður fyrir því að einhver geti ekki verið vegan en í þeim tilfellum þarftu að gera það sem þú þarft til að halda í heilsuna þína. Þær undantekningar eru samt ekki algengar.
Matur sem gerir mér gott og mér líður vel af
Í mínum huga er það óunnið jurtafæði
Það er mjög persónubundið hvað hentar hverjum og einum, en hollt er í mínum huga sérstaklega ferskmeti og matur sem er unnin frá grunni. Grænmeti.
Í einföldu máli þá er að mínu mati hollur matur plöntumatur sem er sem minnst unninn. Því meira unninn sem maturinn er þá inniheldur hann minna af vítamínum, steinefnum og trefjum og er því óhollari.
Allur almennur matur, og að passa að fæðið sé ekki einhæft. Það hvernig skepnum er slátrað og hreinlæti við slátrun og meðferð matvæla er mikilvægt
Lítið af kolvetnum og færri máltíðir. Hollur og góður matur lætur mann líða vel.
Hrein fæða og ekki mikið unnin.
Það sem hentar best hverjum og einum sem er nokkuð misjafnt hefi í huga mat úr öllum fæðuflokkum
Heilsusamlegt mataræði er hollur og góður matur, ríkur af næringarefnum, sem ræktaður er og framleiddur í sátt við umhverfið og náttúruna á sjálfbæran og lífrænan hátt.
Orkuríkur og nærandi án eiturefna
Lítið af unnum mat, mikið af grænmeti, ávöxtum og baunum.
Lífrænt, hreint hráefni, mest grænmeti, korn og baunir.
það þarf að huga að því að matur innihaldi öll næringarefni sem líkaminn þarfnast, sé án aukaefna og lífrænn. Hollur er hreinn matur.
Já, ég hef ekki ennþá fundið þörf til að færa mig alveg yfir í vegan mataræði en er opin fyrir því og vil minnka við mig neyslu dýraafurða eins og kostur er. Ég er spennt að sjá leiðbeiningar frá Landlækni um hvernig ég geti tileinkað mér grænkeramataræði á meðgöngu og kynnt börnin mín fyrir þeim lífstíl án þess að hafa áhyggjur af upptöku vítamína og næringar.
Já í mínum huga eru dýr ekki matur. Mér líður vel á plöntumiðuðu fæði og get ekki séð mig breyta því nema þá helst að borða aðeins hollar.
Já, ekki nema einhvers konar dystopian framtíð verði til þess að aðgengi að plöntumiðuðum mat takmarkist svo verulega að einstaklingur getur ekki þrifist nema að borða dýr eða dýraafurðir.
já, svindla samt stundum og finn vel fyrir því
Já allavega í nálægri og fjarlægri framtíð
Já, eftir því sem ég best get. Hef minnkað við kjötneyslu og reyni að neyta aðeins hráefnis frá vistvænum búum eða grænmetisbændum.
Já ég get ekki ímyndað mér að ég byrji að neyta dýraafurða aftur.
Ég sé ekki fyrir mér að byrja að borða kjöt nokkurn tímann aftur, mér finnst sá iðnaður bara of ógeðslegur að öllu leiti, óumhverfisvænn og eg hef enga löngun í kjöt. Sama með mjólkurvörur ég reyni að forðast þær þótt þær séu frekar upp á pallborðinu. Ég sætti mig við að það sé mitt framlag til að gera heiminn oggulítið betri.
Já og breyta því með tímanum í meira vegan held ég. Ég er á báðum áttum með fiskinn.. hann er svo hollur en margt svo slæmt við hvernig hann er framleiddur fyrir okkur.
Bind vonir við að komast lengra, komast nær sjálfbærni.
Já.
Held áfrma að borða það sem mig langar í og get náð í.
Ég held fleiri munu taka hana upp
alla ævina þar til ég verð tilbúinn undir tréverk
Já. Það er nokkuð ljóst. Bíð spennt eftir að kvikni á perunni hjá bændum og maður geti fengið allskonar lífræna osta og katröflur og kjöt.
Já þetta er þróun sem er enn í vinnslu.
Já, svo lengi sem ég lifi.
Já, held að það muni bara aukast þær áherslur sem ég er byrjuð með eins og að borða illgresi og úr nærumhverfinu eins og fjöruplöntur og þang og þara.
