Fjárhústóft
1940

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Um 300 m norður af Hólavatni eru
gríðarlega stór og heilleg fjárhús. Fjárhúsið er með niðurgrafinni hlöðu
í enda. Í kringum fjárhúsið er gerði/garðar [165547-174-8] sem mynda afmarkað
svæði við fjárhúsin og líkjast mest túngarði í kring um heimatún.
Innanmál fjárhússins er 13 m á
lengdina og 5 m á breidd. Breidd veggja er um 1 til 2 metrar. Garði er
í miðju fjárhúsinu.
Hlaðan er 6 x 4 m að innanmáli
og er hleðsluhæð gaflsins um 1,60 m.
Fjárhúsið er mjög heillegt þó nokkuð
sé farið að hrynja úr veggjum. Inngangur í fjárhúsin snýr í suður í átt
að Hólavatni. Um sjö metra langur garður liggur frá inngangi og hefur myndað
vegg eða skjól. Heimildarmaður greindi frá því að bárujárn hafi verið á
þaki þegar húsin voru rifin um 1940.
„Fremst í Lambhaganum, fram undir
Hólavatni, er rúst af stóru fjárhúsi og hlöðu og gerði við. Voru húsin
rifin um 1940, er nú notað sem fjárrétt og kallað Fjárhústóft.“ (Örnefnaskrá
Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6-7).
Aðrar upplýsingar
Heimildarmaður: Helgi Ívarsson
Titill
Sérheiti: Fjárhústóft
Ártal
Aldur: 1940
Safnnúmer
Safnnúmer B: 165547-7
Stærð
Lengd: 13 m
Breidd: 5 m
Staður
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Heimildir
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi,
Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun
Íslands.
Upprunastaður
63°49'51.5"N 20°56'5.8"W