Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1961)
Dating
period: 01.01.1994 - 01.01.2017
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-710
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Á morgnana finnst mér oftast best að borða lítið, oftast fæ ég mér kakó með kryddi og lækningasveppum, eða kaffi. Einstaka sinnum meira matarkyns, brauð, hrökkbrauð, egg, súpu, graut, ber, ávexti. Fer eftir árstíðum Hádegið er oft undir hælinn lagt, stundum afgangar frá kvöldinu áður, egg, brauðsneið, grænmeti. Sleppi oft hádegismat ef ég hef fengið mér morgunmat og finn ekki til svengdar. Aðalmáltíð dagsins er kvöldverðurinn þá borðar fjölskyldan oftast saman, fisk, grænmeti stöku sinnum kjöt.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég var án kjöts í 23 ár, hóf að borða aftur kjöt fyrir uþb. 5 árum. Ég aðhyllist fyrst og fremst mat sem er hreinn án aukaefna, heimagerður og ef kostur er lífrænn, hef gert það öll mín fullorðinsár.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Það sem hafði sennilega mestu áhryfin var að Kornmarkaðurinn opnaði á Skólavörðustíg. Það var nýr heimur sem opnaðist þar og við stelpurnar fórum að prufa okkur áfram með híðishrísgrjón, baunir og fleira. Forvitni og nýjung var sennilega eina ástæðan, ekki hægt að segja að ég hafi haldið mig við það mataræði.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Eftir að hafa kinnst Kornmarkaðinum fór maður að leita að uppskriftum sem pössuðu við hráefnið, svo leiddi eitt að öðru.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Já, það eru rúm 40 ár síðan ég tók mín fyrstu spor í Kornmarkaðinum. Ég hætti að borða kjöt og úrvalið af grænmeti og ávöxtum fór í gegnum árin vaxandi svo matreiðslan varð fjölbreyttari. Ég hef verið um 26 ára þegar ég hætti að borða kjöt, en fram að því borðaði ég allt og alskonar.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég er þeirrar skoðunar að hvert lífsskeið krefjist þess að mataræði sé aðlagað að breytingum á starfsemi líkamans. Í gegnum tíðina hef ég verið á allavega samsetningu mataræðis og ekki hægt að segja að ég hafi tileinkað mér algjörlega eitthvað eitt. Ég hef ítrekað breitt mataræði til að koma til móts við þarfir líkamans og heilsu. Það tekur oft tíma að finna út úr því hvar breytinga er þörf en eftir að það er fundið eru alltaf jákvæðar breytingar í kjölfarið. Félagslífið breyttist töluvert þegar ég hvorki borðaði kjöt né drakk áfengi að neinu ráði.

Questionnaire
Record type