Já. Nema ég gerist vegan. Aldrei að vita hvort eða hvenær það gerist
Já ég geri það.
Já.
Já, það ætla ég rétt að vona.
Ég mun alltaf borða svona því ég finn hvað mér líður vel.
Nei, reyni að fara meira í að vera Grænkeri.
Já gæti aldrei farið til baka.
Já, ég mun aldrei borða kjöt eða fisk aftur.
Já held það.
Já, mun gera það sem eftir er ef ég get.
Já.
Að óbreyttu
Mér finnst mjög ólíklegt að ég byrji aftur að borða kjöt en ég er opin fyrir því að borða fisk sem er veiddur og unnin á ábyrgan og umhverfisvænan hátt. Enn sem komið er er þó mjög lítil áhersla lögð á að neytandi viti hvaðan sjávarafurðir koma.
Ég tek einn dag í einu, og sé fyrir mér að þetta mataræði endist mér ekki fram á efri ár.
Já, annað er útlokað fyrir mig.
Já það mun ég svo sannarlega gera. Ég mun aldrei hætta að verða vegan
Já.
Já alveg eins.
Já.
Já 100%
Já og ganga lengra í skálfbærni.
Já en reikna með að verða alveg vegan í framtíðinni
Já, hiklaust.
Já algjörlega.
Já algjörlega
Já ég ætla að efla mig frekar í ræktun og sjálfbærni í mat.Sé fyrir mér að halda þessu áfram meðan ég get.
Finnst einkennilegt að könnunin geri ráð fyrir að maður hafi breytt mataræði sínu eitthvað mikið, hef borðað eins og ég geri árum saman. Mundi bara segja að ég reyni að borða fjölbreyttan hollan mat, með áherslu bæði á grænmeti og dýra afurðir. Með einstaka freistingum samt (súkkulaði, ís t.d.)
Það þarf að fræða ráðamenn um ávinning veganisma á umhverfið og heilsu og í framhaldi þrýsta á breytingar í styrkjum í matvælaframleiðslu á Íslandi. Einnig þarf að uppfæra manneldismarkmið í ljósi nýrra rannsókna og passa upp á að í öllum opinberum mötuneytum sé boðið upp á plöntufæði. Fræða þarf kennara um veganisma, útbúa fræðsluefni fyrir nemendur og breyta áherslum í næringarfræði og heimilisfræðikennslu í skólum. Því miður er enn talsvert um fordóma og vanþekkingu í þjóðfélaginu gagnvart vegaisma. Margir eru á þeim stað sem ég var, þ.e. að langa til að taka skrefið en fá hræðsluáróður allt í kringum sig og m.a. frá heilbrigðisstarfsfólki, því miður.
Það vantar spennandi fræðsluefni a íslensku
Nei
Hef engu við að bæta.
Nei
Nei
Nei
Nei
Ekki sem ég man eftir.
Nei :)
Nei held ekki
Þjóðmijasafnið á hrós skilið fyrir þetta verkefni. Vona að það eigi eftir að vekja fólk til umhugsunar.
Nei.
Held ekki. Vona bara að aðgengi fólks að matvælum hvort sem er grænmeti eða annað verði áfram góður.
Nei
éta sem mest án þess að verða feitibolla. "Fyrr er fæða en fullur magi". Þá væri enginn feitibolla til í heiminum, sem kostar milljarða -:(
Við töpum þjóðmenningunni, þjóðháttum og ekki síst tungunni ef við höfum höfum ekki efni á að fá vel menntaða Íslendinga til starfa í uppeldisgeiranum.
Ekkert sem mér dettur í hug.
Hugsa betur um matargerð, forðast millimál og sætindi.
Nei.
Nei
Nei
Ég man ekki eftir neinu.
Bara þetta með bætiefnin lýsi og vítamín ...
Niðurstöður rannsókna sýna að fólk sem borðar grænkerafæði er almennt minna þunglynt og kvíðið. Þarmaflóran virðist skipta þarna miklu máli og einnig koma aðrar breytur inn þar sem lífstíll fólks verður almennt betri eins og til dæmis meiri hreyfing og útivist. Við vitum líka út frá niðurstöðum rannsókna að það hefur jákvæð áhrif á andlega líðan að vera úti í náttúrunni og styrkir þarmaflóruna.
nei
Nei.
Nei.
Nei.
Nei
Nei
Nei
Nei.
