Fornleifar

1940
Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Hóllinn, sem er um 4 m á hæð, stendur hátt upp í landslaginu og stendur til að mynda mun hærra en fjárhúsin [165547-174-7]. Efst á hólnum eru greinileg merki um byggingu og töluvert af hleðslugrjóti. Sjá má óljósar línur byggingar, um 2 x 3 m, en mikið hrun er inn í hólfið. Norður af hólfinu má sjá hleðslu á tvo vegu. Ekki er hægt að greina hvort um hluta af byggingunni er að ræða eða annarri byggingu. Ljóst er að minjar á þessum hól eru mun eldri en fjárhúsið stóra við hliðina á því [165547-174-7]. Um 27 m suð-austur af fjárhúsunum [165547-174-7] er hóll sem virðist hafa hlaðist upp vegna sí endurtekinna bygginga á sama stað.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1940
Safnnúmer
Safnnúmer B: 165547-9
Stærð
Lengd: 3 m Breidd: 2 m
Staður
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund

Upprunastaður

63°49'51.5"N 20°56'5.8"W