Folk Customs Response

23.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1971)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-711
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
ég borða fjölbreytt fæði, borða mikið brauð og kaffi yfir daginn. Oftast heitan mat í hádegi og kvöld. Fisk og grænmeti oftast en líka pastarétti og salöt og í raun allt annað en mjólkurvörur og svínakjöt. breytist mikið með árstíðum, á sumrin borða ég mest grænmeti og haustin eru uppskerutími.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
mjög lengi

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég hef lesið mér til um næringarfræði og ég finn hvað gerir mér gott

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
smám saman komst ég að því að ég er með laktósa óþol. en ég hef aðhyllst margskonar mataræði í gegnum tíðina. Kjötlaust, sykurlaust og allskonar en þetta mataræði hefur verið að þróast með mér með árunum.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég borða sífellt meira grænmetisfæði, ég vil borða það sem er gott fyrir mig og jörðina

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Mér líður best ef ég fylgi mínu mataræði en ég finn breytingar ef ég dett í sælgæti eða borða rjómapönnukökur eða annað sem mér finnst gott. þá finn ég fyrir óþægindum og þreytu