Eflaust en nenni ekki að skrifa meira
Nei.
Nei, man ekki eftir neinu.
Nei
Nei
Nei
það þarf að fræða meira um sjálfbærni og hvað við getum gert sjálf til að varðveita haf og land til komandi kynslóða.
Sérfræðingur hjá stjórnarráðinu
Eftirlaunaþegi, starfaði áður sem kennari
Vísindarannsóknir
Ég er í endurhæfigu eins og er en starfaði þar áður sem grunnskólakennari.
ferðaþjónustu
Verkefnisstjóri
Ritari á sjúkrahúsi
Umhverfisstjóri orkufyrirtækis
Sjálfstætt starfandi
Sérræðingur á lífeyrissviði
Kaffisérfræðingut
Vinn á Landspítala, stjórnarmanneskja í grenndargarði
Ritstörf
Ég er kennari
Ég er að klára M.S í stjórnun og stefnumótun
Ilva
Ég er aðstoðarkona í menntaskóla
Fræðimennsku.
Náttúrufræðingur
Kvikmyndagerðarkona, framkvæmsastýra félagasamtaka og lífs- og heilsuþjálfari.
Var að segja upp hlutastarfi við háskóla íslands sem aðstoðarmanneskja í rannsóknum
Gamalmenni sem fæst við nýsköpun á sviði þörungaræktar.
Hugbúnaðarsérfræðingur
Listamaður og veitingamaður
Er hætt vinna
Er komin á eftirlaun, vann við prent- og útgáfuiðnaðinn auk kennslu í þeim greinum.
NPA
Æskulýðsfulltrúi
Ég starfa sem leikskólakennari.
Doktorsnemi og kennari.
Listgreinakennari, hönnuður og rek fyrirtæki.
Var skrifstofumaður nú eftirlaunaþegi.
Vinn í heilbrigðisgeiranum.
Er persónulegur ráðgjafi fatlaðs manns í hlutastarfi en kominn á eftirlaun einnig.
Er á eftirlaunum, starfa yfir sumarmánuðina við eftirlit á golfvöllum GKG.
Hjúkrunarnemi á LSH
Ég er komin á eftirlaun.
Er atvinnulaus sem stendur
Gullsmiður
Ég starfa í opinbera geiranum.
Ég er sálfræðingur.
Skrifstofustörf
Á lífeyri.
Grunnskólakennari.
Ég vinn í verslun.
Ég er háskólanemi.
Starfsmaður í félagsmiðstöð
Er stöðvastjóri á tveimur N1 stöðvum.
Stjórnandi í opinberri stofnun
Skjalavörslu
Rafvirkjameistari og rafhönnuður, og starfa sem rafhönnuður.
Ég er sjálfstætt starfandi fræðimaður.
Ég er háskólanemi
Er starfsmaður hjá skátafélagi og er í skóla
Hætt að starfa
Hársnyrtir
Ég starfa við skrif.
Er menntaður tölvunarfræðingur, vinn sem forritari í startup fyrirtæki.
Skrifstofustörf
Í grunnskóla.
Sölufulltrúi í heildverslun
Matartæknir unnið í mötuneiti fyrir aldraða
Embættismaður.
Lögregla
Ég er heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogssvæðis.
Lektor í HÍ
Hjúkrun/ eftirlaun
Meistaragráða frá Danmörku
Hjúkrunarfræðingur
Grunnskólakennarafræði, B.Ed.
MA í skapandi atvinnugrein
Er í framhaldsnámi í háskóla
Viðskiptafræðingur
B.Sc. í jarðfræði, diplóma í kennslufræði, M.Sc. í jarðefnafræði og á 25% eftir af meistaragráðu í verkefnastjórnun.
Mastersgráða
BS í viðskiptafræði
BA háskólagraða
Listnám, ræktun
Grunnskóli
Framhaldsnám í háskóla
B.S í viðskiptafræði og bráðum M.S. í stjórnun og stefnumótun við HÍ
Listfræði
Þjóðfræðingur
Doktorspróf í listfræði.
BS hon - líffræði
Er að klára BA nám
B.A próf
Á framhaldsskólastigi af náttúrufræðibraut, einkaþjálfun og kvikmyndagerðmeð með tonn af námskeiðum og sjálfsmenntun á mörgum sviðum.
Klára BS í næringarfræði í vor.
Dipl Ing.
