Fornleifar

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Traðirnar eru um 90 m langar en
hleðslan meðfram þeim hættir að sjást 43 m frá upphafi traðanna við hlað
Vestur- og Austurbæjanna. Eftir 43 m að 90 m eru traðirnar hærri en umhverfið
í kring. Traðirnar eru vel grasi grónar.
„Þegar komið var að Selfossi að
austan, var ekki farið yfir túnið frá Básum [Básnum] [23], enda var sá
vegur ekki lagður fyrr en um 1935. Frá ómunatíð hafði verið sveigt til
suðurs með túnunum. Var það kallað að „fara með görðum“. Þegar komið
var útsuður frá bænum, var komið í Traðirnar. Þær voru með hlöðnum grjótgörðum
beggja vegna.“ (Guðmundur Kristinsson 1991:18-19)
„1999: Traðirnar sjást enn, malarborin
[grasigróin í dag (2005)] heimreið frá túngarði heim á hlað. Austast, næst
bænum, milli nýlegra íbúðarhúsa, er lágur kantur meðfram tröðunum beggja
vegna, sennilega hlaðinn, en annars sést hvorki fyrir hleðslum né niðurgrefti
í tröðunum.“ (Guðrún Alda Gísladóttir. 2002:53)
Traðirnar liggja frá hlaði Austur-
og Vesturbæjar og þaðan í SV. Séu traðirnar gengnar frá bæjarhlaði þá er
Skákin á vinstri hönd og Framtún á þá hægri. Gamli vegurinn er við suðurenda
traðanna hann er sjáanlegur í dag en mikið niðurgrafinn og gróinn. Nýja
hverfið Fossland nær alveg að gamla veginum. Stólpi af gamla traðarhliðinu
stendur enn.
Aðrar upplýsingar
Heimildarmaður: Gunnar Gunnarsson
Safnnúmer
Safnnúmer B: 161794-11
Stærð
Lengd: 90 m
Staður
Staður: Selfoss I, 800-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Heimildir
Guðmundur Kristinsson. 1991. Saga
Selfoss I. Frá landnámi til 1930. Selfosskaupstaður.
Guðrún Alda Gísladóttir. 2002.
Menningarminjar í Sandvíkurhreppi. Svæðisskráning. Fornleifastofnun
Íslands, Reykjavík.
Upprunastaður
63°56'16.0"N 21°0'48.9"W