Hólaborg
1920

Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Greinilegur mjög stór hóll sem
kallast Hólaborg [165547-174-3] stendur fast við nýlegt plan sem hefur
verið gert á svæðinu. Hóllinn ber þess merki að hafa myndast vegna sí endurtekinnar
búsetu á sama stað um langan tíma. Hóllinn sker sig mjög úr landslagi og
sést víða að.
Um allan hólinn má sjá merki um
að þar hafi staðið byggingar, þó flestar séu þær svo illa farnar að ekki
var unnt að merkja byggingarlag þeirra. Ein tóft er þó mjög greinileg á
suð-austurhluta hólsins, en samkvæmt heimildarmanni er það yngsta fjárhúsið
sem hætt var að nota um 1920. Fjárhúsið er með inngang mót suð-austri og
má sjá greinilega lögun þess, þó er nokkuð mikið af hruni inni í tóftinni.
Tröppur hafa verið við dyr. Hleðsluhæð veggja er um 1 m. Norðurhlið fjárhússins
er hærri og má sjá í fjögur umför af grjóti. Innanmál tóftarinnar er 7
x 2 m. Fyrir utan tóftina við suðurhlið hennar má sjá lítið hólf sem myndar
einskonar gerði eða rétt við suðurvegg tóftarinnar. Þetta hólf er ekki
niðurgrafið eins og húsið. Líklegt má telja að þetta hafi verið heystæði
fyrir fjárhúsið.
„Á Hólavelli [165547-174-2], nokkuð
vestur með Rjómabússkurði, er hár hóll með miklum rústum sem heitir Hólaborg
[165547-174-3]. Þar voru áður fjárhús frá Hólum, lögð niður um 1920.“
(Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6).
Aðrar upplýsingar
Heimildarmaður: Helgi Ívarsson
Titill
Sérheiti: Hólaborg
Ártal
Aldur: 1920
Safnnúmer
Safnnúmer B: 165547-4
Stærð
Lengd: 7 m
Breidd: 2 m
1 m
Staður
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Heimildir
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi,
Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun
Íslands.
Upprunastaður
63°49'51.5"N 20°56'5.8"W