B.Sc. gráða í tölvunarfræði. Meistaragráða í verkefnastjórnun (MPM).
Meistarapróf í listum
Leikskólakennari
Iðnskóli, kennaramenntun, framhaldsnám í kennslugreinum verkmennta.
Klára BA í mannfræði
Fíflafabrikkan
Leikskólakennari Fósturskóli
Myndmenntakennari Kennaraháskóli
Leirlistarkona Mynd og Hand
Glassdesigner Designskolen Kolding
Meistaragráða.
BA í myndlist, M.Art.Ed í listkennslu og MA í hönnun.
Samvinnuskólapróf
Hæsta menntunarstig mitt er M.A. frá H.Í.
Félagsráðgjafi.
Gagnfræðaskóli og tónlistarmenntun.
Útskrifast með BS í hjúkrunarfræði í vor.
Sálfræðingur.
B.A próf í hugvísindum
Gullsmiður
Háskólamenntun, framhaldsnám
Framhaldsmenntun á háskólastigi.
Cand.psych í Sálfræði.
Verslunarpróf frá Verslunarskóla Íslands
Fv. hjúkrunarfræðingur með MS. gráðu.
B.sc. í umhverfis og orkufræði
2 diploma á menntasviði.
Ég er með BA-gráðu í hönnun.
Ég er háskólanemi.
Stúdentpróf.
BA í mannfræði og MA í mannauðsstjórnun.
Meistarapróf úr háskóla
Sagnfræði
Raffræðingur A+B (Iðnmenntun, meistaraskóli og tækniskólinn í Reykjavík).
Ég lauk doktorsprófi árið 2011 frá íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands.
Ég er með bs í ferðamálafræði og er í master í markaðsfræði og viðburðarstjórnun
Er í skóla
Skrifstofu menntun, vélrituð og bókhald og síðan póst og símaskólinn upp í Stöðvarstjóranám
Hársnyrtimeistari
Ég er kvikmyndafræðingur.
Tölvunarfræði úr Háskólanum í Reykjavík
Viðskiptafræðingur
Framhaldsskólamenntun.
Grafískur hönnuður
Matartæknir
Viðskiptafræði.
Er að klára Bs í líffræði við Háskóla Íslands í júní 2022.
doktorsgráða
Háskólapróf og tvær diplomur í framhaldsmenntun.
Finnst undarlegt að það er nánast gengið út frá því að maður hafi gert miklar breytingar á mataræði sínu. Hef í raun ekki gert það nema að í dag fæst auðvitað margt sem ekki fékkst áður og þannig hægt að borða fjölbreyttari fæðu.
Spennandi verkefni, fróðlegt að vita hvað kemur út úr þvi
Nei
Hef engar athugasemdir.
Frábært verkefni og að verið sé ða leggja áherslu á þetta efni :-) - Gangi þér vel!
Flott!
Nei, bara flott!
Hún er löng
Nei. Bestu kveðjur
Nei, gangi ykkur vel og hlakka til að sjá niðurstöður :)
Nei, er bara orðin svoldið þreytt á að svara þessu :') nennti ekki að lesa yfir svörin mín svo þau eru kannski smá bull og röfl á köflum með helling af typos og málfarsvillum en who cares
Nei
Nei.
Nei, alls ekki.
Nei
éta sem mest af rjóma og rollukjeti
Svolítið löng með endurtekning um, allavega fyrir mig
Nei það var bara gaman að taka þátt og gangi þér vel.
Skemmtileg skrá
Helst til löng spurningaskrá :)
Mætti hafa fyrirframgefið val í sumum spurningum = minna pikk á tölvuna, fljótari úrvinnsla.
Nei
Nei
Nei.
Engir listar til að merkja við t.d. hvað er hollt, ég gleymdi alveg ávöxtum og grænmeti sem hollusut
Nei.
nei
Nokkuð löng, er vanari styttri spurningum.
Nei, engar athugasemdir.
Nei.
Nei
Nei
Þetta er ansi langt og ítarlegt, tók lengri tíma en ég bjóst við.
Ekki að öðru leyti en því að mér finnst þetta full langur listi spurninga svona í einni skrá.
Nei.
Nei mjög flott
Eh veit ekki
Nei
Nei
Nei, mjög góð spurningaskrá.
Nei
Skemmtilegt
Nei mjög athygliverð
Nei.
Mjög gaman að taka þátt
