Hólaborg

1920
Varðveitt hjá
Byggðasafn Árnesinga
Greinilegur mjög stór hóll sem kallast Hólaborg stendur fast við nýlegt plan sem hefur verið gert á svæðinu. Hóllinn ber þess merki að hafa myndast vegna síendurtekinnar byggingar á sama stað um langan tíma. Hóllinn sker sig mjög úr landslagi og sést víða að. Hóllinn er ekki náttúrusmíð. Um allan hólinn má sjá merki um að þar hafi staðið byggingar, þó flestar séu þær svo illa farnar að ekki var unnt að merkja byggingarlag þeirra. Ein tóft er þó mjög greinileg á suð-austurhluta hólsins [165547-174-4]. Ekki sér í mikið hleðslugrjót nema í fjárhúsinu. Líklegt að grjót hafi verið tekið úr eldri byggingum og sett í yngsta húsið. Hóllinn er 28 m frá suðri til norðurs og 19 m frá austri til vesturs. Hóllinn líkist mjög bæjarhól, en ekki eru til neinar heimildir um að bær hafi staðið á þessum stað. „Í Hólavelli [165547-174-2], nokkuð vestur með Rjómabússkurði, er hár hóll með miklum rústum, heitir Hólaborg. Þar voru áður fjárhús frá Hólum, lögð niður um 1920.“ (Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6).

Aðrar upplýsingar

Heimildarmaður: Helgi Ívarsson
Titill
Sérheiti: Hólaborg
Ártal
Aldur: 1920
Safnnúmer
Safnnúmer B: 165547-3
Staður
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
Aðfangategund
Heimildir
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun Íslands.

Upprunastaður

63°49'51.5"N 20°56'5.8"W