Ljósmyndir

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: J0605-4105 Safnnúmer B: 2010-16
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sýningartexti
Jóhannes Reykdal, 1874-1946 Jóhannes bóndi og verksmiðjueigandi á Setbergi réðst óstuddur í það stórvirki sem varð til þess að Hafnarfjörður varð fyrsti raflýsti bær á Íslandi. Af ásettu ráði staðsetti hann verksmiðjuna við Hafnarfjarðarlæk til þess að geta nýtt aflið sem í honum bjó til að knýja verksmiðjuvélarnar áfram. Túrbínan var sett upp við Trésmíðaverkstæði Jóhannesar Reykdals árið 1903 og hún knúði fyrst átta vélar á verkstæðinu. Á næsta ári, 1904, fékk hann Halldór Guðmundsson, rafmagnsfræðing, til að setja upp 9 kW rafal sem þeir tengdu við túrbínuna. Þann 12. desember sama ár var fyrsta húsið tengt við rafstöðina og fimmtán önnur hús. Þar með hafði fyrsta almenningsrafveitan verið tekin í notkun fyrir tilstuðlan framtaksemi Jóhannesar Reykdals og hugvits Halldórs Guðmundssonar rafmagnsfræðings.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn myndaskrá